Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mannskæð flóð í Tælandi Mikil flóð hafa verið á Tælandi undanfarna mánuði og er talið að minnsta kosti 237 hafi farist í flóðunum. 5.10.2011 20:28
Bleik Kristsstytta í Rio de Janeiro Kristsstyttan sem vakir yfir Rio de Janeiro er nú böðuð bleikri birtu. Er þetta gert í tilefni af mánaðarlangri vitundarvakningu um brjóstakrabbamein sem nú stendur yfir. 5.10.2011 20:14
Mál fangavarða útrýmingarbúða tekin upp Þýskir saksóknarar rannsaka nú að nýju fjölda mála tengdum grunuðum fangavörðum í útrýmingarbúðum nasista. 5.10.2011 20:00
Sólhringsverkfall í Grikklandi - steinum kastað í lögreglu Athafnalíf í Grikklandi hefur verið lamað frá miðnætti en þar stendur nú yfir sólarhrings allsherjarverkfall. Gríska óeirðarlögreglan þurfti á beita táragasi á mótmælendur sem köstuðu steinum í lögreglumenn. 5.10.2011 18:39
Indversk stjórnvöld kaupa hræódýrar tölvur fyrir skólanema Indversk yfirvöld hafa fest kaup á hundrað þúsund smágerðum tölvum með snertiskjám. Tölvurnar eru í ætt við iPad tölvur Apple fyrirtækisins. Það er þó einn munur. Sú Indverska kostar aðeins 35 dollara, eða fjögur þúsund krónur. 5.10.2011 16:29
Óttast að HIV smitaður maður hafi sængað hjá hundruðum kvenna Lögreglan í Bretlandi biðlar til hundraða kvenna um að gefa sig fram hafi þær einhvern grun um að hafa sofið hjá hinum 38 ára gamla Simon McClure. Simon, sem er frá Middlesbrough, var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að sofa hjá konum án þess að greina frá því að hann væri sýktur af HIV veirunni. 5.10.2011 14:46
Gómaði þjóf með aðstoð Facebook Tæplega sextugur Breti hafði upp á þjófi í gegnum samskiptavefinn Facebook á dögunum. Bretinn uppgötvaði einn morguninn að það var búið að stela keðjusög og trjáklippum sem voru geymdar í skúr á bak við húsið hans. Andvirði þýfisins eru rúmlega 50 þúsund íslenskar krónur. 5.10.2011 13:46
Sagðir hafa lagt á ráðin um að myrða Karzai Afganska leyniþjónustan segist hafa handtekið sex menn sem grunaðir eru um að hafa lagt á ráðin um að myrða Hamid Karzai forseta landsins. Hinir handteknu eru sagðir meðlimir í öfgasamtökunum Haqqani sem á síðustu mánuðum hafa myrt marga hátt setta Afgana. Í síðasta mánuði var fyrrverandi forseti landsins, Burhanuddin Rabbani, myrtur af manni sem talinn er hafa tilheyrt samtökunum en þau starfa jafnt í Afganistan og í Pakistan og eru tengd Talibönum nánum böndum. 5.10.2011 13:33
Taj Mahal að hruni komið Fjölsóttasti ferðamannastaður Indlands, grafhýsið Taj Mahal, er við það að hrynja til grunna að sögn sérfræðinga. Átak hefur veri sett í gang til þess að reyna að afla fjármuna til þess að bjarga byggingunni sem Mógúllinn Shah Jahan byggði til minningar um konu sína sem lést af barnsförum fyrir rúmum 350 árum. Undirstöður byggingarinnar eru úr tréi sem farið er að rotna og nú er svo komið að sprungur eru farnar að myndast í marmaraveggina. 5.10.2011 12:07
Óttast um óbreytta borgara í Sirte Óttast er um fjölda óbreyttra borgara sem fastir eru í borginni Sirte í Líbíu en þar gera uppreisnarmenn nú lokatlögu að stuðningsmönnum Múammars Gaddafí fyrrverandi leiðtoga. Rafmagnslaust hefur verið í borginni svo dögum skiptir og er kominn upp vatnsskortur auk þess sem lyf eru af skornum skammti. 5.10.2011 12:04
Pútín vill stofna Evrasíubandalag Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, lagði til í blaðagrein í gær að stofnað yrði nýtt Evrasíusamband, bandalag fyrrverandi Sovétlýðvelda sem gæti keppt við Evrópusambandið, Bandaríkin og Asíuríki á alþjóðavettvangi. 5.10.2011 11:00
Amanda Knox komin heim Amanda Knox, bandaríska stúlkan sem sökuð var um morð á herbergisfélaga sínum á Ítalíu, er komin til síns heima í Seattle í Bandaríkjunum. Fjöldi fólks tók á móti stúlkunni á flugvelli borgarinnar og sagði hún það yfirþyrmandi að vera komin aftur á bandaríska grund. Knox, sem er 24 ára gömul og kærasti hennar voru sýknuð af morðinu á Meredith Kerchner sem var frá Bretlandi. Þau hafa eytt síðustu fjórum árum í ítölsku fangelsi. Foreldrar Kerchner hafa sagt að þau muni ekki láta staðar numið í leitinni að morðingja dóttur þeirra. 5.10.2011 09:00
Ein fórst í þyrluslysinu í New York Ein kona fórst og tveir aðrir eru alvarlega slasaðir eftir að þyrla hrapaði í Austurá sem rennur í gegnum New York borg í Bandaríkjunum. Vitni hafa lýst því hvernig þyrlan, sem er í einkaeigu og af geðinni Bell 206, snérist stjórnlaust stuttu eftir flugtak og hrapaði síðan í ánna. Talið er að þyrlan hafi verið á hvolfi þegar hún skall á vatnsfletinum. Óljóst er enn hvað olli slysinu en um borð voru fjórir farþegar auk flugmanns. 5.10.2011 08:01
Herinn handtók lögreglumenn í Mexíkó Mexíkanski herinn hefur handtekið átján lögreglumenn í Veracruz héraði sem grunaðir eru um að hafa unnið með eiturlyfjahringnum sem kallar sig Zeturnar. Mennirnir voru handteknir í viðamikilli aðgerð og á sama stað voru níu strokufangar handsamaðir sem flúið höfðu fangelsi í nágrenninu á dögunum. Yfirvöld segja að á einum hinna handteknu hafi fundist listi yfir alla þá lögreglumenn sem væru á launum hjá klíkunni. Mexíkönsk stjórnvöld hafa í auknum mæli gripið til þess ráðs að liðsmenn hersins og flotans til þess að berjast við klíkurnar sem öllu ráða í landinu. 5.10.2011 08:00
Allsherjarverkfall í Grikklandi Sólarhringsverkfall hófst í morgun í Grikklandi þar sem landsmenn mótmæla kröftuglega niðurskurðartillögum ríkisstjórnarinnar. Skólum hefur verið lokað sem og spítölum og lamast almenningssamgöngur að mestu leyti. 5.10.2011 07:58
Kínverjar og Rússar beittu neitunarvaldinu Kínverjar og Rússar beittu í nótt neitunarvaldi sínu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og komu í veg fyrir að ályktun þar sem framkoma stjórnvalda í Sýrlandi gagnvart þegnum sínum er gagnrýnd. 5.10.2011 07:12
Fjölskylda hinnar myrtu í áfalli Amanda Knox hélt heim til Bandaríkjanna í gær frá Ítalíu, þar sem hún var á mánudag sýknuð af morðákæru eftir að hafa dvalist fjögur ár í fangelsi. 5.10.2011 02:00
Ladbrokes setja Dylan í 2. sæti Nóbelsverðlaunin í flokki bókmennta verða afhent fimmtudaginn næstkomandi. Talið er líklegt að skáldið Adonis hljóti verðlaunin að þessu sinni. 5.10.2011 00:00
Hryðuverkamaður annast vörn sína sjálfur Nígeríumaðurinn Umar Farouk Abdulmutallab bíður nú þess að réttað verði í máli hans en hann er sakaður um að hafa reynt að sprengja upp flugvél á Jóladag í fyrra. 4.10.2011 23:00
Scorsese frumsýnir mynd um George Harrison Heimildarmynd Martin Scorsese um George Harrison verðir frumsýnd á morgun. Myndin kallast „Living in the Material World". 4.10.2011 22:00
Tók upp klámmynd í sendiráði Páfagarðs Jaroslav Bartak, læknir að mennt, laumaðist inn í sendirráð Páfagarðs í Prag og tók upp klámmynd. 4.10.2011 21:30
Þyrla hrapaði í New York - þriggja er saknað Þyrla með fimm farþega innanborðs hrapaði í Austuránni í New York nú fyrir stuttu. Mikill fjöldi björgunarbáta og kafara leita nú að farþegunum. 4.10.2011 21:27
Skorað í markalausu jafntefli Það var lítið skorað í leik Bayern Munich og Hoffenheim nú á laugardaginn en leikurinn endaði í 0-0 jafntefli. Markaskorturinn hafði þó lítil áhrif á ungt par sem neitaði því hreinlega að engin myndi skora á meðan leik stóð. 4.10.2011 21:02
Sílikonið bjargaði lífi Það er ekki á hverjum degi sem það getur bjargað mannslífi að vera með brjóstin stútfull af sílikoni. En það gerðist í Moskvu, höfuðborgar Rússlands, á dögunum. 4.10.2011 20:57
Pútín vill sameina Austur-Evrópu Í grein sem Vladimir Pútín, núverandi forsætisráðherra Rússlands, birti í blaðinu Izvestia fyrir stuttu sagðist hann vilja setja á laggirnar nýtt heimsveldi sem gæti skákað bæði Sameinuðu Þjóðunum og Bandaríkjunum. 4.10.2011 20:45
Nóbelsverðlaun í eðlisfræði afhent í dag Þeir Saul Perlmutter, Lawrence Berkeley og Brian Schmidt hlutu Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í dag. Verðlaunin fá þeir fyrir rannsóknir sínar á fjarlægum sprengistjörnum. 4.10.2011 20:15
Christie býður sig ekki fram til forseta Chris Christie, fylkisstjóri New Jersey, tilkynnti í dag að hann myndi ekki sækjast eftir embætti forseta Bandaríkjanna á næsta ári. 4.10.2011 20:15
Tugir féllu í sjálfsmorðsárás í Mogadishu Að minnsta kosti 70 fórust í öflugri sjálfsmorðssprengjuárás í Mogadisthu höfuðborg Sómalíu í dag. Vitni segja að stórum vörubíl hlöðnum sprengiefni hafi verið ekið að hliði stjórnarbyggingar í miðborginni þar sem hann sprakk í loft upp. Talsmaður hreyfingar Íslamista í landinu, al-Shabab hefur lýst ábyrgðinni á hendur sér. Þetta er viðamesta árás al-Shabab á borgina frá því liðsmenn hreyfingarinnar fóru frá henni í ágúst. Björgunarfólk á staðnum segir að 40 hið minnsta liggi sárir eftir sprenginguna. 4.10.2011 13:16
Dalai Lama fékk ekki vegabréfsáritun Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, hefur aflýst fyrirhugaðri ferð sinni til Suður Afríku en þangað ætlaði hann að fara í boði Desmonds Tutu erkibiskups en þeir félagar eiga það sameiginlegt að hafa báðir fengið Friðarverðlaun Nóbels. 4.10.2011 09:15
Felldu birnu sem grunuð er um að drepa tvo Yfirvöld í Yellowstone þjóðgarðinum hafa fellt 120 kílóa birnu sem drap göngugarp á svæðinu í júlí síðastliðinn. Birnunni hafði verið þyrmt eftir drápið á manninum þar sem skógarverðirnir sögðu að hún hefði aðeins verið að vernda ungviði sitt, tvo litla húna. 4.10.2011 08:39
Sómalskir sjóræningjar í lífstíðarfangelsi í Bandaríkjunum Tveir menn frá Sómalíu hafa verið dæmdir í lífstíðarfangelsi í Bandaríkjunum fyrir hlutdeild sína í sjóráni undan ströndum Afríku í febrúar á þessu ári. Mennirnir voru hluti af hópi sjóræningja sem réðst um borð í skútu og myrti alla áhafnarmeðlimina fjóra, sem allir voru bandarískir. Bandarískir sjóliðar stöðvuðu síðan skútuna og handtóku hluta ræningjanna. Búist er við að fleiri verði dæmdir á næstunni. 4.10.2011 08:38
Þrettán skotnir til bana í Pakistan Þrettán létust þegar skæruliðar hófu skothríð á langferðabifreið fyrir utan borgina Quetta í Pakistan í nótt. Allir hinna látnu eru Shía múslímar, flestir kaupmenn á leið á markað fyrir utan borgarmörkin. Átta aðrir slösuðust í árásinni. Lögreglan segir að byssumennirnir hafi stöðvað bílinn, farið um borð og hafið skothríðina. Á svæðinu hafa átök á milli Shía og Súnnía verið tíð í gegnum árin og brutust út óeirðir í borginni eftir að fréttist af þessari síðustu árás. 4.10.2011 08:37
Byltingarmenn nálgast Sirte Bardagamenn byltingarhersins í Líbíu nálgast nú eitt af síðustu vígjum Gaddafis, fyrrum einræðisherra landsins. Nú fyrir stuttu hertóku byltingarmennirnir smábæinn Qasr Abu Hadi, en það er talinn vera fæðingarstaður Gaddafis. Qasr Abu Hadi hefur legið í eyði í mörg ár en bærinn er steinsnar frá Sirte þar sem stuðningsmenn Gaddafis hafa vígbúist og kljást nú við byltingarmenn í jaðri bæjarins. 4.10.2011 00:00
Obama beið ósigur í Fulltrúadeildinni Barack Obama tókst ekki að koma atvinnufrumvarpi sínu í gegnum fulltrúadeild Bandaríkjanna í dag. Frumvarpið var ætlað til að skapa störf í Bandaríkjunum. Hefði frumvarpið verið samþykkt í heild sinni hefði það þýtt tæplega 450 milljarða dollara innspýtingu í Bandarískan iðnað. 3.10.2011 23:45
Chris Christie tekur ákvörðun í vikunni Innanhúsmenn á skrifstofu Repúblikanans Chris Christie segja að hann muni gefa út yfirlýsingu varðandi hugsanlegt framboð til forsetaembættis Bandaríkjanna í þessari viku. Þrýst hefur verið á Christie, sem nú er fylkisstjóri New jersey, til að bjóða sig fram. 3.10.2011 22:49
Rhapsody kaupir Napster, Yahoo! og ABC í samstarf Yahoo! og ABC fréttastofan í Bandaríkjunum hafa tekið saman höndum. Þetta var tilkynnt í morgunþættinum Good Morning America fyrr í dag. Stjórnendur leitarvélarinnar og fréttamiðilsins sögðust stefna að því að verða stærsti stafræna fréttasía í heimi. Þeir tóku einnig fram að ekki væri um samruna að ræða - einungis samstarf. 3.10.2011 22:30
Mótmælendahópar spretta upp víða í Bandaríkjunum Mótmælendur í Bandaríkjunum segja fjöldahandtökurnar um helgina vera einungis til þess gerðar að efla baráttuanda þeirra. Mótmælendahóparnir hafa komið sér fyrir í almenningsgörðum og á gangstéttum. Mótmælin beinast gegn Wall Street og er barist gegn græðgi fjármálastofnanna. 3.10.2011 21:55
Obama segir sig vera lítilmagnann Barack Obama segist vera í stöðu lítilmagnans fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum á næsta ári. Þetta sagði hann í viðtali á sjónvarpsstöðinni ABC í dag. 3.10.2011 21:45
Blaðamenn heimsækja Útey Yfirvöld í Noregi hafa nú í fyrsta sinn gefið blaðamönnum leyfi til að heimsækja Útey. Eyjan hefur verið lokuð síðan Anders Behring Breivik myrti 69 manns þann 22. júlí síðastliðinn. 3.10.2011 20:47
Látinn vísindamaður fær Nóbelsverðlaun Nóbelsverðlaunavertíðin hófst með heldur leiðinlegi máli þetta árið. Ákveðið var að Ralph Steinman myndi hljóta verðlaunin eftirsóttu í flokki læknisvísinda. Því miður lést Steinman stuttu eftir að nefndin hafði komist að niðurstöðunni. 3.10.2011 20:19
Amanda Knox sýknuð Hin bandaríska Amanda Knox, sem var dæmd í 25 ára fangelsi fyrir að hafa orðið meðleigjanda sínum að bana á Ítalíu árið 2007, var rétt í þessu sýknuð af ítölskum áfrýjunardómstól. 3.10.2011 19:51
Bikiníbombur slógu heimsmet Fáklæddar konur slógu heimsmet á gullnu ströndinni í Ástralíu í gær. Þar komu 357 konur saman og gengu í skrúðgöngu íklæddar bikiníum. Konurnar gengu tæpa tvo kílómetra eftir ströndinni og komast þær fyrir vikið í heimsmetabók Guinness en aldrei áður hafa fleiri bikiníbombur komið saman í skrúðgöngu. Fyrra metið var sett á Cayman eyjum í júní á síðasta ári en þá voru þáttakendur 331. 3.10.2011 15:00
Áfrýjun Amöndu Knox tekin fyrir í dag Ítalskur áfrýjunardómstóll kveður síðar í dag upp úrskurð sinn í máli bandarísku skólastúlkunnar Amöndu Knox, sem dæmd var í 25 ára fangelsi fyrir að hafa orðið meðleigjanda sínum að bana fyrir fjórum árum. 3.10.2011 12:11
Mikill vatnsskortur á Túvalú Ríkisstjórnin á smáeyjunni Túvalú í Kyrrahafi hefur sent út neyðarkall sökum skorts á ferskvatni á eyjunni. Túvalú er á meðal smæstu ríkja heims en þar búa aðeins ellefu þúsund manns. 3.10.2011 12:02
Perry segir koma til greina að senda herinn til Mexíkó Rick Perry ríkisstjóri í Texas sem er á meðal þeirra repúblikana sem sækjast eftir útnefningu sem forsetaefni flokksins segir koma til greina að bandarískir hermenn verði sendir til Mexíkó til þess að berjast við glæpagengin sem þar ráða lögum og lofum. Þetta kom fram í ræðu sem Perry hélt í New Hampshire í gær. 3.10.2011 11:59