Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Pólitískir vinir Bush Slæleg viðbrögð við fellibylnum Katrínu leiða til sífellt harðari gagnrýni á Bush Bandaríkjaforseta og nánustu samstarfsmenn hans. Colin Powell hefur nú bæst í hóp gagnrýnendanna og í dag var greint frá því að yfirmenn almannavarna væru ekki fagmenn heldur pólitískir vinir Bush. 9.9.2005 00:01
Ferðamaður í geimnum Tveir geimfarar, annar Rússi og hinn Bandaríkjamaður, búa sig nú undir geimskot og ferð til alþjóðlegu geimstöðvarinnar á sporbraut um jörðu. Þetta þættu tæpast tíðindi væri ekki Gregory nokkur Olsen um borð. Gregory er nefnilega ferðamaður sem greiddi rússnesku geimferðastofnuninni tuttugu milljónir dollara til að fá að fljóta með. 9.9.2005 00:01
Veltur á viðbrögðum Tymosjenkó Pólitísk framtíð Viktors Júsjenkós, forseta Úkraínu, veltur á því hvort Júlía Tymosjenkó sem hann rak í gær, snúist gegn honum eður ei. Júsjenkó rak Tymosjenkó, sem var forsætisráðherra, að sögn til að koma á friði innan ríkisstjórnarinnar og slá á ásakanir um græðgi og svindl innan stjórnarinnar. 9.9.2005 00:01
Ákærður fyrir hvatningu Lögreglan í Brönshöj í Danmörku handtók í dag dansk-marokkóskan mann fyrir að hvetja til heilags stríðs og þar með hryðjuverka. Said Mansour hefur framleitt og dreift fjölda geisladiska, dvd-diska og myndbanda sem innihalda efni sem hvetja menn til að berjast gegn fjandmönnum íslams og heiðingjum. 8.9.2005 00:01
25 þúsund líkpokar Yfirvöld í New Orleans hafa haft til reiðu 25 þúsund líkpoka fyrir fórnarlömb fellibyljarins og flóðanna í borginni. Hjálparstarfsmenn búa sig undir að hreinsa líkin af götum borgarinnar um leið og allir íbúar hafa verið fluttir á brott. 8.9.2005 00:01
Mubarak endurkjörinn Hosni Mubarak Egyptalandsforseti vann sigur í fyrstu forsetakosningunum í landinu þar sem fleiri en einn frambjóðandi var í boði, ef marka má fyrstu talningu allra atkvæða. 8.9.2005 00:01
Launalækkun á meðgöngu Það er ekki kynjamisrétti að konur lækki í launum ef þær eru mikið frá vinnu vegna veikinda á meðgöngu. Þetta er niðurstaða Evrópudómstólsins. Írsk kona, Margaret McKenna, notaði allt sitt launaða veikindaleyfi erfiðri meðgöngu árið 2000 og þegar hún tók frí fram yfir það, þá voru laun hennar lækkuð um helming. 8.9.2005 00:01
Kalla eftir endurbótum á SÞ Ítarleg rannsókn á svonefndri olíu-fyrir-mat-áætlun Sameinuðu þjóðanna í Írak hefur leitt í ljós að samtökin eru hreinlega ekki fær um að annast svo umfangsmikil verkefni með skilvirkum hætti nema til komi róttækar endurbætur á stjórnsýslu þeirra. Þetta sagði Paul Volcker, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sem stýrði rannsókninni. 8.9.2005 00:01
Úkraínuforseti rekur stjórnina Viktor Jústsjenkó Úkraínuforseti rak ríkisstjórn landsins í gær, að sögn vegna "skorts á liðsanda" innan hennar. Ósætti fyrrum samherja úr "appelsínugulu byltingunni" og spillingarásakanir voru undanfari þessarar umdeildu ákvörðunar forsetans. 8.9.2005 00:01
Schröder og Pútín semja um gas Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, og Vladimír Pútín Rússlandsforseti handsöluðu í gær samning um að lögð verði jarðgasleiðsla beint frá Rússlandi til Þýskalands, frá Viborg við botn Finnska flóa, 1.200 km eftir botni Eystrasalts til norður-þýsku borgarinnar Greifswald. 8.9.2005 00:01
Þögn í erlendum miðlum Þegar meira en sólarhringur var liðinn eftir að Davíð Oddsson tilkynnti formlega um að hann myndi draga sig í hlé frá stjórnmálum þann 27. september næstkomandi var enn engar fréttir um þessi tímamót í íslenskum stjórnmálum að finna í erlendum fréttamiðlum. Að færeyskum miðlum undanskildum. 8.9.2005 00:01
Afleiðingar Katrínar æ ljósari Skelfilegar afleiðingar fellibylsins Katrínar verða sýnilegri með hverjum deginum sem líður. Leit að líkamsleifum þeirra þúsunda sem talin eru hafa látist í hamförunum í New Orleans er hafin. Um 250 þúsund manns sem komust frá borginni, hafast nú við í skýlum víðs vegar um Bandaríkin. 8.9.2005 00:01
Flóð mannskæðustu hamfarirnar Flóð eru mannskæðustu náttúruhamfarirnar. Spáð er fimm til sjö fellibyljum á Mexíkóflóa á næstu þremur mánuðum. Hiti sjávar og lega loftstrauma í Atlanshafi bjóða ekki upp á að íbúar við Mexíkóflóa geti verið rólegir. 8.9.2005 00:01
i-Pod með farsíma Hlutabréf í Apple-fyrirtækinu tóku góðan kipp upp á við í dag, eftir að forstjóri fyrirtækisins kynnti til sögunnar iPod-farsíma og nýjan og enn minni spilara. Með I-pod spilaranum er hægt að hlaða niður tónlist af tölvu. Nýji síminn hefur alla þá tæknimöguleika sem i-pod spilarinn hefur, getur geymt og spilað 100 lög, er með litaskjá og innbyggðri myndavél. 8.9.2005 00:01
Deilt um dauða Arafats Arafat lést vegna hjartaáfalls á síðasta ári, en sérfræðinga greinir á um hvað olli því. Bæði bandaríska dagblaðið New York Times og ísraelsk dagblöð hafa látið sérfræðinga yfirfara læknaskýrslur Arafats, en fram til þessa hafa aðstandendur hans ekki viljað gera þær opinberar. 8.9.2005 00:01
Norskir kjósendur snúast til hægri Niðurstöður nýrra fylgiskannana í Noregi benda til þess að borgaraflokkarnir haldi meirihluta á norska þinginu. Mestu munar um að Vinstriflokkurinn, lítill frjálslyndur hægriflokkur, nær fjögurra prósenta markinu í tveimur nýjum könnunum og fengi allt að tíu þingsæti í stað tveggja. 8.9.2005 00:01
Herferð til bjargar listaverkum Frægustu listaverk Ítalíu liggja undir skemmdum. Til að bregðast við vandanum reyna ítölsk yfirvöld að fá almenning til að opna seðlaveskin með því að sýna fram á hversu fátækleg Ítalía yrði án listarinnar. 8.9.2005 00:01
Yfir 600 manns tróðust undir Nú er ljóst að ekki færri en sex hundruð og fjörutíu týndu lífi þegar hundruð sjíta tróðust yfir brú yfir ánna Tígris í Bagdad í morgun. Fólkið var allt á leið tiil Kadhimiya-moskunnar þegar fréttist af sjálfsmorðsárásarmanni í þvögunni. 31.8.2005 00:01
Flóðavatn rís enn í New Orleans Flóðavatnið í New Orleans rís ennþá og hafa nú verkfræðingar á vegum Bandaríkjahers verið kallaðir til að reyna að stemma stigu við vatnsflaumnum. Ástandið í borginni er skelfilegt; gamla, franska hverfið er alveg á floti og þyrlum og bátum er beitt við að hjálpa fólki sem hefst við illan leik á húsþökum heimila sinna. Lík hafa sést á floti í vatninu og er óttast að tala þeirra sem týndu lífi í hamförunum muni enn hækka. 31.8.2005 00:01
Búist við hamförum á Tævan Á Tævan er búist við hamförum, en fellibylurinn Talim stefnir þangað hraðbyri. Hávaðarok og úrhellisrigning hafa þegar leitt til þess að búið er að loka skólum og opinberum stofnunum. Vindhraðinn er yfir fimmtíu metrar á sekúndu og fer í hviðum upp í sextíu og fjóra metra á sekúndu. Búist er við að stormurinn skelli á Tævan af fullum krafti innan fárra klukkustunda. 31.8.2005 00:01
Minnast fórnarlamba hörmunganna í Beslan Nærri ári eftir hörmungarnar í Beslan í Rússlandi, þar sem nærri tvö hundruð börn létust, eftir að hafa verið tekin í gíslingu, hefur verið sett upp ljósmyndasýning með myndum teknum af börnunum sem komust lífs af. 31.8.2005 00:01
Til minningar um fórnarlömb hörmun Nærri ári eftir hörmungarnar í Beslan í Rússlandi, þar sem nærri tvö hundruð börn létust, eftir að hafa verið tekin í gíslingu, hefur verið sett upp ljósmyndasýning með myndum teknum af börnunum sem komust lífs af. 31.8.2005 00:01
Til minningar um fórnarlömb hörmun Nærri ári eftir hörmungarnar í Beslan í Rússlandi, þar sem nærri tvö hundruð börn létust, eftir að hafa verið tekin í gíslingu, hefur verið sett upp ljósmyndasýning með myndum teknum af börnunum sem komust lífs af. 31.8.2005 00:01
Stríðsástand í New Orleans Gríðarleg eyðilegging, dauði og stjórnleysi blasir við hvert sem litið er á svæðunum sem fellibylurinn Katrín lék grátt. Stríðsástand er í New Orleans, sem er á kafi í vatni. 31.8.2005 00:01
Íslendingur missti heimili sitt Íslensk kona, Þórdís Harvey, sem býr í Biloxi í Mississippi, þar sem minnst áttatíu manns fórust í fellibylnum Katrínu, missti heimili sitt í hamförunum. Í samtali við fréttastofu í nótt sagði Þórdís að allt væri horfið og stór hluti bæjarins í algerri rúst. 31.8.2005 00:01
Áhrifa fellibylsins mun gæta lengi Áhrifa Katrínar mun gæta um langan tíma. Hún eyðilagði stóran hluta þess húsnæðis sem varð á leið hennar, eiturefni og skólp blandast flóðavatninu og áhrifin á efnahagslífið í Bandaríkjunum gætu orðið mikil. 31.8.2005 00:01
Flestir hinna látnu konur og börn Ekki færri en sex hundruð og fjörutíu týndu lífi þegar hundruð sjíta tróðust yfir brú yfir ánna Tígris í Bagdad í morgun. Flestir þeirra sem fórust voru konur og börn. 31.8.2005 00:01
Fuglaflensan mun líklega dreifast Fuglaflensan, sem hefur gert vart við sig víða í Austur-Asíu, mun líklega dreifast til Evrópu, Mið-Austurlanda, Suður-Asíu og Afríku að mati Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. 31.8.2005 00:01
Óttast um líf þúsund sjía Allt að eitt þúsund manns eru taldir hafa beðið bana í höfuðborg Íraks í gær þegar helgiganga sjía leystist upp í öngþveiti vegna ótta um að sjálfsmorðsprengjumaður væri í hópnum. Flestir hinna látnu tróðust undir í mannþrönginni en einnig drukknuðu margir í ánni Tígris. 31.8.2005 00:01
Ástandið versnar stöðugt Algert neyðarástand ríkir á hamfarasvæðunum í sunnanverðum Bandaríkjunum. Óttast er að hundruð manna hafi týnt lífi af völdum fellibylsins Katrínar. 31.8.2005 00:01
Áhrifanna verður alls staðar vart Eftir því sem dagarnir líða kemur tjónið sem fellibylurinn Katrín olli á mánudaginn æ betur í ljós. Tala látinna hækkar dag frá degi og búist er við að efnahagslegar afleiðingar hörmunganna muni ná langt út fyrir Bandaríkin. 31.8.2005 00:01
Vandar kristilegum ekki kveðjurnar Gerhard Schröder Þýskalandskanslari réðist harkalega á frambjóðendur Kristilega demókrataflokksins í ræðu í gær. Forskot kristilegu flokkanna er enn mjög mikið og ólíklegt þykir að jafnaðarmönnum takist að vinna það upp. 31.8.2005 00:01
Heilabólgufaraldur geisar 41 barn dó í gær í Uttar Pradesh-héraði á Indlandi af völdum heilabólgufaraldurs sem þar geisar. 31.8.2005 00:01
Clarke tekur slaginn Kenneth Clarke, fyrrverandi fjármálaráðherra, hefur lýst yfir að hann vilji verða leiðtogi breska Íhaldsflokksins 31.8.2005 00:01
Ár liðið frá harmleiknum í Beslan Tsjetsjenski uppreisnarleiðtoginn Shamil Basajev hefur lýst því yfir að rússneska leyniþjónustan beri alla ábyrgð á morðunum í barnaskólanum í Beslan í Norður-Ossetíu. Í dag er ár liðið síðan harmleikurinn hófst. 31.8.2005 00:01
Fé sett í jarðsprengjuþróun Samtökin Fremtiden i våre hender hafa upplýst að rúmir 2,5 milljarðar íslenskra króna af olíusjóði Norðmanna hafi runnið í fjárfestingar í vopnaiðnaði. 31.8.2005 00:01
Myrti sjúklinga sína Bresk hjúkrunarkona sem ákærð var fyrir að hafa ráðið að minnsta kosti þremur sjúklingum sínum bana fannst látin á heimili sínu í vikunni. 31.8.2005 00:01
Ár liðið frá harmleiknum í Beslan Tsjetsjenski uppreisnarleiðtoginn Shamil Basajev hefur lýst því yfir að rússneska leyniþjónustan beri alla ábyrgð á morðunum í barnaskólanum í Beslan í Norður-Ossetíu. Í dag er ár liðið síðan harmleikurinn hófst. 31.8.2005 00:01
Skelfing á brú Nú er talið að þúsund manns hafi týnt lífi, meirihlutinn konur og börn. Fólkið átti sér engrar undankomu auðið þegar troðningurinn hófst á brúnni, handrið hennar gaf sig og fólk ýmist hrökklaðist út af brúnni eða stakk sér í ána til að bjarga sér. Þar drukknuðu margir. 31.8.2005 00:01
Skelfilegt ástand í New Orleans Vatnið vex í New Orleans. Borgin er á kafi, þúsundir íbúa eru bjargarlausar í því sem eftir stendur af heimilum þeirra og tugir þúsunda eru í raun flóttamenn, eiga ekki lengur þak yfir höfuðið. 31.8.2005 00:01
Þriðja heims ástand Það er lítið eftir af Biloxi í Missisippi. Fellibylurinn Katrín flatti nánast allt út. Sérfræðingar segja að í raun sé hálfgert þriðja heims ástand þar sem Katrín fór yfir. Koma verði fólki fyrir í flóttamannabúðum og víða sé hætta á farsóttum þar sem vatnið liggur yfir blandað skólpi og öðrum úrgangi. 31.8.2005 00:01
Fær ekki að höfða skaðabótamál Karlmaður sem sat 22 ár í fangelsi fyrir glæp sem hann framdi ekki getur ekki höfðað skaðabótamál á hendur Flórídaríki. Þannig hljóðar úrskurður dómara í máli Wilton Dedge, sem var dæmdur fyrir nauðgun sem hefur síðan verið sýnt fram á að hann var saklaus af. 31.8.2005 00:01
Norðmenn endurvekja Gulaþing Norðmenn freista þess nú að endurvekja forna frægð Gula-þings og minna um leið á að það var fyrirmynd Alþingis Íslendinga á Þingvöllum. 31.8.2005 00:01
55 látnir af völdum Katrínar Ekki færri en 55 hafa látist af völdum fellibylsins Katrínar sem skall á suðurströnd Bandaríkjanna í gær. Flestir þeirra sem létust bjuggu í sýslum innar í landinu en í New Orleans borg létust einungis þrír enda hafði gríðarlegur viðbúnaður verið þar. Enn hefur ekki tekist að komast að nokkrum íbúðarhverfum sökum vatnselgs og óttast er að einhverjir kunni að hafa látið lífið. 30.8.2005 00:01
Sjö Afríkumenn létust í bruna Sex létust og fjórtán slösuðust í nótt þegar mikill eldur kviknaði í íbúðarhúsi í París, höfuðborg Frakklands. Flestir íbúar hússins voru afrískir innflytjendur, eins og í íbúðarblokkinni sem kviknaði í á föstudaginn þar sem sautján manns létust. Eitt barn lést í nótt eftir að hafa hent sér út um glugga og í morgun fundust svo lík fimm manna í rústum íbúðarinnar. 30.8.2005 00:01