Efast um björgunarpakka AGS og ESB 5. maí 2010 04:30 Mótmælt í Aþenu. Almenningur í Grikklandi bregst hart við niðurskurði. nordicphotos/AFP -
AP- Um fjögur þúsund kennarar og nemendur tóku þátt í mótmælagöngu í Aþenu í gær gegn aðhaldsaðgerðum stjórnvalda, sem koma harkalega niður á almenningi. Sumir mótmælendanna lentu í átökum við lögreglu. Áður höfðu um 100 stuðningsmenn Kommúnistaflokksins ruðst upp á Akropólishæð og breitt þar út mótmælaborða með áletrunum á grísku og ensku, ferðamönnum til nokkurrar skemmtunar - enda fengu þeir að fara upp á hæðina að skoða hinar frægu fornminjar þar þrátt fyrir mótmælin. Ekki var að sjá að þátttakendum á fjármálamörkuðum þætti björgunaraðgerðir evruríkjanna og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem samkomulag tókst um á sunnudag, nógu sannfærandi. Verðfall varð af þeim sökum á helstu mörkuðum heims í gær. „Þrátt fyrir það hve stór lánapakkinn er þá hafa menn vaxandi áhyggjur af því að hann dugi ekki til að dekka fjármögnunarþörf Grikkja næstu árin," sagði Mitul Kotecha, sérfræðingur hjá bankanum Credit Agricole CIB. Aðhaldsaðgerðir stjórnarinnar fela í sér launalækkanir fyrir ríkisstarfsmenn, sem eru um 750 þúsund í allt. Auk þess verða eftirlaun allra lækkuð og neysluskattar hækkaðir enn frekar en orðið er.- gb
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent Fleiri fréttir Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Sjá meira