Innlent

Hækkun kemur sér illa fyrir ráðstefnuhús Hörpu

Björk Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Reykjavík Backpackers segir fyrirhugaðar hækkanir verulega misráðnar.
Björk Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Reykjavík Backpackers segir fyrirhugaðar hækkanir verulega misráðnar. fréttablaðið/stefán
Forsvarsmenn í ferðaþjónustu telja mun líklegra að fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á gistingu muni leiða til tekjutaps fyrir ríkissjóð en að hún skili meiru í kassann. Tilgangurinn með breytingunni er þó sagður að auka tekjur um tvo og hálfan milljarð.

Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), segir einnig að áformin um að koma Hörpu á kortið sem ráðstefnuhúsi verði hæpnari verði þessi leið farin. „Hvergi er meiri samkeppni en um ráðstefnugesti sem eru meðal verðmætustu gesta. 17,3% verðhækkun til þeirra mun ekki fjölga gestum í Hörpu, sá markaður mun hrynja,“ segir í fréttatilkynningu sem SAF hefur sent frá sér.

Árni segir að í 29 Evrópuríkjum af 32 sé gisting í neðra þrepi virðisaukaskatts. „Þá hefur oft verið talað um að í Danmörku sé 25 prósenta virðisaukaskattur en þá gleymist að geta þess að þar er aðeins eitt skattþrep,“ segir hann. „Hins vegar má geta þess að Þjóðverjar hafa nýlega farið þá leið að lækka skatt á gistingu úr nítján prósentum í sjö.“

„Það virðist ekki hafa verið horft til heildarmyndarinnar,“ segir hann enn fremur. „Ég tel að óneitanlega hafi þetta í för með sér minni eftirspurn og ef ferðaþjónustan dregst saman, þó ekki væri nema um nokkur prósentubrot, þá eru þessir tveir og hálfur milljarðar farnir.“

Björk Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Reykjavík Backpackers, er þegar farin að spá í áhrifin sem þessar breytingar hefðu í för með sér. „Ef gistingin hækkar um 17,3 prósent þá er verð á gistingu hjá fyrirtækjum eins og okkar sambærilegt dýrustu ferðamannaborgum heims eins og New York, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi og Helsinki,“ segir hún. „Við megum ekki gleyma því að ferðamaðurinn er með ákveðnar ráðstöfunartekjur og hann ákveður ferðir sínar að miklu leyti út frá þeim. Það er því miður ekki svo að menn ákveði bara sisvona að fara til Íslands og spyrji svo um reikninginn að dvöl lokinni. Og þetta hefur líka þau áhrif að þegar fólk þarf að eyða meira af ráðstöfunarfé sínu í gistingu þá eyðir það minna í aðra þjónustu og vörur.“jse@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×