Fleiri fréttir

Ban Ki-moon til Gaza

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, heimsækir Gaza-svæðið í dag og skoðar ummerkin eftir heiftarlegar árásir Ísraelsmanna sem hófust í lok desember og urðu rúmlega 1.300 Palestínumönnum að bana.

Rússar lofa gasi í dag

Rússneski gasframleiðandinn Gazprom segist munu skrúfa á ný frá gasi til Evrópu klukkan sjö árdegis í dag. Þetta staðfestir Sergei Kypriyanov, talsmaður fyrirtækisins, í samtali við BBC.

Danskur bankaræningi kærði húsleit

Tæplega þrítugur Dani sem rændi banka í Kaupmannahöfn á fimmtudaginn gerði mistök sem hann gerir væntanlega ekki oftar. Lögreglu grunaði hver verið hefði á ferð í bankanum og fóru lögregluþjónar á heimili mannsins þar sem framkvæmd var húsleit, sem staðfesti grun hennar.

Fljúgandi furðuský herja á Breta

Margir Bretar hafa talið sig sjá geimför frá öðrum hnöttum undanfarna daga og hefur því jafnvel heyrst fleygt að dularfullt loftfar hafi rekist með ljósagangi og hávaða á vindmyllu í Lincolnskíri.

Ísraelar ætla frá Gasa í dag

„Fólk er svo sannarlega ánægt að sjá okkur,“ sagði Ahmed, einn af lögreglumönnum Hamas-hreyfingarinnar, sem nú eru komnir aftur út á götur Gasaborgar eftir þriggja vikna stanslausar árásir Ísraelsmanna.

Samningurinn um gasdeilu undirritaður

Forsætisráðherrar Rússlands og Úkraínu, þau Vladimír Pútín og Júlía Tímosjenko, fylgdust í gær með undirritun samnings um lausn á gasdeilunni, sem hefur orðið til þess að íbúar víða í Evrópu hafa ekki fengið gas til húshitunar.

Svellkaldur Obama

Fjölmiðlar vestanhafs hafa tekið eftir því hversu yfirvegaður Barack Obama hefur verið í dag þrátt fyrir að einungis fáeinar klukkustundir séu þangað til að hann tekur við einu ábyrgðarmesta starfi heims.

Danskir foreldrar stela af barnaspítulum

Leikföng, hitamælar og tölvuleikir hverfa í stórum stíl af barnadeildum spítalanna. Á sjúkrahúsinu í Næstved ver barnadeildin 8 þúsund dönskum krónum, eða röskum 160 þúsund krónum, árlega til þess að kaupa nýja tölvuleiki. Ástæðan er sú að þeir gömlu hverfa jafnóðum, er haft eftir Anette Østerkjerhuus í 24 tímum

Gasdeilunni lokið

Rússar og Úkrínumenn hafa gert með sér samkomulag til næstu 10 ára og því er gasdeilunni sem hófst 1. janúar lokið. Júlía Tymosjenko, forsætisráðherra Úkraínu, og Vladimir Pútin, forsætisráðherra Rússlands, skrifuðu undir samkomulagið í dag.

Stjörnur hylltu Obama

Stjörnurnar hylltu Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseta, á tónleikum í Washington í gærkvöldi. Obama tekur fyrstur blökkumanna við embættinu á morgun. Búist er við að tvær milljónir manna mæti og fylgist með.

Ban Ki-moon heimsækir Gaza

Ban Ki-moon framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna ætlar að heimsækja Gaza svæðið á morgun að því er fram kemur hjá fréttastofu Reuters. Þetta er haft eftir heimildum innan úr ísraelsku ríkisstjórninni og búist er við því að hann heimsæki einni suðurhluta Ísraels í sömu ferð.

Abbas hvetur Palestínumenn til að sýna samstöðu

Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna og leiðtogi Fatha-hreyfingarinnar á Vesturbakkanum, hvetur öll samtök Palstínumanna til að senda fulltrúa til viðræðna í Egyptalandi hið fyrsta. Á þeim fundi verði tekið á deilumálum hreyfinganna og reynt að koma á sáttum fyrir fullt og fast. Abbas segir að fundað verði eins lengi og þurfa þyki.

Bretum verr við samkynhneigða en fólk af öðrum kynþáttum

Hópur sálfræðinga frá Shire Professional-ráðgjafarstofunni, undir stjórn dr. Pete Jones, hefur reiknað það út að meira en þriðjungi Breta sé illa við samkynhneigða en það er stærri hópur en sá sem leggur fæð á fólk af ólíkum kynþáttum en þar er um að ræða einn fjórða.

Vopnahlé á Gaza heldur

Vopnahléið á Gaza, sem Ísraelsmenn lýstu yfir á laugardagskvöld, heldur enn sem komið er. Palestínumenn fóru um svæðið í gær og notuðu berar hendur og jarðýtur til að grafa lík upp úr rústum víða um borgina.

Ummerki um metangas á yfirborði Mars

Ummerki um metangas hafa fundist á yfirborði Mars og getur það gefið til kynna einhvers konar líffræðilega virkni. Meira en 90 prósent af metangasi hér á jörðinni á rætur sínar að rekja til einhvers konar lífrænna vistkerfa og því þykir Michael Mumma og rannsóknarhópi hans hjá bandarísku geimferðastofnuninni NASA það sæta miklum tíðindum að finna merki um metangas á Mars.

Myndir af stríðsföngum á Facebook brot á Genfarsáttmála

Myndir, sem danskir hermenn tóku af stríðsföngum í Írak árið 2003 og einn Dananna birti á Facebook-síðu sinni, hafa vakið mikinn úlfaþyt innan danska hersins enda brjóta slíkar myndbirtingar í bága við Genfarsáttmálann.

Fjöldi Bandaríkjamanna kemst ekki á eftirlaun

Bandaríkjamenn sem nálgast eftirlaunaaldurinn hætta nú í æ ríkari mæli við að setjast í helgan stein en vinna þess í stað áfram vegna lífeyrissparnaðar sem hvarf í svarthol efnahagshrunsins.

Nýtt gjald fyrir óendurvinnanlegt sorp í Bretlandi

Nú styttist í að sveitarstjórnum í Bretlandi verði kleift að rukka þegna sína um allt að 9.500 krónur fyrir að henda óendurvinnanlegum úrgangi í heimilissorptunnur sínar. Upplýsingar um þetta munu berast yfirvöldum gegnum örflögur sem komið verður fyrir í tunnunum.

Landhelgisgæsla sjóræningja

Sjóránum fjölgaði mjög á síðasta ári. Samtals var ráðist á 293 skip á árinu, en af þeim var 49 skipum rænt og nærri 900 skipverjum haldið í gíslingu víðs vegar um heim.

Obama kominn í forsetagír

Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, og Joe Biden, verðandi varaforseti, komu ásamt fjölskyldum sínum til Washington-borgar með lest á laugardag til að undirbúa sig fyrir embættistöku Obama á þriðjudag.

Al Qaeda hótar Þjóðverjum

Al Qaeda sendi frá sér skilaboð á Netinu um helgina þar sem þýskum hermönnum er hótað. Stjórnvöld í Þýskalandi segja að þetta bendi til þess að aukin hætta sé á hryðjuverkaárás á Þýskaland.

Leiðtogi Hamas segir Palestínumenn óhrædda

Einn af leiðtogum Hamas samtakanna sagði í dag að þriggja vikna árásir Ísraelsmanna á Gaza ströndinni væru misheppnaðar og hefðu ekki orðið til þess að skelfa Palestínumenn.

Gaza ströndin í rúst

Ísraelar boðuðu einhliða vopnahlé á miðnætti. Hamas samtökin segja að þau muni hætta öllum hernaðaraðgerðum og gefa ísraelum vikufrest til þess að flytja hermenn sína frá ströndinni.

Ég flýg ekki yfir íbúðasvæði

Rannsóknarnefnd flugslysa í Bandaríkjunum segir að annar hreyfill vélarinnar sem nauðlenti á Hudson fljóti sé enn á sínum stað, en í fyrstu var talið að þeir hefðu báðir brotnað af í lendingunni.

Obama þræddi slóð Lincolns

Barack Obama hóf daginn í Fíladelfíu þar sem hann fór um borð í járnbrautarlest sem flutti hann og fjölskyldu hans 219 kílómetra leiðina til Washington.

Hamas ætla að hætta hernaðaraðgerðum

Hamas samtökin tilkynntu í dag að þau myndu hætta öllum hernaðaraðgerðum og gefa Ísraelum vikufrest til þess að flytja hermenn sína frá Gaza ströndinni.

Obama styður Geithner þrátt fyrir undanskot hans frá skatti

Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, stendur þétt að baki Timothy Geithner, sem hann hefur valið í embætti fjármálaráðherra, þrátt fyrir að honum hafi orðið á mikil mistök þegar að hann sveikst undan því að greiða skatta. Þetta segir verðandi starfsmannastjóri í Hvíta húsinu.

Ísraelar lýstu yfir vopnahléi

Ísraelar lýstu í nótt yfir einhliða vopnahléi á Gaza ströndinni. Ekki eru þó byssurnar þagnaðar. Vopnahléð tók gildi á miðnætti. Skömmu síðar skutu Hamas liðar eldflaugahrinu á Ísrael. Því var svarað með loftárás sem Ísraelar segja að hafi hitt bæði skotpalla og skotmennina. Þótt Ísraelar hafi lýst yfir vopnahléi eru hermenn þeirra enn á ströndinni og verða þar áfram enn um sinn.

Færeyingar ósáttir við aðgerðarpakka Rasmussen

Danir gáfu Færeyingum langt nef þegar að oddviti ríkisstjórnar þeirra bað forsætisráðherra Danmerkur um að Færeyjar yrðu hluti af fjármálapakka, sem felur í sér ríkisstuðning við bankana.

Eiga nóg í fjórar til fimm bombur

Bandarískur sérfræðingur Selig Harrison hefur verið í Norður-Kóreu síðan á þriðjudag og rætt við háttsetta embættismenn þar í landi.

Armstrong hjólar á ný

Hjólreiðakeppinn Lance Armstrong hefur keppni á nýjan leik á morgun í vikulangri hjólreiðakeppni í Ástralíu. Á fundi með fréttamönnum í dag kvaðst hann hafa litla möguleika á sigri eftir að hafa setið á rassinum í þrjú og hálft ár og drukkið bjór, eins og hann orðaði það.

Talibanar banna skólagöngu kvenna

Talibanar hafa bannað skólagöngu kvenna í dalnum Swat í norðvesturhluta landsins. Þar ráða þeir lögum og lofum. Bannið við skólagöngu kemur niður á fjörutíu þúsund stúlkun og ungum konum. Talibanar halda því fram að menntun kvenna sé ó-islömsk.

Vill að sonur sinn taki við

Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur ákveðið að yngsti sonur sinn taki við af sér, að því er fréttastofa í Suður-Kóreu heldur fram. Hins vegar bárust einnig fréttir af því að elsti sonur hans sé tilbúinn að taka við af föður sínum.

Mótmælt í Amman

Fjölmenn mótmæli voru haldin í Amman, höfuðborg Jórdaníu, í dag vegna árása Ísraela á Gaza-ströndina undanfarnar þrjár vikur. Reiðum mótmælendum lenti saman við óeirðalögreglu fyrir utan sendiráð Ísraela í borginni. Þess var krafist að stjórnmálasambandi við landið yrði slitið og sendiherrann rekinn úr landi.

Vopnahlé hugsanlega undirritað á sunnudaginn

Yfirvöld í Ísrael eru farin að hafa orð á því að sókn þeirra á Gaza ströndinni ljúki brátt með vopnahléi. Sagt er að Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels, Mahmoud Abbas forseti Palestínumanna og Hosni Mubarak forseti Egyptalands geti þegar á sunnudag undirritað samkomulag sem yrði grunnur að eins árs vopnahléi á milli Ísraela og Hamas samtakanna. Yfir 1100 Palestínumenn hafa farist í innrás Ísraela á Gaza ströndina.

Lík 1800 Þjóðverja finnast í fjöldagröf

Fjöldagröf fannst þegar verið var að grafa fyrir hóteli í bænum Malbork í Norður-Póllandi. Í síðari heimsstyrjöldinni hét bærinn Marienburg og tilheyrði Þýskalandi. Í gröfinni eru lík um átjánhundruð Þjóðverja sem týndust í framsókn rússneska hersins í lok stríðsins. Talið er að rússnesku hermennirnir hafi drepið fólkið. Milljónir óbreyttra borgara týndust í stríðinu og ekki er enn vitað um örlög þeirra.

Sjá næstu 50 fréttir