Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Auka viðbúnað á Hawaii vegna Norður-Kóreu Bandaríkjaher hefur aukið viðbúnað sinn á Hawaii vegna hugsanlegrar eldflaugaárásar Norður-Kóreu en japanskt dagblað greindi frá því í gær að Norður-Kóreumenn hefðu í hyggju að skjóta langdrægustu eldflaug sinni í átt að Hawaii nálægt þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, 4. júlí. 19.6.2009 07:25
Allen Stanford handtekinn fyrir fjársvik Bandaríska alríkislögreglan FBI handtók í gær auðkýfinginn Allen Stanford fyrir fjársvik en honum er gefið að sök að hafa gefið út skuldabréf að andvirði átta milljarða dollara með vöxtum sem eru of háir til að geta staðist. 19.6.2009 07:23
Bandaríski herinn á slóð N-kóreskra skipverja Bandaríski herinn fylgist nú með norður kóreska skipinu Kang Nam, sem talið er flytja ólöglegan vopnabúnað eða tæki. Háttsettir yfirmenn í bandaríska hernum segjast ekki vita nákvæmlega hvað sé um borð, en skipið sé þekkt fyrir að flytja vafasaman varning. 18.6.2009 21:47
Dýravinir óánægðir með flugufregnir af Obama Dýraverndunarsamtökin PETA (People for the Ethical Treatment of Animals) lýstu í dag yfir óánægju sinni með Barack Obama, forseta Bandaríkjanna. Ástæðan er sú að Obama steindrap flugu sem var að flögra um hann í miðju viðtali við CNBC sjónvarpsstöðina. 18.6.2009 21:15
Hrollvekjandi fjöldi nauðgara í S-Afríku Einn af hverjum fjórum Suður Afrískum karlmönnum sögðust hafa nauðgað í könnun sem heilsurannsóknarstöð landsins gerði. Helmingur nauðgaranna viðurkenndi að hafa nauðgað fleiri en einu fórnarlambi. 18.6.2009 20:01
Leitarhópur alltaf fundið svarta kassann Paolo Carmassi, hátt settur yfirmaður í fyrirtækinu sem byggði svarta kassann í flugvél Air France sem hrapaði fyrr í mánuðinum, er ekki af baki dottinn við leitina að kassanum. Fyrirtæki hans, Honeywell Aerospace, hefur alltaf tekist að finna svarta kassann eftir flugslys hingað til. 18.6.2009 20:47
Háskólanum í Teheran rústað - myndir á Facebook Myndir voru birtar á samskiptasíðunni Facebook í dag sem sagðar eru sýna eyðileggingu í Háskólanum í Teheran. Varalið hliðhollt Íransforseta er sagt hafa ráðist þar með ofbeldi gegn stjórnarandstæðingum. Úrslitum forsetakosninganna í síðustu viku var áfram mótmælt í írönsku höfuðborginni í dag. 18.6.2009 19:09
Stjórn ESB mótmælt í Brussel Það voru óánægðir Evrópubúar sem streymdu út á götur Brussel í dag til að mótmæla ýmsu sem þeir telja aflaga hafa farið í stjórn Evrópusambandsins. Leiðtogar ESB ríkja funduðu í borginni í dag um framtíð Lissabonsáttmálans og hvernig megi fá Íra til að samþykkja hann. 18.6.2009 18:57
Komu í veg fyrir hryðjuverkaárásir á kjördag Írönsk yfirvöld segjast hafa komið í veg fyrir sprengjuárásir hryðjuverkamanna á kjördag í Íran fyrir tæpri viku. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneyti leyniþjónustumála tókst lögreglu og leyniþjónustustofnunum í Íran að koma í veg fyrir sprengjuárásir í moskum og á fjölförnum stöðum í höfuðborginni Teheran síðasta föstudag þegar forsetakosningar fóru fram í landinu. 18.6.2009 14:58
Mótmælt sjötta daginn í röð Búist er við fjölmennum mótmælum í Íran sjötta daginn í röð vegna úrslita forsetakosninga þar í landi fyrir tæpri viku. Byltingarráðið í Íran hefur kallað frambjóðendurna þrjá sem biðu ósigur til að bera vitni fyrir helgina vegna rannsóknar á ásökunum um kosningasvik. 18.6.2009 12:27
Kynjaskiptir lestarvagnar gegn öfuguggum Rekstraraðilar járnbrauta í Tókýó, höfuðborg Japans, íhuga nú að taka í notkun lestarvagna fyrir karla eingöngu til að fyrirbyggja kynferðislega áreitni en töluvert er um að fingralangir öfuguggar gerist fjölþreifnir í yfirfullum vögnum á háannatíma þegar farþegarnir eru sem sardínur í dós í vögnunum. 18.6.2009 08:33
Tæpt tonn af kókaíni í frosnum hákörlum Það var við höfnina í Progresso í Yucatan-fylkinu sem hermenn úr sjóher Mexíkó unnu við að gegnumlýsa frystigáma sem komið höfðu með flutningaskipinu Dover Strait frá Costa Rica á þriðjudaginn. 18.6.2009 08:10
Bannar útgáfu Salinger-stælingar tímabundið Bandarískur dómstóll hefur lagt tímabundið lögbann við útgáfu bókar sem ætlað er að vera framhald skáldsögunnar The Catcher in the Rye eftir J.D. Salinger. 18.6.2009 07:28
Skaut af haglabyssu í íbúð sinni Rúmlega þrítugur maður var handtekinn í bænum Stege á Sjálandi í gærkvöldi eftir að hafa skotið sjö skotum úr haglabyssu í íbúðinni. 18.6.2009 07:26
Norður-Kóreumenn eiga mörg tonn af efnavopnum Norður-Kóreumenn búa yfir nokkur þúsund tonnum af efnavopnum sem eldflaugar geta borið og nota mætti til dæmis til þess að gera skyndiárás á Suður-Kóreu. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarstofnunarinnar International Crisis Group. 18.6.2009 07:24
Hillary Clinton olnbogabrotnaði Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, datt og olnbogabrotnaði þegar hún var á leið til Hvíta hússins í gær. 18.6.2009 07:23
Svínaflensuskip einangrað við Venesúela Spænska skemmtiferðaskipið Ocean Dream hefur verið einangrað við Venesúela eftir að þrír farþegar þess greindust með svínaflensu. 18.6.2009 07:17
Gervihnöttur til tunglsins í dag Bandaríska geimferðastofnunin NASA mun í dag skjóta á loft gervihnetti sem fer á sporbaug um tunglið og verður þar í eitt ár í um 50 kílómetra hæð. 18.6.2009 07:11
Fjórtán ára í haldi vegna hnífsstungu Fjórtán ára drengur hefur verið handtekinn vegna hnífsstungu sem átti sér stað í Isleworth í vestur Lundúnum. Fórnarlambið, sem talið er vera fimmtán eða sextán ára, fannst við South Street í Isleworth og liggur nú þungt haldið á spítala. 17.6.2009 19:18
Hollendingar geta gengið að eignum ríkisins Leysa skal úr úr hugsanlegum ágreiningi vegna Icesave samningsins fyrir breskum dómstólum. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV en fréttastofa Ríkissjónvarpsins hefur undir höndum eintak af Icesave samkomulaginu milli Íslendinga og Hollendinga. 17.6.2009 19:05
Norður Kórea hótar miskunarlausum aðgerðum Norður Kóreumenn hafa varað við því að þeir muni gera miskunarlausa árás verði þeim ögrað af Bandaríkjamönnum eða bandamönnum þeirra. Þessi yfirlýsing kemur einungis klukkustundum eftir að Bandaríkjaforsetinn Barack Obama lýsti yfir að kjarnorkuáætlun Norður Kóreumanna væri mikil ógn við heimsbyggðina. 17.6.2009 11:33
Obama tekur ekki afstöðu í kosningadeilum í Íran Barack Obama hefur forðast að taka afstöðu með andspyrnuhreyfingunni í Íran en skipulögð eru meiri mótmæli vegna umdeildrar niðurstöðu forsetakosninga í landinu. 17.6.2009 10:14
Vill vinna gegn kjarnorkuáætlun N-Kóreu af krafti Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir kjarnorkuógnina sem stafi af Norður Kóreu grafalvarlega. Hann lýsti því yfir á blaðamannafundi ásamt forseta Suður Kóreu, Lee Myung-bak, að Bandaríkin myndu vinna af krafti til að binda enda á kjarnorkuáætlun Norður Kóreumanna. 16.6.2009 21:41
Yfirvöld fá upplýsingar af Facebook og Twitter Eftir að írönsk yfirvöld hófu að takmarka aðgang vestrænna fjölmiðla að mótmælunum í Íran hafa samskiptasíður á borð við Twitter og Facebook orðið ómetanlegar. Sérstaklega eru síðurnar mikilvægar fyrir Bandaríkjamenn sem eiga engin stjórnmálatengsl við Íran og eiga bágt með að fylgjast með ástandinu í landinu. 16.6.2009 20:49
Carter fundaði með leiðtoga Hamas Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkjaforseti, gagnrýnir ráðamenn í Ísrael harðlega fyrir ómanneskjulega meðferð á Palestínumönnum á Gazasvæðinu. Hann segir að farið sé með Palestínumenn líkt og dýr. Forsetinn fyrrverandi, sem er 84 ára, er staddur á Gazasvæðinu til að skoða vegsummerki eftir sprengjuárásir Ísraela fyrr á árinu. Hann fundaði með Ismail Haniyeh, leiðtoga Hamassamtakanna á Gazasvæðinu. 16.6.2009 15:56
Inflúensan greinist í Jórdaníu og Katar Fyrstu tilfelli svínaflensunnar í Jórdaníu og Katar hafa nú greinst. Um er að ræða fjögur börn sem nýlega komu úr ferðalagi frá Bandaríkjunum og Austurríki. 16.6.2009 12:15
Mestu mótmælaaðgerðir í Íran í 30 ár Að minnsta kosti sjö hafa verið skotnir til bana á götum Teherans í Íran síðasta sólarhring, í stærstu mótmælaaðgerðum sem fram hafa farið í landinu í þrjátíu ár. 16.6.2009 12:10
Barn fórnarlambs svínaflensu í Skotlandi látið Ungabarn konunnar sem lést úr svínaflensu í Skotlandi á sunnudaginn er látið. Barnið sem var drengur, fæddist þremur mánuðum fyrir tímann en konan var sett af stað í þeim tilgangi að reyna að bjarga barninu. Að sögn talsmanns sjúkrahússins lést drengurinn ekki úr svínaflensu. 16.6.2009 11:39
Atkvæði talin á ný í Íran Klerkaráðið í Íran hefur kveðið upp þann úrskurð að telja skuli á ný atkvæði forsetakosninganna sem fram fóru þar í landi á föstudaginn. 16.6.2009 09:03
Ökumenn í New York eru allra verstir Ökumenn í New York hafa steypt ökumönnum í Miami úr toppsætinu yfir skapverstu ökumenn Bandaríkjanna. 16.6.2009 08:30
Aukið atvinnuleysi innan ESB Atvinnuleysi jókst umtalsvert innan Evrópusambandsins á fyrsta fjórðungi ársins, eða um 1,2 prósent miðað við fyrsta fjórðung ársins 2008. 16.6.2009 08:29
Nýjar aftökuaðferðir í Kína Kínverjar hyggjast taka upp þá aðferð að sprauta banvænu eitri í þá sakamenn, sem ætlunin er að taka af lífi, frekar en að skjóta þá. 16.6.2009 08:22
Augnaráð hunda reyndist ímyndun Nýleg rannsókn sem gerð var við Bernard-háskólann í New York hefur leitt í ljós að hið sakbitna augnaráð sem eigendur telja sig sjá hjá hundum sínum sé ímyndun ein. 16.6.2009 08:18
Búist við átökum í Teheran í dag Boðað hefur verið til tvennra mótmæla í Teheran, höfuðborg Írans í dag og óttast menn að uppúr kunni að sjóða. Annarsvegar er um að ræða stuðnings menn Mirhousseins Mousavis, sem tapaði í kosningum fyrir helgi gegn sitjandi forseta landsins Mahmoud Ahmadinejad og hins vegar ætla harðlínustuðningsmenn forsetans að hittast á sama stað og lýssa yfir stuðningi við sinn mann. Sjö létust í mótmælum í gær að því er íranskir miðlar greina frá en mikil óánægja hefur verið á meðal sumra í landinu yfir framkvæmd kosninganna sem forsetinn sigraði með óvæntum yfirburðum. 16.6.2009 07:13
Sakbitnir hundar bregðast við skömmum Nýleg rannsókn sem gerð var við Bernard-háskólann í New York hefur leitt í ljós að hið sakbitna augnaráð sem eigendur telja sig sjá hjá hundum sínum sé ímyndun ein. Þeir sem stóðu að rannsókninni töldu hundaeigendunum trú um að hundur þeirra hefði gert eitthvað af sér. Allir eigendurnir þóttust geta greint hið sakbitna augnaráð hjá hundinum, jafnvel þótt dýrið hefði ekkert af sér gert. Rannsóknin leiddi því í ljós að hundarnir voru ekki þjakaðir af samviskubiti heldur aðeins að bregðast við skömmum húsbónda sinna. 16.6.2009 02:00
Fjármálageirinn hefur tapað ljómanum Bankar og fjármálafyrirtæki hafa tapað ljómanum í augum nýútskrifaðra háskólanema í Bandaríkjunum. Eftir að efnahagskreppan skall á leita þeir í auknum mæli í störf hjá hinu opinbera. 15.6.2009 12:19
Fyrsta svínaflensudauðsfallið utan Ameríku staðfest Fyrsta dauðsfallið vegna Svínaflensunnar utan Ameríku hefur verið staðfest en Jacqueline Fleming, 38 ára gömul kona, lést vegna flensunnar í gær. Jacqueline hafði tveimur vikum áður fætt sitt þriðja barn og kom barnið í heiminn þremur mánuðum fyrir tímann. 15.6.2009 12:14
Fyrirhuguðum mótmælum Íran aflýst Fyrirhuguðum mótmælum í Teheran í Íran sem fram áttu að fara í dag hefur verið aflýst. Írönsk stjórnvöld lýstu því yfir að forsetaframbjóðandinn Mirhossein Mousavi yrði gerður ábyrgur fyrir mótmælunum. 15.6.2009 12:12
Vítisenglar flytja í glæsiíbúðir á Jótlandi Æðstu menn Hells Angels í Danmörku eru fluttir í glæsiíbúðir í Randers á Austur-Jótlandi. 15.6.2009 08:11
Airbus-menn vara við getgátum um slysið Talsmenn Airbus-flugvélaverksmiðjanna vara við getgátum um orsakir slyss Air France-þotunnar sem fórst í Atlantshafi um mánaðamótin og taka fram að Airbus A330-vélin sé ein af öruggustu flugvélum sem notaðar hafa verið til farþegaflugs. 15.6.2009 08:09
Rottueyja rottulaus í fyrsta sinn í 229 ár Rottur hafa verið ráðandi tegund á Rottueyju síðan árið 1780. Þá fórst japanskt skip í nágrenni eyjarinnar og allar rottur sem um borð voru syntu í land á Rottueyju, sem reyndar hét ekki Rottueyja þá heldur Aleutian-eyja. 15.6.2009 07:31
Fyrsta Gay Pride Kínverja gekk eins og í sögu Mörg hundruð manns tóku þátt í fyrstu Gay Pride-hátíð Kína á götum Shanghai á laugardaginn. Ekki var um skrúðgöngu að ræða eins og er tíðkað víðast hvar annars staðar þar sem stjórnvöld höfðu bannað það. 15.6.2009 07:26
Lifnaði við í líkhúsinu Starfsfólki í líkhúsi í pólska bænum Jablonowo brá í brún þegar líkpoki sem lá þar á borði tók að hreyfast. Þegar farið var að athuga málið reyndist pokinn innihalda 84 ára gamla konu sem verið hafði úrskurðuð látin nokkrum klukkustundum áður. 15.6.2009 07:22
Norður-Kórea segir Bandaríkin auka líkur á kjarnorkustríði Stjórn Norður-Kóreu ásakar Bandaríkjamenn um að setja kjarnorkuflaugar sínar í Suður-Kóreu í viðbragðsstöðu og auka með því líkurnar á kjarnorkustríði. 15.6.2009 07:13
Fyrsta svínaflensudauðsfallið í Evrópu Fyrsta dauðsfallið af völdum svínaflensu í Evrópu er komið fram og var þar um að ræða skoskan einstakling sem þó hafði verið heilsuveill áður en hann fékk svínaflensuna. 15.6.2009 07:11