Fleiri fréttir

Leggur starfið að veði í bréfi til heilbrigðisyfirvalda

Forstjóri Landspítalans segir að endurskipuleggja þurfi sjúkraflutninga frá grunni ef læknir verði tekinn úr þyrlum Landhelgisgæslunnar. Yfirlæknir bráðaþjónustu utan sjúkrahúsa leggur starf sitt að veði í bréfi til heilbrigðisyfirvalda þar sem hann útskýrir nauðsyn þess að hafa áfram lækni í þyrlunum.

Alþingi ákvarðaði um verndun Norðlingaöldu

Ekki er rétt að Norðlingaölduveita hafi verið raðað í verndarflokk sem orkukosti samkvæmt tillögum sérfræðinga rammaáætlunar og verkefnisstjórar, þetta kemur fram á vefsíðu Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja.

Talsmaður Nubo er bjartsýnn

"Ég fór ásamt varaforstjóra Beijing Zhongkun Investment Group, á fund Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra í vor, þegar hún var nýbúin að taka við, segir Halldór Jóhannsson, talsmaður Huang Nubo.

"Út í hött að útrýma kanínum“

"Mér finnst þessi umræða komin út í öfgar,“ segir Jón Þorgeir Ragnarsson listamaður sem býr í kanínuhúsinu í Elliðaárdal. "Þær veita fólki mikla ánægju svo ég skil þetta bara ekki."

Fékk 19 milljónir með mjólkurpottinum

Fjölskyldumaður á miðjum aldri vann 18,8 milljónir í Víkingalottóinu í síðustu viku. Maðurinn skaust út í búð til að kaupa mjólk en greip einn Víkingalottómiða í leiðinni á N1-stöðinni í Stjórahjalla sem skilaði bónusvinningnum.

Lovestar-hugmynd Andra Snæs verður að veruleika

"Það er mjög gaman að skoða vefsíðu Elysium Space. Það er nánast eins og verið sé að myndskreyta Lovestar. Ef ég hefði búið til falssíðu, til þess að fylgja þessum hugmyndum í bókinni eftir væri hún ekki ólík þessari síðu.“

Kanna kanínuplágu í borginni

Reykjavíkurborg er nú að kanna hvort og hvar kanínur eru orðnar vandamál í borgarlandinu. Útrýmingarherferð er þó ekki alveg á döfinni, þrátt fyrir skýra umsögn Náttúrufræðistofnunar um að útrýma beri öllum kanínum í íslenskri náttúru.

Malbikað í Ártúnsbrekku

Unnið verður við malbikun í Ártúnsbrekku og á Miklubraut, til vesturs milli Réttarholtsvegar og Háleitisbrautar, í dag.

Vigdís vill endurskoða fjárframlög til RÚV

Vigdís Hauksdóttir þingmaður og formaður fjárlaganefndar segir Ríkisútvarpið vera alltof Evrópusinnað og þar á bæ hafi menn meira að segja skakkt eftir mönnum. Hún vill endurskoða framlög ríkisins til stofnunarinnar.

Komnir vel á veg með að virkja hafið

Tilraunir á sjávarhverfli gefa góða raun. Hönnuður hans vonast til að geta fengið mælingar úr honum í dag svo sérfræðingar geti metið afraksturinn. Mikið er í húfi því sjávarfallsorka er nær tuttugu sinnum meiri en sú orka sem nú er unnin.

Segir ráðherrann spilla friði

Fyrrverandi umhverfisráðherra segir iðnaðarráðherra teygja sig út fyrir valdsvið sitt og efna til ófriðar með yfirlýsingum sínum um að setja Norðlingaölduveitu í virkjanaflokk. Landvernd býður ráðherranum í fossaferð.

Ný farþegarferja tekin í notkun

Ný farþegaferja, sem hefur fengið leyfi til farþegaflutninga á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja byrjar tilraunasiglingar í dag.

Útúrskakkur ökumaður

Hann vissi hvorki hvar hann var, né hvers vegna og varla hver hann var, að sögn lögreglu.

Húsbílafólk sturtar saur á þvottaplanið

Rekstraraðili söluturns á Reykjanesi er langþreyttur á því að húsbílaleigjendur losi skolp og matarleifar á planinu hjá sér. Húsbílaleigur firri sig ábyrgð. Starfsmaður húsbílaleigu á svæðinu segir að nýta eigi viðskiptamöguleikana í skolpinu.

Vilja raflagnir að Þríhnúkagíg

Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis hafa lagt til við umhverfis- og auðlindaráðuneytið að raflínur verði lagðar að Þríhnúkagíg til þess að takmarka flutning á olíu um svæðið.

Vilja samstilla kanínudráp

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur veitt Reykjavíkurborg undanþágu frá lögum til að bregðast við auknum fjölda kanína í borginni.

Kominn heim eftir flugslysið

Flugmaðurinn sem lifði af flugslysið þar sem sjúkraflugvél Mýflugs fórst á braut akstursíþróttafélags Akureyrar fimmta ágúst síðastliðinn hefur nú verið útskrifaður af Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.

Munu bregðast við vanefndum

Daníel Jakobsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, lagði fram bréf á bæjarráðsfundi í gær vegna deilna um byggðakvóta til Lotnu.

Mega mögulega til Íslands

Kim Dotcom stofnandi netþjónustunnar Mega sagði á blaðamannafundi á Nýja-Sjálandi í fyrradag að hann teldi Ísland vænlegan kost ef hann myndi bregða á það ráð að flytja starfsemi félagsins úr landi.

Enn og aftur milljón tonna makrílmæling

Makrílgengd við Ísland er enn gríðarmikil, sýnir ný rannsókn. Ekki mælist eins mikið af makríl í íslensku lögsögunni og metárið í fyrra en þó meira en árin 2010 og 2011. Styrkir samningsstöðu Íslands í makríldeilunni.

Ferðamenn fyrstir á vettvang banaslyss

Ferðalag Urgo- fjölskyldunnar tók skyndilega krappa beygju þegar þau keyrðu að umferðarslysi á Suðurlandsvegi þann fjórða ágúst síðastliðinn.

"Forvitni mannkyns þekkir ekki landamæri“

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá ítarlegt viðtal þar sem Garvin ræðir um Curiosity-jeppann, könnun sólkerfisins og Surtsey en hann er sérstakur áhugamaður um íslenska jarðfræði.

"Surtsey er einn stórkostlegasti staður jarðar"

"Surtsey er einn stórkostlegasti staður jarðar og hefur hjálpað mannkyni að öðlast skilning á náttúru og jarðfræði sólkerfisins." Þetta segir bandarískur vísindamaður sem er kominn hingað til lands í tilefni af því að fimmtíu ár eru liðin frá upphafi goss í Surtsey.

Umferðarmerkingar gætu skapað vegfarendum hættu

Ekkert samráð var haft við Strætó bs. áður en þrenging Hofsvallagötu hófst í sumar. Þetta segir sviðsstjóri Skipulags- og þróunarsviðs hjá Strætó og bendir á að umferðarteppur myndist á götunni.

Segir Norðlingaölduveitu bæði hagkvæma og umhverfisvæna

Landsvirkjun hefur kynnt iðnaðarráðherra breytta útfærslu Norðlingaölduveitu og kveðst Ragnheiður Elín Árnadóttir eftir ferð á svæðið enn sannfærðari en áður um að þann kost megi nýta til raforkuframleiðslu án þess að Þjórsárver skaðist.

Guðlaugur Þór í oddvitaslaginn?

Umræða um leiðtogaprófkjör er hávær þegar kemur að uppröðun á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar á næsta ári. Guðlaugur Þór Þórðarson hefur fengið mikla hvatningu til að bjóða sig fram í oddvitasætið.

1500 börn setjast á skólabekk í fyrsta sinn

Í tilkynningu frá borginni segir að alls muni rúmlega 14.000 börn og unglingar stunda nám í grunnskólum borgarinnar í vetur og er það nokkur aukning frá fyrra ári.

Mikið vatn í Skaftárkötlum

Töluvert magn vatns hefur safnast fyrir í Skaftárkötlum, sem eru í vesturhluta Vatnajökuls. Þetta sýna myndir og myndskeið sem Jón Grétar Sigurðsson, flugmaður hjá Atlantsflugi, tók þegar hann flaug þar yfir.

Tölvuöryggisráðstefna - Fólk sem kann að hakka sig inn í bíla

"Á ráðstefnuna koma öryggissérfræðingar sem hafa rannsakað móðurtölvur bíla og með því að komast inn slíka tölvu er hægt að stjórna bílnum og láta það gera hvað sem er,“ segir Árni Már Harðarson stofnandi alþjóðlegrar tölvuöryggisráðstefnu NSC.

Telja Reykjavíkurborg hafa brotið lög

"Langt umfram eðlilegan kostnað,“ segir lögfræðingur um gjaldtöku borgarinnar vegna sælgætissölu á Hinsegin dögum. "Sitjum ekki undir svona,“ segir Stefán Karl hjá Regnbogabörnum.

Píratar ekki siðlaus bófaflokkur

Vaxandi krafa er uppi um að lögreglan grípi til aðgerða gegn niðurhali á hugverkum sem eru höfundarréttarvarin. Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, segir umræðuna á algjörum villigötum.

Faðirinn enn í farbanni

Farbann yfir föður fimm mánaða stúlku sem talin er hafa látist í mars vegna heilablæðingar af völdum svokallaðs "shaken baby syndrome“ hefur verið framlengt um fjórar vikur. Hann hefur ekki verið yfirheyrður síðan í maí.

Sjá næstu 50 fréttir