Dómurinn sagður farsakenndur 26. september 2005 00:01
Hæstiréttur Spánar dæmdi í gær átján menn í fangelsi fyrir aðild að hryðjuverkaárásunum í Bandaríkjunum 11. september 2001. Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera hefur áfrýjað dómi yfir einum sakborninganna en hann vann sem fréttamaður fyrir stöðina. Réttarhöldin sem fram fóru í Madríd eru þau umfangsmestu sem fram hafa farið í Evrópu yfir grunuðum hryðjuverkamönnum en sakborningarnir eru jafnframt þeir fyrstu sem dæmdir eru sekir fyrir að hafa átt þátt í hryðjuverkaárásunum 11. september. Þyngsta dóminn hlaut Sýrlendingurinn Imad Yarkas, einnig þekktur sem Abu Dahdah, en hann var dæmdur í 27 ára fangelsi fyrir samsæri og að vera í forsvari fyrir spænska sellu al-Kaída. Yarkas var ákærður fyrir að hafa komið á fundi al-Kaída liða í Tarragona á Spáni í júlí 2001 þar sem dagsetning árásanna var endanlega ákveðin, en fundinn sótti meðal annarra Mohammed Atta, forsprakki árásarmannanna 11. september. Saksóknarar vildu láta dæma Yakas í 74.377 ára fangelsi, 25 ár fyrir hvert fórnarlambanna 2.973, en dómararnir töldu ekki nægar sannanir til að dæma hann fyrir morð. Lögmenn Yarkas telja tilgangslaust að áfrýja dómnum þar sem um skrípaleik og ofsóknir séu að ræða. Sautján aðrir voru dæmdir í 6-11 ára fangelsi. Þar á meðal er fréttamaður arabísku sjónvarpsstöðvarinnar Al-Jazeera, Taysir Alluni, en hann var fundinn sekur um að hafa átt í samstarfi við al-Kaída. Alluni hefur rétt eins og hinir sakborningarnir ávallt haldið fram sakleysi sínu en hann tók viðtal við Osama bin Laden í Afganistan nokkrum vikum eftir að árásirnar voru gerðar 11. september. Sjónvarpsstöðin hefur þegar ákveðið að áfrýja dómnum en framkvæmdastjóri hennar sagði í viðtali í gær að hann væri afar óréttlátur og væri fordæmalaus árás á blaðamenn sem væru að sinna sínu starfi. Sex þeirra sem voru ákærðir voru dæmdir sýknir saka. Á meðal þeirra var Ghasoub al-Abrash Ghalyoun. Honum var gefið að sök að hafa tekið nákvæmar myndir af tvíburaturnunum í New York árið 1997 og komið myndunum til al-Kaída en dómarar töldu ekkert benda til þess.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira