Innlent

Tekinn í Leifsstöð með falsað vegabréf

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Karlmaður var handtekinn í Leifsstöð í gær þegar hann framvísaði norsku vegabréfi, en grunsemdir vöknuðu um að hann væri ekki lögmætur handhafi að. Var hann því færður til frekari skoðunar þar sem grunurinn var svo staðfestur með andlitssamanburði. Maðurinn er nú til rannsóknar. Meðal annars er unnið að því að reyna að staðfesta hver hann er svo og að athuga hvort hann kunni að vera eftirlýstur einhversstaðar. Þetta er 21. skilríkjafölsunarmálið sem upp kemur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á þessu ári. Á sama tíma í fyrra höfðu 15 slík mál komið upp í flugstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×