Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dánarvottorð Steve Jobs opinberað Banamein Steve Jobs, fyrrum forstjóra og stofnanda Apple, hefur nú verið opinberað. Samkvæmt dánarvottorði lést Jobs úr andnauð sem orsakaðist vegna meinvarpa. Jobs þjáðist af krabbameini og hafði illkynja æxli í brisi. 11.10.2011 10:46
Kappræður í Bandaríkjunum í dag Repúblikaninn og fylkisstjóri Texas, Rick Perry, vonast til að endurheimta efsta sæti skoðanakannana eftir kappræðurnar í New Hampshire í dag. 11.10.2011 10:18
Júlía Tymoshenko misbeitti valdi sínu Dómari í Úkraínu hefur komist að þeirri niðurstöðu að Julía Tymoshenko fyrrverandi forsætisráðherra landsins hafi misbeitt valdi sínu þegar hún skrifaði undir gas samning við Rússa árið 2009. 11.10.2011 09:54
Unnu átján milljarða í lottó Nöfn hjóna frá Cambridge skíri í Bretlandi verða gerð opinber síðar í dag en á föstudaginn var duttu þau í lukkupottinn og unnu 101 milljón punda í Euromillions lottóinu, eða rúma átján milljarða íslenskra króna. Þau voru ein með allar tölur réttar og teljast nú á meðal ríkustu Englendinga. Til dæmis eru þau einni milljón punda ríkari en poppstjarnan David Bowie. Um er að ræða þriðja stærsta lottóvinning sögunnar í Bretlandi en sá stærsti, 160 milljónir punda féll í skaut skoskra hjóna fyrr á þessu ári. 11.10.2011 09:49
Kosið í Líberíu Kjörstaðar opnuðu í Líberíu í dag. Þetta er í annað sinn sem kosið er í Líberíu síðan borgarstyrjöldinni lauk árið 2003. 11.10.2011 09:26
Föngum sleppt í Búrma Yfirvöld í Búrma tilkynntu í morgun að þau ætli að náða 6300 fanga á einu bretti. Ekki er ljóst hve stór hluti þeirra er í fangelsi vegna pólitískra skoðanna sinna en yfirlýsingin kemur í kjölfar þess að nýstofnuð mannréttindanefnd í landinu hvatti til þess að samviskufangar sem ríkinu stafi ekki hætta af ættu að fá frelsi. Talið er að tvöþúsund pólítískir fangar séu í haldi í Búrma. 11.10.2011 08:43
Danskur liðþjálfi fyrir herrétt Liðþjálfi í danska hernum hefur verið dreginn fyrir herrétt fyrir að skipa mönnum sínum inn á jarðsprengjusvæði í Afganistan. Atvikið átti sér stað þann þriðja september en þá sprakk sprengja í vegarkanti með þeim afleiðingum að hinn 22 ára gamli Jakob Olsen féll og fjórir félagar hans særðust. 11.10.2011 08:38
Slóvakar greiða atkvæði um stækkun neyðarsjóðsins Slóvakíska þingið mun síðar í dag greiða atkvæði um hvort rétt sé að stækka neyðarsjóð evrusvæðisins en Slóvakía er síðasta ríkið sem á eftir að útkljá málið af þeim sautján sem aðild eiga að evrusvæðinu. 11.10.2011 08:20
Versta umhverfisslys í sögu Nýja-Sjálands Óttast er að allt að þrjúþúsund tonn af olíu hafi þegar lekið úr tönkum flutningaskipsins Rena sem strandaði við Nýja Sjáland á miðvikudaginn í síðustu viku. Stjórnvöld segja að um versta umhverfisslys í sögu landsins sé að ræða en það gæti þó versnað til muna þar sem tæp 1700 tonn eru eftir af olíu í skipinu. Slæmt veður á svæðinu hefur ennfremur komið í veg fyrir að menn geti dælt olíu af Renu sem er 236 metrar á lengd og í eigu grísks skipafélags. 11.10.2011 08:19
Óróaseggir frá Sögueyjunni Innrás frá Sögueyjunni skrifaði Altaposten í Noregi vegna drykkjuláta fjögurra Íslendinga í Alta aðfaranótt laugardags. 11.10.2011 06:00
Birting á nafni Önnu sætir harðri gagnrýni Anna Björnsdóttir, fyrrverandi fegurðardrottning og leikkona, getur verið í hættu stödd eftir að bandaríska dagblaðið Boston Globe skýrði frá því að það hefði verið hún sem bar kennsl á hinn eftirlýsta glæpamann James "Whitey“ Bulger. 11.10.2011 04:15
Lætur árásum á kristna órefsað Koptíska kirkjan í Egyptalandi gagnrýndi stjórnvöld harðlega fyrir að láta endurteknum árásum á kristna menn lítt eða ekki refsað. 11.10.2011 01:00
Fékk ofgreiddar húsaleigubætur Lögregluyfirvöld í Svíþjóð rannsaka nú meint fjársvik Håkans Juholt, leiðtoga Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð. Hann hefur í mörg ár fengið fulla greiðslu fyrir búsetu í Stokkhólmi þótt sambýliskona hans hafi búið þar með honum. 11.10.2011 00:30
Ekkert bólar á Gaddafí ennþá Byltingarmenn í Líbíu hafa fagnað falli Sirte, fæðingarborgar Múammars Gaddfí, þótt hann sjálfur sé enn ekki fundinn. Bardagar geisuðu áfram í borginni, þótt miðbærinn sé fallinn í hendur byltingarmanna. 11.10.2011 00:00
Sólarorka að nóttu til Vísindamenn á vegum Spánar og Sameinuðu Arabísku Furstadæmanna hafa reist fyrstu sólarorkustöðina sem starfar allan sólarhringinn. 10.10.2011 17:24
Segjast ekki hafa notað Trójuhest Innanríkisráðuneyti Þýskalands þvertekur fyrir að forriti hafi verið komið fyrir í tölvum Þjóðverja í þeim tilgangi að njósna um þá. Það voru samtök tölvuhakkara sem segjast hafa fengið forritið í hendurnar og komist að því að það væri skrifað af Þýska ríkinu. 10.10.2011 16:44
Sjóslys við strendur Flórída Ein manneskja drukknaði eftir að skúta hvolfdi út fyrir ströndum Flórída í gær. Alls átta manns voru í bátnum og náðu sjö af þeim að halda sér á floti í 20 klukkutíma áður en veiðiskip kom að þeim. 10.10.2011 16:23
Hræddur hundur slær í gegn á netinu Myndband af hundi sem er dauðhræddur við mynd af leikkonunni Juliu Roberts fer eins og eldur í sinu um netheima. 10.10.2011 16:22
Picasso í ruslagámi Listaheimurinn tók andköf í maí á síðasta ári þegar bíræfinn þjófur hnuplaði fimm listaverkum af Musée d'Art Moderne í París. Málverk eftir Picasso og Matisse voru á meðal þeirra sem var stolið. 10.10.2011 16:05
Efnahagsvandi Evrópu til umræðu á G20 fundinum Í bréfi til æðstu stjórnenda Evrópusambandsins sögðu Jose Manuel Barroso og Herman Van Rompuy, forsetar Framkvæmdarstjórnar og Leiðtogaráðs Evrópusambandsins, að efnahagsvandi Evrópu yrði helsta umræðuefni G20 fundarins nú í nóvember. 10.10.2011 15:04
Ráðist á kröfugöngu kvenna í Jemen Talið er að 22 konur hafi slasast í kröfugöngu í Jemen í gær. Þúsundir kvenna komu saman til að fagna því að Tawakkol Karman hafi fengið friðarverðlaun Nóbels á föstudaginn. Hún var ein þriggja kvenna sem fengu verðlaunin fyrir baráttu sína fyrir réttindum kvenna. 10.10.2011 14:03
Vilja hefja samningaferlið að nýju Mark Regev, talsmaður Benjamin Netanyahu, segir að Ísrael sé reiðubúið að hefja samningaferlið við Palestínu að nýju. Hann sagði að báðir aðilar verði að vera skapandi í málamiðlunum, annars sé samkomulag ómögulegt. Regev sagði að lokamarkmið samningaferlisins sé að verða að kröfu Palestínumanna um sjálfstætt ríki ásamt því að uppfylla öryggiskröfur Ísrael. 10.10.2011 13:35
Bætur greiddar eftir bræðsluslys í Fukushima Fyrrum íbúar hamfarasvæðanna í Japan flykkjast nú á skrifstofur Tepco, fyrirtækisins sem annaðist viðhald og rekstur kjarnorkuversins í Fukushima. Krafan er einföld, þau vilja fá bætur fyrir hörmungarnar sem fylgdu í kjölfarið á bræðsluslysinu í kjarnorkuverinu. 10.10.2011 13:11
Bandarískir hagfræðingar hljóta Nóbelsverðlaun Thomas Sargent og Christopher A. Sims hlutu hagfræðiverðlaun Nóbels nú fyrir stuttu. 10.10.2011 11:34
Samsung frestar Nexus Prime Samsung hefur frestað sjósetningu nýjasta snjallsíma síns, Nexus Prime. Var þetta gert af virðingu við Steve Jobs. 10.10.2011 11:10
Fellibylurinn Jova nálgast strendur Mexíkó Fellibylurinn Jova nálgast strendur Mexíkó óðfluga. Samkvæmt veðurathugunum á vegum vísindamanna í Bandaríkjunum er Jova nú þriðja stigs fellibylur og er því fær um að valda stórfelldum skaða. 10.10.2011 10:50
Örlög Liam Fox ákveðin í dag Búist er við að niðurstaða liggi fyrir í dag í máli Liam Fox, einum af æðstu mönnum varnarmálaráðuneytis Bretlands. Hann er sakaður um að hafa gefið fyrrum skólafélaga sínum og vini aðgang að gögnum ráðuneytisins. 10.10.2011 10:32
Fleiri handtökur í kjölfar óeirða á Bretlandi Yfirvöld í Bretlandi eru enn að rannsaka mál tengd óeirðunum þar í sumar. Lögreglumenn fara í gegnum gríðarlegt gagn myndbandsupptakna í þeirri von að handsama þá sem brutu af sér. 10.10.2011 10:07
Telur byltingu væntanlega í Bandaríkjunum Herforingi í Íran segir mótmælin gegn Wall Street í Bandaríkjunum eiga margt sameiginlegt með mótmælum síðustu mánaða í Arabaheiminum. 10.10.2011 09:46
Uppreisnarmenn með undirtökin í Sirte Nú virðist aðeins vera tímaspursmál hvenær bærinn Sirte í Líbíu fellur í hendur uppreisnarmanna sem nú fara með völdin í Líbíu. Sirte er fæðingarbær Múammars Gaddafís fyrrverandi einræðisherra landsins og þangað höfðu hörðustu stuðningsmenn hans hörfað þegar leiðtoginn missti tökin í landinu. 10.10.2011 08:24
Óttast mengunarslys á Nýja Sjálandi Olía úr flutningaskipinu Rena hefur nú náð landi á austuströnd Nýja Sjálands en skipið strandaði fyrir fimm dögum undan ströndinni. Yfirvöld hafa beðið fólk um að halda sig fjarri ströndinni en tilraunum til að dæla þeirri olíu sem eftir er á tönkum skipsins hefur verið hætt sökum versnandi veðurs. 10.10.2011 08:22
Tusk sigraði í Póllandi Forsætisráðherra Póllands Donald Tusk og flokkur hans fóru með sigur af hólmi í þingkosningunum sem fram fóru í landinu í gær. Samkvæmt fyrstu tölum fékk flokkur Tusks rúmum tíu prósentum meira en flokkur Jaroslaws Kaczynskis, sem leiðir stærsta stjórnarandstöðuflokkinn. 10.10.2011 08:19
Tugir féllu í átökum í Kaíró Mikil átök brutust út í Kairó höfuðborg Egyptalands og felldu öryggissveitir ríkisstjórnarinnar 24 mótmælendur, sem flestir tilheyra Koptísku kirkjunni, hinni fornu þjóðkirkju Egypta. 10.10.2011 08:18
Fríða kom upp um „dýrið“ "Það er ótrúlegt að það hafi þurft fegurðardrottningu frá Íslandi til þess að hafa uppi á einum hættulegasta glæpamanni Bandaríkjanna," segir rannsóknarblaðamaður Boston Globe um mál Whitey Bulger sem var handtekinn eftir ábendingu frá Önnu Björnsdóttur. 9.10.2011 19:30
Listamenn „Yfirtaka Wall Street" Síðustu 22 daga hefur fólk í Bandaríkjunum mótmælt vegna efnahagsástands landsins undir yfirskriftinni „Yfirtökum Wall Street". Hingað til hefur lögregla þó meinað þeim aðgang að götunni sjálfri. Í gær barst hreyfingunni liðsauki úr óvæntri átt, því listamenn settu upp sýningu innblásna af mótmælunum í húsi við götuna. Hún var nánar tiltekið sett upp í húsi sem byggt var árið 1914 sem höfuðstöðvar fjárfestisins J. P. Morgan. 9.10.2011 18:32
Óeirðir í Egyptalandi Hundruðir kristinna manna mótmæla nú á götum Kairó í Egyptalandi vegna niðurrifs kirkju í sveitaþorpi. Samkvæmt ríkissjónvarpi Egyptalands er hefur einn maður látist í óeirðum nú þegar. Mótmælin eru leidd af nokkrum biskupum úr koptísku kirkjunni (e. Coptic Orthodox Church) en það er opinbert nafn stærstu kirkju kristinna manna í Egyptalandi og Mið-Austurlöndum. Mótmælin áttu að fara friðsamlega fram, en fóru fljótt úr böndunum þegar fólk á svölum hóf að grýta mótmælendurna með steinum. Nú ríkir fullkomin ringulreið á götum borgarinnar. Mótmælendurnir krefjast þess að kirkjan verði endurbyggð og ríkisstjórinn sem fyrirskipaði niðurrif hennar segi af sér. 9.10.2011 17:47
Viðvörun til stuðningsmanna andstöðunnar Stjórnvöld í Sýrlandi vöruðu í dag við því að þau muni snúast harkalega gegn hverju því landi sem styður formlega tilvist nýstofnaðs Þjóðarráðs Sýrlands. Þjóðarráðið nýstofnaða samanstendur af andstæðingum Bashar al-Assad. Vestræn ríki eins og Bandaríkin og Frakkland hafa fagnað myndun þess, en þau hafa ekki boðið því formlega viðurkenningu. 9.10.2011 16:59
Alþjóðlegir sérfræðingar í Fukushima Sérfræðingar frá Alþjóðlegu kjarnorkustofnunin (INEA) eru staddir í Fukushima-borg til að fylgjast með tilraunum yfirvalda til að hreinsa svæðið. Hópurinn sem samanstendur af tólf mönnum mun gefa yfirvöldum í Japan stutta skýrslu um heimsókn sína í lok næstu viku. Hann mun svo setja saman ítarlegt yfirlit um málið sem verður opinberað í næsta mánuði. 9.10.2011 16:06
Fellibylur við strendur Mexíkó Fellibylur sem nefnist Jova stefnir nú upp að ströndum Mexíkó. Fellibylurinn er nú í styrktarflokki eitt og mældist vindhraði hans í morgun um 140 km/klst. Gert er ráð fyrir því að fellibylurinn styrkist enn frekar á næstu dögum og búast menn við því að hann gangi á land í Mexíkó á þriðjudaginn eða seint á mánudag. 9.10.2011 15:30
Eldgosaviðvörun á Kanaríeyjum Stjórnvöld á Kanaríeyjum gáfu í dag út eldgosaviðvörun til að bregðast við langvarandi smáskjálftahrinu sem staðið hefur síðustu þrjá mánuði. Yfirvöld á Kanaríeyjunni El Hierro gáfu í dag út 2. stigs eldgosaviðvörun í kjölfar jarðskjálfta sem náði 4,3 á richter sem skók eyjuna í gær. Smáskjálftavirkni hefur verið mikil á svæðinu að undanförnu. 9.10.2011 13:57
Komnir á lokasprettinn í Líbíu Þjóðarráð Líbíu segir „komið að lokakafla bardagans" og uppreisnarmenn séu á síðasta sprettinum við að leggja Sirte undir sig. Uppreisnarmenn náðu tökum á Háskóla bæjarins í nótt, og stjórna nú stórum parti svæðisins. „Enn er nokkuð eftir af bardaganum, en það má segja að við séum á lokasprettinum," sagði Al Zubair Al Kadi, foringi í her Þjóðarráðsins. 9.10.2011 13:34
Chávez styður bandaríska mótmælendur Hugo Chávez, forseti Venesúela, lýsti yfir samstöðu með bandarískum mótmælendum sem síðustu daga hafa mótmælt breikkandi bili milli ríkra og fátækra í Bandaríkjunum. „Fátækt eykst og eymdin verður stöðugt meiri," sagði Chávez um ástandið í Bandaríkjunum og bætti við að samúð sín lægi öll hjá mótmælendum sem lent hefðu í fangelsi vegna mótmælanna undanfarið. 9.10.2011 13:20
Tveir létu lífið í sprengingu Að minnsta kosti tveir létu lífið þegar sprenging varð í vöruhúsi í þorpinu Andst á Jótlandi í Danmörku í gær. Húsið varð fljótt alelda og gekk illa að slökkva eldinn en ekki liggur fyrir hversu margir voru í húsinu þegar sprengingin varð. Mikið magn af flugeldum var geymt í húsinu og var því ákveðið að rýma nálæg íbúðarhús af ótta við fleiri sprengingar. Ekki liggur fyrir hvað olli sprengingunni. 9.10.2011 13:00
Tusk spáð sigri í Póllandi Borgaravettvangi, flokki Donalds Tusk forsætisráðherra Póllands, er spáð sigri í þingkosningum í Póllandi í dag. Gangi það eftir verður það í fyrsta skipti sem ríkisstjórn heldur velli í þingkosningum þar í landi frá lokum kalda stríðsins. Stærsta stjórnarandstöðuflokknum, laga og réttlætisflokki Jaroslaw Kanczynski, er einnig spáð góðu gengi en fylgi flokksins hefur farið vaxandi á undanförnum vikum. Kjörstaðir voru opnaði í morgun en um þrjátíu milljónir eru á kjörskrá. 9.10.2011 11:26
Íslensk fegurðardrottning stöðvaði glæpamann Bandaríska blaðið Boston Globe fjallar ítarlega um handtökuna á James "Whitey" Bulger sem var á topp tíu lista FBI yfir eftirlýsta glæpamenn í dag. 9.10.2011 12:00