Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Forsetakosningar verða í Simbabve Opinberir starfsmenn í Simbabve segja að ekki verði hætt við forsetakosningar í Simbabve þrátt fyrir að Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, hafi dregið framboð sitt til baka. 23.6.2008 12:36
Nærri fjörutíu fundnir á lífi eftir ferjuslys við Fillipseyjar Þrjátíu og átta farþegar hafa fundist á lífi eftir ferjuslys við Filippseyjar um helgina. Rúmlega átta hundruð manna er saknað. 23.6.2008 12:26
Dauðsföllum stúlkna í Indlandi fjölgar Fjöldi stúlkna sem vex úr grasi í Indlandi hefur náð lágmarki samanborið við drengi þar í landi. Hlutfallið hefur farið allt niður í 300 stúlkur miðað við hverja 1000 drengi í einu héraði landsins. Venjulega hefur þetta hlutfall verið 950 stúlkur á hverja 1000 stráka. 23.6.2008 10:53
Fleiri finnast á lífi eftir ferjuslys við Filippseyjar Björgunarmenn hafa nú fundið 33 á lífi af þeim 750 farþegum sem voru með ferjunni sem hvolfdi á laugardag undan strönd Filippseyja. 23.6.2008 09:17
Blettasóti ver hreiður sitt með kjafti og klóm Fjöldi vegfarenda í og við bandarísku borgina Chicago hefur orðið fyrir óvæntum loftárásum síðustu daga sem þó er reyndar árviss viðburður. 23.6.2008 08:43
Pele rændur Tíu manna hópur rændi brasilísku knattspyrnugoðsögnina Pele um helgina þar sem hann var á leið frá borginni Sao Paulo til húss sem hann á við ströndina utan við borgina. 23.6.2008 08:21
Skógar í Kaliforníu brenna í hita- og þurrkatíð Slökkvilið í norðurhluta Kaliforníu berst nú við um 400 skógarelda sem kviknað hafa í mikilli hitabylgju undanfarna fjóra daga. 23.6.2008 08:15
Salmonellusýking í tómötum frá Mexíkó eða Flórída Rúmlega 550 manns hafa veikst af salmonellu í 32 ríkjum Bandaríkjanna eftir að hafa borðað tómata sem að öllum líkindum eru ræktaðir í Mexíkó eða Flórída. 23.6.2008 08:09
Enginn á lífi eftir ferjuslysið á Filippseyjum Óttast er að rúmlega þúsund manns hafi farist þegar fellibylur fór yfir Filippseyjar um helgina. Ferju með hátt í níu hundruð manns um borð hvolfdi í veðurofsanum og aðeins er vitað um fjóra sem komust lífs af. Við vörum við myndunum sem fylgja þessari frétt. 22.6.2008 20:44
Mugabe verður að hætta öllu ofbeldi Hvíta húsið hefur blandað sér inn í kosningafíaskóið sem nú ríkir í Simbabve. Hafa yfirvöld í Bandaríkjunum biðlað til yfirvalda í landinu og þeirra "óþokka" sem þar eru að hætta öllu ofbeldi. 22.6.2008 15:26
Fæddist með typpi á bakinu Kínverskir læknar reyna nú að átta sig á læknisfræðilegri ráðgátu eftir að kínverskur drengur fæddist með tvö typpi. Annað typpið er staðsett á baki drengsins. 22.6.2008 13:36
Dregur framboð sitt til baka og vill forða frekara blóðbaði Stjórnarandstæðingurinn Morgan Tsvanigrai hefur ákveðið að hætta við framboð sitt til forseta í Simbabve. Þannig vill hann forða frekara blóðbaði vegna baráttunnar fyrir seinni umferð forstakosninganna þar í landi í næstu viku. Robert Mugabe, sitjandi forseti, segir alrangt að farið sé með ofbeldi gegn stjórnarandstæðingum. 22.6.2008 13:21
Að minnsta fjórir látnir eftir ferjuslys á Filippseyjum Að minnsta kosti fjórir eru látnir eftir að ferja með yfir 700 farþegum sökk í óveðri í kjölfar fellbyljarins Fengshen á Filippseyjum. Þetta er haft eftir aðilum sem eru á staðnum. 22.6.2008 11:27
Þrír handteknir vegna hvarfs tveggja stúlkna í Danmörku Danska lögreglan hefur handtekið þrjá aðila vegna hvarfs sjö ára stúlku sem var tekin úr skóla í Greve í Danmörku fyrir nokkrum dögum. 21.6.2008 17:13
Castro sakar ESB um hræsni Fídel Kastró, fyrrverandi forseti Kúbu, sakar Evrópusambandið um hræsni í mannréttindamálum. 21.6.2008 10:22
Varar við árás á Íran Mohammed El Baradei, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, hótar að segja af sér verði gerð árás á Íran. 21.6.2008 10:19
Bandarískum símafyrirtækjum veitt friðhelgi vegna heimildalausra hlerana Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær lagafrumvarp sem veitir bandarískum símafyrirtækjum friðhelgi vegna heimildarlausra símahlerana fyrir yfirvöld. 21.6.2008 10:14
Ólympíukyndillinn í Lasa Hlaupið var með ólympíukyndilinn um götur Lasa, höfuðborgar Tíbets í morgun. Þar kom til blóðugra óeirða í mars síðastliðnum en þær urðu kveikjan að miklum mótmælum víðast hvar þar sem hlaupið hefur verið með kyndilinn. 21.6.2008 10:04
Hitlerskoðunarferðir geysivinsælar í München Ferðamenn í þýsku borginni München fá ekki nóg af skoðanaferðum byggðum á ævi Adolfs Hitler. Þótt Hitler hafi fæðst í Austurríki þá fluttist hann til Munich 1913 og margir af stóratburðum í Nasistaflokknum gerðust þar í borg. 20.6.2008 16:18
Clinton vinnur með Obama Hillary Clinton mun í næstu viku styðja við baráttu Barack Obama, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins í Bandaríkjunum, á sérstökum kosningafundi. 20.6.2008 15:54
Íhugar að draga framboð sitt til baka Morgan Tsvangirai, forsetaframbjóðandi og leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins MDC í Simbabve, íhugar nú að draga framboð sitt til baka en seinni umferð forsetakosninganna fer fram þann 27. júní. 20.6.2008 15:40
Vélmær fyrir einmana menn Japanska fyrirtækið Sega hefur framleitt lítið 38 sentimetra vélmenni sem kemur á markað í september og er ætlað einmana karlmönnum. Vélmærin kyssir eftir skipun og gengur á rafhlöðum. Hún kemst í svokallaða ástarlund þegar hún finnur mannshöfuð nálgast en hún notar innrauða skynjara til þess að nema mannfólkið. 20.6.2008 14:51
Viðbúnaður í Björgvin vegna gasleka Lögreglan í Björgvin í Noregi lokaði í dag af svæði í miðborginni sem er um hálfur kílómetri í þvermál vegna tilkynningar um gasleka á athafnasvæði þar. 20.6.2008 14:47
Tíska á meðal unglingstúlkna í Bandaríkjunum að verða óléttar Yfirvöld í Massachusetts í Bandaríkjunum rannsaka nú af hverju 17 unglingstúlkur í sama skólanum hafa allar orðið óléttar á sama tíma. Engin stúlknanna er eldri en 16 ára en að minnsta kosti helmingur þeirra virðist hafa gert samning sín á milli um að reyna að verða óléttar. 20.6.2008 13:48
Chavez segir nýjar reglur ESB um innflytjendur fasískar Hugo Chavez, forseti Venesúela, hótar refsiaðgerðum gegn þeim Evrópulöndum sem taki upp nýjar reglur Evrópusambandsins um ólöglega innflytjendur. 20.6.2008 13:00
ESB stækkar ekki fyrr en Lissabon-sáttmáli verður samþykktur Ekkert verður af stækkun Evrópusambandsins fyrr en aðildarríkin hafa staðfest Lissabonsáttmálann. Írar höfnuðu sáttmálanum í þjóðaratkvðagreiðslu og óljóst er hvort Tékkar samþykkja sáttmálann. 20.6.2008 12:32
Segja Ísraelsher hafa æft árás á Íran Ísraelsher er sagður hafa æft árás á Íran í byrjun mánaðarins. 20.6.2008 12:28
Mega aðeins reykja hreint kannabis á veitingahúsum frá 1. júlí Hollenskir kannabisneytendur þurfa að venda sínu kvæði í kross 1. júlí þegar bann við tóbaksreykingum á veitingastöðum tekur gildi þar í landi. 20.6.2008 12:15
Ahmadinejad segir að óvinir hafi reynt að ráða sig af dögum Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, fullyrðir að Bandaríkin og bandamenn þeirra hafi reynt að ráða sig af dögum þegar hann heimsótti Írak í mars síðastliðnum. 20.6.2008 11:37
Ekið á Åsne Seierstad Ekið var á hinn heimsfræga norska rithöfund Åsne Seierstad þar sem hún var á hjóli í Osló á mánudag. 20.6.2008 11:06
Grunuð um að eitra fyrir eiginmönnum Lögregla í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum rannsakar nú hvort 76 ára gömul kona hafi hugsanlega eitrað fyrir manni sínum og dregið hann þannig til dauða. 20.6.2008 08:01
Segir Rasmussen brjóta gegn stjórnarskrá Danski fjármálaráðherrann Lars Løkke Rasmussen brýtur ákvæði stjórnarskrárinnar ef hann afnemur rétt sjúklinga til að velja á hvaða sjúkrahúsi þeir eru stundaðir. 20.6.2008 07:48
Með 400 kg af hassi í Svíþjóð Dómstóll í Falu í Svíþjóð dæmdi í gær tvo menn um fimmtugt í 12 og 14 ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot. 20.6.2008 07:41
Mögulegt að ís hafi fundist á Mars Vísindamenn telja geimfarið Phoenix sem lenti nálægt norðurpól Mars fyrir tæpum mánuði hafa grafið niður á ís. Myndir frá Phoenix sýna mola af ljósu efni sem kom upp á yfirborðið þegar vélarmur á geimfarinu gróf skurð í yfirborð plánetunnar rauðu. 20.6.2008 07:32
Japanskur sjálfsmorðsfaraldur Sjálfsmorðsfaraldur fer nú um Japan en tíðni sjálfsmorða þar hækkaði um 2,9 prósent árið 2007. Rúmlega 30.000 manns sviptu sig lífi í Japan í fyrra og skipar sú tala landinu í efsta sæti á lista yfir dánarlíkur af völdum sjálfsmorðs meðal þróaðra landa. 20.6.2008 07:21
Hernum sigað á stuðningsmenn Suu Kyi í Búrma Stjórnvöld í Búrma siguðu hernum á stuðningsmenn Aung San Suu Kyi leiðtoga stjórnarandstöðunnar þegar þeir kröfðust þess í dag að hún yrði látin laus úr stofufangelsi. 19.6.2008 13:15
Haga viðurkenndi að hún hefði hugsanlega gert mistök Áslaug Marie Haga formaður norska Miðflokksins og olíu- og orkumálaráðherra sagði af sér í morgun. Ráðherrann hefur verið sökuð um skattsvik og hún viðurkenndi í morgun að hugsanlega hefði henni orðið á einhver mistök. 19.6.2008 12:57
Danskur dómstóll: Það má gera grín að Múhameð Vestri-Landsréttur í Viborg í Danmörku komst að því í morgun að teikning Kurts Wetergaards, teiknara Jótlandspóstins, af Múhameð spámanni með sprengju í túrbani brjóti ekki gegn lögum og sé ekki ærumeiðandi. 19.6.2008 11:08
Haga hefur sagt af sér Aaslaug Haga, olíu- og orkumálaráðherra Noregs, hefur sagt af sér. Jafnframt lætur hún af formennsku í Miðflokknum norska. 19.6.2008 09:05
Bandaríkjamenn hafa týnt bunka af kjarnavopnum Mörg hundruð hlutar úr kjarnorkuvopnum er meðal þess sem bandaríski flugherinn hefur ekki hugmynd um hvar er niður komið. 19.6.2008 08:57
Vopn fundust í íbúð Bandidos-manna Hríðskotarifflar og sprengiefni var meðal þess sem lögregla á Norður-Sjálandi í Danmörku lagði hald á í gær þegar ráðist var til inngöngu í íbúð sem fjórir félagar bifhjólasamtakanna Bandidos héldu til í. 19.6.2008 08:08
Segja þúsund hafa horfið í Tíbet Mannréttindasamtökin Amnesty International halda því fram að eitt þúsund manns, sem teknir voru til fanga í óeirðum í Tíbet í vor, hafi horfið sporlaust. 19.6.2008 07:54
Skipulagsyfirvöld í New York lesa De Niro pistilinn Leikarinn Robert De Niro, sem nú er um það bil að hefja hótelrekstur í New York-borg, var kallaður fyrir skipulagsnefnd borgarinnar á þriðjudaginn. 19.6.2008 07:22
Leitaði drápsleiðbeininga á Google Rannsóknarlögreglumaður í Medford í Bretlandi bar fyrir rétti í vikunni að maður sem ákærður er fyrir að myrða konu sína og dóttur hafi notað leitarvélina Google til að afla sér leiðbeininga um drápsaðferðir. 19.6.2008 07:19
Tjón á ökrum hleypur á milljörðum Mississippi-fljótið flæðir nú yfir bakka sína og hleypur tjónið á ökrum Miðvesturríkja Bandaríkjanna á milljörðum dollara. 19.6.2008 07:14