Fleiri fréttir Íslenskur selur sem tilheyrði bandaríska flotanum er dáinn Íslenski útselurinn Gunnar dó í Þjóðardýragarði Bandaríkjanna í Washington í gærkvöldi en hann náði 38 ára aldri. Gunnar var eitt sinn í þjónustu bandaríska flotans og sinnti þar ýmsum vekefnum meðan á kalda stríðinu stóð. 26.6.2012 09:21 Nær 80 börnum bjargað úr vændi í Bandaríkjunum Nær áttatíu börnum var bjargað úr vændi í viðamikilli aðgerð lögregluyfirvalda í Bandaríkjunum um helgina. 26.6.2012 07:13 Debby veldur neyðarástandi á Flórída Rick Scott, ríkisstjóri í Flórída, hefur lýst yfir neyðarástandi í ríkinu vegna hitabeltisstormsins Debby sem herjar nú á íbúa ríkisins. 26.6.2012 07:02 Gífurleg spenna í samskiptum Tyrkja og Sýrlendinga Gífurleg spenna ríkir nú í samskiptum Tyrklands og Sýrlands en Tyrkir hafa sakað Sýrlendinga um að hafa skotið á aðra herþotu sína í gærdag. 26.6.2012 06:46 Um 500 danskar netsíður með barnaklámi stofnaðar í fyrra Á síðasta ári voru stofnaðar um 500 nýjar netsíður með ólöglegu barnaklámi í Danmörku eða nær 10 síður í hverri viku ársins. 26.6.2012 06:39 MI5 berst við óvenjumikið af tölvuárásum á Bretland Breska leyniþjónustan MI5 segir að hún sé nú að berjast við óvenjumikið af tölvuárásum á bresk iðnaðarfyrirtæki og opinberar stofnanir. 26.6.2012 06:25 Allir fá netfang hjá Facebook Allir notendur Facebook hafa nýlega fengið netfang @facebook.com. Þetta er nýjung sem Facebook teymið tók upp á og vakti athygli í dag. 25.6.2012 23:53 Hægt að breyta athugasemdum á Facebook Facebook hefur nú tekið upp nýjan fídus sem gerir notendum kleift að breyta athugasemdum sem þeir hafa sett inn. Ekki þarf því lengur að ergja sig svo yfir innsláttar- eða stafsetningarvillum að heilu athugasemdunum sé eytt út, þó enn sé boðið upp á þann möguleika. 25.6.2012 22:45 Netanyahu býst við samstarfi við Bræðralag múslima Benjamin Netanyahu sagði á fundi með Vladimir Putin, rússneska forsetanum, að hann byggist við að ná samstarfi við Bræðralag múslima, nýja stjórn Egyptalands, sem byggi á friðarsáttmála landanna. 25.6.2012 16:22 Konur hrifnari af samskiptasíðum en karlmenn Konur eru hrifnari af samskiptasíðum en karlmenn, sem kjósa heldur leikja- og fjárhættuspilasíður. 25.6.2012 15:24 Sádí - Arabískar konur fá leyfi til að keppa á Ólympíuleikunum Yfirvöld í Sádí - Arabíu hafa gefið út yfirlýsingu að þeir ætli að leyfa konum að taka þátt í Ólympíuleikunum í ár. 25.6.2012 13:44 Magaminnkun dregur úr einkennum sykursýki hjá offitusjúklingum Ný rannsókn sem gerð var í Mayo heilsugæslunni í Scottsdale sýnir að magaminnkunaraðgerð dragi úr einkennum sykursýki 2. Skoðaðar voru læknaskýrslur 72 sjúklinga sem fóru í slíka aðgerð á árunum 2000-2007. 25.6.2012 11:56 Vilhjálmur prins fagnar þrítugsafmæli sínu á gúmmídekki í ísköldum sjó 25.6.2012 10:38
Sjá næstu 50 fréttir
Íslenskur selur sem tilheyrði bandaríska flotanum er dáinn Íslenski útselurinn Gunnar dó í Þjóðardýragarði Bandaríkjanna í Washington í gærkvöldi en hann náði 38 ára aldri. Gunnar var eitt sinn í þjónustu bandaríska flotans og sinnti þar ýmsum vekefnum meðan á kalda stríðinu stóð. 26.6.2012 09:21
Nær 80 börnum bjargað úr vændi í Bandaríkjunum Nær áttatíu börnum var bjargað úr vændi í viðamikilli aðgerð lögregluyfirvalda í Bandaríkjunum um helgina. 26.6.2012 07:13
Debby veldur neyðarástandi á Flórída Rick Scott, ríkisstjóri í Flórída, hefur lýst yfir neyðarástandi í ríkinu vegna hitabeltisstormsins Debby sem herjar nú á íbúa ríkisins. 26.6.2012 07:02
Gífurleg spenna í samskiptum Tyrkja og Sýrlendinga Gífurleg spenna ríkir nú í samskiptum Tyrklands og Sýrlands en Tyrkir hafa sakað Sýrlendinga um að hafa skotið á aðra herþotu sína í gærdag. 26.6.2012 06:46
Um 500 danskar netsíður með barnaklámi stofnaðar í fyrra Á síðasta ári voru stofnaðar um 500 nýjar netsíður með ólöglegu barnaklámi í Danmörku eða nær 10 síður í hverri viku ársins. 26.6.2012 06:39
MI5 berst við óvenjumikið af tölvuárásum á Bretland Breska leyniþjónustan MI5 segir að hún sé nú að berjast við óvenjumikið af tölvuárásum á bresk iðnaðarfyrirtæki og opinberar stofnanir. 26.6.2012 06:25
Allir fá netfang hjá Facebook Allir notendur Facebook hafa nýlega fengið netfang @facebook.com. Þetta er nýjung sem Facebook teymið tók upp á og vakti athygli í dag. 25.6.2012 23:53
Hægt að breyta athugasemdum á Facebook Facebook hefur nú tekið upp nýjan fídus sem gerir notendum kleift að breyta athugasemdum sem þeir hafa sett inn. Ekki þarf því lengur að ergja sig svo yfir innsláttar- eða stafsetningarvillum að heilu athugasemdunum sé eytt út, þó enn sé boðið upp á þann möguleika. 25.6.2012 22:45
Netanyahu býst við samstarfi við Bræðralag múslima Benjamin Netanyahu sagði á fundi með Vladimir Putin, rússneska forsetanum, að hann byggist við að ná samstarfi við Bræðralag múslima, nýja stjórn Egyptalands, sem byggi á friðarsáttmála landanna. 25.6.2012 16:22
Konur hrifnari af samskiptasíðum en karlmenn Konur eru hrifnari af samskiptasíðum en karlmenn, sem kjósa heldur leikja- og fjárhættuspilasíður. 25.6.2012 15:24
Sádí - Arabískar konur fá leyfi til að keppa á Ólympíuleikunum Yfirvöld í Sádí - Arabíu hafa gefið út yfirlýsingu að þeir ætli að leyfa konum að taka þátt í Ólympíuleikunum í ár. 25.6.2012 13:44
Magaminnkun dregur úr einkennum sykursýki hjá offitusjúklingum Ný rannsókn sem gerð var í Mayo heilsugæslunni í Scottsdale sýnir að magaminnkunaraðgerð dragi úr einkennum sykursýki 2. Skoðaðar voru læknaskýrslur 72 sjúklinga sem fóru í slíka aðgerð á árunum 2000-2007. 25.6.2012 11:56
Yfir 11.000 manns flýja skógarelda í Colorado Yfir 11.000 manns hafa neyðst til að flýja heimili sín undan miklum skógareldum í Colorado og dvelur fólkið nú í neyðarskýlum. 25.6.2012 06:49
Dýrategundum heimsins fækkar um eina Dýrategundum í heiminum fækkaði um eina í gærdag en þá dó risaskjaldbakan Einmanna George á Galapagoseyjum. 25.6.2012 06:42
Háttsettir herforingjar og hermenn flýja frá Sýrlandi Töluverður fjöldi háttsettra herforingja sem og hermenn hafa flúið úr sýrlenska hernum og yfir til Tyrklands um helgina. 25.6.2012 09:13
Hitabeltisstormurinn Debby herjar á íbúa Flórída Hitabeltisstormurinn Debby herjar nú á íbúa Flórída og hefur þegar kostað eitt mannslíf. 25.6.2012 06:45
78% Þjóðverja vilja Grikkland af evrusvæðinu Wolfang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, tjáði sig um stöðu Grikklands innan Evrópusambandsins í samtali við dagblaðið Bild am Sonntag í gær. Í viðtalinu ráðlagði Schäuble Grikkjum og sagði að þeir þyrftu að hætta að biðja um meiri aðstoð og snúa sér frekar að því að framkvæma gefin loforð. 25.6.2012 00:15
Mohammed Mursi verður næsti forseti Egyptalands Mohammed Mursi, forsetaframbjóðandi Bræðralags múslima, verður næsti forseti Egyptalands. Formaður yfirkjörstjórnar landsins tilkynnti þetta í dag. 24.6.2012 14:39
Orrustuþota Tyrkja var í alþjóðlegri lofthelgi Tyrkir hafa óskað eftir því að NATO-ríkin fundi til að ræða viðbrögð við því að Sýrlendingar skutu niður tyrkneska orrustuþotu síðastliðinn föstudag. 24.6.2012 12:00
Fékk 11 ára fangelsisdóm fyrir að hóta höfundum South Park Dómstólar í Bandaríkjunum hafa dæmt karlmann á fertugsaldri í ellefu ára fangelsi fyrir að hafa haft í hótunum við höfunda sjónvarpsþáttanna South Park. 24.6.2012 22:30
Mursi hvetur til áframhaldandi mótmæla Leiðtogi herráðs Egyptalands, Hussein Tantawi, hermarskálkur, hefur óskað Mohammed Mursi, nýkjörnum forseta Egyptalands, til hamingju með sigurinn. 24.6.2012 16:31
Grafhvelfing Elvis Presley fer ekki á uppboð Bandaríska uppboðshúsið Julien's Auction hefur hætt við fyrirhugað uppboð á grafhvelfingu Elvis Presley eftir að rúmlega tíu þúsund undirskriftir frá aðdáendum rokk konungsins bárust. 24.6.2012 16:00
Uppgötvuðu undarlegt sólkerfi Stjörnufræðingar hafa uppgötvað afar sérkennilegt sólkerfi í um 1.200 ljósára fjarlægð frá Jörðinni. Þar má finna tvær gerólíkar reikistjörnur, gasrisa og berghnött, á óvenju nálægum sporbrautum sem snúast á ógnarhraða um stjörnuna Kepler-36. 24.6.2012 14:00
Þrekvirki kínverskra geimfara Blað var brotið í sögu kínverskra geimferða þegar Shenzhou-9 geimflaugin lagði að Tiangong-1 rannsóknarstöðinni. Geimfararnir notuðust ekki við sjálfvirkan búnað líkt og venja er, þess í stað var handstýring ferjunnar notuð. 24.6.2012 11:15
Næsti forseti Egyptalands opinberaður í dag Egyptar bíða nú niðurstöðu forsetakosninga sem birta á í dag. Vika er frá kosningunum og hefur mikil spenna verið í landinu síðustu daga. 24.6.2012 10:45
Bretadrottning hittir fyrrverandi hryðjuverkaleiðtoga Martin McGuinnes, fyrrverandi leiðtogi hryðjuverkasamtakanna IRA, mun hitta Elísabetu Bretlandsdrottningu í tveggja daga heimsókn hennar til Norður Írlands í næstu viku. Breska blaðið Daily Telegraph segir að McGuinnes áformi að taka í hönd Elísabetar. Það verður gríðarlega stór áfangi í friðarferli á Norður-Írlandi, þar sem bardagar geysuðu á hverjum degi fyrir fáeinum árum. Enn hefur ekki verið ákveðið hvort McGuinnes og Elísabet munu takast í hendur í augsýn almennings eða ekki. 23.6.2012 09:13
Dæmdur vegna hryðjuverka á Balí Umar Patek, 45 ára meðlimur í Al-Kaída hryðjuverkasamtökunum var á fimmtudag dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að hafa smíðað bílsprengju sem notuð var til að sprengja skemmtistað á indónesísku eyjunni Balí árið 2002. Alls létust 202 í sprengingunni, þar á meðal 88 Ástralar og sjö Bandaríkjamenn. 23.6.2012 06:00
Elstu merki um notkun á mjólk Efnafræðilegar rannsóknir á leifum af ílátum sem talin eru um 7.000 ára gamlar sýna að fólk í Norður-Afríku var byrjað að nýta sér mjólk úr nautgripum mun fyrr en áður hefur verið sýnt fram á, mögulega til að bregðast við þurrkum á svæðinu. 23.6.2012 05:00
Krafðist sýknu við lok réttarhaldanna Tíu vikna réttarhöldum yfir hryðjuverkamanninum Anders Behring Breivik lauk fyrir rétti í Ósló í gær. Breivik hélt lokaávarpið í réttarhöldunum þar sem hann krafðist þess að vera látinn laus og hélt því fram að sagan myndi hreinsa hann af áburði. Fjölmargir áhorfendur í salnum yfirgáfu hann áður en Breivik hóf að tala. 23.6.2012 04:00
Fundu fimmtíu beinagrindur Fornleifafræðingar í Ástralíu fundu um fimmtíu beinagrindur af svokölluðum risavömbum í Queensland í gær. Beinin munu líklega gefa vísindamönnum betri skýringar á því hvers vegna tegundin dó út. 23.6.2012 04:00
Mega ekki framselja vald sitt Hæstiréttur í Arkansasríki í Bandaríkjunum hefur dæmt lög um dauðarefsingar þar ógild og segir þau ekki standast stjórnarskrá. Tíu fangar sem bíða þess að dauðadómi þeirra verði fullnægt höfðu áður gagnrýnt lögin. 23.6.2012 03:00
Talibanar réðust á borgara Vígbúnir talibanskir uppreisnarmenn réðust inn í hótel norður af Kabúl, höfuðborg Afganistans, og skutu á gesti í gær. Átján féllu, flestir þeirra óbreyttir borgarar. 23.6.2012 02:00
Stjórnarskrá Washingtons seldist á hundruð milljóna Eintak af bandarísku stjórnarskránni sem var í eigu George Washington seldist nýverið á 10 milljónir bandaríkjadala. Upphæðin nemur rétt tæplega 1300 milljónum íslenskra króna. Bókin var prentuð árið 1789, eða fyrsta árið sem George Washington sat í embætti. Fyrirfram var áætlað að bókin færi á einungis tvær til þrjár milljónir bandaríkjadala en niðurstaða uppboðsins varð allt önnur. Sagnfræðingar segja að það séu glósur sem Washington skrifar sjálfur í bókina sem geri hana svo verðmæta. Forsetinn hafi verið vel meðvitaður um það fordæmi sem hann myndi setja þeim forsetum sem fylgdu á eftir. 22.6.2012 23:59
Ís-te úr sjálfsala fyrir að Twitta Viðskiptavinir geta fengið ís-te úr sjálfsala með því einu að skrifa færslu á Twitter. 22.6.2012 23:42
Móðir fundin sek um að myrða tvö börn sín Hin breska Lianne Smith var fundin sek um að kæfa tvö börn sín 22.6.2012 17:02
Kona fær leyfi til að synda ber að ofan Kona fær leyfi til að synda ber að ofan eftir að hafa farið í tvöfalt brjóstanám 22.6.2012 15:57
Ólympíufulltrúa Sýrlands meinaður aðgangur inn í Bretland Ólympíufulltrúa Sýrlands, Mowaffak Joumaa hershöfðingi, hefur verið meinaður aðgangur inn í Bretland sem gerir honum ókleift að mæta á leikana 22.6.2012 14:36
Breivik varar við því að skoðanabræður sínir geri árásir Fjöldi fólks sem viðstaddur var réttarhöldin yfir Anders Behring Brevik, norska fjöldamorðingjanum, yfirgaf dómhúsið þegar Breivik var gefinn kostur á að tjá sig um réttarhöldin undir lok þeirra í dag. Salurinn hafði áður verið fullur af áhorfendum. 22.6.2012 14:26
Samkynhneigðir verða enn fyrir fordómum á vinnustöðum Rannsókn sem gerð hefur verið á lífi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks er að finna upplýsingar um fordóma á vinnustað 22.6.2012 13:43
Leiðtogar evrusvæðisins hittast til að ræða gjaldmiðlakreppu Leiðtogar Þýskalands, Spánar, Frakklands og Ítalíu hittast í Róm í dag á ráðstefnu til þess að takast á við gjaldmiðla kreppu 22.6.2012 12:01
Myndir af frægum notaðar til að kenna börnum um líkamsímynd Yfirvöld í Bretlandi gefa út bækling til að hjálpa foreldrum að kenna börnum um líkamsímynd. 22.6.2012 10:14
Lokadagur réttarhaldanna yfir Breivik Lokadagur réttarhaldanna yfir norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik fer fram í dag með því að verjendur flytja mál sitt og Breivik sjálfur gefur lokayfirlýsingu. Verjendur Anders Behring Breivik færa í málflutningi sínum rök fyrir því að hann sé heill á geði og eigi því að vera dæmdur í fangelsi. Í gær færðu sækjendur hins vegar rök fyrir því að hann eigi að vera dæmdur vanheill og eigi þar með að vistast á réttargeðdeild. Breivik hefur sjálfur viðurkennt að hafa orðið 77 manns að bana og sært meira en 240 þann 22. júlí í fyrra. 22.6.2012 09:38
Mikill bardagi við vinsælt hótel í Kabul Hópur Talibana vopnaður hríðskotabyssum og eldflaugum réðist inn á vinsælt hótel í Kabúl höfuðborg Afghanistan þar sem brúðkaupsveisla var í gangi. 22.6.2012 06:45
Meira finnst af ís á Mars Fundist hefur meira af ís á Mars. Ísinn fannst í eldgígnum Shackleton við suðurpól plánetunnar en það var eitt af könnunarförum bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA sem fann ísinn. 22.6.2012 06:43