Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bæta verði kjör og vinnuumhverfi Nauðsynlegt er að bæta kjör og vinnuumhverfi á Landspítalanum. Þetta kom fram á fundi Læknafélags Reykjavíkur og Félagi almennra lækna í kvöld. 20.9.2012 23:48
Stórbrotin náttúra Íslands í ótrúlegu myndbandi Hjónakornin Doug og Karen Urqhart voru á faraldsfæti í sumar. Þau fögnuðu brúðkaupsafmæli sínu með því að kynnast náttúru Íslands í rúmar tvær vikur og virtu þau fyrir sér helstu náttúruperlur landsins. 20.9.2012 21:52
Huga ber að bílnum þegar vetur nálgast Að mörgu þarf að huga þegar vetur gengur í garð. Bifreiðaeigendur hafa þá í nógu að snúast enda skiptir undirbúningur bílsins fyrir frosthörkurnar sköpum eins og þáttastjórnendur Reykjavík síðdegis komust að í dag. 20.9.2012 22:00
Fækkun starfa mikið áhyggjuefni Atvinnuleysi hér á landi hefur verið 1 ½ prósentustigi lægri en á sömu átta mánuðum í fyrra. Aðeins örfá lönd eru með minna atvinnuleysi en hér á landi. Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í umræðum um atvinnumál á Alþingi í gær. Framkvæmdastjóri SA fagnar minna atvinnuleysi en segir að fækkun starfi sé mikið áhyggjuefni. 20.9.2012 21:30
Engin lúxussigling yfir Norður-Atlantshafið Íslendingarnir fjórir sem áætla að róa um fimmþúsund kílómetra leið yfir Norður-Atlantshafið án fylgdar og slá um leið heimsmet búast ekki við neinni lúxusferð. Þeir eru þó jákvæðir enda alvanir róðrarmenn og sjá fram á að komast eins nálægt himnaríki og hægt er. 20.9.2012 21:00
Blindir geta loks leikið eftir nótum Blindir og sjónskertir Íslendingar geta nú með tilkomu nýrrar kennslubókar leikið tónlist eftir nótum, en þeir hafa hingað til þurft að reiða sig eingöngu á heyrnina í tónlistarnámi. Möguleikinn veitir frelsi segja höfundar bókarinnar. 20.9.2012 20:15
Aldrei fleiri kvenleikstjórar á RIFF Þrjátíu og sjö prósent leikstjóra á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík eru konur. Hátíðin verður haldin í níunda sinn nú í ár. Stjórnandi hátíðarinnar segir úrvalið aldrei hafa verið meira. 20.9.2012 19:30
Vilja vita laun stjórnarmanna slitastjórna Kröfuhafar í gamla Glitni telja að þóknanir til skilanefndarmanna hafi hækkað mjög og óska því eftir sundurliðun. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar, segist ekki geta séð að sundurliðunin skipti nokkru máli. 20.9.2012 18:30
Í fimm ára fangelsi fyrir nauðgun og tilraun til vændiskaupa Hæstiréttur dæmdi í dag Stefán Þór Guðgeirsson í fimm ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu sem hann hafði ætlað að kaupa vændi af. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í fjögurra ára fangelsi fyrir sama brot. Brotið var framið í september 2009. 20.9.2012 16:48
Síbrotamaður í 18 mánaða fangelsi Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag 18 mánaða fangelsisdóm héraðsdóms yfir karlmanni á sextugsaldri sem var dæmdur fyrir líkamsárás, fjársvik, nytjastuld og brot á vopnalögum. 20.9.2012 16:47
Ólympíufarar heiðraðir Reykvískir Ólympíufarar sem kepptu fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum í sumar voru heiðraðir í Höfða í dag. Jón Gnarr tók á móti hópnum, hélt stutta tölu og spjallaði við afreksfólkið. 20.9.2012 16:17
Knattspyrnumaður kærður fyrir nauðgun Leikmaður í 2. deild karla hefur verið kærður fyrir nauðgun, samkvæmt upplýsingum sem knattspyrnuvefurinn 433.is hefur frá lögreglunni. Samkvæmt upplýsingum vefjarins mun kæran hafa haft víðtæk áhrif á félagið sem leikmaðurinn leikur fyrir. Ennfremur segir að stúlkan sem maðurinn er grunaður um að hafa nauðgað sé kærasta liðsfélaga hans. Þá segir að kærasti meints fórnarlambs sé hættur að spila með liðinu en hann hafði komið við sögu í flestum leikjum liðsins á tímabilinu. Leikmaðurinn sem kærður var spilar hinsvegar enn með liðinu og var í byrjunarliðinu þegar liðið lék um síðustu helgi. 20.9.2012 15:43
Bæjarráð eingöngu skipað konum Bæjarráð Ölfuss kom saman á venjubundnum fundartíma í morgun en það var í fyrsta skipti sem bæjarráðið er eingöngu skipað konum samkvæmt fréttavefnum Sunnlenska.is. 20.9.2012 15:10
Sigmundur Ernir vill sitja áfram Allir þingmenn Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi sækjast eftir endurkjöri, eftir því sem fram kemur á fréttavefnum Vikudagur. Þau Kristján Möller, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Jónína Rós Mikaelsdóttir hafa setið á þingi fyrir flokkinn þetta kjörtímabil. Aðalfundur kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi verður haldinn á Húsavík á laugardaginn. Þar verður væntanlega ákveðið hvernig staðið verður að vali á framboðlista flokksins. 20.9.2012 15:09
Rukkað í Selfosskirkju - óánægja hjá foreldrum Nokkur óánægja ríkir á meðal foreldra barna sem eru í barna og unglingakór Selfosskirkju því nú á í fyrsta skipti að rukka þáttökugjald fyrir veturinn. 20.9.2012 14:59
Kristín Scheving ráðin verkafnastjóri Norræna hússins Kristín Scheving myndlistarmaður, sýningarstjóri og verkefnisstjóri hefur hafið störf hjá Norræna húsinu. Kristín mun starfa þar sem verkefnastjóri. 20.9.2012 14:44
Meistaralegur mánuður að hefjast Hinn svokallaði Meistaramánuður hefst 1. október næstkomandi eða eftir 10 daga. Þá munu þúsundir manna sameinast um að skora á sjálfa sig, kýla á hlutina sem þá dreymir um og verða í stuttu máli betra eintak af sjálfum sér. 20.9.2012 14:15
Miliband á leið til Íslands David Miliband, fyrrverandi utanríkisráðherra og umhverfisráðherra Breta, kemur til Íslands í næstu viku. David Miliband var kjörinn á þing árið 2001 og varð ráðherra skólamála ári síðar; árið 2006 varð hann umhverfisráðherra og árið 2007 utanríkisráðherra, þá aðeins 41 árs gamall. Miliband hefur látið til sín taka í umræðum um loftslagsbreytingar og hvetur til alþjóðlegs samstarfs um umhverfisvernd, málefni hafsins og orkumál. Á vef Háskóla Íslands kemur fram að Miliband hefur sent frá sér margvíslegar ritsmíðar. 20.9.2012 14:06
Chopin gerði útslagið - sýknaður af líkamsárás Karlmaður á sextugsaldri var sýknaður af líkamsárás í Héraðsdómi Reykjaness í dag en hann var ákærður fyrir að taka um hönd konu, sem var nágranni hans, snúa upp á hana og henda henni utan í nálægan steinvegg. Þá var honum einnig gefið að sök að hafa slegið mann hennar með stunguskóflu en árásin átti að hafa átt sér stað í janúar á síðasta ári. 20.9.2012 13:49
Á þriðja hundrað manns hafa greitt atkvæði Alls eru nú 267 manns búnir að greiða atkvæði utankjörfundar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um tillögur stjórnlagaráðs sem fram fer 20 október næstkomandi. Þar af hafa 165 greitt atkvæði á höfuðborgarsvæðinu. Utankjörfundaratkvæðagreiðslan hófst við embætti sýslumannsins í Reykjavík þann 25. ágúst síðastliðinn. 20.9.2012 13:37
Vilja 5 milljóna bætur vegna úrgangs í Ytri-Rangá Leigutaki Ytri-Rangár vill að sveitarfélagið Rangárþing ytra greiði 5 milljóna króna bætur vegna tjóns sem varð er kjúklingaúrgangur lak frá sláturhúsi á Hellu í fyrra. Ekki okkar ábyrgð þótt við eigum fráveituna segir sveitarstjórinn. 20.9.2012 13:13
Forsætisráðherra vísar svikabrigslum til föðurhúsanna Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, vísar því til föðurhúsanna að fyrirheit í stöðugleikasáttmálunum hafi verið svikin. Það var Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sem vakti máls á því á Alþingi í dag að Samtök Atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin teldu stjórnvöld ekki hafa staðið við sinn hlut stöðugleikasáttmálans. 20.9.2012 11:33
Ímyndum okkur að opna þyrfti hommaathvarf "Ímyndum okkur að árásir og ógn við líf samkynhneigðra væri svo útbreitt samfélagsmein að það yrði að opna sérstakt hommaathvarf í miðbæ Reykjavíkur," segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir leikkona, sem fjallar um kynbundið ofbeldi og Kvennaathvarfið í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. 20.9.2012 11:24
Nubo-frétt eins og þruma úr heiðskíru lofti "Þetta kemur eiginlega eins og þruma úr heiðskíru lofti,“ segir Huginn Freyr Þorsteinsson, aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar atvinnuvegaráðherra, um frétt China Daily sem greinir frá því í dag að samningur Huang Nubo, um leigu á Grímsstöðum á fjöllum, liggi endanlega fyrir og að skrifað verði undir samninginn í næsta mánuði. 20.9.2012 10:43
Dómstólarnir með opið hús Héraðsdómstólarnir verða með opið hús á laugardag, milli klukkan 11 og 14, í tilefni af 20 ára afmæli dómstólanna. Þar gefst almenningi kostur á að kynna sér starfsemi dómstólanna, fara í skoðunarferðir um dómhúsin og sitja sýndarréttarhöld í Héraðsdómi Reykjavíkur sem Háskólinn í Reykjavík mun leiða. Þá gefst gestum tækifæri til að koma með nytsamlegar ábendingar í "skilaboðaskjóðu", sem liggur fyrir í anddyri hvers dómstóls. Í hana eru allar ábendingar vel þegnar er snúa að starfsemi dómstólanna, bæði hvað sé gott í starfinu og það sem betur má fara. 20.9.2012 10:29
Umferðarstofa varar ökumenn við sólinni Undanfarna daga hefur mátt rekja fjölda árekstra og óhappa til þess að sólin hafi blindað ökumenn. Sólin er nú lágt á lofti og himinn heiður víða um land. Þó það sé auðvitað fyrst og fremst ánægjulegt vill Umferðarstofa vara ökumenn við þeirri hættu sem því fylgir. 20.9.2012 09:36
China Daily: Skrifað undir samning við Nubo í næsta mánuði Staðhæft er á vefsíðu kínverska blaðsins China Daily að samningur Huang Nubo um leigu á Grímsstöðum á fjöllum liggi endanlega fyrir og að skrifað verði undir samninginn í næsta mánuði. Þá verði boðað til blaðamannafundar til að kynna samninginn. 20.9.2012 08:18
Hætt við uppsagnir á RÚV Stjórn Ríkisútvarpsins ákvað á fundi sínum í gær að hætta við að segja upp fjórum til sex starfsmönnum Rásar 1. Þetta staðfesti Halldór Guðmundsson, stjórnarmaður í RÚV, í samtali við vefmiðilinn Smuguna í gærkvöldi. Starfsmenn Rásar 1 höfðu skrifað Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, bréf þar sem fyrirhuguðum uppsögnum var mótmælt. 20.9.2012 11:00
Sumarísinn er að hverfa Einn fremsti vísindamaður heims á sviði hafísmála segir hættu á að eftir fjögur ár heyri hafís á sumrin sögunni til á norðurskautinu. Brött spá, segir veðurfræðingur, en ísinn fer minnkandi. Hefur áhrif á veðurfar og lífríki sjávar. Draga verður úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. 20.9.2012 07:00
Fjórir Íslendingar reyna að komast í heimsmetabók Gunniess Fjórir Íslendingar ætla sér að komast í heimsmetabók Guinness með því að róa á árabáti án fylgdar frá Noregi til Norður Ameríku. 20.9.2012 06:42
Töluvert um innbrot í borginni Töluvert var um innbrot á höfuðborgarsvæðinu í nótt en lögreglan var meðal annars kölluð að tveimur heimilum í Kópavogi. 20.9.2012 06:36
Skógur í Fnjóskadal jafnaðist við jörðu Skóglendi innst í Fnjóskadal fór afar illa í veðurhörkunum fyrr í mánuðinum. Hundrað ára gömul tré gáfu sig undan snjónum. Enn finnst dautt fé á Norðausturlandi. Skógræktarbændur í Þingeyjarsýslum segja trén hafa farið illa. 20.9.2012 06:30
Tveir teknir með töluvert af kannabis í fórum sínum Tvö fíkniefnamál komu upp hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt en skömmu fyrir miðnætti gerði lögreglan húsleit hjá karlmanni í íbúð hans í Breiðholti vegna gruns um að hann seldi þar fíkniefni. 20.9.2012 06:18
Rekin vegna Ólympíuleikanna? "Það er auðvitað algjörlega út í hött að ef menn tapa á Ólympíuleikum komi það niður á til dæmis starfsfólki á Rás 1, réttara sagt á hlustendum,“ sagði Mörður Árnason, alþingismaður Samfylkingar, á þingfundi í fyrradag. Vitnaði Mörður til "lausafregna“ um að fjárhagur RÚV væri nú miklu verri en áður hefði komið fram. 20.9.2012 06:00
Loftorka bauð lægst í verkið Loftorka átti lægsta tilboð í gerð Álftanesvegar milli Hafnarfjarðarvegar og Bessastaðavegar, en tilboð voru opnuð fyrr í vikunni. 20.9.2012 05:30
Leiguverð íbúða hefur hækkað hratt Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,3% í ágúst samkvæmt mælingum Þjóðskrár Íslands. Leiguverð hefur hækkað hratt á síðustu mánuðum eða um 6,8% síðustu þrjá mánuði og 10,6% sé litið til síðastliðinna tólf mánaða. 20.9.2012 05:00
Hættir við kaup á þyrlu Ríkisstjórnin samþykkti á þriðjudag, að tillögu Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra, að segja upp samstarfssamningi við Norðmenn um kaup á björgunarþyrlu, en samningurinn var gerður í nóvember 2007. Þess í stað verður boðin út langtímaleiga á tveimur þyrlum til viðbótar við núverandi þyrlu Landhelgisgæslunnar. 20.9.2012 04:30
Förum ekki í manngreinarálit Páll Winkel fangelsismálastjóri segir alfarið unnið eftir lögum og reglugerðum þegar teknar eru ákvarðanir um það hvort fangar megi ljúka afplánun utan fangelsis, ýmist á áfangaheimilinu Vernd eða undir rafrænu eftirliti. Þar sé aldrei farið í manngreinarálit. 20.9.2012 04:00
Íslenskir ofurhugar stefna á Everest ræðaranna „Rúmlega fimm þúsund manns hafa klifið Everest - þetta hefur hins vegar enginn gert." Þetta segir Einar Örn Sigurdórsson, róðrarmaður og einn af fjórum Íslendingum sem nú stefna á að róa frá Noregi til Ameríku og slá um leið heimsmet. 19.9.2012 22:30
"Þeir gerðu málið verra" Hjúkrunarfræðingar segja að of seint sé í rassinn gripið með samkomulagi Guðbjarts Hannessonar, velferðarráðherra, og Björn Zoëga, forstjóra Landspítalans. Skaðinn sé nú þegar skeður. 19.9.2012 22:00
Nauðsynlegt að efla löggæslu á Suðurlandi Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Suðurlands, segir að staða lögreglunnar í sýslunni sé langt fyrir neðan þolmörk. Hann tekur undir með yfirlögregluþjóni á Selfossi sem lýsti bágri stöðu mála í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. 19.9.2012 21:30
Hjartagarðurinn tekur breytingum Minna verður byggt á Hljómalindarreitnum við Laugarveginn en áður var gert ráð fyrir og færri hús rifin. Þetta segir formaður skipulagsráðs borgarinnar sem kynnti nýtt skipulag svæðisins í dag. 19.9.2012 20:15
Finni og Norðmenn með fyrsta vinning Finni og þrír Norðmenn skiptu með sér fyrsta vinning í Víkingalottóinu í kvöld. Hver fær rúmar 35 milljónir í sinn hlut. 19.9.2012 19:54
Sviðsettu leit að týndum manni Íbúar á Snæfellsnesi tóku í dag þátt í að sviðsetja leit sem gerð var að Bjarna Matthíasi Sigurðssyni sem hvarf árið 1974, þegar hann var 79 ára gamall. Það gerðu þeir í tilefni af því að nú er verið að hefja tökur á þáttunum Mannshvörf á Íslandi, í umsjá Helgu Arnardóttur fréttamanns. 19.9.2012 19:53
Börnin hætt að þrífa sig og borða Á hverju ári koma börn á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans sem þjást af tölvufíkn. Félagsráðgjafi segir sum þeirra hætta að þrífa sig og borða. 19.9.2012 19:47