Fleiri fréttir

Samtök gegn fóstureyðingum fordæma ákvörðun Obama

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, aflétti í gærkvöldi takmörkunum á opinberum fjárstuðningin við bandarísk samtök sem veita fjölskylduráðgjöf utan Bandaríkjanna. Það tekur einnig til samtaka sem veita upplýsingar og ráðgjöf um fóstureyðingar. George Bush fyrrverandi forseti hafði komið þeim takmörkunum á.

Vilja leiðtoga uppreisnarmanna framseldan

Ráðamenn í Kongó hafa óskað eftir því að Laurent Nkunda, leiðtogi uppreisnarmanna í landinu, verði framseldur. Ráðamenn í Rúanda tilkynntu í gærmorgun að herlið þeirra hefði tekið Nkunda höndum í búðum hands við landamærin að Úganda.

SÞ skóla á nýjan leik á Gaza

Sameinuðu þjóðirnar opnuðu í morgun aftur skóla á Gaza svæðinu sem lokað var þegar árásir Ísraela á svæðið hófust rétt fyrir áramót. Búist er við að um tvö hundruð þúsund palestínsk börn setjist þar aftur á skólabekk.

Fjögur dauðsföll á tveimur vikum vegna fuglaflensu

Kínversk yfirvöld tilkynntu í morgun að kona um þrítugt hefði í gær látist af völdum fuglaflesnsu í norð vestur hluta landsins. Áður hafði verið tilkynnt um þrjú önnur dauðsföll af völdum sjúkdómsins síðasta hálfa mánuðinn. Fimmta manneskjan mun hafa veikst.

Snýr sér að efnahagsmálum

Barack Obama Bandaríkjaforseti átti í gær fundi með þingmönnum beggja flokka og hvatti þá til að styðja efnahagsaðgerðir sínar. Ástandið í efnahagslífi þjóðarinnar krefjist þess að þingið taki til sinna ráða, jafnvel þótt sumum þingmönnum hugnist ekki sumir hlutar aðgerðanna.

Örfáir myndu framselja hann

Ratko Mladic nýtur enn mikilla vinsælda og stuðnings í Serbíu, þrátt fyrir að hafa verið eftirlýstur stríðsglæpamaður í meira en áratug.

Lögregluþjónn skaut unnustu

Lögregluþjónn í Tromsö í Noregi skaut í gær fyrrverandi sambýliskonu sína til bana á bílastæði fyrir utan barnaskóla þar sem hún vann. Því næst gerði hann tilraun til að svipta sig lífi.

Stakk á annan tug ungbarna

Geðbilaður maður vopnaður hnífi óð inn á barnadagheimili í flæmskum bæ í gær og stakk þar alla sem á vegi hans urðu. Tvö ungbörn dóu og ein fóstra. Tíu börn til viðbótar liggja mismikið særð á sjúkrahúsi. Meiðsli sumra þeirra kváðu vera alvarleg.

Kínverjar leggjast í ferðalög

Kínverjar ferðast nú til útlanda sem aldrei fyrr til að taka sér frí frá lægðum í veðri og hagkerfi. Ár uxans gengur í garð í Kína á mánudaginn og nú ber svo við að margir fagna því með því að ferðast til Víetnam og Kambódíu í stað þess að heimsækja ættingja og vini í Kína eins og siður er um áramót.

Óttast glæpaöldu í Bretlandi

Bresk yfirvöld óttast að glæpaalda fari um landið með versnandi efnahagsástandi. Tölur frá innanríkisráðuneytinu gefa þetta til kynna en að meðaltali er brotist inn á breskt heimili á tveggja mínútna fresti.

Stakk föður sinn til bana

Tæplega sextugur maður fannst stunginn til bana í íbúð við Frimestervej í Kaupmannahöfn síðdegis í gær. Sonur hans á fertugsaldri var handtekinn á staðnum og hefur játað á sig verknaðinn.

Rúmur þriðjungur Breta drekkur of mikið

Meira en þriðjungur Breta drekkur of mikið áfengi samkvæmt opinberum tölum sem gerðar voru heyrum kunnar í gær. Heilbrigðisstarfsmenn hafa gefið út að eðlileg áfengisneysla teljist þrír til fjórir drykkir á dag fyrir karlmenn og tveir til þrír fyrir konur.

Fogh undirbýr evrukosningar

Anders Fogh Rasmus­sen, forsætisráðherra Danmerkur, stefnir að því að boða til nýrrar atkvæðagreiðslu um að Danir falli frá undanþágunni frá þátttöku í myntbandalag ESB og hinum undanþágunum þremur frá ESB-samstarfinu sem samið var um eftir höfnun Dana á Maastricht-sáttmálanum árið 1992.

Eldhestur á Spáni

Kaþólikkar eiga sér marga dýrlinga sem sjá um hina og þessa hluti fyrir þá. Einn þeirra er heilagur Antoníus sem er verndari dýra.

Eins og draugaskip

Það hefur verið mikið kuldakast bæði austan hafs og vestan undanfarnar vikur. Það hefur komið þjóðum í Austur-Evrópu mjög illa þar sem Rússar skrúfuðu fyrir gasflutninga sína til Evrópu vegna deilna við Úkraínu.

Drógu bátskrifli flóttamanna út á haf

Thailenski sjóherinn er sakaður um að hafa dregið nokkur bátskrifli með tæplega eittþúsund flóttamönnum á haf út og skilið þá þar eftir. Í bátunum var fólk sem kallar sig Rohingya og kemur frá Burma. Þar er fólkið ekki viðurkennt sem minnihlutahópur og þúsundir hafa flúið land undanfarna áratugi.

Grunaður um að myrða móður sína

Kona fannst látin í íbúð í Nørrebro-hverfinu í Kaupmannahöfn í morgun og er talið að hún hafi verið myrt. Sonur hinnar látnu hefur verið handtekinn, grunaður um verknaðinn, en það var hann sem hafði samband við lögreglu og greindi frá því að lík væri í íbúðinni. Áverkar á líkinu benda til þess að konan hafi fengið þungt högg í andlitið.

Jákvæðar úrtölur hjá Parmigiani

Svissneski armbandsúraframleiðandinn Parmigiani kvíðir því ekki að hinir efnameiri hætti að kaupa sér úr þótt aðrir framleiðendur í sama bransa finni fyrir samdrætti.

Ísraelsher rannsakar fosfórnotkun á Gaza

Ísraelsher rannsakar nú hvort fosfórsprengjum hafi verið varpað á óbreytta borgara á Gaza-svæðinu en mannréttindasamtökin Amnesty International fullyrða að slík atvik hafi átt sér stað.

Obama sver á ný

Barack Obama bandaríkjaforseti sór embættiseið sinn aftur í gærkvöldi til að hafa það örugglega á hreinu að hann gegni embættinu réttilega en John Roberts, forseti Hæstaréttar, fipaðist þegar hann fór með eiðstafinn fyrir Obama við embættistökuna á þriðjudaginn.

Fjórir af tíu brotamönnum sleppa með aðvörun

Fjórir af hverjum tíu afbrotamönnum sem fremja alvarleg brot í Bretlandi sleppa með aðvörun þegar í raun ætti að ákæra þá og rétta yfir þeim. Þetta hefur Telegraph eftir David Ruffley, skuggaráðherra lögreglumála, sem nýlega gagnrýndi aukastörf lögreglumanna harðlega.

Danska tollgæslan kvartar yfir skorti á eftirliti

Danska tollgæslan hefur þungar áhyggjur af slælegu eftirliti með vopnum, lyfjum og peningum við landamæri. Niðurskurður og skortur á úrræðum er orsök þess vanda að sögn Jørn Rise, formanns Tollvarðafélags Danmerkur.

Augu Japana hvíla á Obama

Augu Japana hvíla á Barack Obama. Þessu slær japanska dagblaðið Yomiuri Shimbun fram í fyrirsögn og greinir frá því að ákall Obama til bandarísku þjóðarinnar um að styðja hið nýja tímabil ábyrgðarinnar hafi vakið þjóðarathygli í Japan.

Breski pósturinn græðir á tá og fingri

Að minnsta kosti ein opinber stofnun í Bretlandi er í bullandi gróða þrátt fyrir ófremdarástand í efnahagsmálum en það er pósturinn. Gróði Royal Mail síðustu níu mánuði ársins 2008 var hvorki meira né minna en 225 milljónir punda, sem jafngildir um 40 milljörðum króna.

Guantánamo lokað innan árs

Fyrsti dagur Baracks Obama í embætti Bandaríkjaforseta var annasamur. Hann kallaði saman helstu ráðgjafa sína í bæði efnahagsmálum og hermálum til að fjalla um þau erfiðu verkefni, sem blasa við strax í byrjun embættistíðar hans.

Ný norðurskautsstefna

Meðal síðustu embættisverka George W. Bush Bandaríkjaforseta var að móta nýja stefnu Bandaríkjanna gagnvart Norðurheimskautssvæðinu, sem á næstu árum og áratugum verður væntanlega aðgengilegra en áður vegna hlýnunar jarðar.

Úkraínustjórn fagnar sigri

Úkraínustjórn fagnaði í gær sigri á Rússum í gasdeilunni, sem varð til þess að skrúfað var fyrir gas til Evrópuríkja í tvær vikur.

Piparúðinn vekur athygli

„Lögreglan beitir piparúða á íslenska mótmælendur“ er fyrirsögnin á frétt Reuters-fréttastofunnar um mótmælin á Austurvelli.

Obama hóf daginn á kirkjuheimsókn

Hinn nýi forseti Bandaríkjanna hóf daginn á því að fara í kirkju ásamt Bill og Hillary Clinton. Þaðan fór hann á skrifstofuna sína til þess að byrja að stjórna landinu.

Liðsmenn al Kaida féllu í mislukkaðri tilraun

Al Kaida hópur í Alsír þurrkaði sjálfan sig út þegar tilraun með sýklavopn fór úrskeiðis. Bandaríska blaðið Washington Times hefur eftir heimildarmanni í leyniþjónustunni að al-Kaida liðarnir hafi verið að rækta sýkla fyrir kýlapestina Svartadauða sem felldi þriðjung íbúa Evrópu á þrettándi öld.

Ísraelar segjast farnir frá Gaza

Ísraelar segjast hafa lokið brottflutningi allra hermanna sinna frá Gaza ströndinni. Eyðileggingin er óskapleg. Ísraelar höfðu flutt flestalla sína hermenn frá Gaza ströndinni áður en Barack Obama sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna. Fréttaskýrendur telja að þeir hafi vilja forðast spennu í upphafi samskipta sinna við hinn nýja forseta.

Hátíðarstemmning vestanhafs

Mikil hátíðarstemmning hefur ríkt í Bandaríkjunum síðan Barack Obama sór embættiseið sinn sem 44. forseti landsins að viðstöddu mannhafi í Washington í gær.

Fjölskylduerjur urðu að hópslagsmálum

Um það bil 40 manns tóku þátt í hópslagsmálum sem brutust út um þrjúleytið í gær við verslun Nettó í Árósum í Danmörku. Allir sem að átökunum komu eru innflytjendur og segir lögreglan að eftir því sem næst verði komist hafi deilur innan stórfjölskyldu leitt til slagsmálanna.

Flugáhöfn klyfjuð fíkniefnum

Fimmtán manns úr áhöfn flugfélagsins South African Airlines voru handteknir á Heathrow-flugvellinum í London í gær eftir að 50 kíló af kannabisefnum og fjögur kíló af kókaíni fundust í farangri þeirra.

Nauðgaði konu til að hljóta enskukennslu í fangelsi

Rúmenskur flækingur nauðgaði ungri konu og rændi hana í undirgöngum í West Yorkshire í Bretlandi í þeim tilgangi að komast í fangelsi þar sem hann gæti lært ensku og fengið fæði og húsaskjól. Þetta játaði maðurinn fyrir fangelsisgeðlækni.

Vill að Bush og Rumsfeld verði ákærðir vegna pyntinga

Austurríkismaðurinn Manfred Nowak, sérstakur fulltrúi Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum í heiminum, hvetur bandarísk stjórnvöld til þess að sækja George Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Donald Rumsfeld, fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, til saka fyrir pyntingar og meðhöndlun fanga í stjórnartíð Bush.

Var læstur í ferðatösku

Hinn fimm ára gamli Oliver Chaaning varð fyrir miklum hremmingum þegar að honum var rænt í Danmörku á síðasta ári.

Vill fylgjast vandlega með mörkuðum og leita sátta við múslima

Barack Obama varð nú síðdegis fertugasti og fjórði forseti Bandaríkjanna þegar hann sór embættiseið fyrstur blökkumanna. Obama segir á valdatíma sínum verði fylgst vandlega með mörkuðum svo þeir fari ekki aftur framúr sér. Herlið yrði kallað heim frá Írak með ábyrgum hætti og friður tryggður í Afganistan. Sátta yrði leitað við múslima um heim allan.

Sjá næstu 50 fréttir