Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bölvun fyrir Palestínumenn Óformlegt vopnahlé Ísraela og Hamas-samtakanna er í hættu eftir að samtökin skutu eldflaugum á Ísrael og þeim árásum var svarað af mikilli hörku. Varaforsætisráðherra Ísraels, Shimon Peres, segir Hamas-samtökin bölvun fyrir Palestínumenn, ógnun við friðinn og vandamál fyrir Ísraelsmenn. 25.9.2005 00:01
Hægriflokkar sigra í Póllandi Fyrstu tölur í þingkosningunum sem fram fóru í Póllandi í gær bentu til að spár gengju eftir um afgerandi sigur tveggja hægriflokka, sem hafa boðað stjórnarsamstarf. Vinstriflokkarnir, sem sigruðu stórt í síðustu þingkosningum fyrir fjórum árum, biðu afhroð. 25.9.2005 00:01
Skotbardagi við herskáa sjíta Byssumenn hollir herskáa sjíaklerknum Muqtada al-Sadr veittu íröskum hermönnum á eftirlitsferð fyrirsát í austurhluta Bagdad í gærmorgun. Bandarískir hermenn komu til liðs við þá írösku í skotbardaga sem stóð í einn og hálfan tíma. Um átta árásarmannanna voru felldir. 25.9.2005 00:01
Pólverjar kjósa á Íslandi Pólverjar búsettir á Íslandi höfðu kost á að kjósa í utankjörstaðakosningu í Alþjóðahúsinu vegna pólsku þingkosninganna. Af þeim rúmlega 2000 Pólverjum sem búsettir eru hérlendis höfðu 53 skráð sig á kjörskrá. Kjörsóknin var góð eða rúmlega 81prósent. 25.9.2005 00:01
Sviss opnar fyrir frjálsa för Svisslendingar samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær að borgurum hinna tíu nýju aðildarríkja Evrópusambandsins yrði heimilt að leita sér að vinnu í Sviss, samkvæmt sömu skilmálum og aðrir borgarar Evrópska efnahagssvæðisins njóta. 25.9.2005 00:01
Cheney heim úr skurðaðgerð Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, haltraði út af sjúkrahúsi í Washington í gær, daginn eftir að hafa gengist undir skurðaðgerð þar sem æðagúlpar voru fjarlægðir úr hnésbótum hans. 25.9.2005 00:01
Reynt að myrða líbanska fréttakonu Þekktur fréttamaður líbanskrar sjónvarpsstöðvar sem er andsnúin sýrlenskum áhrifum í landinu særðist lífshættulega í gær er sprengja sprakk í bíl hans. Fórnarlambið, May Chidiac, er einn stjórnenda vinsæls stjórnmálaspjallþáttar á sjónvarpsstöðinni LBC. 25.9.2005 00:01
Gekk nakinn um göturnar Stjórnmálamaðurinn Keith Locke gaf kjósendum það vafasama kosningaloforð að hann myndi afklæðast og ganga nakinn um götur Auckland á Nýja-Sjálandi ef hann tapaði fyrir stjórnmálaandstæðingi sínum, Rodney Hide. Locke stóð við loforð sitt og brá á það ráð að klæðast eingöngu nærbuxum og láta mála líkama sinn eins og hann væri klæddur jakkafötum. </font /> 25.9.2005 00:01
Handtóku 200 Palestínumen Ísraelar handtóku í gærmorgun yfir 200 eftirlýsta Palestínumenn á Vesturbakkanum. Flestir voru þeir meðlimir Hamas-samtakanna og Samtaka heilags stríðs. Á meðan þessu stóð settu ísraelskir hermenn upp vopn á landamærunum og skutu tilraunaskotum á auð svæði. 25.9.2005 00:01
Fólksfækkun í Rússlandi Fólki fækkar ört í Rússlandi á næstu árum og áratugum vegna snaraukinnar dánartíðni og stórlækkaðrar fæðingartíðni. Lundúnablaðið The Times greindi frá því um helgina að nú væru framkvæmdar fleiri fóstureyðingar í Rússlandi en börn fæðast í landinu. 25.9.2005 00:01
Vilja þrjú börn í stað tveggja Franska ríkisstjórnin hvetur landa sína til að eignast þriðja barnið, en láta ekki staðar numið eftir tvö eins og flestar franskar fjölskyldur gera nú, og hefur ákveðið að bjóða aukna fjárhagslega aðstoð fyrir fjölskyldufólk. 25.9.2005 00:01
Prinsinn á von á barni í lausaleik Louis prins í Lúxemborg og kærastan hans eiga von á barni. Prinsinn, sem er aðeins nítján ára gamall, kynntist kærustunni í herþjónustu í Kosovo á síðasta ári. 25.9.2005 00:01
Ríta gengin á land Fellibylurinn Ríta gekk á land í Texas og Louisiana klukkan hálfátta í morgun að íslenskum tíma. Auga fellibylsins skall á suðvesturströnd Louisiana, rétt austan við borgina Sabine Pass í Texas. Vindhraðinn er tæpir tvö hundruð kílómetrar á klukkustund. 24.9.2005 00:01
Sprengingar skekja Gaza Sprengingar skóku Gazaströndina í morgun. Ísraelski loftherinn varpaði sprengjum á svæði í norðurhluta Gaza og sagði talsmaður hersins að þetta væri gert til að stöðva palestínska árásarmenn sem hafa notað svæðið til að skjóta flugskeytum á Ísrael. Engin meiðsl á fólki hafa verið tilkynnt. 24.9.2005 00:01
Tveir særðir eftir vegsprengju Tveir bandarískir hermenn særðust þegar sprengja í vegkanti sprakk í þann mund sem hersveit þeirra ók fram hjá henni í suðurhluta Afganistans í morgun. Skotbardagi upphófst í kjölfarið á milli hermanna og uppreisnarmanna sem endaði með því að þrír skæruliðar voru handsamaðir, að því er talsmaður Bandaríkjahers greindi frá. 24.9.2005 00:01
Henti handsprengju að unglingum Þrír unglingspiltar létust og að minnsta kosti átta aðrir særðust þegar maður henti handsprengju að hópi unglinga á bæjarskemmtun á suðurhluta Filippseyja í dag. Lögregla segir að einn drengjanna hafi áður hent grjóti í manninn sem brást við fyrrnefndum afleiðingum. 24.9.2005 00:01
Skárra en óttast var Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður segir að sem stendur sé ástandið heldur skárra en óttast hafi verið í Houston vegna fellibylsins Rítu. Verst sé ástandið líklega þar sem miðja fellibylsins fór yfir í morgun í kringum bæina Beaumont og Lake Charles en þaðan hafi nánast engar fréttir borist. Að minnsta kosti hálf milljón íbúa er rafmagnslaus. 24.9.2005 00:01
Afl Rítu komið niður í einn Afl fellibylsins Rítu hefur minnkað mjög og er nú aðeins einn á fellibyljakvarðanum en var kominn upp í fimm þegar mest var áður en hann náði ströndum Bandaríkjanna. Engar fréttir hafa borist af manntjóni. 24.9.2005 00:01
Tveir Palestínumenn drepnir á Gaza Að minnsta kosti tveir Palestínumenn létust þegar tvær bifreiðar með meðlimi Hamas-samtakanna innanborðs var sprengd í loft upp á Gaza í dag. Haft er eftir vitnum að ísraelskar herþotur hafi skotið á bifreiðarnar. 24.9.2005 00:01
Tíu fótboltamenn hurfu Leikmenn fótboltaliða frá Zimbabwe „hurfu“ á ferð liðs þeirra til Bretlands. Talið er að mennirnir, sem eru tíu talsins, hafi ákveðið að stinga af með það í huga að gerast ólöglegir innflytjendur í Bretlandi og eiga þar með von um nýtt og betra líf. 24.9.2005 00:01
Komu af stað skógareldum Skógareldar hafa geisað á Suður-Spáni frá því í fyrradag og brennt meira um 2600 hektara lands. Tveir ferðamenn á sextugsaldri, breskur karlmaður og frönsk kona, hafa viðurkennt að hafa orðið völd að bálinu óviljandi þegar þau ætluðu að orna sér við bálköst og senda merki um leið eftir að hafa týnst í skóglendinu. 24.9.2005 00:01
Gömlum Kínverjum fjölgar Eldri borgarar í Kína eru nú um 130 milljónir og meira en tíu prósent íbúanna þar, samkvæmt upplýsingum frá ríkisstjórn Kína 24.9.2005 00:01
Sátt um smókinginn Samkynhneigður nemandi við miðskóla í Bandaríkjunum hefur fengið uppreisn æru sex mánuðum eftir að útskriftarmynd af henni var dregin út úr árbók skólans vegna þess að hún var íklædd smóking á myndinni 24.9.2005 00:01
Hefðum ekki getað sloppið betur Ólafur Árni Ásgeirsson ræðismaður Íslands í Houston segist vera alveg hissa hvað borgin slapp vel. 24.9.2005 00:01
Írönum gefið lokatækifæri Stjórn Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA), sem í sitja fulltrúar 35 ríkja, samþykkti í gær ályktun sem gæti leitt til þess að Íransstjórn verði stefnt fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna vegna meintra brota á alþjóðasáttmála um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna. 24.9.2005 00:01
Minna tjón en óttast var Fellibylurinn Rita gekk á land í Texas og Louisiana í gær. Tjón virtist ætla að verða minna en óttast var enda dró allhratt úr veðurhamnum. Mikil úrkoma olli þó flóðahættu, meðal annars í New Orleans. Rafmagnslaust varð hjá yfir milljón manns. 24.9.2005 00:01
Afsögn ráðherra veldur ólgu Stjórnarkreppa blasir við á Ítalíu í kjölfar þess að forsætisráðherrann, Silvio Berlusconi krafðist þess á föstudag að bankastjóri Seðlabanka Ítalíu segði af sér. 24.9.2005 00:01
Minna tjón en óttast hafði verið Fellibylurinn Ríta náði landi í morgun við fylkjamörk Texas og Louisiana. Þar fór hann yfir Galveston, Houston, Lake Charles og New Orleans. Þrátt fyrir ógnarkraft olli Ríta ekki jafn miklu tjóni og óttast hafði verið. Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, er í Houston í Texas. 24.9.2005 00:01
Íbúar Texas flýja Bílaröð sem er nærri jafnlöng og allur vegkaflinn milli Reykjavíkur og Stykkishólms hefur myndast utan við Houston, þar sem fólk flýr fellibylinn Rítu. 23.9.2005 00:01
Ekki um faraldur að ræða Enn eitt tilfellið af fuglaflensu kom upp á Indónesíu í gær og verið er að athuga sautján manns í landinu, sem grunur leikur á að hafi sýkst. 23.9.2005 00:01
Roberts samþykktur í nefnd Nefnd öldungardeildar Bandaríkjaþings samþykkti í gær John Roberts sem nýjan forseta hæstaréttar Bandaríkjanna.Þrettán nefndarmanna greiddu Róberts atkvæði sitt, en fimm voru andsnúnir skipun hans. 23.9.2005 00:01
Þrír Palestínumenn drepnir Ísraelskir hermenn skutu í nótt þrjá herskáa Palestínumenn til bana við Vesturbakkann. Að sögn vitna eltu ísraelskir herjeppar Palestínumennina, sem hófu skothríð á flótta sínum. 23.9.2005 00:01
Ekkert glæpsamlegt bjó að baki Stjórnvöld í Mexíkó fullyrða að um slys hafi verið að ræða þegar öryggismálaráðherra landsins og lögreglustjóri létust ásamt sjö öðrum þegar þyrla hrapaði í fyrradag. Einum mannana um borð hafði nýlega verið hótað lífláti af eiturlyfjabarónum og grunsemdir vöknuðu strax um að þyrluhrapið hefði ekki verið tilviljun. 23.9.2005 00:01
Bíllaust í miðborg Kaupmannahafnar Lögregla hefur lokað götum í miðborg Kaupmannahafnar fyrir bílaumferð í þrjá daga frá og með gærdeginum. 23.9.2005 00:01
Bílsprengja sprakk í Bagdad Bílsprengja sprakk í Bagdad, höfuðborg Íraks, núna í morgun. Enn liggur ekki fyrir hvort mannfall hafi orðið. 23.9.2005 00:01
Einn árásarmannanna framseldur Hússein Osman, einn mannanna sem gerðu misheppnaðar árásir á London tuttugasta og fyrsta júlí, mun á næstu dögum fara í fyrsta sinn fyrir rétt í Bretlandi. Hann var framseldur frá Ítalíu í gær en þar hafði lögregla uppi á honum eftir árásirnar. 23.9.2005 00:01
Þurfa ekki matvæli frá S.þ. Norður-Kóreumenn segjast ekki lengur þurfa matvæli frá Sameinuðu þjóðunum, þó að vannæring sé ennþá viðvarandi vandamál í landinu. Talsmaður stjórnvalda í Norður-Kóreu segir að þeir fái nú nóg af mat úr öðrum áttum og þurfi ekki á því að halda að þiggja aðstoð sem í raun sé bara pólitísk beita. 23.9.2005 00:01
Handtekinn á Manchester-flugvelli Breska lögreglan handtók mann á flugvellinum í Manchester í morgun vegna gruns um að hann hafi ætlað að fremja hryðjuverk. Maðurinn veitti mikla mótspyrnu við handtökuna og þurftu lögreglumenn að nota rafmagnsbyssu til að yfirbuga hann, að sögn talsmanns lögreglunnar. 23.9.2005 00:01
Hóta að sprengja olíuborpalla Það er ekki nóg með að fellibylurinn Rita valdi usla á olíumörkuðum því olíuframleiðsla í Nígeríu dróst enn saman í dag vegna hótana uppreisnarmanna um að sprengja olíuborpalla og -leiðslur í loft upp. 23.9.2005 00:01
Líklegt að Ríta eflist Fellibylurinn Ríta nálgast nú strendur Texas og Louisiana í Bandaríkjunum. Ríta er enn skilgreind sem fellibylur af styrkleika fjögur en þar sem hún á eftir að fara yfir mjög hlýjan sjó eru allar líkur á að hún eflist á ný og verði orðin öflugri en Katrín þegar hún skellur á landi einhvern tímann á næsta sólarhring. 23.9.2005 00:01
Ætlaði að festa pakkann á vélina? Svo virðist sem maðurinn, sem handtekinn var með grunsamlegan pakka við flugvöllinn í Manchester í morgun, hafi ætlað að koma pakkanum fyrir á skrokki einnar flugvélarinnar sem beið á stæðinu, samkvæmt fréttavef BBC. Ekki hefur verið gefið upp hvort um sprengju var að ræða eða ekki. 23.9.2005 00:01
Upplifir hræðslu hjá fólki Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar sem staddur er á flugvellinum í Houston í Texas, segist upplifa nokkra hræðslu og streitu hjá fólki sem reynir nú að flýja borgina vegna fellibylsins Rítu. Hundruð þúsund manna eru föst í bílaröðum, margir bensínlausir, og vatn er orðið af skornum skammti en óljóst er með matarbirgðir. 23.9.2005 00:01
Rúta með Houston-búum sprakk Að minnsta kosti tuttugu eru látnir eftir að rúta sprakk sem í voru ellilífeyriþegar sem voru að flýja frá Houston til Dallas vegna fellibylsins Rítu. Hátt í fimmtíu manns voru í rútunni og stöðvaðist umferð um hríð vegna slyssins. 23.9.2005 00:01
Þrýstingur á Berlusconi eykst Enn eykst þrýstingurinn á Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, að reka seðlabankastjórann Antonio Fazio eða segja sjálfur af sér ella. Í gær sagði fjármálaráðherrann Domenico Sinisalco af sér í mótmælaskyni við það að seðlabankastjórinn Fazio sæti sem fastast án þess að nokkur gerði neitt. 23.9.2005 00:01
Leggur 6000 heimili í rúst Búist er við að fellibylurinn Ríta muni leggja um 6000 þúsund heimili í rúst í Texas ríki þegar hún gengur þar á land og að borgin Port Arthur munu öll fara undir vatn, samkvæmt síðustu tíðindum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. 23.9.2005 00:01