Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fólk brennt til bana í grískum óeirðum Bensínsprengjur flugu þétt innan um grjóthnullunga og kantsteina í Aþenu í dag. Logandi sprengjunum var ekki aðeins kastað í lögregluna heldur einnig inn í stofnanir og fyrirtæki. 5.5.2010 16:15
Búið að loka einni borholu á Mexíkóflóa BP olíufélaginu hefur tekist að loka fyrir leka úr einni af þrem borholum á botni Mexíkóflóa. 5.5.2010 14:37
Rændu dóttur sinni frá kærastanum Foreldrar í Noregi hafa verið ákærðir fyrir beita miklu ofbeldi og skapa hættu þegar þeir rændu nítján ára gamalli dóttur sinni frá tuttugu og sjö ára gömlum kærasta hennar. 5.5.2010 13:47
Gleðiganga stöðvuð í Litháen Amnesty International krefjast þess að rétturinn til fundar- og tjáningarfrelsis sé virtur í Litháen. Samkynhneigðir, tvíkynhneigðir og transgender í Eystrasaltslöndunum mæta miklu andstreymi í aðdraganda Gleðigöngu, sem fyrirhugað var að halda í fyrsta sinn í Vilníus, höfuðborg Litháen, þann 8. maí næstkomandi. 5.5.2010 13:28
Bretar sjá framá stjórnarkreppu Íhaldsmenn hafa enn nokkra forystu í kosningabaráttunni samkvæmt skoðanakönnunum. 5.5.2010 12:24
Jökullinn herjar enn á Bretlandseyjar Nýtt flugbannsvæði hefur verið sett yfir hluta af Skotlandi, Norður-Írlandi og Írska lýðveldinu. 5.5.2010 12:19
Skelfing í Amsterdam Fjölmargir slösuðust þegar skelfing greip um sig í mannfjölda sem var við minningarathöfn í Amsterdam í gær. 5.5.2010 10:13
Ónógur svefn getur leitt til ótímabærs andláts Ný rannsókn bendir til að ónógur svefn geti valdið því að fólk látist fyrir aldur fram. 5.5.2010 07:47
Allsherjarverkfall í Grikklandi Allsherjarverkfall er hafið i Grikklandi til þess að mótmæla niðurskurði í opinberum rekstri og skattahækkunum. 5.5.2010 07:15
Eyjafjallajökull: Flugvellir á Írlandi og Skotlandi áfram lokaðir vegna eldgossins Flugvellir á Írlandi og í Skotlandi eru lokaðir áfram í dag vegna öskunnar frá gosinu í Eyjafjallajökli. Samkvæmt frétt um málið á BBC er líklegt að 5.5.2010 07:12
13 í haldi vegna gengjastríðs Danska lögreglan handtók í gærmorgun þrettán manns tengda vélhjólasamtökum Vítisengla. Handtökurnar voru hluti af aðgerð sem staðið hefur um nokkurt skeið og miðar að því að stöðva stríð sem geisað hefur milli Vítisengla og gengja innflytjenda. Fjórir mannanna eru meðlimir Vítisengla og níu meðlimir áhangendaklúbba. 5.5.2010 06:00
Brown segist bera ábyrgðina Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, segist taka á sig alla ábyrgð ef Verkamannaflokkur hans tapar þingmeirihluta í kosningunum á morgun. 5.5.2010 05:00
Flugstjórnarsvæðin samhæfð Samgönguráðherrar Evrópusambandsríkjanna komu saman í gær á aukafundi í Brussel til að skiptast á skoðunum og meta afleiðingarnar af þeirri röskun sem varð á flugumferð í Evrópu vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. 5.5.2010 04:45
Efast um björgunarpakka AGS og ESB Um fjögur þúsund kennarar og nemendur tóku þátt í mótmælagöngu í Aþenu í gær gegn aðhaldsaðgerðum stjórnvalda, sem koma harkalega niður á almenningi. Sumir mótmælendanna lentu í átökum við lögreglu. 5.5.2010 04:30
Ákærður fyrir hryðjuverk -AP- Faisal Shahzad, þrítugur bandarískur ríkisborgari sem fæddur er í Pakistan, hefur viðurkennt að hafa ætlað að sprengja sprengju í bifreið við Times-torg í New York á háannatíma um helgina. 5.5.2010 04:15
Mótmælendur fagna tilboðinu Leiðtogar rauðklæddu mótmælendanna í Taílandi hafa fagnað sáttatilboði frá Abhisit Vejjajiva forsætisráðherra, en vilja fá að sjá nánari útfærsluhugmyndir áður en þeir gefa endanlegt svar. 5.5.2010 04:15
Brown biðlar til óákveðna kjósenda Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og formaður Verkamannaflokksins, biðlaði til óákveðna kjósenda á kosningafundi í Manchester í kvöld og bað þá um að kjósa Verkamannaflokkinn í kosningunum á fimmtudaginn. Hann sagði að staða Bretlands og bresks almennings væri mun betri eftir að flokkurinn tók við stjórnartaumunum fyrir 13 árum. 4.5.2010 22:49
Halderman fær hálft ár fyrir að kúga Letterman Sjónvarpsframleiðandinn Robert Joel Halderman þarf að sitja í fangelsi í hálft ár fyrir að hafa hafa reynt að kúga fé út úr spjallþáttastjórnandanum David Letterman í fyrrahaust. Hann þarf auk þess að vinna 1000 klukkustundir í samfélagsvinnu. 4.5.2010 22:15
Obama: Bandaríkjamenn láta ekki hræða sig Pakistaninn sem var handtekinn vegna misheppnaðs sprengjutilræðis á Times torgi í New York hefur viðurkennt verknaðinn. Barack Obama sagði í dag að hryðjuverkamenn muni aldrei beygja Bandaríkin. 4.5.2010 19:19
Margir Norðmenn geta fallist á pyntingar Þriðji hver Norðmaður getur fallist á að pyntingum sé beitt til þess að koma í veg fyrir hryðjuverk. 4.5.2010 14:02
Munaði mínútum að meintur tilræðismaður kæmist úr landi CNN fréttastofan segir að hinn þrjátíu ára gamli Faisal Shazad hafi verið kominn um borð í flugvél frá Arabisku furstadæmunum sem var að fara til Dubai. 4.5.2010 12:46
Eiður vísar ásökunum um nasisma á bug „Ég hef lesið, mér til mikilla hörmunga, grein í Daily Star í dag, þar sem ég er sakaður um að heilsa með nasistakveðju,“ segir Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaður hjá Tottenham, í yfirlýsingu sem hann sendi dagblaðinu Daily Star, í morgun. „Á myndinni sést ég benda með einum fingri en með annan fingur á vörinni. Þetta er ekki og var ekki nasistakveðja,“ segir Eiður. 4.5.2010 10:23
Tapaði í rússneskri rúllettu Tuttugu og níu ára gamall norskur maður lét lífið þegar hann spilaði rússneska rúllettu með tveimur vinum sínum. 4.5.2010 09:56
Askan stoppar flug á Írlandi og norðanverðu Skotlandi Aska frá gosinu í Eyjafjallajökli hefur valdið því að allir flugvellir á Írlandi og Norður Írlandi eru lokaðir nú í morgunsárið. Flugbannið nær einnig yfir norðurhluta Skotlands, einkum Hebrides eyjar. 4.5.2010 07:45
Arnold Schwarzenegger styður ekki hugmyndir um olíuboranir Arnold Schwarzenegger, fylkisstjóri í Kalíforníu, er hættur stuðningi við áform um frekari olíuboranir við strendur Kalíforníu. Hann segir að olíuslysið í Mexíkóflóa hafi breytt viðhorfi hans til olíuborana í Kyrrahafi. 4.5.2010 07:00
Handtók mann vegna misheppnaðs sprengjutilræðis Lögreglan í Bandaríkjunum hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa staðið að baki misheppnuðu sprengjutilræði í New York borg á laugardaginn. Maðurinn er af pakistanskum uppruna. Hann var handtekinn á Kennedy flugvelli í New York þegar að hann var á leið í flug til Dubai. 4.5.2010 07:00
Engar sannanir komið fram Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti segir Bandaríkin ekki hafa fært neinar sönnur á ásakanir um að Íranir hafi í hyggju að koma sér upp kjarnorkuvopnum. 4.5.2010 06:00
Enginn samningur á árinu Yvo de Boer, fráfarandi loftslagsstjóri Sameinuðu þjóðanna, segir enga von til þess að nýr alþjóðasamningur um loftslagsmál verði að veruleika á þessu ári. 4.5.2010 06:00
Fjörutíu óvinir fréttafrelsis Alþjóðlegu samtökin Fréttamenn án landamæra hafa sett Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, og Hu Jintao Kínaforseta á lista sinn yfir helstu óvini fjölmiðlafrelsis. 4.5.2010 06:00
BP greiðir kostnað við hreinsun Tony Hayward, framkvæmdastjóri olíufélagsins BP, segir að fyrirtækið muni greiða kostnaðinn við að hreinsa upp olíu frá olíuborpallinum Deepwater Horizon, sem sökk í Mexíkóflóa. 4.5.2010 05:30
Árásarmaður dæmdur sekur Mohammed Ajmal Kasab, eini árásarmaðurinn af tíu sem lifði af, var í gær dæmdur sekur um aðild að hryðjuverkaárásum á Mumbaí á Indlandi árið 2008. 4.5.2010 04:30
Yfirlýsingu talibana ekki trúað Lögreglan í Bandaríkjunum leggur engan sérstakan trúnað á yfirlýsingu frá pakistanskri talibanahreyfingu, sem sagðist bera ábyrgð á sprengjuárás á Times-torgi í New York. 4.5.2010 04:00
Leggur til kosningar í haust Abhisit Vejjajiva, forsætisráðherra Taílands, hefur komið með sáttatilboð til mótmælenda og leggur til að þingkosningar verði haldnar 14. nóvember fallist mótmælendur á tilboðið. 4.5.2010 04:00
Atkvæðaveiðar í hámarki Flokksleiðtogarnir David Cameron, Nick Clegg og Gordon Brown þeyttust um Bretland í gær til að afla flokkum sínum atkvæða. Þingkosningar verða á fimmtudag. 4.5.2010 03:30
Ísraelar og Palestínumenn ræðast aftur við Óbeinar viðræður milli Ísraela og Palestínumanna hefjast að líkindum í næstu viku. 3.5.2010 14:27
Sjúklega hrædd við kanínur Kennslukona í Þýskalandi hefur höfðað skaðabótamál gegn fjórtán ára gömlum nemanda sínum sem teiknaði kanínu á töflu í skólastofunni. 3.5.2010 13:40
Eyjafjallajökull lagði sænskt flugfélag Eyjafjallajökull hefur nú lagt fyrsta flugfélagið að velli. Það er lítið sænskt flugfélag Flyglinjen sem stofnað var í febrúar. 3.5.2010 11:38
Vill alþjóðadómstól fyrir sjóræningja Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna vill skerpa löggjöf gegn sjóránum og meðal annars skoða þann möguleika að leiða sjóræningja fyrir alþjóðadómstóll. 3.5.2010 10:43
Nauðlenti eftir árás farþega Flugstjóri farþegaþotu Estonian Air ákvað að nauðlenda á Arlanda flugvelli í Stokkhólmi í gær eftir að norskur farþegi réðist á áhöfnina. 3.5.2010 09:53
Cameron ætlar að mynda minnihlutastjórn Cameron ætlar að mynda minnihlutastjórn David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, ætlar að ekki að mynda meirihlutastjórn eftir bresku þingkosningar og þess í stað freista þess að boða til nýrra kosninga síðar á árinu. 3.5.2010 09:06
Obama heitir aðstoð Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir að olíuslysið á Mexíkóflóa sé af þeirri stærðargráðu að það sé án nokkurs fordæmis. Yfirvöld áætla að um 6 milljónir lítra af olíu hafi lekið úr borholunni síðan að borpallur breska olíurisans BP sprakk og sökk fyrir tæpum tveimur vikum. 3.5.2010 08:42
Páfi skoðaði líkklæði Krists Benedikt páfi sextándi heimsótti í gær ítölsku borgina Torínó og skoðaði líkklæðið frá Turin sem margir telja að sé líkklæði Krists. Líkklæðið hefur verið til sýnis undanfarnar þrjár vikur en tíu eru frá því almenningur gat síðast borið það augum. Páfi sagði að líkklæðið minnti með afgerandi hætti á þær þjáningar sem Jesús gekk í gegnum. 3.5.2010 08:37
Hótar hefndaraðgerðum Varnarmálaráðherra Suður-Kóreu segir að þeir sem bera ábyrgð á því að eitt af herskipum landsins sprakk í tvennt og sökk í lok mars verði látnir gjalda fyrir það dýru verði. Skipið var 1200 tonn að stærð með 108 manna áhöfn og fórust 46 sjóliðar. Útför þeirra fór fram í síðustu viku. 3.5.2010 08:16
Aðvarar mótmælendur Abhisit Vejjajiva, forsætisráðherra Tælands, hvetur mótmælendur til að hætta aðgerðum sínum í Bangkok, höfuðborg landsins, annars geti farið illa fyrir þeim. Aðgerðir mótmælenda hafa staðið í meira en sex vikur í höfuðborginni en þeir krefjast þess að þing landsins verði leyst upp, boðað verði til kosninga og að forsætisráðherrann fari úr landi. Hann hafnaði nýverið sáttaboði þeirra sem fólst í því að mótmælum yrði hætt ef þing landsins yrði leyst upp. 3.5.2010 08:14
Al-Kaída ber ekki á ábyrgð á sprengjunni Borgarstjórinn í New York fullyrðir að al-Kaída hryðjuverkasamtökin beri ekki ábyrgð á bílsprengjunni sem sprengja átti á Times Square um helgina. 3.5.2010 07:52