Barnabætur og fæðingarorlofsgreiðslur hækkaðar 30. júlí 2012 10:00
Ríkisstjórnin hefur áform um að lengja fæðingarorlof og hækka barnabætur á fjárlögum næsta árs. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir það hafa verið til umræðu í ríkisstjórn hvernig nýta eigi hugsanlegt svigrúm í ríkisfjármálum á næsta fjárlagaári. „Það er þrennt sem við erum með augun á: barnabæturnar, fæðingarorlofið og vaxtabætur fyrir þá sem eru í verstri stöðu að því er varðar greiðsluvanda," segir Jóhanna. Hún segir samstöðu um það í ríkisstjórninni að barnafjölskyldur fái forgang þegar færi gefst. Hún bendir jafnframt á að stefnt sé að því að ná jöfnuði í ríkisfjármálum árið 2014. „Við höfum reynt að hlífa velferðarmálunum eins og kostur er í gegnum þessar þrengingar og náð mjög miklum árangri. Við sjáum fram á að það muni skýrast á næstunni hvort við getum gert eitthvað í barnabótum og fæðingarorlofi." Barnabætur og fæðingarorlof hafa lækkað í kjölfar kreppunnar. Til marks um það höfðu hámarksgreiðslur Fæðingaorlofssjóðs lækkað um 235 þúsund krónur frá því í lok árs 2008 þar til í upphafi árs 2010 þegar greiðslurnar námu 300 þúsund krónum. Guðbjartur Hannesson sagði í apríl á þessu ári að hann byggist við því að kynntar yrðu breytingar á fæðingarorlofinu samhliða fjárlagafrumvarpi í haust. Spurð hvort formleg vinna sé hafin við þessar breytingar segir Jóhanna: „Jú jú, hún hefur verið í undirbúningi og það er farið að leggja línur í því sem ég hef nefnt. Ég geri ráð fyrir því að við sjáum þessu stað í fjárlagafrumvarpinu sem lagt verður fram í september." „Þá yrðu settir auknir fjármunir í barnabætur og líka í hækkun á greiðslum í fæðingarorlofi. Ég er að vona að við getum stigið skref áfram í þessu máli." Jóhanna segir ástæður þess að barnafjölskyldur fái forgang vera að þær eigi í mestum vandræðum. ?Mesti vandinn er hjá stórum barnafjölskyldum og það er frekar greiðsluvandi heldur en skuldavandi sem hrjáir þær."
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira