Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sigla til hafnar í Japan til að mótmæla háu olíuverði Þúsundir japanskra sjómanna sigla nú bátum sínum í höfn til að mótmæla háu olíuverði, sem er að sliga útgerðirnar. 18.6.2008 12:42
Bændur á dráttarvélum til Brussel Dráttarvélar voru áberandi á vegum í Belgíu í morgun. Þær stefndu allar sem ein til Brussel. Bændur í Belgíu segjast ekki standa undir sívaxandi olíukostnaði og krefjast þess að stjórnvöld leggi sitt af mörkum til að lækka olíuverðið. 18.6.2008 12:14
Obama leiðir kapphlaupið með fimm prósentustigum Væri kosið í dag um forseta Bandaríkjanna myndi Barack Obama sigra með 47 prósentum gegn 42 prósentum John McCain. Þetta leiðir ný könnun Reuters-fréttastofunnar í ljós. 18.6.2008 11:40
Þrír ákærðir fyrir aðild að morðinu á Politkovskaju Rússnesk yfirvöld hafa ákært þrjá menn fyrir aðild að morðinu á rússnesku blaðakonunni Önnu Politkovskaju í október 2006 18.6.2008 10:25
Barnaklámsrassía í Danmörku í morgun Lögreglan í Danmörku hefur látið til skarar skríða á nærri 40 stöðum og handtekið fjölda manna í tengslum við dreifingu barnakláms. 18.6.2008 09:23
Abu Qatada laus úr haldi gegn tryggingu Breskir embættismenn kvörtuðu hástöfum þegar áfrýjunardómstóll þar í landi lét Abu Qatada lausan gegn tryggingu í gær. Qatada hefur verið nefndur hinn andlegi sendiherra Osama bin Laden í Evrópu. 18.6.2008 08:38
Fimmti fóturinn bætist í hópinn Kanadísk lögregla rannsakar nú fund enn eins mannsfótar sem fundist hefur í sjónum við vesturströnd Kanada, nálægt Vancouver. Þetta er fimmti fóturinn sem finnst á ellefu mánaða tímabili en fyrsti vinstri fóturinn. 18.6.2008 08:25
Yfirvinna talin orsök þunglyndis og kvíða Fólki sem vinnur yfirvinnu er hættara við þunglyndi og kvíða ef marka má niðurstöður norskrar rannsóknar.Það var hópur rannsóknarfólks við Háskólann í Björgvin í Noregi sem skoðaði rúmlega 10.000 manna hóp sem vann ýmist 40 tíma á viku og skemur eða 41 til 100 tíma. 18.6.2008 08:19
Dönsk gamalmenni hamingjusömust Dönsk gamalmenni eru þau hamingjusömustu í heimi. Þetta fullyrðir Kristilega dagblaðið danska og vísar í könnun sem nýlega var framkvæmd í nokkrum löndum til að kanna lífsgæði eldri kynslóðarinnar. 18.6.2008 08:05
Reisa elgsstyttu á Vithatten Svíar hyggjast reisa 45 metra háa og 47 metra langa styttu af elg á fjallinu Vithatten í Norður-Svíþjóð. Stórvirkið er svo mikið um sig að það stendur í tveimur sveitarfélögum, Skellefteå og Arvidsjaur 18.6.2008 07:55
Fleiri plánetur en talið var Mun fleiri plánetur leynast í alheiminum en almennt hefur verið talið fram til þessa. Þetta segir hópur franskra og svissneskra stjarnvísindamanna en þeir komu nýlega auga á þrjár plánetur á braut umhverfis stjörnu nokkra sem er 42 ljósár frá jörðu. 18.6.2008 07:50
Innflytjendum til Danmerkur fjölgar og tilgangurinn breytist Fjöldi útgefinna dvalarleyfa í Danmörku hefur nær tvöfaldast síðan árið 2002. Það ár gáfu Danir út rúm 33.000 leyfi en í fyrra voru þau hátt í 59.000. 18.6.2008 07:41
Mannskæðasta tilræðið í marga mánuði í Írak Að minnsta kosti 51 lét lífið og 75 slösuðust þegar bílsprengja sprakk í Baghdad, höfuðborg Íraks, síðdegis í dag. 17.6.2008 19:44
Vopnahlé Ísraels og Hamas-samtakanna Ísraelar og palestínsku Hamas-samtökin hafa samið um vopnahlé sem tekur gildi á fimmtudaginn. Breska ríkisútvarpið BBC greindi frá þessu fyrir skömmu. 17.6.2008 15:18
Ánægja með fjárfestingar í norrænum verkefnum Á nýafstöðnum fundi sínum ræddu norrænu samstarfsráðherrarnir fjárhagsáætlun norrænu ráðherranefndarinnar sem eru tæpar 900 milljónir danskra króna, jafnvirði rúmlega 14 milljarða íslenskra króna. 17.6.2008 14:38
Ástin blómstrar í Kaliforníu Keith Boadwee og Kenny Latham frá Emeryville í Kaliforníu fagna ákaft eftir að hafa fengið í hendur fyrsta hjónavígsluleyfið sem gefið var út í Alemeda-sýslu í Kaliforníu en hjónabönd samkynhneigðra leyfast þar í fyrsta sinn í dag eftir að Hæstiréttur ríkisins úrskurðaði um miðjan maí að lög sem bönnuðu slík hjónabönd stæðust ekki. 17.6.2008 12:32
Hátt í hundrað hafa drukknað í Kína Hátt í hundrað manns hafa drukknað í miklum flóðum í suðurhluta Kína. Miklar rigningar hafa valdið flóðunum síðustu daga og er spáð frekara úrhelli næstu daga. 17.6.2008 10:26
Mugabe telur Tsvangirai espa til ofbeldis Robert Mugabe, forseti Simbabve hefur hótað að handtaka mótframbjóðanda sinn í komandi forsetakosningum, Morgan Tsvangirai, fyrir að espa til ofbeldis í landinu. 16.6.2008 16:19
Búið að frelsa fólkið úr gíslingu í Hollandi Hollenska lögreglan hefur frelsað fimm manns úr gíslingu og handtekið manninn sem tók fólkið í gíslingu í morgun í ráðhúsi borgarinnar Almelo í Hollandi. Ekki er vitað hvort einhver gíslanna hafi særst á meðan á gíslingunni stóð. 16.6.2008 16:03
Fleiri breskir hermenn til Afghanistan Forsætisráðherra Bretlands, Gordon Brown tilkynnti að senda ætti fleiri hermenn til Afghanistan þannig að um næsta vor yrði meira en 8000 breskir hermenn þar í landi. Hann sagði að meira en 630 nýjar stöður yrðu búnar til sem þýddi að aukningin yrði 230 stöður þar sem áætlanir væru að hætta með 400 aðrar stöður þar í landi. 16.6.2008 14:59
Vísindamenn uppgötva pöddu sem býr til olíu Vísindamenn hjá fyrirtækinu LS9 í Sílikondalnum hafa náð að breyta pöddum á erfðarfræðilegan hátt þannig að þær geta nú skilað af sér hráolíu sem úrgangi eftir að hafa verið fóðraðar á landbúnaðarúrgangi. 16.6.2008 14:19
Nató skoðar inngöngumöguleika Úkraínu Sendinefnd á vegum Nató er að hefja tveggja daga ferð til Úkraínu til þess að ræða næstu skref í mögulegri inngöngu landsins í Nató. 16.6.2008 12:43
Vara Írana við hertum refsiaðgerðum Bush Bandaríkjaforseti og Brown forsætisráðherra Bretlands vörðu Írana í morgun við hertum refsiaðgerðum ef þeir samþykktu ekki samvinnu við vesturveldin vegna kjarnorkuáætlunar sinnar. 16.6.2008 12:30
Gíslataka í Hollandi Vopnaðir menn tóku í morgun minnst fjóra í gíslingu í ráðhúsinu í Almelo í Hollandi. Óljósar fréttir hafa borist af málinu en gíslarnir munu enn í haldi mannanna. 16.6.2008 11:55
Engar skyndilausnir segir írski utanríkisráðherrann Það er allt of snemmt að leita lausna á þeirri niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu Íra að hafna Lissabon-sáttmálanum. 16.6.2008 09:50
Fresta því að taka afstöðu til breyttra samskipta við Kúbu Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna frestuðu því í morgun að taka ákvörðun um það hvort afnema ætti ýmsar hömlur í samskiptum sambandsins við Kúbu. Verður ákvörðun þar um ekki tekin fyrr en á fimmtudag. 16.6.2008 09:22
Vilhjálmur prins þúsundasti riddari sokkabandsins Vilhjálmur prins verður í dag þúsundasti riddari sokkabandsorðunnar svokölluðu og fer athöfnin fram í Windsor-kastala og Kapellu heilags Georgs. 16.6.2008 08:55
Danir segja fátæktarmörk 182.462 krónur í skoðanakönnun Hafi maður ekki efni á að halda afmælisveislu eða reka farsíma er maður fátækur samkvæmt niðurstöðum danskrar skoðanakönnunar. 16.6.2008 08:20
Fyrsti fundur Bush og Brown á breskri grund George Bush Bandaríkjaforseti og breski forsætisráðherrann Gordon Brown héldu í gær sinn fyrsta fund á breskri grund þegar þeir hittust í Downing-stræti. 16.6.2008 08:17
NASA semur um hönnun tunglbúninga Bandaríska geimferðastofnunin NASA hefur samið við fyrirtæki í Houston um hönnun og framleiðslu nýrra geimbúninga sem væntanlegum tunglförum er ætlað að klæðast. 16.6.2008 08:10
Urmull samkynhneigðra til Kaliforníu Hóteleigendur og aðrir ferðaþjónustuaðilar hafa rennt rauða dreglinum út fyrir samkynhneigða en áætlað er að um 67.000 samkynhneigð pör heimsæki Kaliforníu næstu daga en frá og með 17. júní geta samkynhneigðir gengið þar í hjónaband. 16.6.2008 07:42
Danskir leigubílstjórar óttast vegabréfaskoðun Leigubílstjórar í Danmörku óttast nú að þeim verði gert að framkvæma vegabréfaskoðun hjá farþegum sem þeir aka með yfir landamæri, hvort sem er til Svíþjóðar eða Þýskalands. 16.6.2008 07:39
Nám sem yfirskin dvalarleyfis í Danmörku Dönsk menntamálayfirvöld grunar að innflytjendur frá löndum utan Evrópusambandsins noti nám sem yfirskin til þess að fá dvalarleyfi í Danmörku. 16.6.2008 07:34
Hundur sogaðist upp í götusóp Hreinsunardeild New York-borgar kallar það sjaldgæft og óheppilegt slys að hundur skyldi hafa sogast upp í ryksugu á götusóp og drepist. 16.6.2008 07:29
Bretar aðstoða Bush í leitinni að Bin Laden Meiri styrkur hefur á síðustu vikum verið settur í leitina að Osama bin Laden. Breska dagblaðið the Times hefur þetta eftir heimildarmönnum úr bandarísku leyniþjónustunni. Blaðið segir að George Bush leggir nú hart að mönnum sínum að finna manninn sem sagður er bera ábyrgð á árásunum 11. september 2001, áður en hann lætur af embætti forseta Bandaríkjanna í nóvember. 15.6.2008 20:49
Finni myrti eiginkonu sína og tvær dætur 88 ára gamall Finni í norðurhluta landsins myrti í dag eiginkonu sína og tvær dætur. Að því loknu framdi hann sjálfsmorð. 15.6.2008 20:18
Biskup vill rannsókn á giftingu samkynhneigðra presta Biskupinn í Lundúnum hefur fyrirskipað rannsókn á því þegar tveir karlkyns prestar í borginni voru "gefnir saman" í kirkjulegri athöfn á dögunum. Prestarnir skiptust á hringum í einni elstu kirkju höfuðborgarinnar þann 31. maí síðastliðinn. 15.6.2008 19:56
Hermönnum sigað á vasaþjófa Ítalska ríkisstjórnin hefur ákveðið að senda hermenn út á götur stórborga landsins til þess að stemma stigu við glæpum. Málið hefur varkið deilur á Ítalíu en stjórnarandstæðingar líkja hugmyndinni við aðgerðir herforingjastjórna. 15.6.2008 19:21
Bush í konunglegu teboði George Bush Bandaríkjaforseti er að ljúka ferðalagi sínu um Evrópu en nú er hann staddur á Englandi. Hann og Laura konan hans settust niður með Elísabetu Englandsdrottningu í Windsor kastala og drukku te. Bush verður í tvo daga á Englandi og meðal annars mun hann hitta Gordon Brown forsætisráðherra að máli á morgun. 15.6.2008 16:42
Karzai hótar að senda hersveitir inn í Pakistan Hamid Karzai, forseti Afganistans, hótaði í dag að senda hersveitir inn í nágrannríkið Pakistan til þess að hafa hendur í hári uppreisnarmanna talibana. 15.6.2008 13:52
Dregur úr hjartaáföllum í kjölfar reykingabanns Hjartaáföllum hefur fækkað á helmingi allra spítala á Englandi í kjölfar þess að reykingabann var sett á skemmtistöðum þar í landi. Hjartaáföllum hefur fækkað um 1348 á þeim níu mánuðum sem liðnir eru frá því banninu var komið á, borið saman við sama tímabil í fyrra. Það þýðir að hjartaáföllum hefur fækkað um þrjú prósent frá því banninu var komið á. 15.6.2008 13:34
Tugir látnir í flóðum í Kína Að minnsta kosti 55 hafa látið lífið og ein og hálf milljón manna þurft að yfirgefa hemili sín vegna mikilla flóða í Suður-Kína. Flóðin hafa leikið Sisjúan hérað illa en þar er fólk enn að jafna sig eftir skjálftann í síðasta mánuði. 15.6.2008 13:05
Enn finnast leyniskjöl á glámbekk á Bretlandi Enn finnast á Bretlandi leyniskjöl á glámbekk. Greint var frá því fyrr í vikunni að BBC hefði fengið afhent skjöl sem fundust í lest og fjölluðu um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í baráttunni við hryðjuverkamenn. Dagblaðið Independent on Sunday hefur nú skýrt frá því að þeim hafi einnig verið afhentur skjalabunki sem merktur er sem ríkisleyndarmál. 14.6.2008 21:19
Grýttur og brendur lifandi Innflytjandi frá Mósambík var myrtur í Suður Afríku í dag nærri höfuðborginni Pretoríu. Maðurinn, sem var þrjátíu ára gamall, er síðasta fórnarlambið í ofsóknum Suður Afríkumanna gegn innflytjendum frá öðrum Afríkuríkjum. Maðurinn var sakaður af æstum múg um íkveikju og var hann grýttur og loks brenndur lifandi. 14.6.2008 20:47
Breskir íhaldsmenn vilja fá að kjósa um Lissabon - sáttmálann Breskir íhaldsmenn skora á ríkistjórn Bretlands að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um Lissabon-sáttmálann. Áskorunin kemur í kjölfar þess að breska ríkisstjórnin hefur lýst því yfir að sáttmálinn verði samþykktur á þinginu þrátt fyrir að Írar hafi fellt hann í þjóðaratkvæði í gær. 14.6.2008 19:36