Óvenjumörgum hreindýraveiðileyfum skilað GS skrifar 17. ágúst 2012 12:26
Óvenjumörgum hreindýraveiðileyfum hefur verið skilað ónotuðum í sumar, þar sem margir hafa kolfallið á skotprófi, sem nú er krafist í fyrsta sinn. Þá munu einnig vera dæmi um að menn hafi ekki einu sinni treyst sér í prófið. Að sögn leiðsögumanns hefur þetta þá jákvæðu hlið að það eru ekki nema hæfir veiðimenn sem nú ganga til þessara veiða. Þrátt fyrri að fjölmörögum leyfum hafi verið skilað inn, dregur ekkert úr veiðunum, þar sem þar sem margir voru á biðlista í vor og eru sumir enn. Nú er búið að fella um 200 dýr, en leyft verður að fella rétt liðlega þúsund dýr á þessu veiðitímabili, sem lýkur 20. september. En það er ekki á allra færi að stunda þessar veiðar. Skotprófið kostar 4,500 krónur, veiðileyfi á kú 80 þúsund og 135 þúsund á tarf. Leiðsögumaður, sem veiðimenn verða að taka, kostar um 40 þúsund krónur og stundum þarf fleiri en einn dag til að ná dýri, fjórhjól, til að flytja það af blóðvellinum niður í bíl, kostar 20 til 30 þúsund krónur á dag, svo kostar allt að 35 þúsund krónur að úrbeina dýrið og koma kjötinu í neytendapakkningar, og svo hleypur flutningskostnaður á kjötinu til höfuðborgarsvæðisins á nokkrum þúsundum. Auk þessa er hreindýratúr austur, frá höfuðborgarsvæðinu, vart styttri en þrír sólarhringar, með viðeigandi eldsneytis- og gistikostnaði. Talið er að einn svona túr eftir einu dýri, kosti að minnstakosti 300 þúsund krónur, þegar allt er talið.-
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira