Fleiri fréttir

Engar ákvarðanir teknar um ákæru á hendur mótmælendum

Engar ákvarðanir hafa verið teknar um ákæru á hendur fólki sem mótmælti við rússneska sendiráðið í Garðastræti fyrr í sumar. Jón HB Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri, staðfestir í samtali við Vísi að mál nokkurra aðila séu í rannsókn og þau mál séu ennþá til meðferðar hjá embættinu.

Féll af reiðhjóli og slasaðist

Karlmaður á fimmtugsaldri slasaðist þegar hann féll á reiðhjóli á Skólavörðuholti um tvö leitið í nótt. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild og að sögn lögreglu var hann með mikla áverka í andliti. Meðal annars höfðu nokkrar tennur brotnað í fallinu. Hann var ekki með öryggishjálm.

Eldur í Fellaskóla

Eldur er kominn upp í Fellaskóla í Breiðholti. Allt tiltækt slökkvilið er á leiðinni á staðinn en töluverðan reyk leggur frá þaki skólans, að sögn sjónarvotts. Nánari upplýsingar þegar þær berast.

Þeir sem laumuðust í flugvélina verða ákærðir

Ákæra verður gefin út á hendur hælisleitendunum tveimur sem laumuðust upp í flugvél Icelandair í júlí síðastliðnum. Þetta staðfestir Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri Suðurnesja í samtali við fréttastofu.

Borgin gefur rithöfundum Gunnarshús

Borgarstjórinn Jón Gnarr mun undirrita gjafarafsal á morgun við athöfn í Gunnarshúsi en borgarráð hefur ákveðið að færa Rithöfundasambandi Íslands húsið að gjöf. Gunnars hús var heimili rithöfundarins Gunnars Gunnarssonar.

Pussy Riot sekar um óeirðir

Þrír meðlimir pönkhljómsveitarinnar Pussy Riot hafa verið fundnir sekir um óeirðir á almannafæri þegar þeir stóðu fyrir svokallaðri pönkmessu í dómkirkju í Moskvu í febrúar síðastliðnum.

Mótmæla við rússneska sendiráðið

Um sextíu til sjötíu manns eru nú við sendiráð Rússlands á Garðastræti í Reykjavík. Þau eru saman komin til að sýna samstöðu með meðlimum rússnesku pönkhljómsveitarinnar Pussy Riot.

Þriðji leigjandinn flytur inn í Hörpu

Stórsveit Reykjavíkur flytur í dag inn í Hörpu og verður þar með þriðji leigjandinn í húsinu, með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslensku óperunni. Hljómsveitin mun marsera inn í húsið í hádeginu í dag með pompi og prakt.

Börkur sat einn að upptökum á Hrauninu

Börkur Birgisson, dæmdur ofbeldismaður, fékk afrit af myndbandsupptökum af skýrslutökum lögreglunnar yfir brotaþolum, vitnum og ákærðu í máli hans og tólf annarra karlmanna. Einn verjenda í málinu segir ákæruvaldið mismuna verjendum í málinu. Saksóknari segir að Börkur hafi komist yfir myndböndin fyrir mistök.

Crowe leitar að tónleikastað fyrir Menningarnótt

Svo virðist sem að stórleikarinn Russell Crowe ætli sér að halda tónleika á Menningarnótt í Reykjavík. Á Twitter-síðu sinni í dag leitaði hann eftir hjálp við að finna tónleikastað.

Hælisleitandi tekinn við Sundahöfn

Ungur hælisleitandi var handtekinn við Sundahöfn laust fyrir klukkan eitt í nótt eftir að hann hafði komist inn á öryggissvæði og ætlaði að lauma sér um borð í Skógarfoss.

Lagarfljótsormurinn fyrir sannleiksnefnd

Fimmtán árum eftir að verðlaunum var heitið fyrir hvern þann sem næði að mynda Lagarfljótsorminn kemur tökumaður fram og gerir tilkall til verðlaunanna. Málið fer fyrir sannleiksnefnd skipaða af yfirvöldum á Héraði.

Gengur hratt á makrílkvótann

Makrílveiðar uppsjávarveiðiskipa HB Granda hafa gengið vel í sumar. Á heimasíðu fyrirtækisins kemur fram að í byrjun vikunnar var búið að veiða um 11.400 tonn af makríl á vertíðinni og þá voru óveidd um 4.500 tonn. Hlutfall síldar í makrílaflanum hefur aukist upp á síðkastið, en skip sem eru á síldveiðum norðan við helsta makrílveiðisvæðið hafa jafnframt verið að fá 10-20% meðafla af makríl.

Vilja fá Íslendinga í læknanám í Slóvakíu

Einn besti háskóli í Austur-Evrópu býður íslenskum stúdentum að þreyta inntökupróf fyrir læknanám í Slóvakíu. Ræðismaður Slóvakíu heldur inntökuprófin hér á landi taki sex áhugasamir nemendur þau.

Icelandair var stundvísasta flugfélagið

Af flugfélögum landsins var Icelandair oftast á réttum tíma síðastliðinn hálfa mánuð. Iceland Express stóð sig einnig vel. Þetta er niðurstaða könnunar sem gerð var á vefnum túristi.is.

Tekinn í Leifsstöð með falsað vegabréf

Karlmaður var handtekinn í Leifsstöð í gær þegar hann framvísaði norsku vegabréfi, en grunsemdir vöknuðu um að hann væri ekki lögmætur handhafi að. Var hann því færður til frekari skoðunar þar sem grunurinn var svo staðfestur með andlitssamanburði. Maðurinn er nú til rannsóknar. Meðal annars er unnið að því að reyna að staðfesta hver hann er svo og að athuga hvort hann kunni að vera eftirlýstur einhversstaðar. Þetta er 21. skilríkjafölsunarmálið sem upp kemur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á þessu ári. Á sama tíma í fyrra höfðu 15 slík mál komið upp í flugstöðinni.

Hækkun kemur sér illa fyrir ráðstefnuhús Hörpu

Forsvarsmenn í ferðaþjónustu telja mun líklegra að fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á gistingu muni leiða til tekjutaps fyrir ríkissjóð en að hún skili meiru í kassann. Tilgangurinn með breytingunni er þó sagður að auka tekjur um tvo og hálfan milljarð.

Fá aukaverkanir af lyfleysum

Sjúklingar sem taka þátt í lyfjarannsóknum upplifa oft og tíðum aukaverkanir lyfja, jafnvel þó þeir taki ekki lyfin sjálf heldur lyfleysu. Þýsku prófessorarnir Paul Enck og Winfried Häuser skrifa grein um málið í New York Times.

Ekkert öðruvísi að búa á eldfjallasvæði

„Maður fær með móðurmjólkinni hvernig það er að búa við rætur eldfjalls,“ segir Elín Einarsdóttir, oddviti sveitarstjórnar í Mýrdalshreppi og deildarstjóri í grunnskólanum í Vík í Mýrdal. „Þetta er svo sem ekkert öðruvísi en annars staðar. Að minnsta kosti ekki fyrir þá sem eru fæddir og uppaldir á svæðinu.“

„Það er verðstríð alla daga“

„Við erum bara í sjöunda himni,“ segir Jóhannes Jónsson, eigandi matvöruverslanakeðjunnar Iceland. „Þetta er alveg æðisgengið.“

Verða að hafa trú á þorpunum fyrir vestan

„Það hefur aldrei verið mín meining að nota þetta hús sem sumarhús,“ segir Ómar Sigurðsson sem í júlí síðastliðnum keypti hús á Bíldudal. Í grein Fréttablaðsins um húsnæðisskort þar í bæ sagði að það hús yrði nýtt sem sumarhús en í því býr nú fimm manna fjölskylda sem þarf að finna sér nýtt húsnæði sem er ekki heiglum hent í húsnæðisskortinum. Af þeim sökum hefur Ómar frestað því að flytja inn í húsið. „Ég keypti mér bát sem ég gerði út frá Bíldudal í sumar og mun gera í haust og í framtíðinni.“

Tvær bílveltur á Ladárdalsheiði

Tveir bílar ultu út af veginum um Laxárdalsheiði á milli Búðardals og Hrútafjarðar í gærkvöldi. Fólk úr báðum bílunum var flutt á heilsugæslustöð til aðhlynningar, en engin slasaðist alvarlega.

Viðræður í Grindavík stóðu fram á kvöld

Viðræður Framsóknarmanna, Grindavíkurlistans og Samfylkingarinnar stóðu fram á kvöld í gær, um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Grindavíkur, eftir að meirhlutasamstarf Framsóknar- og Sjálfstæðismanna sprakk í fyrrakvöld.

Nú er bara að reikna og semja

„Þetta er nokkuð borðleggjandi, að meta tjónið sem Iceland Express varð fyrir, svo að ég geri ráð fyrir að fljótlega verði hægt að setjast niður og semja um skaðabæturnar,“ segir Páll Rúnar Mikael Kristjánsson, lögmaður Iceland Express.

Aldrei heitara í sumar en í gær

Hitastigið í Reykjavík náði 20,9 stigum á hitamæli Veðurstofunnar. Það er í fyrsta sinn í sumar sem hitinn fer yfir tuttugu gráður. Veðurblíðan lék við borgarbúa í gær eins og flesta aðra daga í sumar og útlit er fyrir það sama næstu daga.

Fengu mat og drykki á meðan leitað var að sprengju - myndir

Farþegarnir 256 sem voru um borð í flugvél frá rússneska flugfélaginu Aeroflot, og lenti á Keflavíkurflugvelli í dag vegna sprengjuhótunar, eru lagðir af stað með annarri flugvél til Moskvu. Vélin var á leiðinni til borgarinnar frá New York eftir að sprengjuhótun barst flugfélaginu. Engar sprengjur fundust í vélinni, en samkvæmt hótuninni áttu fimm sprengjur að vera í jafnmörgum ferðatöskum í vélinni. Tveir voru handteknir vegna málsins en sleppt að loknum yfirheyrslum.

Sex prósent fleiri hlaupa í ár

Um sex prósent fleiri hlaupa í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í ár en í fyrra. Forskráningu lauk í gær og eru 10.358 einstaklingar búnir að skrá sig miðað við 9.788 í fyrra. Um 800 manns ætla að hlaupa maraþon en það er 17% fleiri en luku maraþoni í fyrra. Í hálfmaraþon eru skráðir 1.934 og í 10 kílómetra hlaup eru 4.431 einstaklingar skráðir til leiks. Í báðum þessum vegalengdum eru skráði 4 prósent fleiri en lauku hlaupi í fyrra. Haldið verður blaðamannafundur á morgun þar sem nánar verður farið yfir hlaupið.

Brýnt að lögreglan fái forvirkar rannsóknarheimildir

Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur brýnt að þingsályktunartillaga um forvirkar rannsóknarheimildir fái brautargengi. Hann segir í ljósi tíðinda frá Noregi sé enn brýnna en áður að lögreglan fái heimildir til að bregðast við og uppræta hugsanlega hryðjuverkaógn í fæðingu.

Skólavörðustígur verður göngugata lengur

Skólavörðustígur frá Bergstaðastræti niður að Laugavegi verður göngugata viku lengur en upphaflega stóð til, eða til mánudagsins 27. ágúst. Ástæðan er mikil ánægja rekstraraðila við Skólavörðustíg með fyrirkomulagið, segir tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Dagur býður öllum í vöfflur

Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, býður í vöfflur heim til sín á menningarnótt.

Skoppa og Skrítla komu í heimsókn

Skoppa og Skrítla, sem eru fastir gestir á Stöð 2, komu í Skaftahlíðina, þar sem Stöð 2 er send út, til að kynna sér breytingarnar sem verða á sjónvarpsstöðinni í vetur. Ein helsta breytingin er sú að ný barnastöð mun fara í loftið, auk tveggja annarra stöðva.

Hlýjasti dagur sumarsins í borginni

Hitinn í borginni náði 20 stigum í dag í fyrsta sinn í sumar. Dagurinn er enn ekki allur og því gæti hitinn skriðið enn hærra.

Útveguðu mjólkurpela og drykki - farþegar halda áfram síðdegis

Um tuttugu fjöldahjálparstjórar og sjálfboðaliðar Rauða krossins á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu hafa síðustu klukkustundirnar hlúð að 238 farþegum og 17 manna áhöfn flugvélar frá Aeroflot í flugskýli á öryggissvæði á Keflavíkurflugvelli samkvæmt tilkynningu frá Rauða krossinum.

Bauð gestum 250 þúsund fyrir að ganga í skrokk á öryggisverði

Karlmaður var handtekinn í Kringlunni um klukkan eitt í dag. Öryggisvörður hafði afskipti af manninum, sem er um þrítugt, vegna gruns um þjófnað. Maðurinn brást hin versti við og er meðal annars grunaður um að hafa slegið öryggisvörðinn í bringuna samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Gestir fá að smakka sinnepsís og BBQ-ís

Hinn svokallaði Ísdagur Kjöríss fer fram á laugardaginn í Hveragerði. Ísdagurinn er árviss viðburður en þá gefst gestum kostur á að hesthúsa eins mikinn ís og þeir geta. Í fyrra hurfu um tvö og hálft tonn af ís ofan í 20 þúsund gesti.

Tveir handteknir vegna sprengjuhótunarinnar

Sprengjuleit er lokið í flugvélinni sem lenti óvænt á Keflavíkurflugvelli í morgun. Engin sprengja fannst í vélinni. Vél mun koma og sækja farþegana seinna í dag og er áætlað að þeir fari í loftið um hálfsjö. Farþegarnir hafa verið í Leifsstöð, en þeir hafa verið í góðu yfirlæti í flugskýli.

Fatimusjóðurinn lagði fram fimm milljónir í styrk til Sýrlendinga

Fatimusjóðurinn hefur lagt fram fimm milljónir króna til aðstoðar fórnarlömbum átakanna í Sýrlandi. Rauði krossinn á Íslandi veitti styrknum viðtöku í dag og munu Alþjóða Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn í Sýrlandi nýta féð til að aðstoða óbreytta borgara sem orðið hafa illa úti vegna átakanna þar í landi.

Segja sænsku leiðina góða - lögreglan sökuð um lélega eftirfylgni

Femínistafélag Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fjölmiðlaumræðu um sænsku leiðina svokölluðu og hefur verið til umfjöllunar á fréttastofu Stöðvar 2 síðastliðna daga. Í yfirlýsingunni, sem birtist á vefnum Smugan.is, kemur fram að lögin séu ekki slæm, heldur heillaskref, vandamálið sé hinsvegar lögreglan sem framfylgir ekki lögunum.

Vill fleiri sannleiksnefndir um dulræn fyrirbæri

"Þetta er mjög gott fordæmi og þyrfti að gerast oftar eftir því sem svona mál koma upp,“ segir Magnús Skarphéðinsson, skólastjóri og sérfræðingur í dulrænum fyrirbærum en hann situr í fyrstu sannleiksnefnd sem hefur verið sett saman um dulrænt fyrirbæri hér á landi, að því best er vitað.

Hreyfihömluð kona fær ekki að keppa um tíma í Reykjavíkurmaraþoni

Arna Sigríður Albertsdóttir, ísfirsk kona sem lenti í skíðaslysi árið 2006 og hefur verið bundin við hjólastól síðan, fær ekki að keppa um tíma á Reykjavíkurmaraþoninu sem fram fer um helgina. Hún hefur æft markvisst fyrir hlaupið og ætlaði sér heilt maraþon. Þegar á hólmin er komið fær hún ekki að keppa um tíma og er stillt upp aftast í rásröð með þeim fyrirmælum að hún megi ekki taka fram úr neinum.

Sjá næstu 50 fréttir