Dagur býður öllum í vöfflur BBI skrifar 16. ágúst 2012 16:47 Frá vöffluveislunni í fyrra. Mynd/Dagur
Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, býður í vöfflur heim til sín á menningarnótt. Vöffluveislan á Óðinsgötu 8b er árviss viðburður í heimilishaldi Dags. „Ég man hreinlega ekki hvenær við byrjuðum á þessu," segir hann en iðulega er glatt á hjalla og margt um manninn því allt að 1200 manns líta við. Hann segir því að fólk verði að sýna þolinmæði í þeim 102 ára stiga sem liggur upp í íbúðina. Við verðum að baka á svona tíu vöfflujárnum og erum búin að læra miklar kúnstir við að tengja þetta í mismunandi rafmagnstengla í húsinu svo það slái ekki allt út," segir Dagur. Dagur segir að allir sem hafa hug á að gæða sér á vöfflum með rjóma og sveskjusultu séu velkomnir en auglýsir sérstaklega eftir hljóðfæraleikurum og söngfólki. „Venjulega koma tónlistamenn og spila á svölunum hjá okkur. Nú eru hins vegar fastagestirnir okkar uppteknir í öðrum atriðum og þess vegna vantar áhugasama hljóðfæraleikara," segir hann. Herlegheitin hefjast um tvö leytið að Óðinsgötu 8b sem stendur við Óðinstorg í Þingholtunum. „Það er víst besta veðurspáin fyrir laugardaginn á Óðinstorgi svo ég hvet alla til að kíkja við," segir Dagur að lokum en vöffluveislan mun standa til fjögur eða þangað til deigið klárast.
Mest lesið Táningsstúlkan sem lést var að teyma íslenskan hest Erlent Fjölskyldan franska sendi ættingjum erfðaskrá frá Íslandi Innlent Hælisleitandi fór huldu höfði í þrjú ár og fleygði sér svo niður stiga Innlent Bubbi gerir sögulegan samning um eigin líkindi til allrar framtíðar Innlent Pilturinn áfrýjar ekki þyngsta mögulega dómi Innlent Diddy sakfelldur í tveimur af fimm ákæruliðum Erlent Játaði fjárdrátt og endurgreiðir samkvæmt samkomulagi Innlent Segja gengið á birgðirnar og hætta við vopnasendingar til Úkraínu Erlent Rúmlega 300 ökumenn sviptir eða sektaðir í dag á Kringlumýrarbraut Innlent Hiti á þingi: „Hættið þessu bara“ Innlent Fleiri fréttir Landvernd gagnrýnir skerðingar á aðgengi almennings að Heiðmörk Stjórnarandstaða setji ný viðmið á þingi sem ógni lýðræðinu Rúmlega 300 ökumenn sviptir eða sektaðir í dag á Kringlumýrarbraut Telur að allt fari í skrúfuna verði ekki brugðist við Bubbi gerir sögulegan samning um eigin líkindi til allrar framtíðar Ólafur Thors og Bjarni Ben sneru sér við í kaldri gröf Fjölskyldan franska sendi ættingjum erfðaskrá frá Íslandi Ótti um að allt fari í skrúfuna, Bubbi og pattstaða „Jú, jú, þetta er orðið málþóf“ Borgin sé ekki að refsa Grafarvogsbúum Pilturinn áfrýjar ekki þyngsta mögulega dómi Bætur Hugins lækkaðar og máli Vinnslustöðvarinnar vísað frá Samfylkingin í stórsókn á landsbyggðinni „Erum við að kenna börnunum okkar að vinna?“ Bærinn sagði nei við fyrsta kosti lögreglu Þinglok 2026 verði 12. júní „Eftir höfðinu dansa limirnir“ Hvalfjarðargöng opin á ný Gagnrýni Bryndísar á málþóf frá 2019 vekur athygli Skipuð nýr skrifstofustjóri í innviðaráðuneytinu Hiti á þingi: „Hættið þessu bara“ Hafa lokið rannsókn á Samherjamálinu Skildi illa við bálhyttuna og úr varð eldur Kjósa um að sameina Skorradalshrepp við Borgarbyggð Hælisleitandi fór huldu höfði í þrjú ár og fleygði sér svo niður stiga „Úrræðaleysi“ og „lausatök“ sögð einkenna yfirstjórn heilbrigðismála Ríkisendurskoðun gagnrýnir lausatök í heilbrigðismálum „Ég á ekki von á því að það vefjist fyrir ráðherranum“ Árekstur á Kringlumýrarbraut Þingheimur minnist Magnúsar Þórs Sjá meira