Erlent

23 látnir eftir tilræði við mosku

Bandarískur hermaður tekur mynd af bílflaki eftir bílsprenguárás í borginni Kirkuk í dag.
Bandarískur hermaður tekur mynd af bílflaki eftir bílsprenguárás í borginni Kirkuk í dag. MYND/AP

Nú er ljóst að að minnsta kosti 23 létust og f46 særðust þegar bílsprengja sprakk fyrir utan mosku sjíta í bænum Musayyib í Írak í dag. Árásin er gerð á lokadegi helgimánaðar múslíma, Ramadan, en árásir á sjíta í mánuðinum hafa verið tíðar. Múslímar búa sig nú undir þriggja daga frí, svokallað Eid, í kjölfar Ramadan en fríið hefst á morgun eða hinn.

Sex vikur eru nú til þingkosninga í landinu og svo virðist sem vonir bandarískra stjórnvalda um aukinn stöðugleika í landinu séu að engu orðnar enda hafa uppreisnarmenn ítrekað látið sverfa til stáls í landinu að undanförnu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×