Fleiri fréttir

Rannsaka iPod Nano vegna ofhitnunar og neistaflugs

Japönsk yfirvöld rannsaka nú mögulega galla á rafhlöðum iPod Nano tónlistarspilarans. Tvö tilfelli hafa komið upp í Tokyo þar sem spilararnir hafa ofhitnaði og send frá sér neista. AP fréttastofan hefur það eftir iðnaðarráðherra landsins að yfirvöld hafi haft samband við Apple, framleiðanda spilarans, vegna málsins. Grunur leiki á að rafhlöðunni sé um að kenna. Árið 2006 þurfti Apple að innkalla 1,8 milljón rafhlöður, sem Sony framleiddi, úr fartölvum sínum vegna ofhitnunar.

Barnlausum konum fjölgar í Bandaríkjunum

Fjöldi barnlausra bandarískra kvenna á aldrinum 40-44 ára hefur tvöfaldast á síðustu þrjátíu árum. Árið 1976 voru einungis um 10% kvenna á þessum aldri barnlausar, en nú er hlutfallið komið upp í 20%.

Íbúar í Flórída eru viðbúnir Fay

Stjórnvöld og íbúar í Flórída búa sig undir það að hitabeltisstormurinn Fay fari yfir ríkið í dag, en talið er að hann hafi orðið tugum manna að bana í Dóminíska lýðveldinu og Haíti.

Miðstéttarfólk með 200 milljónir í laun á ári

„Einungis þeir sem hafa 400 milljónir íslenskra króna í árstekjur geta talist ríkir" sagði John McCain forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum á framboðsfundi í gær og hlaut miklar háðsglósur frá mótframbjóðenda sínum fyrir vikið.

Dugar ekki að skipta Brown út

Breskir kjósendur myndu kjósa Íhaldsflokkinn þar í landi jafnvel þó að Gordon Brown, formaður Verkamannaflokksins, viki fyrir David Miliband. Þetta sýnir ný skoðanakönnun sem breska blaðið Guardian birti í gær.

Leita að eftirmanni Musharrafs

Stjórnarflokkarnir í Pakistan munu hittast í Islamabad í dag til að ræða um eftirmann Musharrafs, fyrrverandi forseta landsins.

77 umsóknum um mótmæli hafnað í Kína

Þrátt fyrir að hafa sagt að sérstök svæði fyrir mótmæli yrðu sett upp í Peking á meðan að Ólympíuleikarnir fara fram í borginni hafa kínversk yfirvöld komið í veg fyrir öll skipulögð mótmæli.

Rússar á leið til Tbilisi

Fullyrt er að Rússar séu flytja skammdrægar eldflaugar til Suður-Ossetíu og ætli að beina þeim að höfuðborg Georgíu. Yfirmaður rússneska hersins neitar því.

Vonir um fuglaflensumótefni eftir rannsókn á spænsku veikinni

Rannsókn á þeim sem lifðu af spænsku veikina sem var árið 1918 gæti hjálpað til við að finna mótefni gegn fuglaflensunni. Rannsóknin leiddi í ljós að eftirlifendurnir veikinnar hefðu enn mótefni gegn H1N1 veirunni sem lagði um 50 milljón manns árið 1918.

Segja Rússa flytja skammdrægar flaugar til S-Ossetíu

Dmítrí Medvedev, forseti Rússlands, hélt í dag til borgarinnar Vladikavkaz, nærri landamærum Suður-Ossetíu, til þess að veita rússneskum hermönnum viðurkenningar fyrir baráttu sína við Georgíumenn síðustu vikur.

Telur Bandaríkin meira ógnvekjandi en Ísrael

Fyrrum ríkisstjóri Arkansas Mike Huckabee sem hefur verið orðaður við útnefningu sem varaforsetaefni John McCain sagði að sér fyndist hann vera óhultari í Ísrael en mörgum bandarískum borgum.

„Bókavörðurinn" í barnaklámshring handtekinn

Maður sem tók þátt í að reka barnaklámshring á veraldarvefnum frá heimili móður sinnar hefur verið handtekinn og fangelsaður. Maðurinn, sem heitir Philip Thomson var kallaður „bókavörður" hópsins sem náði til 33 landa.

Reyndu að ræna sama staðinn tvisvar

Tveir átján ára piltar reyndu í tvígang að stela munum húsi í bæ á Norður-Jótlandi en án árangurs. Jótlandspósturinn segir frá sneypurför piltanna.

Suður - Ossetíumenn vilja rússneska herinn áfram

Leiðtogi Suður-Ossetíumanna, Eduard Kokoity, sagði í morgun að hann myndi fara fram á það við rússnesk stjórnvöld að þeir myndu hafa herstöð innan landamæra Suður-Ossetíu. Þjóðarleiðtogar á Vesturlöndum hafa þrýst mikið á Rússa að undanförnu um að þeir virði vopnahléssáttmála sem þeir gerðu í síðustu viku og dragi herlið sitt frá Georgíu.

Þúsundir láta lífið vegna rangrar lyfjagjafar

Hundrað þúsund Danir leggjast inn á spítala og um tvö þúsund láta lífið á ári hverju vegna rangrar lyfjagjafar, samkvæmt tölum sem Danska ríkisútvarpið hefur frá Lyfjaeftirlitinu þar í landi.

Musharraf hyggst hætta

Pervez Musharraf hyggst segja af sér embætti. Þetta kom fram í ávarpi hans í morgun. Ávarpsins hefur verið beðið með talsverðri eftirvæntingu. Undanfarna daga hefur pakistanska stjórnin sakað Musharraf um embættisbrot. Því hefur verið mikill þrýstingur á hann að segja af sér embætti.

Egypsk kona ól sjöbura

Tuttugu og sjö ára gömul egypsk kona ól sjöbura um helgina. Börnin sjö, fjórir drengir og þrjár stelpur, voru öll tekin með keisaraskurði. Börnin fæddust fyrir tímann og vógu á bilinu 1450 grömm til 2800 grömm. Þeim var komið fyrir í hitakassa strax eftir fæðinguna. Líðan móður þeirra er eftir aðstæðum góð. Hún og eiginmaður hennar áttu þrjár dætur fyrir.

Leynileg hátíðarhöld í Afganistan

Stjórnvöld í Afganistan hafa ákveðið að halda þjóðhátíðardag sinn hátíðlegan á leynilegum stað. Þetta var ákveðið í ljósi þess að Talibanar reyndu að ráða Hamid Karzai forseta af dögum á hersýningu í apríl síðastliðnum.

Viðræður um þjóðstjórn í Zimbabwe ganga vel

Morgan Tsvangirai leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Zimbabwe sagði fréttamönnum í dag að viðræður um þjóðstjórn gengju mjög vel. Bæði Tsvangirai og Robert Mugabe forseti eru nú í Suður-Afríku þar sem þeir sitja fund þróunarsamtaka Afríkuríkja.

Tvö hundruð palestínumenn úr fangelsi

Ísraelska ríkisstjórnin samþykkti í dag að sleppa 200 palestínumönnum úr fangelsi. Meðal þeirra eru tveir menn sem voru fangelsaðir fyrir þrjátíu árum fyrir árásir á Ísrael.

Tólf sinnum hættulegra að aka mótorhjóli en bíl

Samkvæmt tölfræði í Noregi er tólf sinnum hættulegra að aka þar á mótorhjóli en á bíl. Banaslys á mótorhjólum eru það miklu tíðari. Yfirvöld hafa leitað til mótorhjólasamtaka í landinu til þess að vinna sameiginlega að lausn þessa vanda.

Sjö létust í eldsvoða í Memphis

Fimm börn, einn unglingur og einn fullorðinn fórust í eldsvoða á heimili í Memphis í dag. Slökkviliðsmenn segjast ekki vita nákvæman aldur eða kyn þeirra sem létust. Að auki voru tveir unglingar og ellefu ára drengur sendir á spítala með brunasár, en ástand þeirra var stöðugt. Slökkviliðsmenn segja að orsök eldsins sé ekki kunn.

Tími Musharrafs að renna út

Utanríkisráðherra Pakistan, Shah Mahmood Qureshi, segir að Pervez Musharraf forseti landsins verði að stíga af stóli á næstu tveimur dögum, annars muni hann eiga yfir höfði sér ákærur fyrir brot í starfi.

Georgíumenn hafa undirritað vopnahléssáttmála

Rússum hefur borist undirritaður vopnahléssáttmáli frá Georgíu. Rússneska utanríkisráðuneytið segir að sáttmálinn hafi borist með faxi frá Bandaríkjunum. Hann sé samhljóða þeim sem leiðtogar Suður-Ossetíu og Abkasíu hafi undirritað í Moskvu.

Enn eitt unglingamorð í Bretlandi

Enn einn unglingurinn var stunginn til bana í Bretlandi í nótt. Það var sextán ára drengur sem ekki hefur verið nafngreindur. Hann hafði verið stunginn einni djúpri hnífsstungu og lést í sjúkrabíl á leiðinni á sjúkrahús. Bretar eru felmtri slegnir yfir tíðum unglingamorðum í landinu. Flestir eru drepnir með hnífum en skotvopnum hefur einnig verið beitt.

Fyrrverandi forseti Tsjad dæmdur til dauða

Dómstóll í Afríkuríkinu Tsjad hefur úrskurðað fyrrverandi forseta landsins, Hissan Habre, til dauða fyrir valdaránstilraun. Var Habre dæmdur fyrir að skipuleggja árás á höfuðborg landsins, N‘Djamena, fyrr á árinu.

Forseti Georgíu samþykkir vopnahlé

Mikheil Saakashvili samþykkti í dag vopnahlé til þess að enda átök við Rússa vegna aðskilnaðarhéraðsins Suður-Ossetíu. Hann tilkynnti þetta fyrir utan forsetahöllina í Tbilisi, höfuðborg Georgíu við hlið Condoleezzu Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Slagsmál í háloftunum

Leggja þurfti lykkju á leið írskrar flugvélar sem var á leið frá Dublin til Krítar í nótt þar sem slagsmál hófust um borð í vélinni. Var lent í Feneyjum þar sem flugdólgunum, fimm að tölu, var hent úr vélinni í hendur lögreglu.

Maóisti verður forsætisráðherra í Nepal

Þingmenn í Nepal hafa kosið leiðtoga Maóistaflokksins Prachanda til þess að vera næsti forsætisráðherra landsins. Hann vann andstæðing sinn úr Íhaldsflokknum Sher Bahadur Deuba.

Bush fordæmir einelti Rússa

George Bush Bandaríkjaforseti hefur fordæmt Rússa fyrir einelti og ógnun í samskiptum sínum við Georgíu. Hann ítrekaði í dag stuðning sinn við Georgíu og sagði að Rússar þyrftu að standa við loforð sitt um að draga her sinn frá Georgíu.

Biður Simbabve að leyfa matarhjálp

Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna hefur kallað á Simbabve að aflétta banni við matarhjálp eða annarri hjálparstarfsemi í landinu. Sagði hann að ef Simbabvemenn myndu ekki aflétta banninu myndi verða hörmungarástand í landinu.

BNA og Pólland skrifa undir varnarsamning

Pólland hefur skrifað undir samning við Bandaríkin um að hýsa hluta af skotvarnarkerfi Bandaríkjahers. Í samningnum felst að Bandaríkin munu koma 10 flugskeytum fyrir á herstöð í Póllandi í staðinn fyrir að hjálpa Pólverjum að styrkja flugvarnir sínar.

Sjá næstu 50 fréttir