Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Níu ára palestínskur drengur skotinn Ísraelskir hermenn skutu og særðu níu ára palestínskan dreng á Vesturbakka Jórdan í gær. Hermennirnir héldu að drengurinn væri vopnaður en seinna kom í ljós að hann var með leikfangariffil. 4.11.2005 07:51
Skotið á lögreglumenn í París Skotið var á lögreglumenn í úthverfum Parísar í gærkvöld en enginn særðist í átökunum. Óeirðir geisuðu í borginni, áttundu nóttina í röð, og var kveikt í yfir 50 bílum. Þá var ráðist á skóla og strætisvagna í alls níu úthverfum borgarinnar. 4.11.2005 07:28
Tími ríkisstjórnar Merkel strax á enda? Ríkisstjórn Angelu Merkel í Þýskalandi var spáð tveggja ára líftíma eftir kosningarnar fyrir mánuði. Stjórnin hefur reyndar ekki ennþá verið mynduð en tími hennar virðist engu að síður liðinn. 3.11.2005 20:30
Skotbardagar í fátækrahverfi í París Skotbardagar brutust út í einu af fátækustu úthverfum Parísarborgar í nótt en blóðug átök hafa staðið þar allar nætur í viku. Kveikt hefur verið í hundruðum bifreiða og ráðist inn í skóla, verslanir og stofnanir. 3.11.2005 19:45
Mikil leynd yfir fangelsum Mikil leynd hvílir yfir dularfullum fangelsum þar sem meintir hryðjuverkamenn eru yfirheyrðir. Yfirvöld í Evrópu og Bandaríkjunum áttu erfitt með að svara spurningum fréttamanna um málið í dag. 3.11.2005 19:24
Ritsjóri The Sun fangelsuð vegna líkamsárásar Ritstjóri dagblaðsins The Sun í Bretlandi, Rebekah Wade, var handtekin í morgun vegna árásar á eiginmann sinn, leikarann, Ross Kemp. Málsatvik voru þau að lögreglan var kölluð að heimili þeirra vegna óláta og þegar komið var á staðinn stórsá á eiginmanni hennar og var hann meðal annars skorinn í andliti. 3.11.2005 17:15
Berlusconi segist hafa stafað ógn af sprengjumanni Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, segir að sjálfsmorðsárásarmaður hafi ætlað að ráða hann af dögum á knattspyrnuleik. Hann sakar einnig pólitíska andstæðinga sína um að auka hættuna á hryðjuverkaárásum í landinu með því að draga heilindi hans í efa. 3.11.2005 16:15
Bíll ræningjanna fundinn Mennirnir sem rændu peningaflutningabíl Securitas norður af Gautaborg í morgun ganga enn lausir. Bíllinn sem þeir notuðu við ránið er fundinn en enn stendur yfir víðtæk leit að mönnunum. 3.11.2005 15:30
Réttarhöld yfir meintum hryðjuverkamönnum hefjast í Belgíu Réttarhöld hófust í Belgíu í dag yfir þrettán mönnum sem taldir eru tilheyra hryðjuverkahópi sem sakaður er um að hafa staðið á bak við hryðjuverkaárásir á lestarstöðvum í Madríd í fyrra þar sem hátt í 200 manns létust. 3.11.2005 14:58
Fíkniefni fyrir um 550 milljónir í skipi í Noregi Fíkniefni fyrir um 550 milljónir íslenskra króna fundust í suðuramerísku skipi í Norðlandsfylki í Norður-Noregi í dag. Farmurinn fannst við hefðbundið eftirlit. Talið er að um kókaín hafi verið að ræða, en það hefur þó ekki fengist staðfest. 3.11.2005 14:12
Fuglaflensa greinist í sjötta Evrópulandinu Fuglaflensan hefur greinst í sjötta Evrópulandinu en svanur sem kom frá Ungverjalandi bar H5N1 afbrigði fuglaflensunnar með sér til Króatíu á dögunum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu landbúnaðarráðherra Króatíu sem hann sendi frá sér í gær. 3.11.2005 13:08
Engin fangelsi á vegum CIA í Rúmeníu Forsætisráðherra Rúmeníu sagði í dag að engin fangelsi á vegum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, væru í landinu. Þá hafa stjórnvöld í Tékklandi sagst hafa hafnað óskum bandarískra stjórnvalda um að fá að reka slíkt fangelsi þar í landi. 3.11.2005 12:51
Dönsk kona læst inni á baðherbergi í viku Fjörutíu og fimm ára dönsk kona, búsett í Hjörning, er frjáls á ný eftir að hafa verið læst inni á baðherberginu heima hjá sér í heila viku. Þegar ekkert hafði heyrst til konunnar í heila sjö daga var lögreglu gert viðvart. Kom í ljós að læsing hurðarinnar hafði hlaupið í baklás. 3.11.2005 11:15
2000 andlát á breskum sjúkrahúsum vegna mistaka Meira en tvö þúsund andlát á breskum sjúkrahúsum á síðasta ári má rekja til mistaka og skorts á öryggisþáttum við umönnun sjúklinganna. Þetta kemur fram í rannsókn sem gerð var af opinberum aðilum og segir frá í nýrri skýrslu. Á meðal þess sem leiddi sjúklingana til dauða var röng lyfjagjöf og bilun í tækjum sjúkrahúsanna. 3.11.2005 10:45
Þaulskipulagt rán framið í Svíþjóð Grímuklæddir ræningjar, vopnaðir sjálfvirkum byssum og sprengiefni, réðust á peningaflutningabíl norður af Gautaborg í Svíþjóð rétt fyrir klukkan átta í morgun að íslenskum tíma. Tveir öryggisverðir særðust í árásinni og voru fluttir á sjúkrahús en ekki er enn vitað hversu alvarlegt það er. Ræningjarnir höfðu sett upp naglamottur á nokkrum stöðum til að hindra aðkomu lögreglu. 3.11.2005 09:51
Karl Bretaprins og Camilla í Hvíta húsinu Karl Bretaprins og Camilla eiginkona hans snæddu kvöldverð með forsetahjónunum í Hvíta húsinu í gær en þau eru í vikulangri opinberri heimsókn í Bandaríkjunum. Umræðuefnið var sterkt samband þjóðanna tveggja, sérstaklega eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september árið 2001. 3.11.2005 09:19
Sprengjuárás í Baska-héraði í nótt Sprengja sprakk í bænum Zarautz á Spáni í nótt. Svo virðist sem enginn hafi særst í árásinni en sprengjunni hafði verið komið fyrir í ruslutunnu við götu í bænum. Önnur sprengja, sem fannst nærri dómshúsinu í bænum, hafði verið gerð óvirk af lögreglu skömmu áður. 3.11.2005 09:16
Peningaflutningabíll rændur í Svíþjóð Fyrir um klukkustund var ráðist á peningaflutningabíl rétt fyrir utan Gautaborg í Svíþjóð. Síðast þegar fréttist var sjúkrabíll á leið á staðinn en talið er að öryggisverðirnir sem í bílnum voru hafi slasast í árásinni. Svo virðist sem að um mjög vel skipulagt rán sé að ræða. 3.11.2005 09:07
Evran tekin upp á Kýupur Kýpverjar taka upp evruna 1. janúar árið 2008. Yfirvöld á Kýpur höfðu gert sér vonir um að sameinast myntbandalaginu árið 2007 en sökum gríðarlegs fjárlagahalla verður ekkert úr því. 3.11.2005 08:45
CIA neitar að tjá sig Bandaríska leyniþjónustan CIA neitar að tjá sig um fregnir bandaríska dagblaðsins The Washington Post þess efnis að Bandaríkjamenn hafi beitt meinta al-Qaida liða pyntingum í leynilegum fangelsum í Austur-Evrópu og víðar um heiminn. 3.11.2005 08:29
Viðbúnaðaráætlun vegna flensu samþykkt í Danmörku Ríkisstjórn Danmerkur hefur samþykkt viðbúnaðaráætlun vegna hugsanlegs fuglaflensufaraldurs í landinu. Samkvæmt áætluninni verða keyptar meiri birgðir af inflúensulyfinu Tamiflu sem eiga að duga 19 prósentum dönsku þjóðarinnar. 3.11.2005 08:15
30 féllu og 150 særðust í Addis Ababa Að minnsta kosti þrjátíu manns féllu og um 150 særðust í átökum lögreglu og stjórnarandstæðinga í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu, í gær. Íslenskir kristniboðar eru að störfum í broginni. 3.11.2005 07:53
Ástandið orðið hættulegt segir Chiraq Jacques Chiraq Frakklandsforseti segir lögregluna verða að taka á óeirðum sem geisað hafa í níu úthverfum Parsíar undanfarna viku, og það strax. Hann segir ástandið orðið hættulegt en miklar deilur hafa orðið innan ríkisstjórnarinnar vegna málsins. 3.11.2005 07:36
Telja Bandaríkjastjórn hafa fangelsað 70 þúsund manns Talið er að bandarísk yfirvöld hafi frá árinu 2001 haft forgöngu um að fangelsa 70 þúsund manns víðs vegar um veröldina. Þrátt fyrir að Alþjóða Rauði krossinn hafi ítrekað farið fram á að fá upplýsingar um fólkið og þær aðstæður sem það býr við hafa bandarísk yfirvöld engu svarað. 2.11.2005 19:45
Ísraelsher skaut palestínskan uppreisnarmann Ísraelskir hermenn skutu palestínskan uppreisnarmann til bana nærri bænum Jenín á Vesturbakkanum í dag í áhlaupi Ísraelshers. Bráðaliðar og vitni segja uppreisnarmanninn hafa tilheyrt al-Aqsa herdeildunum, vopnuðum væng Fatah-hreyfingarinnar, og að hann hafi fallið í byssubardaga við hersveitirnar. 2.11.2005 18:30
Háttsettur al-Qaida liði slapp úr haldi Bandaríkjamanna Háttsettur al-Qaida liði slapp úr haldi Bandaríkjamanna í Afganistan í sumar. Þetta staðfesti ónafngreindur starfsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins við Reuters-fréttastofuna í dag. Kúveitinn Omar al-Faruq var gripinn í Indónesíu árið 2002 og afhentur Bandaríkjamönnum, en hann er talinn einn af hæstsettu mönnum innan al-Qaida í Suðaustur-Asíu. 2.11.2005 18:00
23 látnir eftir tilræði við mosku Nú er ljóst að að minnsta kosti 23 létust og f46 særðust þegar bílsprengja sprakk fyrir utan mosku sjíta í bænum Musayyib í Írak í dag. 2.11.2005 17:01
Chirac hvetur til stillingar í úhverfum Parísar Jacques Chirac, forseti Frakklands, reyndi í dag að lægja óeirðaölduna sem gengið hefur yfir úthverfi Parísarborgar undanfarna daga. Þær blossuðu upp fyrir sex dögum eftir að tveir piltar af innflytjendaættum létust af völdum raflosts þar sem þeir földu sig fyrir lögreglunni í lítilli rafstöð. 2.11.2005 15:59
Ráðist á mosku sjíta í Írak Að minnsta kosti sjö létust og fimmtán særðust þegar bílsprengja sprakk fyrir utan mosku sjíta í bænum Musayyib í Írak í dag. Árásin er gerð á lokadegi helgimánaðar múslíma, Ramadan, en árásir á sjíta í mánuðinum hafa verið tíðar. Múslímar búa sig nú undir þriggja daga frí, svokallað Eid, í kjölfar Ramadan en fríið hefst á morgun eða hinn. 2.11.2005 15:50
73 þúsund látnir af völdum skjálftans í Pakistan Yfirvöld í Pakistan greindu frá því í dag að tala látinna eftir jarðskjálftann 8. október væri komin upp í 73 þúsund. Talan hefur hækkað um sextán þúsund frá síðustu yfirlýsingu yfirvalda. Yfirmaður hjálparstarfsins í landinu sagði að sífellt fleiri látnir fyndust í rústum húsa og hann óttaðist að talan myndi hækka enn frekar. 2.11.2005 15:34
Óeirðirnar í París færst enn í aukana Óeirðunum sem geisað hafa í París undanfarna daga virðist ekkert ætla að linna. Þær hafa nú færst í enn fleiri úthverfi borgarinnar en sex dagar er frá því þær hófust. 2.11.2005 12:54
Blunkett segir af sér í annað sinn David Blunkett, ráðherra atvinnu- og eftirlaunamála í bresku ríkisstjórninni, sagði af sér í morgun. Blunkett hefur sætt ámæli fyrir að brjóta gegn siðareglum ráðherra með því að taka að sér launuð störf eftir að hann sagði af sér embætti innanríkisráðherra á síðasta ári. 2.11.2005 11:09
Telur N-Kóreu ætla að halda áfram kjarnorkuframleiðslu Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir ekkert benda til þess að Norður-Kórea hyggist draga til baka áætlanir sínar um að hætta að framleiða kjarnorkuvopn. Yfirvöld í landinu hafa áður lofað að hætta framleiðslunni. 2.11.2005 09:46
Karl Bretaprins ræddi við Kofi Annan Karl bretaprins og eiginkona hans, Camilla Parker Bowles, eru komin til New York en þau eru í vikulangri opinberri heimsókn í Bandaríkjunum. Karl hitti meðal annars Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, og ræddu þeir ýmis vandamál sem steðja að heiminum. 2.11.2005 09:40
Ísraelskur hemaður féll á Gaza Ísraelskur hermaður féll í skotbardaga við Palestínumenn á Gaza-ströndinni í morgun, að sögn talsmanns Ísraelshers. Þetta er fyrsta mannfallið í þeirra röðum síðan Ísraelsmenn yfirgáfu landnemabyggðirnar á Gaza snemma í haust. 2.11.2005 09:04
430 milljarðar til að verjast fuglaflensunni George Bush Bandaríkjaforseti hefur farið fram á við bandaríska þingið að það veiti sjö milljarða dollara fjárveitingu, eða tæplega 430 milljarða króna, til að berjast gegn fuglaflensunni sem hefur orðið 61 manni að bana í heiminum. 2.11.2005 08:40
Varað við eiturslöngum á Amager Lögregla í Taarnby í Danmörku varar fólk við eiturslöngum sem sleppt hefur verið í skógi á Amager, ekki ýkja langt frá nokkrum barnaheimilum. Fyrir um tveimur vikum fann maður dauða slöngu í skóginum sem reyndist vera af baneitraðrir tegund og í fyrradag fannst önnur slík lifandi og var hún aflífuð. 2.11.2005 08:00
Sænsk herþyrla hrapaði Mikil mildi þykir að enginn hafi slasast þegar herþyrla af gerðinni Super Puma hrapaði í sjóinn undan Blekinge í Svíþjóð í gærkvöld. Átta manns voru í þyrlunni. Björgunaræfing á vegum sænska hersins stóð yfir þegar óhappið varð. 2.11.2005 07:45
Hryðjuverkamenn undirbúa árásir í Ástralíu Hryðjuverkamenn undirbúa nú árásir í Ástralíu. Þetta sagði forsætisráðherra landsins á blaðamannafundi sem haldinn var í Canberra, höfuðborg landsins, í gær. 2.11.2005 07:25
Hefði ekki getað orðið á verri tíma Ramadan, föstumánuður múslíma var nýhafinn þegar jarðskjálftinn stóri reið yfir fjallahéruð Pakistans. Örþreyttir hjálparstarfsmenn vinna því á fastandi maga frá morgni til kvölds. Skjálftinn hefði því varla getað riðið yfir á verri tíma, að sögn íslensks sendifulltrúa Rauða krossins sem þar er að störfum. 1.11.2005 19:45
Nýjar leiðir til að sporna við útrýmingu Namibíumenn fara nú ótroðnar slóðir til að vernda smáan stofn blettatígra í landinu. Með því að þjálfa upp tyrkneska fjárhunda, sem vakta húsdýrahjarðir, halda þeir blettatígrunum frá þeim. 1.11.2005 18:45
Enn logar allt í óeirðum í París Allt hefur logað í óeirðum dögum saman í einu úthverfa Parísar, Clichy-Sous-Bois, eftir að tveir ungir drengir létust eftir að hafa fengið raflost þar sem þeir földu sig fyrir lögreglunni í lítilli rafstöð. 1.11.2005 18:15
Munkafundur í Bangkok Á fjórða þúsund búddamunkar funda nú í Bangkok, höfuðborg Tælands. Þátttakendur eru frá tuttugu og þremur löndum og er dagskráin byggð á sameiginlegu bænahaldi og umræðum um búddisma. 1.11.2005 17:58
Lögregla handtekur sjöunda manninn í Danmörku Lögreglan í Glostrup í Danmörku hefur handtekið sjöunda manninn í tengslum við meintan undirbúning á hryðjuverkjum einhvers staðar í Evrópu. Frá þessu er greint á heimasíðu danska ríkisútvarpsins. 1.11.2005 17:45
400 milljarðar vegna fuglaflensu George Bush Bandaríkjaforseti bað í dag Bandaríkjaþing um ríflega fjögur hundruð milljarða króna aukafjárveitingu til að búa landið undir fuglaflensufaraldur. Stærstur hluti peninganna á að fara í þróun nýs bóluefnis, en auk þess er gert ráð fyrir að um hundrað milljarða kosti að birgja þjóðina upp af þeim lyfjum sem þegar eru til. 1.11.2005 17:15