Fleiri fréttir Grunaður barnaníðingur segist hafa fjarvistarsönnun Barnaníðingurinn Raymond Hewlett talar í fyrsta skipti um rannsóknina á Madeleine McCann í breska blaðinu Sunday Mirror í dag. Hann segist hafa fjarvistarsönnun en vill ekki gefa hana upp. Raymond segist ekki hafa drepið Maddie litlu en hann berst við krabbamein og er kominn á garfarbakkann. 14.6.2009 10:44 Fleiri en hundrað handteknir í Teheran í nótt Fleiri en hundrað umbótasinnar voru handteknir í Íran í nótt eftir að þeir og mörg þúsund manns til viðbótar mótmæltu í gær úrslitum forsetakosninga í landinu fyrir helgi. 14.6.2009 09:28 Anna Frank daðraði við stráka og skipti stöðugt um hárgreiðslu „Hún sagði sögur, daðraði svívirðilega mikið við stráka og var sífellt að skipta um hárgreiðslu.“ Þessi lýsing gæti átti við hvaða unglinsstúlku sem ólst upp í Evrópu. En svona er það sem Eva Schloss man eftir æskuvinkonu sinni Önnu Frank, sem hefði fagnað áttatíu ára afmæli sínu í þessari viku ef hún hefði ekki látið lífið í útrýmingarbúðum nasista. 14.6.2009 03:00 Fyrrum yfirmaður hersins í Gíneu flæktur í fíkniefnamál Háttsettur fyrrum yfirmaður hersins í Gíneu er meðal nítján annarra sem búist er við að eigi yfir höfði sér ákæru vegna flutnings á fíkniefnum á næstu dögum. Ríkisfjölmiðilinn þar í landi sagði í dag að Diarra Camara hafi verið meðal þeirra sem handteknir hafa verið eftir mikla rannsókn undanfarinna mánaða. Sonur Camara er einn hinna handteknu en þar má einnig finna aðra undirmenn hans í hernum. 13.6.2009 23:00 Segir kosningarnar hafa verið algjörlega frjálsar Mahmoud Ahmadinejad sem var endurkjörinn forseti Írans í gær segir að kosningarnar hafi veirð algjörlega frjálsar og heilbrigðar. Ahmadinejad var kosinn til næstu fjögurra ára en hann vísar þeirri gagnrýni á bug að einhver brögð hafi verið í tafli. Til átaka kom í höfuðborginni Teheran þegar ljóst úrslit kosninganna lágu fyrir en margir bjuggust við að Ahmadinejad myndi tapa kosningunum. 13.6.2009 19:36 Átök í Teheran vegna úrslita forsetakosninganna Til átaka hefur komið milli stjórnarandstæðinga og lögreglu í Teheran, höfuðborg Írans, í dag eftir að tilkynnt var að Mahmoud Ahmadinejad hefði verið endurkjörinn forseti landsins í kosningum í gær. 13.6.2009 14:50 Feeney hreinsaður af ásökunum um aðild að morði Donald Feeney, sem sat í fangelsi á Íslandi fyrir barnsrán, hefur verið hreinsaður af ásökunum um aðild að hrottalegu morði á græna svæðinu í Bagdad. Feeney var handtekinn í síðustu viku ásamt syni sínum en þeir gætu orðið fyrstu bandaríksu verktakarnir sem sóttir verða til saka í Írak. 13.6.2009 13:24 Feeney grunaður um morð í Írak Donald Feeney, sem sat í fangelsi á Íslandi fyrir barnsrán, er grunaður um aðild að hrottalegu morði á græna svæðinu í Bagdad. Feeney var handtekinn í síðustu viku ásamt syni sínum en þeir gætu orðið fyrstu bandaríksu verktakarnir sem sóttir verða til saka í Írak. 13.6.2009 12:02 Norður-Kórea hótar að smíða kjarnorkusprengjur Stjórnvöld í Norður-Kóreu hóta því að smíða kjarnorkusprengjur úr plútónbirgðum sínum og hefja aftur auðgun úrans samkvæmt kjarnorkuátælun sinni. Þetta er svar Norður-Kóreumanna við einróma ákvörðun öryggisráðs 13.6.2009 10:00 Ahmadinejad endurkjörinn forseti Írans Mahmoud Ahmadinejad var endurkjörinn forseti Írans í kosningum í gær þar sem áttatíu prósent kosningabærra Írana greiddu atkvæði. Samkvæmt yfirlýsingu kjörstjórnar er búið að telja um áttatíu prósent atkvæða og Ahmadinejad fengið sextíu og fimm prósent þeirra en helsti andstæðingur hans, Mír Hossein Músaví, leiðtogi umbótasinna og fyrrverandi forsætisráðherra Írans, aðeins þrjátíu og tvö prósent atkvæða. 13.6.2009 09:33 Lýsa báðir yfir sigri Forseti Íran, Mahmoud Ahmadinejad og keppinautur hans Mirhossein Mousavi hafa báðir lýst yfir sigri í forsetakosningum í landinu. 12.6.2009 21:00 Járnfrúin flutt á sjúkrahús Járnfrúin Margaret Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, er undir eftirliti á sjúkrahúsi eftir að hún féll á heimili sínu en hún handleggsbrotnaði við fallið. 12.6.2009 14:12 Alheimsfaraldi lýst yfir vegna kerfisgalla Kerfisgalli er ástæðan fyrir því að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur orðið að lýsa yfir alheimsfaraldri vegna fremur vægrar flensu. Þetta er mat bandarísks sérfræðings í smitsjúkdómum. 12.6.2009 12:14 Ekki verður feigum forðað Ítalska konan Johanna Ganthaler lést í bílslysi í Austurríki fyrir nokkrum dögum. Þetta væri varla í frásögur færandi á Íslandi nema fyrir þá sök að Ganthaler slapp naumlega við að vera á meðal farþega í Air France þotunni sem fórst undan ströndum Brasilíu fyrir skömmu síðan. 12.6.2009 10:40 Stórmarkaður stal fjölskyldumynd og auglýsti með henni Varasamt getur verið að setja fjölskyldumyndirnar á Netið. Hjónin Jeff og Danielle Smith frá Missouri komust að þessu þegar vinur þeirra, sem staddur var á ferðalagi í Prag í Tékklandi, hringdi og spurði í forundran hvort þau væru farin að leika í auglýsingum þar í landi. 12.6.2009 08:36 Persónuleiki ræður meiru við starfsval en menntun Hvort er yfirmaðurinn of harður eða starfsfólkið hreinlega bara latt? Ný áströlsk könnun veltir upp athyglisverðum punktum um vinnu og val á starfi. 12.6.2009 08:09 Bandarískur ofurhermaður uppspuni frá rótum Meint stríðshetja úr bandaríska sjóhernum sem farið hefur sigurför um Bandaríkin reyndist þegar upp var staðið aldrei hafa útskrifast úr herskóla. 12.6.2009 07:30 Enn slær í brýnu á Norðurbrú Rúmlega tvítugur maður er í haldi lögreglu í Kaupmannahöfn eftir enn einn skotbardagann á Nørrebro í gærkvöldi. 12.6.2009 07:25 Flottustu smyglgöngin fram að þessu Lögregla við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó er agndofa yfir tæplega 30 metra löngum smyglgöngum sem uppgötvuðust í síðustu og liggja undir landamærin. 12.6.2009 07:19 Forsetakosningar í Íran í dag Íranar ganga að kjörborðinu í dag og velja sér forseta. Stendur valið á milli sitjandi forseta, Mahmoud Ahmadinejad, og Mir Hossein Moussavi, leiðtoga umbótasinna. 12.6.2009 07:16 Helfararsafnskyttan ákærð James von Brunn, sem réðst inn á Helfararsafnið í Washington í fyrradag og skaut öryggisvörð þar til bana, hefur verið ákærður fyrir morð og gæti átt von á dauðarefsingu verði hann sekur fundinn. 12.6.2009 07:09 Frakkar og Ítalir svíkja loforð 12.6.2009 04:00 Bin Laden er í Pakistan Osama bin Laden er í Pakistan. Þetta segir yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, Leon Panetta, en hann var spurður af fréttamönnum hvort hann væri viss um að svo væri að Bin Laden væri í Pakistan. 11.6.2009 20:07 Inflúensan orðin að alheimsfaraldi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur skilgreint H1N1-inflúensuna sem alheimsfaraldur en þetta þýðir að flensan breiðast nú hratt út og í að minnsta kosti tveim heimsálfum. 11.6.2009 15:07 WHO boðar til blaðamannafundar vegna flensunnar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur boðað til blaðamannafundar klukkan fjögur í dag um útbreiðslu inflúensuveirunnar í heiminum. Fastlega er búist við að alheimsfaraldri verð lýst yfir en miklar áhyggjur eru yfir ástandinu vegna fjölda tilfella sem hafa komið upp í Ástralíu undanfarið. 11.6.2009 13:35 Hraðaskynjurum skipt út í öllum vélum Air France Skipta á út öllum hraðaskynjurum í airbusvélum Air France. Er þetta gert í varúðarskyni en ekki er útilokað að bilaðir hraðaskynjarar hafi orskað það að vél félagsins fórst yfir Atlantshafi í síðustu viku. 11.6.2009 12:23 Eldur í flugstjórnarklefa Airbus-þotu Þotu af gerðinni Airbus A330, sem er sama gerð og þota Air France sem fórst í Atlantshafi, var lent í Guam í morgun eftir að eldur kom upp í flugstjórnarklefanum. 11.6.2009 08:28 Nýútskrifaðir Bandaríkjamenn leita í opinber störf Nýútskrifað háskólafólk í Bandaríkjunum leitar nú fyrst og fremst að störfum hjá hinu opinbera, ólíkt því sem áður var. 11.6.2009 08:17 Ók inn í hús á stolnum bíl Ferðalag 16 ára gamals bílþjófs í danska bænum Givskud endaði inni í húsi eftir að hann missti stjórn á bílnum á miklum hraða. 11.6.2009 08:15 Neyðarfundur hjá WHO vegna flensunnar Boðað hefur verið til neyðarfundar hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO í dag en hávær orðrómur er uppi um að heimsfaraldri vegna Inflúensu A, eða svínaflensunnar, verði lýst yfir. 11.6.2009 08:10 Ítalir og Frakkar standa sig ekki í Afríkuaðstoð Ítalir og Frakkar hafa ekki staðið sig í stykkinu við að aðstoða fátæk Afríkuríki þrátt fyrir yfirlýsingar þar að lútandi á ráðstefnu árið 2005. 11.6.2009 07:33 Eldri Bandaríkjamenn streyma á vinnumarkað Eldri Bandaríkjamenn, sem geta ekki lifað af lífeyrisgreiðslum sínum, leita sér nú að vinnu sem óðast og hefur fjöldi eldri borgara, sem leita eftir vinnu, aukist um 120 prósent síðasta árið. 11.6.2009 07:13 Fyrstu líkin komin til Brasilíu Fyrstu líkin úr Air France-flugslysinu komu til herstöðvar brasilíska flughersins í Recife í gær. Þaðan voru þau flutt til réttarrannsóknarstöðvar þar sem vinna hefst við að bera kennsl á þau. 11.6.2009 07:04 Öryggisvörður látinn eftir skotárás í Washington Öryggisvörður í Holocaust Memorial safninu í Washington sem varð fyrir skotárás í kvöld er látinn. Maður gekk inn í safnið vopnaður riffli og hóf að skjóta. Kollegar öryggisvarðarins skutu byssumanninn sem er mun vera í lífshættu. 10.6.2009 21:41 Reyndust ekki í flokki róttækra múslima Svo virðist sem tveir farþegar sem voru um borð í Air France þotunni sem fórst yfir Atlantshafi í síðustu viku hafi ekki verið á lista yfir róttæka múslima, líkt og komið hefur fram í fréttum í dag. 10.6.2009 20:52 Tveir særðir eftir skotárás á safni Tveir eru særðir eftir skotárás á Holocaust Memorial safninu í Washington DC. Maður gekk inn í andyri safnsins vopnaður riffli og hóf skothríð. Hann hæfði vörð en kollegar varðarins náðu að gjalda skotmanninum í sömu mynt og liggja þeir báðir á George Washington spítalanum. 10.6.2009 19:21 Flugslys Air France: Hugsanlega hryðjuverk Tveir farþegar frönsku farþegaflugvélarinnar sem fórst yfir Atlantshafi í síðustu viku, höfðu tengsl við íslömsk hryðjuverkasamtök. Breskir fjölmiðlar greina frá þessu í dag en aldrei hefur verið útilokað að um hryðjuverk hafi verið að ræða. 10.6.2009 14:15 32 látnir í sprengingu í Írak 32 eru látnir í það minnsta í mikilli sprengingu sem skók fjölmennan markað í suðurhluta Íraks í morgun. Lögregla í bænum Al-Bathaa segir að tála látinna kunni að hækka en tugir manna eru slasaðir eftir árásina. Bíl fylltum af sprengiefni var ekið inn á miðjan markaðinn og hann síðan sprengdur í loft upp. 10.6.2009 10:53 Inflúensutilfellum fjölgar ört í Ástralíu Alþjóðaheilbrigðistofnunin, WHO, segir að mikil útbreiðsla Inflúensu A í Ástralíu gæti gert það að verkum að stofnunin þurfi að lýsa yfir heimsfaraldri. Það yrði í fyrsta sinn í fjóra áratugi sem heilbrigðisyfirvöld lýsa yfir heimsfaraldri. Fleiri en 1200 manns hafa smitast af veikinni í Ástralíu og hafa tilfelli fjórfaldast á einni viku. Það er ekki mánuður síðan Ástralar höfðu aðeins uppgötvað örfá tilfelli af inflúensunni en nú er svo komið að ekkert land í heiminum utan Norður Ameríku er með fleiri smitaða einstaklinga. 10.6.2009 08:15 Búist við öngþveiti í London Búist er við öngþveiti á strætum Lundúnaborgar í dag en starfsmenn í neðanjarðarlestakerfinu víðfræga hófu verkfallsaðgerðir í nótt og hafa þúsundir lagt niður vinnu sína. Starfsmennirnir krefjast betri launa og fóru samningaviðræður á milli deiluaðila út um þúfur í gærkvöldi. 10.6.2009 08:10 Lögreglumenn grunaðir um pyntingar Sex lögreglumenn í London hafa verið reknir eða eru undir sérstöku eftirliti við störf sín vegna ásakanna um slæma meðferð á fólki eftir að lögregla réðst til atlögu við eiturlyfjasala í tveimur aðgerðum í nóvember á síðasta ári. Lögregluyfirvöld segja að ásakannirnar á hendur mönnunum séu alvarlegar og að þær vekji áhyggjur. 10.6.2009 07:48 Fangi frá Guantanamo kominn til New York Fyrsti fanginn úr Guantanamo-fangabúðunum sem rétta skal yfir fyrir almennum dómstól í Bandaríkjunum er kominn til New York. Hann er grunaður um aðild að al Kaída hryðjuverkasamtökunum. 9.6.2009 12:12 Spítali í Manchester tapaði 1,3 milljörðum á bankahruninu Christie Cancer spítalinn í Manchester, gerði þá kröfu á ríkisstjórn Bretlands að hún ábyrgðist þær 6,5 milljónir punda sem spítalinn tapaði með íslenska bankahruninu. Spítalinn lagði þessa fjármuni inn í Kaupthing Edge innlánsreikning hjá Singer & Friedlander, dótturfélagi Kaupþings í London. 9.6.2009 09:35 Samfélagsþjónusta í uppnámi vegna veðurs Breskur fíkniefnasali fór beint inn í fangaklefa þegar hann þverneitaði að gegna samfélagsþjónustu af óvenjulegri ástæðu. 9.6.2009 08:12 Á fimmta hundrað sektir á einni og sömu uppákomu Lögregla í Vandel á Suðaustur-Jótlandi hafði nóg að gera um helgina þegar 410 sektarmiðar voru skrifaðir á einni og sömu uppákomunni, hinni ólöglegu kappaksturshátíð „Hraðskreiðasti bíll landsins" eða „Danmarks hurtigste bil“. 9.6.2009 08:09 Sjá næstu 50 fréttir
Grunaður barnaníðingur segist hafa fjarvistarsönnun Barnaníðingurinn Raymond Hewlett talar í fyrsta skipti um rannsóknina á Madeleine McCann í breska blaðinu Sunday Mirror í dag. Hann segist hafa fjarvistarsönnun en vill ekki gefa hana upp. Raymond segist ekki hafa drepið Maddie litlu en hann berst við krabbamein og er kominn á garfarbakkann. 14.6.2009 10:44
Fleiri en hundrað handteknir í Teheran í nótt Fleiri en hundrað umbótasinnar voru handteknir í Íran í nótt eftir að þeir og mörg þúsund manns til viðbótar mótmæltu í gær úrslitum forsetakosninga í landinu fyrir helgi. 14.6.2009 09:28
Anna Frank daðraði við stráka og skipti stöðugt um hárgreiðslu „Hún sagði sögur, daðraði svívirðilega mikið við stráka og var sífellt að skipta um hárgreiðslu.“ Þessi lýsing gæti átti við hvaða unglinsstúlku sem ólst upp í Evrópu. En svona er það sem Eva Schloss man eftir æskuvinkonu sinni Önnu Frank, sem hefði fagnað áttatíu ára afmæli sínu í þessari viku ef hún hefði ekki látið lífið í útrýmingarbúðum nasista. 14.6.2009 03:00
Fyrrum yfirmaður hersins í Gíneu flæktur í fíkniefnamál Háttsettur fyrrum yfirmaður hersins í Gíneu er meðal nítján annarra sem búist er við að eigi yfir höfði sér ákæru vegna flutnings á fíkniefnum á næstu dögum. Ríkisfjölmiðilinn þar í landi sagði í dag að Diarra Camara hafi verið meðal þeirra sem handteknir hafa verið eftir mikla rannsókn undanfarinna mánaða. Sonur Camara er einn hinna handteknu en þar má einnig finna aðra undirmenn hans í hernum. 13.6.2009 23:00
Segir kosningarnar hafa verið algjörlega frjálsar Mahmoud Ahmadinejad sem var endurkjörinn forseti Írans í gær segir að kosningarnar hafi veirð algjörlega frjálsar og heilbrigðar. Ahmadinejad var kosinn til næstu fjögurra ára en hann vísar þeirri gagnrýni á bug að einhver brögð hafi verið í tafli. Til átaka kom í höfuðborginni Teheran þegar ljóst úrslit kosninganna lágu fyrir en margir bjuggust við að Ahmadinejad myndi tapa kosningunum. 13.6.2009 19:36
Átök í Teheran vegna úrslita forsetakosninganna Til átaka hefur komið milli stjórnarandstæðinga og lögreglu í Teheran, höfuðborg Írans, í dag eftir að tilkynnt var að Mahmoud Ahmadinejad hefði verið endurkjörinn forseti landsins í kosningum í gær. 13.6.2009 14:50
Feeney hreinsaður af ásökunum um aðild að morði Donald Feeney, sem sat í fangelsi á Íslandi fyrir barnsrán, hefur verið hreinsaður af ásökunum um aðild að hrottalegu morði á græna svæðinu í Bagdad. Feeney var handtekinn í síðustu viku ásamt syni sínum en þeir gætu orðið fyrstu bandaríksu verktakarnir sem sóttir verða til saka í Írak. 13.6.2009 13:24
Feeney grunaður um morð í Írak Donald Feeney, sem sat í fangelsi á Íslandi fyrir barnsrán, er grunaður um aðild að hrottalegu morði á græna svæðinu í Bagdad. Feeney var handtekinn í síðustu viku ásamt syni sínum en þeir gætu orðið fyrstu bandaríksu verktakarnir sem sóttir verða til saka í Írak. 13.6.2009 12:02
Norður-Kórea hótar að smíða kjarnorkusprengjur Stjórnvöld í Norður-Kóreu hóta því að smíða kjarnorkusprengjur úr plútónbirgðum sínum og hefja aftur auðgun úrans samkvæmt kjarnorkuátælun sinni. Þetta er svar Norður-Kóreumanna við einróma ákvörðun öryggisráðs 13.6.2009 10:00
Ahmadinejad endurkjörinn forseti Írans Mahmoud Ahmadinejad var endurkjörinn forseti Írans í kosningum í gær þar sem áttatíu prósent kosningabærra Írana greiddu atkvæði. Samkvæmt yfirlýsingu kjörstjórnar er búið að telja um áttatíu prósent atkvæða og Ahmadinejad fengið sextíu og fimm prósent þeirra en helsti andstæðingur hans, Mír Hossein Músaví, leiðtogi umbótasinna og fyrrverandi forsætisráðherra Írans, aðeins þrjátíu og tvö prósent atkvæða. 13.6.2009 09:33
Lýsa báðir yfir sigri Forseti Íran, Mahmoud Ahmadinejad og keppinautur hans Mirhossein Mousavi hafa báðir lýst yfir sigri í forsetakosningum í landinu. 12.6.2009 21:00
Járnfrúin flutt á sjúkrahús Járnfrúin Margaret Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, er undir eftirliti á sjúkrahúsi eftir að hún féll á heimili sínu en hún handleggsbrotnaði við fallið. 12.6.2009 14:12
Alheimsfaraldi lýst yfir vegna kerfisgalla Kerfisgalli er ástæðan fyrir því að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur orðið að lýsa yfir alheimsfaraldri vegna fremur vægrar flensu. Þetta er mat bandarísks sérfræðings í smitsjúkdómum. 12.6.2009 12:14
Ekki verður feigum forðað Ítalska konan Johanna Ganthaler lést í bílslysi í Austurríki fyrir nokkrum dögum. Þetta væri varla í frásögur færandi á Íslandi nema fyrir þá sök að Ganthaler slapp naumlega við að vera á meðal farþega í Air France þotunni sem fórst undan ströndum Brasilíu fyrir skömmu síðan. 12.6.2009 10:40
Stórmarkaður stal fjölskyldumynd og auglýsti með henni Varasamt getur verið að setja fjölskyldumyndirnar á Netið. Hjónin Jeff og Danielle Smith frá Missouri komust að þessu þegar vinur þeirra, sem staddur var á ferðalagi í Prag í Tékklandi, hringdi og spurði í forundran hvort þau væru farin að leika í auglýsingum þar í landi. 12.6.2009 08:36
Persónuleiki ræður meiru við starfsval en menntun Hvort er yfirmaðurinn of harður eða starfsfólkið hreinlega bara latt? Ný áströlsk könnun veltir upp athyglisverðum punktum um vinnu og val á starfi. 12.6.2009 08:09
Bandarískur ofurhermaður uppspuni frá rótum Meint stríðshetja úr bandaríska sjóhernum sem farið hefur sigurför um Bandaríkin reyndist þegar upp var staðið aldrei hafa útskrifast úr herskóla. 12.6.2009 07:30
Enn slær í brýnu á Norðurbrú Rúmlega tvítugur maður er í haldi lögreglu í Kaupmannahöfn eftir enn einn skotbardagann á Nørrebro í gærkvöldi. 12.6.2009 07:25
Flottustu smyglgöngin fram að þessu Lögregla við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó er agndofa yfir tæplega 30 metra löngum smyglgöngum sem uppgötvuðust í síðustu og liggja undir landamærin. 12.6.2009 07:19
Forsetakosningar í Íran í dag Íranar ganga að kjörborðinu í dag og velja sér forseta. Stendur valið á milli sitjandi forseta, Mahmoud Ahmadinejad, og Mir Hossein Moussavi, leiðtoga umbótasinna. 12.6.2009 07:16
Helfararsafnskyttan ákærð James von Brunn, sem réðst inn á Helfararsafnið í Washington í fyrradag og skaut öryggisvörð þar til bana, hefur verið ákærður fyrir morð og gæti átt von á dauðarefsingu verði hann sekur fundinn. 12.6.2009 07:09
Bin Laden er í Pakistan Osama bin Laden er í Pakistan. Þetta segir yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, Leon Panetta, en hann var spurður af fréttamönnum hvort hann væri viss um að svo væri að Bin Laden væri í Pakistan. 11.6.2009 20:07
Inflúensan orðin að alheimsfaraldi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur skilgreint H1N1-inflúensuna sem alheimsfaraldur en þetta þýðir að flensan breiðast nú hratt út og í að minnsta kosti tveim heimsálfum. 11.6.2009 15:07
WHO boðar til blaðamannafundar vegna flensunnar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur boðað til blaðamannafundar klukkan fjögur í dag um útbreiðslu inflúensuveirunnar í heiminum. Fastlega er búist við að alheimsfaraldri verð lýst yfir en miklar áhyggjur eru yfir ástandinu vegna fjölda tilfella sem hafa komið upp í Ástralíu undanfarið. 11.6.2009 13:35
Hraðaskynjurum skipt út í öllum vélum Air France Skipta á út öllum hraðaskynjurum í airbusvélum Air France. Er þetta gert í varúðarskyni en ekki er útilokað að bilaðir hraðaskynjarar hafi orskað það að vél félagsins fórst yfir Atlantshafi í síðustu viku. 11.6.2009 12:23
Eldur í flugstjórnarklefa Airbus-þotu Þotu af gerðinni Airbus A330, sem er sama gerð og þota Air France sem fórst í Atlantshafi, var lent í Guam í morgun eftir að eldur kom upp í flugstjórnarklefanum. 11.6.2009 08:28
Nýútskrifaðir Bandaríkjamenn leita í opinber störf Nýútskrifað háskólafólk í Bandaríkjunum leitar nú fyrst og fremst að störfum hjá hinu opinbera, ólíkt því sem áður var. 11.6.2009 08:17
Ók inn í hús á stolnum bíl Ferðalag 16 ára gamals bílþjófs í danska bænum Givskud endaði inni í húsi eftir að hann missti stjórn á bílnum á miklum hraða. 11.6.2009 08:15
Neyðarfundur hjá WHO vegna flensunnar Boðað hefur verið til neyðarfundar hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO í dag en hávær orðrómur er uppi um að heimsfaraldri vegna Inflúensu A, eða svínaflensunnar, verði lýst yfir. 11.6.2009 08:10
Ítalir og Frakkar standa sig ekki í Afríkuaðstoð Ítalir og Frakkar hafa ekki staðið sig í stykkinu við að aðstoða fátæk Afríkuríki þrátt fyrir yfirlýsingar þar að lútandi á ráðstefnu árið 2005. 11.6.2009 07:33
Eldri Bandaríkjamenn streyma á vinnumarkað Eldri Bandaríkjamenn, sem geta ekki lifað af lífeyrisgreiðslum sínum, leita sér nú að vinnu sem óðast og hefur fjöldi eldri borgara, sem leita eftir vinnu, aukist um 120 prósent síðasta árið. 11.6.2009 07:13
Fyrstu líkin komin til Brasilíu Fyrstu líkin úr Air France-flugslysinu komu til herstöðvar brasilíska flughersins í Recife í gær. Þaðan voru þau flutt til réttarrannsóknarstöðvar þar sem vinna hefst við að bera kennsl á þau. 11.6.2009 07:04
Öryggisvörður látinn eftir skotárás í Washington Öryggisvörður í Holocaust Memorial safninu í Washington sem varð fyrir skotárás í kvöld er látinn. Maður gekk inn í safnið vopnaður riffli og hóf að skjóta. Kollegar öryggisvarðarins skutu byssumanninn sem er mun vera í lífshættu. 10.6.2009 21:41
Reyndust ekki í flokki róttækra múslima Svo virðist sem tveir farþegar sem voru um borð í Air France þotunni sem fórst yfir Atlantshafi í síðustu viku hafi ekki verið á lista yfir róttæka múslima, líkt og komið hefur fram í fréttum í dag. 10.6.2009 20:52
Tveir særðir eftir skotárás á safni Tveir eru særðir eftir skotárás á Holocaust Memorial safninu í Washington DC. Maður gekk inn í andyri safnsins vopnaður riffli og hóf skothríð. Hann hæfði vörð en kollegar varðarins náðu að gjalda skotmanninum í sömu mynt og liggja þeir báðir á George Washington spítalanum. 10.6.2009 19:21
Flugslys Air France: Hugsanlega hryðjuverk Tveir farþegar frönsku farþegaflugvélarinnar sem fórst yfir Atlantshafi í síðustu viku, höfðu tengsl við íslömsk hryðjuverkasamtök. Breskir fjölmiðlar greina frá þessu í dag en aldrei hefur verið útilokað að um hryðjuverk hafi verið að ræða. 10.6.2009 14:15
32 látnir í sprengingu í Írak 32 eru látnir í það minnsta í mikilli sprengingu sem skók fjölmennan markað í suðurhluta Íraks í morgun. Lögregla í bænum Al-Bathaa segir að tála látinna kunni að hækka en tugir manna eru slasaðir eftir árásina. Bíl fylltum af sprengiefni var ekið inn á miðjan markaðinn og hann síðan sprengdur í loft upp. 10.6.2009 10:53
Inflúensutilfellum fjölgar ört í Ástralíu Alþjóðaheilbrigðistofnunin, WHO, segir að mikil útbreiðsla Inflúensu A í Ástralíu gæti gert það að verkum að stofnunin þurfi að lýsa yfir heimsfaraldri. Það yrði í fyrsta sinn í fjóra áratugi sem heilbrigðisyfirvöld lýsa yfir heimsfaraldri. Fleiri en 1200 manns hafa smitast af veikinni í Ástralíu og hafa tilfelli fjórfaldast á einni viku. Það er ekki mánuður síðan Ástralar höfðu aðeins uppgötvað örfá tilfelli af inflúensunni en nú er svo komið að ekkert land í heiminum utan Norður Ameríku er með fleiri smitaða einstaklinga. 10.6.2009 08:15
Búist við öngþveiti í London Búist er við öngþveiti á strætum Lundúnaborgar í dag en starfsmenn í neðanjarðarlestakerfinu víðfræga hófu verkfallsaðgerðir í nótt og hafa þúsundir lagt niður vinnu sína. Starfsmennirnir krefjast betri launa og fóru samningaviðræður á milli deiluaðila út um þúfur í gærkvöldi. 10.6.2009 08:10
Lögreglumenn grunaðir um pyntingar Sex lögreglumenn í London hafa verið reknir eða eru undir sérstöku eftirliti við störf sín vegna ásakanna um slæma meðferð á fólki eftir að lögregla réðst til atlögu við eiturlyfjasala í tveimur aðgerðum í nóvember á síðasta ári. Lögregluyfirvöld segja að ásakannirnar á hendur mönnunum séu alvarlegar og að þær vekji áhyggjur. 10.6.2009 07:48
Fangi frá Guantanamo kominn til New York Fyrsti fanginn úr Guantanamo-fangabúðunum sem rétta skal yfir fyrir almennum dómstól í Bandaríkjunum er kominn til New York. Hann er grunaður um aðild að al Kaída hryðjuverkasamtökunum. 9.6.2009 12:12
Spítali í Manchester tapaði 1,3 milljörðum á bankahruninu Christie Cancer spítalinn í Manchester, gerði þá kröfu á ríkisstjórn Bretlands að hún ábyrgðist þær 6,5 milljónir punda sem spítalinn tapaði með íslenska bankahruninu. Spítalinn lagði þessa fjármuni inn í Kaupthing Edge innlánsreikning hjá Singer & Friedlander, dótturfélagi Kaupþings í London. 9.6.2009 09:35
Samfélagsþjónusta í uppnámi vegna veðurs Breskur fíkniefnasali fór beint inn í fangaklefa þegar hann þverneitaði að gegna samfélagsþjónustu af óvenjulegri ástæðu. 9.6.2009 08:12
Á fimmta hundrað sektir á einni og sömu uppákomu Lögregla í Vandel á Suðaustur-Jótlandi hafði nóg að gera um helgina þegar 410 sektarmiðar voru skrifaðir á einni og sömu uppákomunni, hinni ólöglegu kappaksturshátíð „Hraðskreiðasti bíll landsins" eða „Danmarks hurtigste bil“. 9.6.2009 08:09