Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skutu eldflaugum á Gasaborg Ísraelskar hersveitir skutu tveimur eldflaugum á Gasaborg í morgun með þeim afleiðingum að rafmagnslaust varð í allri austanverðri borginni. Eldflaugarnar lentu á verksmiðjubyggingu þar sem Ísraelar segja að fari fram vopnaframleiðsla en Palestínumenn segja það ekki vera rétt. Enginn særðist í árásinni. 26.9.2005 00:01
Vopnum IRA hafi verið eytt Alþjóðlegir vopnaeftirlitsmenn munu tilkynna í dag að vopnum Írska lýðveldishersins hafi verið eytt. Mun þetta verða tilkynnt á blaðamannafundi sem haldinn verður í Belfast. Um mikilvægan áfanga í friðarferlinu á Norður-Írlandi er að ræða en tregða IRA, helstu samtaka herskárra aðskilnaðarsinna á Norður-Írlandi, til að afvopnast hefur verið helsta vandamálið í friðarferlinu á Norður-Írlandi. 26.9.2005 00:01
Stjórnin líklega fallin í Póllandi Allt bendir til þess að ríkisstjórn Mareks Belka, forsætisráðherra Póllands, sé fallin og tveir mið- og hægriflokkar, sem hafa boðað samstarf eftir kosningarnar í gær, hafi fengið meirihluta atkvæða. Jaroslaw Kaczynski, leiðtogi flokksins Laga og réttlætis, hefur þegar lýst yfir sigri. 26.9.2005 00:01
Hundruð þúsunda án rafmagns Hundruð þúsunda heimila og fyrirtækja eru án rafmagns eftir að fellibylurinn Ríta reið yfir Louisiana-ríki á laugardag en enn sem komið er hafa hvorki borist fregnir af því að fólk hafi slasast eða látist í hamförunum. Töluverð flóð urðu í suðurhluta ríkisins í kjölfar fellibylsins, einna mest í bænum Erath þar sem heilu hverfin hurfu undir vatn. 26.9.2005 00:01
Aron Pálmi handtekinn í nótt Lögreglan í Texas handtók Aron Pálma Ágústsson þar sem hann var staddur í neyðarskýli Rauða krossins í nótt. Að sögn Arons sögðust lögreglumennirnir ekki vera að taka hann formlega fastan en þeir námu hann á brott úr búðunum og fluttu hann í fangelsi í smábæ fyrir utan Dallas. 26.9.2005 00:01
Árás við olíumálaráðuneyti Íraks Að minnsta kosti sjö manns féllu og um 30 særðust þegar sjálfsmorðssprengjuárás var gerð við olíumálaráðuneyti Íraks í morgun. Maður keyrði bíl sínum inn í strætisvagn með fyrrgreindum afleiðingum en í vagninum voru aðallega starfsmenn ráðuneytisins á leið til vinnu sinnar. Talið er að al-Qaida hafi verið að verki en samtökin lýstu í gær ábyrgð á sjálfsmorðsárás í Bagdad sem varð að minnsta kosti níu manns að bana. 26.9.2005 00:01
Gekk út vegna hljóðnemavandræða Forsætisráðherra Ísraels, Ariel Sharon, gekk út af fundi sem haldinn var vegna yfirlýsingar fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Benjamins Netanyahus, um að Sharon hefði svikið flokk sinn, Likud-flokkinn, og Ísraelsmenn alla þegar hann ákvað að rýma Gasasvæðið fyrir Palestínumenn. 26.9.2005 00:01
Fellibylur veldur usla við Kína Tveir eru látnir af völdum fellibylsins Damrey sem farið hefur eftir strönd kínversku eyjarinnar Hainan undanfarinn sólarhring. Þetta er öflugasti stormur sem gengið hefur yfir eyjuna í þrjá áratugi, en hún er vinsæll ferðamannastaður úti fyrir suðurströnd Kína. 26.9.2005 00:01
Þrjú flugslys um helgina Þrír fórust í þremur flugslysum um helgina en flugslys hafa verið tíð að undanförnu í heiminum. Tvö af flugslysunum áttu sér stað í Slóvakíu en það þriðja í Ungverjalandi. Ekki er vitað um ástæður slysanna en verið er að rannsaka tildrög þeirra. Eins og fyrr segir hafa flugslys verið tíð að undanförnu en á síðustu þremur mánuðum hafa sex farþegavélar farist. 26.9.2005 00:01
Verður ekki kærður fyrir neitt Lögreglan í Texas handtók Aron Pálma Ágústsson í nótt, að íslenskum tíma, þar sem hann var í neyðarskýli Rauða krossins. Aron Pálmi segir lögreglumenn hafa beðið sig um að koma út fyrir neyðarskýlið og sagt honum þar að hann mætti ekki dvelja í skýlinu. Eftir það hafi hann verið fluttur í fangelsi og verið sagt að hann mætti ekki yfirgefa það þó hann yrði ekki kærður fyrir neitt. 26.9.2005 00:01
Enn einn látinn úr fuglaflensu Indónesísk kona lést í morgun af völdum fuglaflensu á sjúkrahúsi í Djakarta, en hún er fimmta manneskjan sem deyr af völdum veikinnar í landinu á skömmum tíma. Þá leikur grunur á að fimm ára stúlka, sem lést í síðustu viku, hafi einnig verið með flensuna en það hefur ekki verið staðfest með rannsóknum. Auk þess eru 17 á sjúkrahúsi grunaðir um að hafa smitast af veikinni. 26.9.2005 00:01
Kosningum flýttt í Grænlandi Kosningum í Grænlandi, sem fram áttu að fara 22. nóvember, hefur verið flýtt um viku til þess að ný landsstjórn komist fyrr til starfa. Hans Enoksen, formaður landsstjórnarinnar, boðaði til kosninganna fyrr í mánuðinum eftir deilur Síumútflokksins, sem Enoksen fer fyrir, og samstarfsflokksins Ínúíska bræðralagsins, um fjárlög, en auk þess voru tveir ráðherrar úr Síumútflokknum sakaðir um að sóa almannafé. 26.9.2005 00:01
Ástralir styðja Indónesa í baráttu Ástralar munu gefa Indónesum 50 þúsund skammta af lyfinu Tamilflu til þess að hjálpa þeim að berjast við fuglaflensu sem þegar hefur dregið sex manns til dauða í Indónesíu. Frá þessu greindi utanríkisráðherra Ástralíu í dag. 26.9.2005 00:01
Olíuverð lækkar á heimsmarkaði Hráolíuverð fer nú lækkandi á heimsmarkaði eftir að ljóst er að fellibylurinn Ríta olli mun minna tjóni á olíumannvirkjum i Texas en óttast var. Nokkrar olíuhreinsistöðvar í Texas eru þó enn óvirkar vegna rafmagnsleysis en þær geta hafið framleiðslu um leið og rafmagn kemst aftur á. Bandarísk stjórnvöld ætla að setja eitthvað af varabirgðum sínum á almennan markað á meðan. 26.9.2005 00:01
Breskir hermenn féllu á lyfjaprófi Tuttugu og fimm hermenn úr tveimur hópum í breska hernum eiga nú yfir höfði sér brottvísun úr hernum eftir að þeir féllu á lyfjaprófi á dögunum. Frá þessu greindi breska varnamálaráðuneytið í dag. Annar hópurinn hafði m.a. starfað í Írak en hinn á Norður-Írlandi en þeir hafa báðir haft aðsetur á Englandi að undanförnu. 26.9.2005 00:01
Hefði frekar haldið sig heima Aron Pálmi Ágústsson segir að hann hefði frekar haldið sig heima þegar fellibylurinn Ríta reið yfir en að fara burt með Rauða krossinum hefði hann búist við að verða handtekinn. 26.9.2005 00:01
Merkel vill leiða viðræður Angela Merkel, leiðtogi kristilegra demókrata, í Þýskalandi segir að stjórnarmyndunarviðræður við jafnaðarmenn geti ekki haldið áfram nema þeir fallist á að hún leiði viðræðurnar. 26.9.2005 00:01
Tekur heimildamynd hér á landi Fjölmennt kvikmyndagerðarlið verður í för með sópransöngkonuninni og Íslandsvininum Kiri Te Kanawa, þegar hún kemur hingað til lands til að syngja á tónleikum í Háskólabíói 5. otkóber. Tilefnið er að svissneski úraframleiðandinn Rolex er að gera heimildamynd um hana, sem eina af mörgum sendiherrum Rolex í listaheiminum, en í þeim hópi er meðal annars Placido Domingo. 26.9.2005 00:01
Dæmdur fyrir aðild að árásum Hæstiréttur Spánar dæmdi í morgun Imad Eddin Baraka, meintan leiðtoga al-Qaida á Spáni, í 27 ára fangelsi fyrir samsæri í tengslum við hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september árið 2001. Hann var sýknaður af ákærum um morð í árásunum. 26.9.2005 00:01
Engar fregnir af manntjóni Hundruð þúsunda heimila og fyrirtækja eru án rafmagns eftir að fellibylurinn Ríta gekk yfir Texas og Louisiana í Bandaríkjunum á laugardaginn. Ekki hafa borist fregnir af manntjóni vegna veðurofsans. 26.9.2005 00:01
Öllum vopnum eytt Írski lýðveldisherinn hefur eytt öllum vopnum sem samtökin notuðu í baráttunni gegn breska hernum á Norður-Írlandi. Þetta kemur fram í skýrslu nefndar sem hefur fylgst með því hvort lýðveldisherinn standi við loforð sínum um afvopnun. 26.9.2005 00:01
Genabanki býður prinsessubaun Ef Margréti Danadrottingu skyldi vanta baun undir krónprinsessuna dönsku, Mary Donaldson, þá getur hún snúið sér til framkvæmdastjóra Norræna genabankans. Hann býður fram þessa aðstoð sína í grein í dagblaðinu <em>Jyllands Posten</em> í dag. 26.9.2005 00:01
Ríkisstjórn Póllands kolfallin Ríkisstjórn Mareks Belka, forsætisráðherra Póllands, kolféll í þingkosningunum sem fram fóru í landinu í gær. Miðflokkur og hægriflokkur, sem hafa boðað samstarf eftir kosningarnar, fengu meirihluta atkvæða. 26.9.2005 00:01
Flestir búa sig undir að snúa heim Flestir þeirra þriggja milljóna manna sem flúðu heimili sín í Texas og Louisiana vegna fellibylsins Rítu á laugardag búa sig nú undir að snúa aftur til síns heima. Tvö dauðsföll eru rakin til fellibylsins, en hundruð þúsunda heimila og fyrirtækja eru án rafmagns á svæðunum. 26.9.2005 00:01
Hákarl ræðst á brimbrettakappa Betur fór en á horfðist á sunnudaginn þegar fimm metra langur hvítháfur hremmdi ástralskan brimbrettakappa, Josh Berris að nafni, í sjónum úti fyrir Kengúrueyju við sunnanverða Ástralíu. 26.9.2005 00:01
Nafngiftir hafa áhrif á lyktarskyn Nafngiftir hafa áhrif á hvernig við skynjum lykt af ólíkum hlutum. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem greint er frá á vefsíðu BBC. 26.9.2005 00:01
Réttarhöldin sögð vafasöm Þrír sakborningar í dómsmáli vegna uppþotanna í Úsbekistan í maí viðurkenndu í gær að hafa fengið þjálfun í búðum herskárra múslima í nágrannaríkinu Kirgistan. Þá segja vitni að Bandaríkjamenn hafi styrkt uppreisnarmennina. 26.9.2005 00:01
Merkel vill leiða viðræðurnar Angela Merkel, leiðtogi kristilegra demókrata í Þýskalandi segir að stjórnarmyndunarviðræður við jafnaðarmenn geti ekki haldið áfram nema þeir fallist á að hún leiði viðræðurnar. 26.9.2005 00:01
Afvopnun Norður-Írlands staðreynd Mikilvægum áfanga í átt til endanlegs friðar á Norður-Írlandi var náð í gær þegar óháð vopnaeftirlitsnefnd lýsti því yfir að Írski lýðveldisherinn hefði afvopnast að fullu. Mótmælendur hafa þó efasemdir um afvopnunina. 26.9.2005 00:01
Tugþúsundir lyfjaskammta sendir Ástralar munu gefa Indónesum 50 þúsund skammta af lyfinu Tamilflu til þess að hjálpa þeim að berjast við fuglaflensu sem þegar hefur dregið sex manns til dauða í Indónesíu. 26.9.2005 00:01
Sheehan handtekin Cindy Sheehan, móðir bandarísks hermanns sem féll í átökum í Írak á síðasta ári, var handtekin í gær fyrir utan Hvíta húsið í Washington þar sem hún stóð fyrir mótmælum. 26.9.2005 00:01
Kennarar teknir af lífi Fimm grunnskólakennarar voru teknir af lífi í þorpinu Muelha, skammt suður af Bagdad í gær. Kennararnir, sem allir voru úr hópi sjía, voru á leið heim úr vinnu þegar uppreisnarmenn, dulbúnir sem lögreglumenn, stöðvuðu bifreið þeirra, leiddu þá aftur inn í kennslustofu og skutu til bana. 26.9.2005 00:01
Hámaði í sig veiðihníf Jon-Paul Carew, dýralækni í bænum Plantation í Flórída, brá heldur betur í brún þegar hann skoðaði röntgenmyndir af St. Bernhardshvolpinum Elsie. Í ljós kom að í maga hennar var rúmlega 33 sentimetra langur veiðihnífur með hvössum oddi og sagarblaði. 26.9.2005 00:01
Dómurinn sagður farsakenndur Átján manns voru í gær dæmdir á Spáni fyrir aðild að hryðjuverkaárásunum 11. september, þar á meðal fréttamaður sjónvarpsstöðvarinnar Al-Jazeera. Sakborningarnir halda fram sakleysi sínu og segja að um skrípaleik sé að ræða. 26.9.2005 00:01
Aðild að alþjóðastofnunum í hættu Aðild Póllands að Evrópuráðinu er í hættu ef íhaldssamir sigurvegarar nýafstaðinna þingkosninga þar í landi ákveða að taka upp dauðarefsingu að nýju. Bæði Jaroslav Kaczynski, leiðtogi flokks Laga og réttlætis, og bróðir hans Lech Kaczynski forsetaframbjóðandi hafa mælt fyrir því að dauðarefsingar skuli teknar upp sem meðal til þess að berjast gegn glæpum og spillingu. 26.9.2005 00:01
Fékk 27 ára fangelsi Hæstiréttur Spánar dæmdi í dag meintan leiðtoga Al-Qaida á Spáni í 27 ára fangelsi fyrir samsæri í tengslum við hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum 11. september 2001. Hann var sýknaður af ákærum um morð í árásunum. 26.9.2005 00:01
Lynndie England sek um misnotkun Kviðdómur í herrétti í Texas úrskurðaði í gærkvöldi Lynndie England seka um illa meðferð á föngum, ófyrirleitna framkomu og samsæri. Kæran var í sjö liðum og var hún sek af sex þeirra. 26.9.2005 00:01
Sigur fyrir Sharon Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, náði naumum sigri í gærkvöldi þegar kosið var um tillögu andstæðinga hans innan Líkúd-bandalagsins um að flýta aðalfundi og þar með formannskosningu. 26.9.2005 00:01
Björgunarsveitir aðstoða fólk Björgunarsveitir eru nú að aðstoða hundruð manna sem þurftu að leita skjóls á þökum húsa sinna í suðurhluta Louisiana vegna flóða sem fylgdu fellibylnum Rítu. Veðrið er nú gengið niður en yfirvöld í Texas og Louisiana hvetja flóttafólk til þess að vera ekkert að flýta sér heim meðan verið er að gera við flóðgarða sem rofnuðu í óveðrinu. 25.9.2005 00:01
200 handteknir á Vesturbakkanum Ísraelar handtóku yfir tvö hundruð grunaða hryðjuverkamenn á Vesturbakkanum í morgun og vöruðu Palestínumenn við harkalegum hefndaraðgerðum vegna eldflaugaárása frá Gaza-svæðinu. Tvær vikur eru liðnar frá því Ísraelar fluttu landnemabyggðir og alla hermenn sína frá Gaza. 25.9.2005 00:01
ETA grunuð um bílsprengingu Bílsprengja sprakk á iðnarsvæði í Avila-héraði á Norður-Spáni í gærkvöld. Enginn særðist í sprengingunni en viðvörun barst tveimur dagblöðum um hálftíma áður en sprengingin átti sér stað. Talið er að ETA, hin herskáu aðskilnaðarsamtök Baska, hafi staðið fyrir ódæðinu. 25.9.2005 00:01
Fjögur verk eignuð Rembrandt Fjögur málverk, sem hingað til voru talin hafa verið máluð af börnum hollenska listmálarans Rembrandts, hafa nú verið eignuð honum sjálfum. Hið sanna kom í ljós þegar verið var að undirbúa sýningu með verkum Rembrandts í Amsterdam. 25.9.2005 00:01
Herinn má beita stórskotaliði Ríkisstjórn Ísraels hefur gefið hernum heimild til þess að beita stórskotaliði til þess að stöðva eldflaugaárásir Palestínumanna frá Gaza-svæðinu. Þess eru varla fordæmi að ríkisstjórn hafi gefið leyfi til þess að beita stórskotaliði nánast innan eigin landamæra. 25.9.2005 00:01
Engin tímatafla um brottflutning Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur hafnað kröfum um að setja tímatöflu um brottflutning breskra hermanna frá Írak. Vaxandi mannfall í breskum hersveitum í Írak hefur vakið upp nýja mótmælaöldu í Bretlandi. 25.9.2005 00:01
Líbönsk sjónvarpskona særðist Líbönsk sjónvarpskona særðist mjög alvarlega þegar sprengja sprakk í bifreið hennar skammt norður af Beirút í dag. Konan var flutt í skyndi á sjúkrahús en ekki liggur fyrir hvort hún sé í lífshættu. 25.9.2005 00:01