Erlent

Óttast um líf þúsund sjía

Allt að eitt þúsund manns eru taldir hafa beðið bana í höfuðborg Íraks í gær þegar helgiganga sjía leystist upp í öngþveiti vegna ótta um að sjálfsmorðsprengjumaður væri í hópnum. Flestir hinna látnu tróðust undir í mannþrönginni en einnig drukknuðu margir í ánni Tígris. Talið er að rúmlega ein milljón trúaðra sjía hafi tekið þátt helgigöngunni í gær sem var haldin til minningar um dauða Moussa ibn Jaafar al-Kadhim árið 799, eins hinna tólf svonefndu imama sem sjíar hafa í hávegum. Sjö manns höfðu týnt lífi í sprengjuárásum sem gerðar voru við Khadim-moskuna í gærmorgun, þar sem imaminn liggur grafinn, og því voru margir þátttakenda í göngunni óttaslegnir um að ráðist yrði á þá. Þegar stór hluti göngunnar var staddur á Al-A'imma brúnni yfir Tígrisfljótið kom upp orðrómur að sjálfsmorðssprengjumaður væri í hópnum. Greip þá um sig mikil skelfing og algjört öngþveiti skapaðist. Stór hluti göngumanna virðist hafa troðist undir en þeir sem áttu fótum sínum fjör að launa stukku niður í Tígris, sem rennur tíu metrum undir brúnni. Margir þeirra komust ekki upp á bakka árinnar heldur drukknuðu í leirgulu fljótinu. Einn þeirra sem komst upp úr Tígris var Fadhel Ali, 28 ára. "Við heyrðum að maður væri með sprengju í hópnum. Allir tóku að hrópa og því dýfði ég mér í ána og synti til lands. Ég sá konur, börn og gamalt fólk falla á eftir mér ofan í fljótið." Fjöldi þeirra sem lést liggur ekki nákvæmlega fyrir en BBC hermir að allt að þúsund manns séu taldir af. Líkhús borgarinnar fylltust á augabragði og því voru lík geymd úti á götu í kæfandi hitanum. Grátandi ættingjar ráfuðu á milli líkanna og reyndu að finna ástvini sína þar á meðal. Að líkindum var enginn sprengjumaður í hópnum, í það minnsta hefur lögregla ekki fundið nein merki um sprengiefni. Samt sem áður kenndu leiðtogar sjía "öfgamönnum, stuðningsmönnum Saddams og hryðjuverkamönnum" um harmleikinn. Leiðtogar súnnía hafa hins vegar látið harm sinn í ljós. "Á þessari sorgarstundu vottum við öllum Írökum samúð okkar og sérstaklega foreldrum píslarvottanna sem í dag biðu bana í Kazimiyah-hverfinu," sagði Haith al-Dhari súnníaklerkur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×