Fleiri fréttir

Stórsigur Saad Hariri

Flokkur Saad Hariri, sonar Rafik Hariri fyrrverandi forsætisráðherra, vann yfirburðasigur í fyrsta hluta líbönsku þingkosninganna í fyrradag og hreppti öll þingsætin sem í boði voru. Saad fékk sjálfur fimmfalt fleiri atkvæði en andstæðingur hans í kosningunum.

Tvöföld sjálfsmorðssprengjuárás

Allt að þrjátíu manns týndu lífi í sjálfsmorðssprengjuárás í bænum Hillah í Írak í gær. Á meðan handtóku bandarískar hersveitir háttsettan stjórnmálamann úr hópi súnnía í misgripum.

Skiptir niðurstaðan engu?

Frakkar felldu stjórnarskrá Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær. Leiðtogar sambandsins reyna nú hver á fætur öðrum að fullvissa fólk um að það geri ekkert til. Talið er víst að Hollendingar felli stjórnarskrána líka á miðvikudag.

Norðmenn hugsa sinn gang

Niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Frakklandi draga verulega úr líkunum á að Norðmenn hugi að Evrópusambandsaðild á næstu árum, að mati Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs. Stuðningur við aðild að ESB hefur ekki verið minni í Noregi í tæp fjögur ár.

Merkel kanslaraefni

Kristilegu flokkarnir í Þýskalandi lýstu því formlega yfir í gær að Angela Merkel yrði kanslaraefni þeirra í kosningunum sem haldnar verða í haust. Sigri flokkarnir í kosningunum verður Merkel fyrsti kvenkanslari Þýskalands.

Fékk fatafellu í afmæli sonar síns

Bandarísk kona, Annette Pharris, hefur verið ákærð fyrir að sýna unglingum undir lögaldri klámfengið efni en hún fékk nektardansmeyju til að fækka fötum í sextán ára afmæli sonar síns. Að minnsta kosti tíu börn voru í afmælinu.

Vegatálmar umhverfis Bagdad

Írakski herinn hefur sett upp vegatálma umhverfis Bagdad til þess að koma í veg fyrir að hryðjuverkamenn komist til borgarinnar.

Talar opinskátt um smit sitt

Ríkisútvarpið í Mið-Afríkulýðveldinu skýrði frá því að borgarstjórinn í Bangui, höfuðborg landsins, hefði gengið í hjónaband með ástkonu sinni til margra ára. Þau eru bæði alnæmissmituð, og var opinskátt sagt frá því í útvarpinu sem þykir afar óvenjulegt þar í landi.

Umsátri lauk með uppgjöf

Umsátrinu vegna gíslatökunnar á sjúkrahúsinu í Blekinge í Karlskrona í Svíþjóð lauk með farsælum hætti um hádegisleytið í gær.

Kjörstaðir opnaðir í Frakklandi

Þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins í Frakklandi er hafin. 42 milljónir Frakka eru á kjörskrá og skoðanakannanir benda til að þeir muni hafna stjórnarskránni. Samþykki allra 25 aðildarríkja sambandsins þarf til að stjórnarskráin taki gildi en ráðgert var að það yrði strax á næsta ári.

400 palestínskum föngum sleppt

Ríkisstjórn Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, tilkynnti í dag að 400 palestínskir fangar yrðu látnir lausir. Lausn fanganna er hluti af samkomulagi sem Sharon gerði við Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, fyrr á þessu ári. Í febrúar létu Ísraelar 500 palestínska fanga lausa en settu það skilyrði fyrir frekari aðgerðum að palestínsk stjórnvöld beittu sér fyrir því að afvopna sveitir uppreisnarmanna.

Sex drukknuðu í brunni í Kína

Sex Kínverjar úr sömu fjölskyldu drukknuðu í vatnsbrunni þegar hver björgunaraðgerðin á fætur annarri fór úrskeiðis. Þetta gerðist í Guagdong-héraði í Suður-Kína. Sá fyrsti féll ofan í brunninn þegar hann reyndi að koma fyrir nýrri vatnspumpu. Ættingi mannisins stökk til og reyndi að bjarga honum en sá sneri ekki aftur upp úr brunninum.

Segir al-Zarqawi hugsanlega í Íran

Talsmenn stjórnvalda í Íran vísa á bug frétt í breska blaðinu <em>Sunday Times</em> að al-Zarqawi, leiðtogi al-Qaida í Írak, hafi verið fluttur alvarlega særður til Írans.

Fjórðungur hefur þegar kosið

Um tíu milljónir Frakka höfðu greitt atkvæði fyrir hádegi um stjórnarskrá Evrópusambandsins en það er um fjórðungur þeirra sem eru á kjörskrá. Skoðanakannanir benda til að þeir muni hafna stjórnarskránni þótt mjótt verði á munum. Samþykki allra 25 aðildarríkja Evrópusambandsins þarf til að stjórnarskráin taki gildi.

Heldur syni sínum í gíslingu

Faðir fimmtán ára drengs hefur tekið son sinn í gíslingu á sjúkrahúsi í Karlskrona í Svíþjóð og hótar að kveikja bæði í honum og sjálfum sér. Um er að ræða flóttafólk frá Aserbadsjan sem til stendur að vísa úr landi á morgun.

Hermannaveiki í rénun í Noregi

Hermannveikifaraldurinn í Fredrikstad í Noregi, sem lagt hefur fimm menn að velli, virðist í rénum. Frá því í gærmorgun hafa engir nýir sjúklingar á sjúkrahúsinu Östfold greinst með veikina. Stjórnvöld hafa fyrirskipað að öll loftræstikerfi á svæðinu skuli hreinsuð fyrir miðnætti.

Líklega dómur í vikunni

Rússneski auðkýfingurinn Míkhaíl Khodorkovskí, mun líklega komast að því í þessari viku hversu lengi hann mun fá að dúsa í fangelsi.

Konur 10% frambjóðenda í kosningum

Nærri þrjú þúsund manns hyggjast sækja eftir sæti á afganska þinginu í kosningum 18. september næstkomandi. Af þeim eru einungins rétt um tíu prósent konur. Frá þessu greindi kjörstjórn í landinu í dag. Framboðsfrestur rann út á fimmtudag, en barist er um 249 sæti í Wolesi Jirga, neðri deild afganska þingsins.

Birti myndband af ítölskum gísl

Afgönsk sjónvarpsstöð birti í dag myndband með ítölsku konunni Clementinu Cantoni sem rænt var í Kabúl í Afganistan fyrir um tveimur vikum. Cantoni, sem starfaði fyrir hjálparsamtökin CARE International, var á myndbandinu á milli tveggja vopnaðra manna sem beindu rifflum sínum að henni en hún kallaði ekki eftir hjálp.

Páfi heimsótti Bari í dag

Hinn nýi páfi, Benendikt sextándi, fór í sína fyrstu embættisferð út fyrir Róm í dag, en þá sótti hann ráðstefnu í Bari og messaði þar. Rúmlega 200 þúsund manns sóttu messuna sem eins og gefur að skilja fór fram utan dyra, en mikil öryggisgæsla var á svæðinu og var mörgum götum í miðborg Bari lokað vegna komu páfa.

Með logandi vindil innanklæða

Benjamin Nethanyahu, fjármálaráðherra Ísraels, veitti í dag eldheitt útvarpsviðtal í orðsins fyllstu merkingu skömmu fyrir ríkisstjórnarfund. Forsætisráðherrann fyrrverandi var að ræða við fréttamann frá útvarpi hersins þegar fréttamaðurinn sagðist skyndilega finna reykjarlykt. Netanyahu hváði en þá benti fréttamaðurinn honum á að vindill innan á jakkafötum hans stæði í ljósum logum.

Sótt gegn andspyrnumönnum í Bagdad

Írakski herinn hóf í dag umfangsmestu aðgerð sína frá því að Saddam Hussein var komið frá völdum, en um 40 þúsund hermenn hafa umkringt höfuðborgina Bagdad og hyggjast ganga á milli bols og höfuðs á uppreisnarmönnum í borginni. Þeir njóta aðstoðar 10 þúsund bandarískra hermanna og verður öllum leiðum til og frá borginni lokað og farið hverfi úr hverfi í leit að erlendum sem innlendum uppreisnarmönnum.

Annan hvetur til efnda á loforðum

Kofi Annan, framkvæmdstjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti í dag þær þjóðir sem lofuðu að aðstoða við uppbyggingu í Suður-Súdan að standa við heit sín, en Anna lauk þriggja daga heimsókn sinni til Súdans með því að kynna sér ástandið í suðurhluta landsins.

Klerkur drepinn í Afganistan

Byssumenn myrtu í áhrifamikinn afganskan klerk og andstæðing talibana í suðurhluta Afganistans í dag. Mawlavi Abdullah Fayaz var á leið frá skrifsofu sinni í borginni Kandahar þegar tveir menn á vélhjóli óku hjá og skutu hann til bana. Hamid Karzai, forseti Afganistans, fordæmdi morðið og sagði það árás í íslam og hvatti til þess að höndum yrði komið yfir tilræðismennina hið fyrsta.

Meiri kjörsókn en fyrir 13 árum

Um tíu milljónir Frakka höfðu um hádegi greitt atkvæði um stjórnarskrá Evrópusambandsins en það er um fjórðungur þeirra sem eru á kjörskrá. Segja frönsk blöð að það sé tæplega fimm prósentustigum fleiri en kosið höfðu á sama tíma um Maastricht-samkomulagið í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1992.

Al-Zarqawi sagður stjórna gagnárás

Al-Qaida samtökin í Írak greindu frá því í yfirlýsingu á Netinu í dag að leiðtogi þeirra, Abu Musab al-Zarqawi, færi fyrir gagnsókn gegn írökskum og bandarískum sem í dag hófu umfangsmikla aðgerð gegn uppreisnarmönnum í Bagdad. <em>Sunday Times</em> greindi frá því í dag að al-Zarqawi hefði hugsanlega verið fluttur til Írans vegna sára sem hann hlaut í árás Bandaríkjamanna á bílalest hans fyrir þremur vikum en stjórnvöld í Íran hafa hafnað því.

Hefja átak gegn mænusótt í Jemen

Stjórnvöld í Jemen greindu frá því í dag að 179 börn hefðu greinst með mænusótt í mænusóttarfaraldri sem gengur yfir landið. 108 þeirra hafa lamast vegna sjúkdómsins. Brugðist verður við þessu með átaki á landsvísu þar sem rúmlega 4,6 milljónir barna undir fimm ára aldri verða bólusettar gegn sjúkdómnum á næstu þremur dögum, en sjúkdómurinn hafði ekki gert vart við sig í landinu frá árinu 1996.

66% höfðu kosið klukkan fimm

66 prósent kjósenda höfðu kosið í Frakklandi um stjórnarskrá Evrópu klukkan fimm að íslenskum tíma, sjö að frönskum tíma. Frá þessu greindi innanríkisráðuneyti Frakklands áðan. Kosningaþátttaka virðist vera öllu meiri en þegar franska þjóðin greiddi atkvæði um Maastricht-sáttmálann árið 1992. Þá var heildarþátttaka tæp 70 prósent. Öllum kjörstöðum var lokað nú klukkan sex að íslenskum tíma nema í París og Lyon, en þar verður opið tveimur tímum lengur.

Kosið í Líbanon í dag

Íbúar Líbanons gengu til frjálsra þingkosninga í dag, þeirra fyrstu sem þar fara fram í þrjá áratugi án íhlutunar Sýrlendinga. Búist er við að niðurstaða kosninganna endurspegli ánægju Líbana með þá þróun og að flokkur sonar fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Rafiqs Hariris, vinni afgerandi sigur.

Halda enn í vonina um samþykkt

Stuðningsmenn stjórnarskrár Evrópusambandsins halda enn í vonina um að Frakkar samþykki hana í þjóðaratkvæðagreiðslunni í dag. Sáttmálinn á að sameina þjóðir en stefnir í að verða djúpstætt ágreiningsefni.

Vilja samstöðu gegn hernaði

Stúdentar í Suður-Kóreu vilja að íbúar Suður- og Norður-Kóreu standi saman í andstöðu gegn hernaðaráformum Bandaríkjanna á Kóreuskaga. Þúsundir stúdenta í Suður-Kóreu mótmæltu á götum úti í dag.

Frakkar hafna stjórnarskrá ESB

Frakkar hafa hafnað stjórnarskrá Evrópusambandsins með afgerandi hætti ef marka má útgönguspár sem birtar voru skömmu eftir að kjörstöðum var lokað í París og Lyon klukkan átta að íslenskum tíma. Samkvæmt útgönguspánum neituðu á milli 55 og 58 prósent Frakka að samþykkja stjórnarskrána, en kjörsókn er sögð á bilinu 70-80 prósent. Ekki er búið að greina frá endanlegum niðurstöðum en það verður gert síðar í kvöld.

Stjórnarandstæðingar bæta við sig

Fyrsti hluti líbönsku þingkosninganna hófst í gær en þá var kosið í höfuðborginni Beirút. Búist er við að andstæðingar Sýrlendinga muni auka hlut sinn verulega á líbanska þinginu.

Frakkar höfnuðu sáttmálanum

Frakkar höfnuðu stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins með afgerandi hætti í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fram fór í gær. Úrslitin eru reiðarslag fyrir Jacques Chirac, forseta landsins, og draga auk þess úr líkunum á að sáttmálinn taki gildi í óbreyttri mynd.

Tók son sinn í gíslingu

Maður ruddist inn á sjúkrahús í Blekinge í Karlskrona-héraði í Svíþjóð í gær og tók son sinn í gíslingu. Hann hótaði að kveikja í sér og syninum.

Frakkar sögðu nei við Chirac

Kjörsókn var prýðisgóð í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Frakklandi um stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins enda eru skoðanir fólks um plaggið afar skiptar. Andstæðingar sáttmálans átöldu ríkisstjórnina fyrir gegndarlausan áróður en stuðningsmennirnir kvörtuðu undan ómálefnalegri kosningabaráttu.

Saga Sellafield öll?

Nú er komið í ljós að 83.000 lítrar af mjög geislavirkum vökva láku úr ónýtri leiðslu í Thorp-kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Sellafield í allt að níu mánuði án þess að starfsmenn hennar yrðu þess áskynja.

Heimtir úr helju

Þrem kanadískum fjallgöngumönnum var bjargað á laugardaginn eftir að hafa orðið næstum því úti á Logan-fjalli, hæsta fjalli landsins, en það er skammt frá landamærunum við Alaska.

Al-Zarqawi hugsanlega í Íran

Talið er að Abu Musab al-Zarqawi, leiðtogi al-Kaída Írak, hafi yfirgefið landið. 25 fórust í árásum og átökum víða um landið í gær.

Handteknir fyrir hátækninjósnir

Átján manns hafa verið handteknir í Ísrael vegna gruns um iðnaðarnjósnir. Margir hinna handteknu eru háttsettir yfirmenn í ísraelskum fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækjum.

Biður samlöndum sínum griða

Georgi Parvanov, forseti Búlgaríu, er staddur í Líbíu til að biðja samlöndum sínum griða en þeir eru ásakaðir um að hafa smitað yfir 400 líbísk börn af HIV-veirunni. Fimmtíu þeirra eru þegar dáin.

Segja al-Zarqawi við góða heilsu

Hryðjuverkaleiðtoginn Abu Musab al-Zarqawi er sagður við góða heilsu, samkvæmt upplýsingum sem al-Qaida hefur birt á Netinu. Al-Zarqawi, sem varð fyrir skoti á laugardag, hefur því aftur tekið til starfa. Hann stjórnar hinu heilaga stríði, segir í tilkynningu al-Qaida. Al-Zarqawi og liðsmenn hans eru sagðir bera ábyrgð á fjölda blóðugra árása í Írak.

Sprengjuárásir í Indónesíu

Að minnsta kosti 21 lét lífið og tugir særðust þegar tvær sprengjur sprungu á fjölförnum götumarkaði í bænum Tentena í Indónesíu í morgun. Meirihluti bæjarbúa Tentena, sem er á eyjunni Sulawasi, er kristinn. Í þessum sama bæ létust 2000 manns í átökum kristinna og múslíma, átökum sem stóðu í þrjú ár eða þar til samkomulag var gert milli fylkinganna árið 2001.

Fasteignasali myrtur í Írak

Eigandi fasteignasölu í Bagdad, höfuðborg Íraks, var skotinn til bana seint í gærkvöld. Tveir aðrir særðust í skotárásinni sem átti sér stað þegar eigandinn, Sheikh Samir Abdul Razziq, var að loka. Árásarmennirnir skutu hann úr bíl sem lagt hafði verið fyrir framan stofuna. Ekkert er vitað um ástæðu árásarinnar.

Japanskur gísl í Írak myrtur

Uppreisnarhópur í Írak, sem haldið hefur Japana í gíslingu frá því snemma í mánuðinum, greindi frá því í morgun að hann hefði tekið manninn af lífi. Hópurinn sendi frá sér myndband af líkinu af Japananum Akihiko Saito á Netinu því til staðfestingar og hefur bróðir hans staðfest að líkið sé af honum.

Sjá næstu 50 fréttir