Fleiri fréttir

Vill bæta samskipti við önnur ríki

"Heimurinn er að sammælast um að við höfum náð árangri í Írak," sagði Condoleezza Rice þegar hún svaraði spurningum öldungadeildarþingmanna. Öldungadeildin þarf að samþykkja útnefningu hennar sem utanríkisráðherra áður en hún getur tekið við embætti.

Kennedy íhugar framboð

Robert Kennedy yngri, sonur Roberts Kennedy sem var myrtur 1968 og bróðursonur Johns F. Kennedy sem var myrtur fimm árum fyrr, íhugar nú að gefa kost á sér í kosningum í New York ríki. Kennedy er sagður hafa rætt við valdamikla demókrata um möguleika á framboði til ríkissaksóknara New York.

Herinn eyddi of miklum peningum

Norski herinn fór tæpa tíu milljarða íslenskra króna fram úr fjárveitingum í fyrra og varð það til þess að yfirmaður hersins bauðst til að segja af sér. Framúrkeyrslan nemur þremur prósentum af heildarfjárveitingum norska hersins.

Innrásin í Írak var mistök

Það voru mistök að gera innrás í Írak. Þetta er afstaða rúmlega helmings bandarísku þjóðarinnar samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup fyrir CNN og USA Today. 52% sögðu það hafa verið mistök að ráðast inn í Írak en 47% sögðu það rétta ákvörðun. Fyrir mánuði töldu 47% að innrásin hefði verið mistök en 52% töldu rétta ákvörðun að ráðast inn í Írak.

Skoðanakannanir ráði ákvörðun

Danska ríkisstjórnin hefur boðað til þingkosninga, mörgum mánuðum áður en kjörtímabilinu lýkur. Forsætisráðherrann segist vilja ljúka kosningum fyrir sveitarstjórnarkosningar í haust, en stjórnmálaskýrendur segja hagstæðar skoðanakannanir hafa sitt að segja.

Spilavíti og líkamsrækt í Airbus?

Hún er bæði of þung og of dýr en hún á samt að komast í loftið, risaþotan A380 sem var frumsýnd í dag. Um borð í henni verða í boði lystisemdir og líkamsrækt, að minnsta kosti svo lengi sem flugfélögin kjósa ekki að nota allt rýmið undir farþega og troða átta hundruð manns um borð.

Íran sagt næsta skotmark

Næsta skotmark Bandaríkjastjórnar er Íran. Þessu heldur bandarískur rannsóknarblaðamaður fram og segir Bush forseta haka við löndin sem hann sagði hluta öxulveldis hins illa. Íranar segjast búnir undir árás.

Vara við hryðjuverkum í Aceh

Danska utanríkisráðuneytið sendi seint í gærkvöldi frá sér viðvörun til norrænna hjálparstarfsmanna um hugsanleg hryðjuverk í Aceh-héraði á Indónesíu í dag.

Mesic kjörinn forseti Króatíu

Stipe Mesic var endurkjörinn sem forseti Króatíu í gær. Hann hafði hlotið um 66 prósent atkvæða þegar nærri öll atkvæði höfðu verið talin. Jadranka Kosor, leiðtogi íhaldsmanna í Króatíu og keppinautur Mesic, hlaut 34 prósent atkvæða.

38 þúsund látnir á Srí Lanka

Yfirvöld á Srí Lanka segja að meira en 38 þúsund manns hafi farist í landinu vegna hamfaranna á annan í jólum. Vel á áttunda þúsund hefur því bæst á lista falinna í landinu síðan í gær. Tala látinna vegna hamfaranna er nú komin yfir 175 þúsund og hækkar enn.

Þrettán falla í árásum í Írak

Að minnsta kosti þrettán féllu í valinn í tveimur árásum uppreisnarmanna í Írak í morgun. Rétt utan við borgina Bakúba létust sex írakskir hermenn þegar uppreisnarmenn réðust að bækistöð þeirra. Skömmu síðar létust að minnsta kosti sjö þegar bílsprengja sprakk við lögreglustöð í borginni Baiji.

Zhao Zhiang látinn

Zhao Zhiang, fyrrverandi leiðtogi kommúnista í Kína, lést í nótt 85 ára að aldri. Dánarorsökin hefur ekki verið gefin upp en að sögn fréttamiðla í Kína hafði leiðtoginn fyrrverandi þjáðst af hjartakvillum og öndunarfærasjúkdómum um skeið. Zhiang var í stofufangelsi í fimmtán ár eftir að honum hafði verið komið frá völdum í kjölfar byltingarinnar á Torgi hins himneska friðar árið 1989.

Erfiðleikar vegna veðurs í BNA

Gríðarleg ofankoma og hálka sem henni fylgir heldur áfram að valda íbúum víðs vegar um Bandaríkin erfiðleikum. Á laugardaginn urðu meira en hundrað árekstrar í norðvesturhluta Oregon vegna glerhálku og slæms skyggnis. Þá óku einnig fjölmargir ökumenn bílum sínum út af vegum vegna hálkunnar.

140 slasast í lestarslysi

Um 140 manns slösuðust, sumir lífshættulega, þegar troðfullri farþegalest var ekið á tóma flutningalest í neðanjarðarlestarkerfinu í Bangkok í Taílandi í morgun. Skelfing greip um sig meðal farþeganna sem ruddust út úr lestarvögnunum eftir áreksturinn. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en aðeins er hálft ár síðan lestarkerfið var tekið í notkun.

Mengun getur aukið líkur á krabba

Ný rannsókn hefur leitt í ljós að mengun getur aukið líkurnar á því að barn fái krabbamein. Svo virðist sem börn sem eru í mengandi umhverfi á meðan þau eru í móðurkviði séu líklegri til að látast úr krabbameini fyrir sextán ára aldur.

Hvatt til aukinnar þróunaraðstoðar

Ef ríkustu þjóðir heims tvöfölduðu þróunaraðstoð sína væri hægt að bjarga lífi 30 milljóna barna og koma í veg fyrir að 250 milljónir manna liðu hungur. Þetta kemur fram í nýrri og viðamikilli skýrslu um þróunarmál sem birt var á vegum Sameinuðu þjóðanna í dag.

Fyrirskipar aðgerðir gegn herskáum

Mahmoud Abbas, nýkjörinn forseti Palestínu, hefur fyrirskipað palestínskum öryggissveitum að koma í veg fyrir árásir herskárra palestínskra samtaka á ísraelsk skotmörk. Þetta er stefnubreyting hjá palestínskum stjórnvöldum því hingað til hafa þau ekki gripið til aðgerða gegn hryðjuverkum heldur sagt að það sé ekki á þeirra valdi.

Danir glaptir inn á lúxussjúkrahús

Dæmi eru um að Danir, sem hafa legið hálfósjálfbjarga eftir slæmar byltur í Austurrísku-Ölpunum, láti glepjast af tilboðum björgunarmanna um að flytja þá á fyrsta flokks sjúkrahús til aðhlynningar. Danirnir og sjálfsagt fleiri þiggja þetta með þökkum en eru svo útskrifaðir með himinháa reikninga á bakinu.

Frjálslyndir eina alvöruandstaðan

Charles Kennedy, formaður Frjálslynda flokksins í Bretlandi, hóf kosningabaráttuna með látum í dag þegar hann lýsti því yfir að Íhaldsflokkurinn væri ekki lengur aðalstjórnarandstöðuflokkurinn í landinu. Eina raunhæfa andstaðan við Verkamannaflokkinn væru frjálslyndir.

Segir hættuna ekki mikla

Dönsk yfirvöld hafa varað danska þegna við yfirvofandi hryðjuverkaárás í Aceh-héraði í Indónesíu. Íslenskur hjálparstarfsmaður í héraðinu segir hins vegar að það sé almennt mat manna að hættan sé ekki mikil.

Forsætisráðherrar á hamfaraslóð

Forsætisráðherrar Svíþjóðar, Noregs og Finnlands eru nú á hamfarasvæðunum í Taílandi þar sem þeir hyggjast reyna að afla upplýsinga um afdrif fjölmargra landa sinna sem ýmist eru látnir eða saknað eftir að flóðbylgjan reið yfir landið fyrir rúmum þremur vikum.

Dæmdir fyrir aðild að fjöldamorðum

Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna í Haag dæmdi í dag tvo fyrrverandi yfirmenn í her Bosníu-Serba í átján og níu ára fangelsi fyrir aðild sína að fjöldamorðunum í Srebrenica í Bosníu árið 1995, en þar voru rúmlega 7.000 múslímar teknir af lífi.

Bretar senda 650 hermenn til Íraks

Bretar hafa sent 650 hermenn til viðbótar til Íraks til þess að reyna að efla öryggi í kringum kosningarnar sem haldnar verða í landinu í lok mánaðarins. Uppreisnarmenn hafa ítrekað gert árásir á her, lögreglu og almenning undanfarnar vikur og er talið að þeir reyni að koma í veg fyrir að kosið verði í landinu um mánaðamótin.

Stærsta farþegavél sögunnar

Airbus A380 farþegaflugvélin verður frumsýnd við hátíðlega athöfn í dag í Toulouse í Frakklandi og muna marka tímamót því hún er stærsta farþegaflugvél sögunnar.

Danir vara við hættu

Leiðtogi uppreisnarmanna í Aceh héraði, Indlandi segir að ekki verði ráðist gegn erlendum hjálparstarfsmönnum. Viðtalið kom í kjölfar viðvarana danskra yfirvalda í gær um yfirvofandi hættu á árás skæruliða.

Herdómstól frestað

Dómari ákvað í gær að fresta máli þriggja breskra hermanna sem ásakaðir hafa verið um að misþyrma föngum í Írak.

Hugsa enn í mörkum

Þremur árum eftir að Þjóðverjar skiptu úr þýskum mörkum í evrur, telur rúmur helmingur þeirra enn eftirsjá í gömlu myntinni, eftir því sem fram kemur í rannsókn sem birt var í Þýskalandi.

Látinn eftir 15 ára þögn

Zhao Ziyang, fyrrum leiðtogi kínverska kommúnistaflokksins, lést á mánudag 85 ára að aldri á sjúkrahúsi í Bejing.

Menntun, atvinna og velferð

Danskir sósíaldemókratar hafa hafið kosningabaráttu sína og lofa að skapa 50.000 ný störf á næsta kjörtímabili, fái þeir til þess umboð, og ætla að auka fjárveitingar til atvinnusköpunar um rúma 19 milljarða.

Segir Bandaríkin undirbúa árás

Bandarísk stjórnvöld undirbúa árás á Íran og bandarískar sérsveitir eru þegar að störfum í landinu. Einn reyndasti rannsóknarblaðamaður Bandaríkjanna, Seymour Hersh, heldur þessu fram í nýrri grein sem birtist í tímaritinu New Yorker.

Rannsaka seinagang stjórnvalda

Rannsókn er hafin á því hvort stjórnvöld í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi hafi verið of sein að bregðast við hamfarafregnunum frá Indlandshafi. Forsætisráðherrar landanna þriggja hafa í það minnsta tekið við sér núna, en þeir eru allir staddir í heimsókn í Taílandi.

Komi í veg fyrir árásir á Ísrael

Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, fyrirskipaði palestínskum öryggissveitum í gær að reyna að koma í veg fyrir árásir á Ísrael. Hann fyrirskipaði þeim einnig að rannsaka skotárásina á Gaza í síðustu viku sem kostaði sex ísraelska verkamenn lífið.

Á þriðja tug myrtir í Írak

Á þriðja tug manna létust í árásum vígamanna í Írak í gær. Ofbeldisverk vígamanna eru nú í algleymingi, tæpum tveimur vikum áður en Írakar ganga að kjörborðinu og velja stjórnlagaþing sem semur nýja stjórnarskrá Íraks og skipar bráðabirgðastjórn fram að nýjum kosningum.

Stjórnvöld treg í taumi

Spænska ríkisstjórnin segist ekki ráðast í neinar viðræður við aðskilnaðarsinnaða Baska fyrr en uppreisnarhreyfing ETA hættir vopnaðri baráttu sinni og lætur vopn sín af hendi. Þannig svöruðu stjórnvöld umleitunum ETA og stjórnmálaarms þeirra, Batasuna, um viðræður.

Tugþúsundir í verkfallshug

Viðbúið er að verkföll hafi mikil áhrif á franskt þjóðfélag í vikunni. Lestarstarfsmenn hófu verkfall á miðnætti síðustu nótt og hyggjast ekki snúa aftur til starfa fyrr en á fimmtudagsmorgun. Með þessu vilja þeir mótmæla áformum um að segja upp 3.500 starfsmönnum. Stjórn frönsku járnbrautanna kemur saman á morgun og fjallar um uppsagnirnar.

Leita beina Kólumbusar

Spænskir vísindamenn sem reyna að leysa ráðgátuna um hvar bein Kristófers Kólumbusar eru grafin hafa orðið sér úti um leyfi til að grafa upp líkamsleifar í Dóminíkanska lýðveldinu. Grunur leikur á um að bein Kólumbusar séu grafin þar en ekki á Spáni.

Íhuga að banna hakakrossinn

Franco Frattini, sem fer með dómsmál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, íhugar að banna notkun hakakrossins, tákn þýskra nasista í tíð Adolfs Hitlers. Frattini sagðist reiðubúinn að taka málið upp á fundi framkvæmdastjórnarinnar í næstu viku. Verði bannið sett gildir það í öllum 25 ríkjum Evrópusambandsins.

ETA vill friðarviðræður

ETA, aðskilnaðarsamtök Baska, segjast reiðubúin að hefja friðarviðræður við ríkisstjórn Spánar. Í dagblaðinu <em>Gara</em> sem gefið er út í Baska-héraði birtist í dag yfirlýsing frá ETA þar sem þetta kemur fram. Það er hins vegar ekkert minnst á hvort samtökin hafi í hyggju að leggja niður vopn eins og spænska stjórnin hefur sett sem skilyrði fyrir friðarviðræðum.

Hvers vegna dýrin lifðu af flóðin

Vísindamenn telja sig nú hafa komist að því hvers vegna öll villt dýr á Srí Lanka lifðu af flóðbylgjurnar í Suðaustur-Asíu.

Ísraelsmenn herða aðgerðir

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði fyrir ríkisstjórnarfund í morgun að aðgerðir gegn herskáum Palestínumönnum yrðu hertar til muna á næstunni í kjölfar árása síðustu daga. Sagði hann að herinn hefði leyfi til að nota allar aðferðir.

Tíu ára fangelsi fyrir pyntingar

Bandaríski herlögreglumaðurinn Charles Graner var í gærkvöldi dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir pyntingar á írökskum föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak.

81 meintur talíbani látinn laus

Bandaríski herinn í Afganistan hefur látið lausan áttatíu og einn fanga í Bagram, norður af Kabúl, að sögn talsmanns hæstaréttar þar í landi. Mennirnir fá föt og verða svo sendir heim. Mennirnir eru meðal mörg hundruð meintra talíbana sem handteknir voru síðla árs 2001 og gefið að sök að leyna verustað Osama bin Ladens.

Austurströndin nánast horfin

Gríðarleg eyðilegging og oft og tíðum grimmdarleg örlög er meðal þess sem Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, hefur orðið vitni að á Srí Lanka undanfarna sólarhringa. Á vesturströndinni eru ferðamannastaðirnir, sem gáfu þeim bestu sem Íslendingar þekkja ekkert eftir, nánast í rúst.

58 særðir eftir sprengingu

Að minnsta kosti einn lést og 58 særðust í sprengingu fyrir utan veitingastað í Suður-Taílandi í morgun. Sex börn hið minnsta eru á meðal særðra. Talið er að íslömsk aðskilnaðarsamtök í suðurhéruðum landsins séu ábyrg fyrir ódæðinu en blóðug borgarastyrjöld hefur geisað í héruðunum frá því snemma á síðasta ári.

Þakka taílensku þjóðinni

Forsætisráðherrar Svíþjóðar, Noregs og Finnlands hittu í dag ýmsa ráðamenn Taílands, þ.á m. forsætisráðherra landsins og kónginn, til að þakka þjóðinni fyrir hennar þátt í að bjarga og hlúa að þeim Svíum, Norðmönnum og Finnum sem lentu í og áttu um sárt að binda eftir flóðin við Indlandshaf á dögunum.

Sjá næstu 50 fréttir