Fleiri fréttir

Rice heimsækir Tbilisi

Condoleeza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun í dag heimsækja Tbilisi, höfuðborg Georgíu. Rice mun hitta Mikheil Saakashvili forseta Georgíu að máli og reyna til þrautar að ná lausn í deilum Rússa og Georgíumanna en hermenn ríkjanna hafa barist í Suður-Ossetíu undanfarið.

Bandaríkin og Líbýa innsigla samning um skaðabætur

Bandaríkin og Líbýa munu endurnýja diplómatísk tengsl sín eftir að hafa skrifað undir samning um skaðabætur vegna sprenginga sem varða löndin tvö. Skrifað var undir samninginn í Trípoli, höfuðborg Líbýu í dag.

Viljayfirlýsing um eldflaugavarnarkerfi

Pólskir og bandarískir samningamenn munu á morgun skrifa undir viljayfirlýsingu um að hluti af eldflaugavarnarkerfi, sem Bandaríkjamenn vilja setja upp í Austur-Evrópu, verði í Póllandi.

Obama reynir að ná til andstæðinga fóstureyðinga

Barack Obama, forsetaframbjóðandi Demókrata og stuðningsmenn hans vinna nú að því að ná til þeirra kjósenda sem eru á móti fóstureyðingum. Það ætla þau að gera með því að hvetja til aðgerða til að hjálpa konum að halda börnum sínum í stað þess að fara í fóstureyðingar.

Segir drukkna Suður-Osseta skjóta á blaðamenn

Rússar stjórna enn georísku borginni Gori og hleypa engum inn í borgina. Þá hafa drukknir uppreisnarmenn úr röðum Suður-Osseta skotið á bæði borgara og blaðamenn við borgina eftir því sem danska blaðið Berlingske Tidende greinir frá.

Tsvangirai fær ekki að fara úr landi

Yfirvöld í Simbabve komu í veg fyrir að Morgan Tsvangirai leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins MDC kæmist úr landi í dag. Tsvangirai var á leiðinni á fund Þróunarsamvinnufélags Suður-Afríku (SADC).

Mál gegn lögreglumönnum látið niður falla

Dómstóll í Bandaríkjunum hefur ákveðið að láta ákærur, gegn sjö lögreglumönnum í New Orleans sem voru ásakaðir um skotárás eftir að fellibylurinn Katrín reið yfir haustið 2005, niður falla.

Rússar á förum frá Gori

Rússneskt herlið er farið að láta frá sér svæði nærri borginni Gori í Georgíu í hendur Georgíumanna.

Bandaríkin senda herafla og hjálpargögn áleiðis til Georgíu

Bandaríkjaforseti sagði í dag að stjórn sín myndi nota bæði flugher og landher til að koma hjálpargögnum og lyfjum til Georgíu. Georgíuforseti segist líta svo á að þar með verði flugvellir og hafnir í Georgíu undir bandarískri stjórn og hervernd. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna er á leið til Georgíu til að sýna stuðning Bandaríkjastjórnar í verki.

Saka Rússa um að rjúfa vopnahlé

Georgíumenn sökuðu í dag Rússa um að rjúfa vopnahlé sem samþykkt var í gær með því að senda hersveitir frá Suður-Ossetíu inn í Georgíu og í átt til höfuðborgarinnar Tblisi.

Nepal leitar að nýrri lifandi gyðju

Trúarleg yfirvöld í Nepal leita nú að stúlku til þess að þjóna sem hin nýja Kumari sem er „hin lifandi meygyðja" í aldalöngum trúarbrögðum þeirra, bæði í hindúa og búddhahefð. Er leitað allt niður í þriggja-fjögurra ára aldur.

Tveir handteknir í tengslum við ísbúðarmorð

Tveir menn hafa verið handteknir í tengslum við morð á þremur manneskjum í ísbúð í bæ nærri Frankfurt í Þýskalandi í gær. Frá þessu greindi saksóknari í Darmstadt í dag.

Minnst 11 látnir í sprengingu í Líbanon

Minnst 11 eru látnir í sprengingu í miðbæ líbönsku borgarinnar Trípoli. Sprengingin var í nánd rútu með nokkrum hermönnum sem voru í leyfi innanborðs. Enginn hefur lýst árásinni á sig en yfir 30 manns særðust einnig í árásinni.

Skemmdarverk og rán í Gori

Fregnir berast nú af því að rússneskir skriðdrekar hafi sést á ferli í borginni Gori í Georgíu. Samkvæmt fréttavef BBC vinna Rússar nú að því að rústa herstöðvum Georgíumanna þar í borg.

Þrjár erlendar konur myrtar í Afganistan

Þrjár erlendar konur sem störfuðu við hjálparstörf létust ásamt bílstjóra sínum þegar skotið var á bíl þeirra þegar þær voru á ferð í Afganistan.

Á 86 konur og 170 börn

84 ára gamall Nígeríumaður, Mohammed Bello Abubakhar, ráðleggur karlmönnum um víða veröld að taka sig ekki til fyrirmyndar. Mohammed á 86 konur.

Mótmælendur handteknir í Peking

Hópur mótmælenda sem reyndi að strengja upp borða, með stuðningsyfirlýsingu um frjálst Tíbet, í Peking hefur verið handtekinn.

Mugabe myndar stjórn – hunsar Tsvangirai

Robert Mugabe, forseti Simbave, hefur gert samkomulag við Arthur Mutambara, leiðtoga klofningsflokks MDC, um stjórn landsins. Leiðtogi MDC, Morgan Tsvangirai var hafður að vettugi í samkomulaginu.

Rússar og Georgíumenn samþykkja friðarsamkomulag

Georgíumenn og Rússar hafa komist að samkomulagi um vopnahlé fyrir milligöngu Frakka. Þjóðirnar hafa einnig samþykkt drög að friðarsamkomulagi eftir átök síðustu daga vegna mála Suður-Ossetíu. Samkomulagið er þó enn til umræðu svo ekki liggur fyrir hvað í því felst.

Ísbúðarmorðingja leitað í Þýskalandi

Lögreglan í Þýskalandi hefur nú hafið viðamikla leit að morðingja sem varð þremur karlmönnum og einni konu að bana við ísbúð í bænum Russelsheim, skammt suð-vestur af Frankfurt, í dag.

Rómverskt hof fannst undir kirkju

Ísraelskir fornleifafræðingar hafa fundið rústir rómversks hofs undir grunni kirkju á Zippori í Ísrael sem var höfuðborg Galíleu á rómverskum tíma. Hofið hefur verið rænt og ruplað í fornöld og stendur því aðeins grunnurinn nú eftir.

Ísraelsmenn leggja til samning um Vesturbakkann

Ísraelsmenn hafa lagt til friðarsamning við Palestínumenn sem myndi tryggja þeim fyrrnefndu 7,3 prósent af Vesturbakkanum samkvæmt ísraelska fréttablaðinu Haaretz. Myndi sá samningur gera þeim kleift að halda stærstu landnemabyggðum sínum.

Pelosi opnar fyrir möguleika á kosningu um olíuborun

Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings gaf til kynna í gærkvöldi að hún gæti verið tilbúin til þess að hafa kosningu um hvort leyfa ætti olíuborun við strendur Bandaríkjanna.

Viðræður í Zimbabwe halda áfram

Samningaviðræðum stjórnar og stjórnarandstöðu í Zimbabwe verður haldið áfram nú eftir hádegið og enn vonast menn til að niðurstaða fáist í þær á næstu klukkustundum.

Bretar hegða sér illa á erlendi grundu

Slæm hegðun Breta utan landsteina þeirra hefur leitt til mikillar aukningar á handtökum Breta á Spáni og Frakklandi samkvæmt nýjustu könnunum. Orsakast hin slæma hegðun fyrst of fremst af ofdrykkju og dólgsláta í kjölfar hennar.

Enn barist í Abkasíu

Rússar hafa hætt hernaðaraðgerðum sínum í Georgíu enda telja þeir sig nú hafa náð markmiðum sínum - að tryggja öryggi rússneskra íbúa Suður-Ossetíu og rússneskra friðargæsluliða. Í Abkasíu halda uppreisnarmenn hins vegar áfram að láta sprengjum rigna yfir georgíska hermenn.

Pólitískum föngum fækkar á Kúbu

Pólitískum föngum á Kúbu hefur fækkað það sem af er ári samkvæmt nýrri skýrslu mannréttindasamtaka í landinu. Samtökin segja þó að nýjum forseta, Raul Castro, fylgi þó ekki grundvallarbreytingar í mannréttindamálum.

Bush á heimavelli á hafnaboltaleik í Peking

George Bush Bandaríkjaforseti sagði að Ólympíuleikarnir hefðu farið fram úr væntingum hans. Forsetinn var í fjóra daga í Peking og náði að vera við fjölmargan íþróttaviðburðinn áður en hann sneri aftur til Washington.

Sjá næstu 50 fréttir