Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flugeldaverksmiðja sprakk í Kína Að minnsta kosti 13 létu lífið þegar flugeldaverksmiðja í austurhluta Kína sprakk í loft upp í morgun. Sextán manneskjur voru í verskmiðjunni þegar slysið átti sér stað. 4.1.2009 10:18
Harðir bardagar á Gazaströndinni í nótt Harðir bardagar hafa geysað á Gazaströndinni í nótt og í morgun milli Ísraelshers og Hamas liða. Ísraelsmenn réðust yfir landamærin í gærkvöldi eftir miklar loft- og stórskotaliðsárásir. 4.1.2009 10:11
Skaut móður sína eftir rifrildi um heimilisstörf Dómstóll í Arizonafylki í Bandaríkjunum dæmdi í gær 12 ára gamlan pilt sekan fyrir að hafa myrt móður sína. Drengurinn skaut móður sína átta sinnum með skammbyssu eftir að hafa rifist við hana um heimilisstörf. 4.1.2009 10:03
Þúsundir mótmæla árásum Tugþúsundir mótmæltu vikulöngum árásum Ísraelshers gegn Hamas-liðum á Gazasvæðinu víða í stórborgum Evrópu í gær og þrýstu á ráðamenn að þeir beiti sér fyrir því að vopnahlé verði gert. 4.1.2009 02:00
Bandarískir hermenn skutu á íraska sjónvarpskonu Írösk sjónvarpsfréttakona sem særðist eftir að bandarískir hermenn skutu á hana á nýársdag segir að hermennirnir hafi ekki gefið út neina viðvörun áður en þeir hófu skothríðina. 3.1.2009 20:30
Skutu námsmann í nasistabúningi Lögreglan í Seattle í Bandaríkjunum sætir nú harðri gagnrýnni eftir að hún skaut ungan námsmann til bana á nýársdag. Maðurinn þótti ógnvekjandi þar sem hann var klæddur í þýskan hermannabúning frá tímum seinni heimstyrjaldar en vinir og ættingar segja að hann hafi einungis klætt sig upp í tilefni áramótanna. 3.1.2009 20:00
Gæludýrin finna fyrir kreppunni í Bretlandi Alheimskreppan tekur á sig ýmsar óhugnanlegar myndir. Í Bretlandi færist það nú í vöxt að fólk skilji gæludýrin sín eftir út á víðavangi þar sem það hefur ekki lengur efni á því að fæða þau. 3.1.2009 20:30
Árásir Ísraelsmanna á Gaza héldu áfram í morgun Ísraelsmenn héldu áfram loftárásum á Gazaströndina í morgun. Að minnsta kosti einn lét lífið þegar sprengjur lentu á skólabyggingu en alls hafa rúmlega 400 manns látið lífið síðan árásirnar hófust fyrir viku. 3.1.2009 12:47
Vísindamenn finna leifar af loftsteini Bandarískir vísindamenn hafa fundið leifar af loftsteini sem skall á jörðina fyrir nærri 13 þúsundum árum. Loftsteininn sundraðist þegar hann fór í gegnum lofthjúp jarðar en var engu að síður nægilega öflugur til að hrinda af stað ísöld á jörðinni. 3.1.2009 10:20
Segir Hamas bera mesta sök á ástandinu á Gaza Bush bandaríkjaforsti telur að Hamasliðar beri mest sök á ástandinu á Gazaströndinni. Þetta kemur fram í handriti að útvarpsávarpi Bush til Bandarísku þjóðarinnar í dag. 3.1.2009 10:04
Þúsundir mótmæltu á Vesturbakkanum Að minnsta kosti einn lét lífið og fimm særðust í loftárásum Ísraelshers á Gazaströndina í dag. Til átaka kom á Vesturbakkanum þegar þúsundir manna mótmæltu árásum Ísraelsmanna. 2.1.2009 19:10
Viðbúnaður í Jerúsalem af ótta við hefndaraðgerðir Mikill viðbúnaður er í Jerúsalem í dag vegna ótta við hefndaraðgerðir Hamas liða vegna linnulausra loftárása Ísraela á Gasa svæðið sem staðið hafa í heila viku. Hamas samtökin höfðu hvatt Palestínumenn til þess að bregðast við árásunum í dag en til þessa hefur verið tiltölulega rólegt í borginni. 2.1.2009 14:25
Íslensk kona myrt af eiginmanni sínum í New York Íslensk kona búsett í Bandaríkjunum, Isol Cotto, var myrt af eiginmanni sínum á gamlársdag á heimili hennar í Marbletown í New York ríki. Maðurinn, William Cotto, sem var lögreglumaður á eftirlaunum, skaut sjálfan sig til bana skömmu eftir ódæðið. 2.1.2009 13:40
Áramótunum seinkaði um sekúndu Það var ekki bara hlaupár í fyrra heldur var einni hlaupsekúndu bætt við um áramótin. Það gerðu sérfræðingar í Frakklandi til að jafna klukkur heims við snúning jarðar. 2.1.2009 11:58
Frakkar stöðva sjóræningja Franskt herskip í kom í gær í veg fyrir að sómalskir sjóræningjar næðu flutningaskipi á sitt vald á Adenflóa úti fyrir ströndum Sómalíu. 2.1.2009 11:54
Caracas er morðhöfuðborg heimsins Borgin Caracas í Venesúela hlýtur þann vafasama heiður að vera morðhöfuðborg heimsins samkvæmt nýútkominni bandarískri skýrslu. Á síðasta ári voru að meðaltali framin 130 morð á hverja eitt hundrað þúsund íbúa þar í borg. Bara í síðastliðnum desembermánuði voru framin að minnsta kosti 510 morð. 2.1.2009 11:40
Kúba fagnaði fimmtíu ára byltingarafmæli Í gær var liðin hálf öld frá því að Fídel Castro og félagar náðu völdum á Kúbu. Tímamótunum var fagnað með hátíðarhöldum og hélt forseti landsins, Raoul Castro, ræðu á sama stað og bróðir hans Fídel fagnaði sigri byltingarsinna fimmtíu árum fyrr. Í ræðunni spáði Raoul því að byltingin muni vara í önnur fimmtíu ár. 2.1.2009 10:37
Sótt að höfuðborg Tamíl tígra Stjórnarherinn á Sri Lanka hefur ráðist inn í borgina Kilinochi sem í áraraðir hefur verið helsta vígi uppreisnarmanna tamíltígra á eyjunni. Talsmenn stjórnvalda segjast gera ráð fyrir að ná borginni á sitt vald á næstu klukkutímum. 2.1.2009 09:40
Segja gasflutninga til ESB óskerta þrátt fyrir lokun í Úkraínu Rússar fullvissa Evrópusambandslönd um að gasflutningar til landanna muni ekki skerðast þrátt fyrir að lokað verði fyrir gas til Úkraínu. 2.1.2009 08:30
Maður með vatnshöfuð hleypur yfir Bretland Breti sem gengist hefur undir 29 heilaskurðaðgerðir hyggst hlaupa yfir Bretland, frá suðri til norðurs, til að safna peningum handa taugaskurðlækningadeild Walton-sjúkrahússins í Liverpool. 2.1.2009 08:27
Gaf sig fram eftir skotárás í Óðinsvéum Tæplega þrítugur Líbani gaf sig fram við lögreglu í Óðinsvéum í Danmörku í gær vegna skotárásar á tvo Ísraela í verslunarmiðstöð þar í borg á gamlársdag. 2.1.2009 08:22
Þrumuguð velgir innbrotsþjófi undir uggum Innbrotsþjófur í Edinborg í Skotlandi lagði á flótta þegar húsráðandi kom heim af grímudansleik, dulbúinn sem þrumuguðinn Þór. 2.1.2009 08:14
Stunginn til bana í Kaupmannahöfn Tæplega fertugur maður lést af völdum hnífstungu á skemmtistað í Kaupmannahöfn á gamlárskvöld en þar fór fram áramótadansleikur. 2.1.2009 08:12
Skæð innflúensa í Bretlandi Breskir sjúkdómafræðingar vara nú við inflúensunni H1N1 sem engin lyf vinna á og talið er hugsanlegt að muni skjóta sér niður í Bretlandi á næstunni. 2.1.2009 08:09
Grunuð um að bana ungum syni sínum Tæplega þrítug bresk móðir var handtekin í vikunni, grunuð um að hafa orðið tæplega tveggja ára gömlum syni sínum að bana. Miklir áverkar voru á líki drengsins en hann lést skömmu eftir að komið var með hann á sjúkrahús á mánudaginn. 2.1.2009 07:57
Skelfilegt að þurfa að yfirgefa átta manns í snjóflóði Maður sem komst lífs af í snjóflóðinu í kanadísku Klettafjöllunum í síðustu viku segir það hafa verið skelfilega erfiða ákvörðun að skilja átta ferðafélaga sína eftir, grafna undir snjóflóðinu, til að bjarga sínu eigin lífi. 2.1.2009 07:22
Sænskur Íraki í haldi vestra Sænskur Íraki hefur verið í haldi Bandaríkjamanna í Írak frá því í maí. Sænsk stjórnvöld hafa ekki fengið upplýsingar um fyrir hvað hann er ákærður. Maðurinn er í fangelsi með um 5.000 öðrum föngum, að sögn Dagens Nyheter. 2.1.2009 06:00
Grunaður um að skjóta Ísraela Lögregla í Óðinsvéum í Danmörku hefur handtekið mann af palestínskum uppruna sem grunaður er um að hafa skotið og sært tvo Ísraelsmenn í verslunarmiðstöð á gamlársdag. 2.1.2009 04:00
Obama og Pelosi funda Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, hyggst funda með flokkssystur sinni Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, á mánudaginn. Þau ætla að fyrirhugað frumvarp sem ætlað er að koma hjólum bandarísks efnahagslífs á fullt á nýjan leik, en fjármálakreppan lék landið illa á seinasta ári. 1.1.2009 21:30
Hvetja til sátta í gasdeilu Bandaríkjamenn hvöttu í dag til þess að eðlilegt flæði á gasi yrði áfram tryggt frá Rússlandi til Úkraínu. Rússneski orkurisinn Gazprom skrúfaði fyrir gas til Úkraínumanna í morgun vegna deilna um greiðslur og verð á gasi fyrir 2009. Fulltrúar Gazprom segja Úkraínumenn ekki hafa borgað en það segja ráðamenn í Kænugarði rangt. 1.1.2009 15:55
Forystumaður í Hamas felldur Nizar Rayan, einn æðsti leiðtogi Hamas-samtakanna, féll í loftárásum Ísraelshers á Gaza-svæðið í dag. Sprengjum var varpað á heimili Rayan. Sex Palestínumenn til viðbótar féllu í þeirri árás, þar á meðal ættingjar Rayans. 1.1.2009 15:25
Skrúfað fyrir gas til Úkraínu Rússneka orkufyrirtækið Gazprom skrúfaði í morgun fyrir gas til Úkraínu. Það var gert vegna deilna um ógreidda reikninga og verð á gasi fyrir árið 2009. Evrópubúar óttast gasskort því Gazprom er með fjóðurngs markaðshlutdeild á Evrópusambandssvæðinu og gas flutt í gegnum leiðslur sem liggja um Úkraínu. 1.1.2009 13:52
Obama álíka vinsæll og Reagan Þrír fjórðu Bandaríkjamanna telja Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseta, sterkan og einarðan leiðtoga. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar. Forseti Bandaríkjanna hefur ekki fengið jafn góða útkomu hvað þetta varðar í nærri þrjá áratugi. 1.1.2009 13:39
59 létu lífið á áramótafögnuði í Bangkok 59 manns létu lífið á næturklúbbi í borginni Bangkoka á Tælandi í gærkvöldi og að minnsta kosti 180 eru slasaðir eftir að eldur kom upp á næturklúbbnum. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá flugeldum. 1.1.2009 10:49