Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heitt vatn lak í kjallara fjölbýlishúss Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út upp úr klukkan ellefu í morgun eftir að tilkynnt var um vatnsleka í fjölbýlishúsi við Skipalón í Hafnarfirði. Að sögn varðstjóra brotnaði krani í kjallara hússins og flæddi heitt vatn um svo íbúar stóðu ráðalausir. Mikill hiti og gufa myndaðist í kjallarnum og þurftu slökkviliðsmenn að klæða sig í þykka hlífðargalla svo hægt væri að stöðva lekann. Ekki liggur fyrir hvort að mikið tjón hafi hlotist af lekanum. 18.7.2012 13:31
Nubo byggir á 1,4% af landi Grímsstaða sem keypt verður Huang Nubo mun ráðast í framkvæmdir á 1,4 prósentum af landinu Grímsstöðum á Fjöllum sem félagið GáF ehf. í eigu sjö sveitarfélaga mun kaupa og leigja honum síðan. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra óttast að uppbygging Nubos komi til með að kljúfa samfélag okkar í herðar niður, eins og hann kemst að orði. Samningar við Nubo um leigu á jörðinni eru á lokastigi. Hann ætlar að byggja hótel, eitt hundrað einbýlishús og golfvöll á svæðinu. 18.7.2012 12:27
Kæran send Hæstarétti í dag Öryrkjabandalag Íslands mun senda kæru til Hæstaréttar Íslands á næsta klukkutímanum. Það er Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður hefur meðal annars unnið að málinu með Öryrkjabandalaginu. 18.7.2012 12:14
Bjóða upp á áfenga drykki á Hrafnistu Bryddað verður upp á þeirri nýjung á Dvalarheimilinu Hrafnistu að selja heimilisfólki og gestum áfenga drykki í endurnýjuðum matsal sem gera á að kaffihúsi. Bylting í þjónustunni við fólkið, segir forstjórinn. 18.7.2012 12:00
Vill spara hundruð milljóna með rafrænni þjónustu Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur að Íslendingar ættu að vinna af fullri alvöru að taka upp rafrænar kosningar. Framkvæmd kosninga sé gamaldags og miðað við þá tækni sem er til staðar sé hægt að auka möguleika á þessu sviði og spara hundruð milljóna. 18.7.2012 11:53
Sandsílastofninn á enn undir högg að sækja Ástand sandsílastofnsins er enn slakt á suður- og vesturhluta landsins samkvæmt nýrri mælingu Hafrannsóknarstofnunar. Tíu daga sandsílaleiðangri á rannsóknarskipinu Dröfn RE 35 er nýlokið. Stærð sandsílastofnsins skiptir verulegu máli fyrir lífríkið því um er að ræða eina helstu fæðu allra sjófugla, ef súla og dílaskarfur er undanskilinn. 18.7.2012 10:42
Vissu ekki að þau væru "týnd" - ætla að halda áfram för sinni "Það var allt í góðu hjá þeim og ákváðu að halda áfram för sinni,“ segir Einar Eysteinsson, hjá slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þýsku hjónin sem leitað hefur verið að síðan síðdegis í gær komu í leitirnar í morgun en það voru björgunarsveitarmenn sem fundu hjónin. 18.7.2012 10:18
Hannes Hólmsteinn: "Brottrekstur Snorra er hneyksli" Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, tekur upp hanskann fyrir Snorra Óskarsson í Betel, sem var á dögunum rekinn úr starfi sem grunnskólakennari við Brekkuskóla á Akureyri vegna skrifa á persónulega bloggsíðu um samkynhneigð. 18.7.2012 10:03
Fíkniefnabrot þriðjungi fleiri í ár Fíkniefnabrot voru um þriðjungi fleiri fyrstu sex mánuði ársins en á sama tímabil í fyrra. Samkvæmt afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra voru 996 brot skráð á tímabilinu janúar til júní nú í ár. Um 72% brotanna voru vegna vörslu eða meðferðar fíkniefna, 9,7% voru vegna framleiðslu fíkniefna, 2% vegna sölu eða dreifingar og 5,.5% vegna innflutnings efna. Um 10% mála voru "ýmis fíkniefnabrot" en þar falla t.d. undir tilvik þar sem fíkniefni finnast á víðavangi. 18.7.2012 09:53
Russel Crowe fór út að hjóla í morgun Stórleikarinn Russel Crowe er staddur á Íslandi þessa daganna til að leika í mynd um Örkina hans Nóa. Leikarinn er duglegur að láta aðdáendur sína vita hvað hann er að gera á Twitter-síðu sinni. Í morgun sagðist hann hafa hjólað 20 kílómetra í Reykjavík. 18.7.2012 09:47
Tvö ungmenni handtekin eftir árás á lögreglumenn Tvö ungmenni voru handtekin í kópavogi í nótt eftir að þau höfðu ráðist á lögreglumenn, sem sendir höfðu verið á vettvang vegna ölvunar og fleiru, eins og segir í skeyti löreglunnar, sem neitar að gefa frekari upplýsingar um málsatvik. 18.7.2012 06:44
Þýsku hjónin fundin Hjónin sem leitað hefur verið að eru fundin. Hjónin fundust nú rétt í þessu á gönguleiðinni milli Engjasels og Múlaskála, sem er á gönguleiðinni suður í Lón. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg eru hjónin við góða heilsu. Björgunarsveitamenn og þyrla Landhelgisgæslunnar leituðu hjónanna fram til miðnættis í gær og hófst formleg leit aftur með morgninum. 18.7.2012 10:14
Vaðandi makrílgöngur víða um landið Makrílgöngur voru vaðandi upp í landssteinum á Eskifirði í gærkvöldi en í gærdag bárust fréttir af makrílgöngu við Hólmavík og reyndar víðar við Húnaflóa. 18.7.2012 08:00
Óvenjumikil berjaspretta í ár Berjaspretta er óvenjumikil miðað við árstíma og hefur Skessuhorn eftir starfsmönnum þjóðgarðsins Snæfellsjökuls að krækiberin séu þegar búin að taka lit. Þau séu því orðin æt, þó þau séu ekki orðin sæt og safarík eins og þau verða full þroskuð. 18.7.2012 07:24
Þegar uppselt á Bræðsluna Uppselt er á tónlistarhátíðina Bræðsluna sem haldin er á Borgarfirði eystri dagana 26. til 29. júlí næstkomandi. Aðaltónleikar hátíðarinnar fara fram laugardaginn 28. júlí. 18.7.2012 07:00
Formleg leit hefst að nýju að þýsku hjónunum Formleg leit hefst nú með morgninum að þýskum hjónum, sem saknað er við Eyjabakkajökul norðaustan af Vatnajökli, en eftirgrennslan að fólkinu stóð fram undir miðnætti. 18.7.2012 06:41
Uppþornaðar ár við gul tún Varla hefur væta komið úr lofti svo vikum og jafnvel mánuðum skiptir á stórum hluta landsins. Fjölmargir bændur horfa á túnin brenna. Ástandið í laxveiðiám í Borgarfirði og Dalasýslu þykir vera grafalvarlegt. 18.7.2012 06:30
Spornað við spóli úti á Granda Settar hafa verið upp hraðahindranir í Ánanaustum, en íbúar í grenndinni hafa mikið kvartað undan hávaða frá ökumönnum sem keyra þar um. „Það hefur svo sem aldrei verið neinn ofboðslegur hraði þarna, heldur aðallega hávaði vegna spóls,“ segir Kristófer Sæmundsson, varðstjóri Umferðardeildar lögreglunnar. 18.7.2012 06:00
Samningar við Huang Nubo langt komnir Samningaviðræður félags Huangs Nubo við sex sveitarfélög á Norðausturlandi um kaup og leigu á Grímsstöðum á Fjöllum eru langt komnar. Huang segir að heildarfjárfesting hans hér á landi muni nema ríflega 25 milljörðum króna. 18.7.2012 05:30
Lánaþakið tekið til endurskoðunar Til stendur að taka til endurskoðunar 20 milljón króna útlánaþak húsnæðislána Íbúðalánasjóðs. 18.7.2012 05:00
Óku um göturnar í hundakerru Óvenjuleg sjón blasti við vegfarendum á Egilsstöðum á föstudaginn var þegar aldraðir vistmenn á sjúkradeild Héraðssjúkrahúss Austurlands þeystust um götur í nágrenni sjúkrahússins á vagni sem tveir hundar drógu. 18.7.2012 05:00
Listastarfsemin er í gíslingu skrifræðis Hús Héraðsskólans á Laugarvatni stendur autt og málefni þess virðast í ólestri. Á meðan gæti svo farið að starfsemi Gullkistunnar verði á hrakhólum eftir ár. Sveitarstjóri vill líf í húsið en hið opinbera, sem á það, virðir hann ekki svars. 18.7.2012 04:30
Karlmaður elti dreng í Vesturbæ lUngur drengur sem hjólaði eftir Hjarðarhaga í Vesturbæ Reykjavíkur um níuleytið á mánudagskvöld varð nokkuð skelkaður þegar karlmaður á þrítugs- eða fertugsaldri kallaði á eftir honum úr bíl sínum og bað hann um að ræða aðeins við sig. Maðurinn ók gráum sportbíl með vindskeið og elti drenginn þegar hann neitaði og hjólaði sína leið. 18.7.2012 04:30
Áttatíu metra mylla í Hafinu „Að fengnum tilskildum leyfum er fyrirhugað að reisa vindmyllurnar í nóvember á þessu ári en umsóknin um virkjunarleyfi er hluti af því leyfisferli sem verkefnið þarf að fara í gegnum,“ segir Ásdís Ólafsdóttir hjá Landsvirkjun. 18.7.2012 04:00
Leit lokið í kvöld Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur lokið leit sinni að þýsku hjónunum í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Egilsstöðum verður leit haldið áfram á morgun. 18.7.2012 00:04
Hjónin ekki enn fundin Ekkert bólar á þýsku hjónunum sem ætluðu að ganga yfir Eyjabakkajökul á laugardaginn. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur leitað fólksins í kvöld og hefur sveimað yfir jöklinum síðustu klukkustundir. 17.7.2012 21:35
Sonurinn handleggsbrotinn og enginn tók eftir Móðir í Hafnarfirði hefur farið fram á að starfsfólk á leikskólum verði þjálfað í slysahjálp eftir að sonur hennar gekk handleggsbrotinn um deildir skólans í tvær klukkustundir. 17.7.2012 21:00
Niðurskurður farin að ógna öryggi sjúklinga Mikilvægt er að fjölga læknum svo heilsugæslan geti sinnt sínu hlutverki. Þetta segir lækningaforstjóri Heilsugæslunnar. Mikið álag hefur verið á starfsmönnum bráðadeilda og heilsugæslu vegna manneklu og skipulagsbreytinga. Heilsugæslulæknir segir þolmörkin brostin. 17.7.2012 20:30
Máney Dís fær iPad og brosir hringinn Hjálpsamir borgarar og félagasamtök brugðust skjótt við í gær eftir að við sögðum fréttir af henni Máney Dís, stúlku sem hefur legið rúmliggjandi á Barnaspítalanum í sumar og látið sig dreyma um iPad til að stytta sér stundir. Hún er nú farin að safna sér fyrir ferðalagi til að fara í þegar hún nær heilsu á ný. 17.7.2012 19:45
Magn frjókorna í hámarki Grasfrjó eru nú í hámarki samkvæmt mælingum Náttúrufræðistofnunar, fólki með ofnæmi til mikils ama. Lyfsali segir marga rugla saman kvefi og ofnæmi á þessum árstíma. 17.7.2012 19:00
Íslensk stjórnvöld styðja hertar aðgerðir gegn Sýrlandi Íslensk stjórnvöld lýsa yfir fullum stuðningi við hertar aðgerðir alþjóðasamfélagsins gagnvart Sýrlandi. Utanríkisráðherra ítrekar sömuleiðis fordæmingu á framferði sýrlenskra stjórnvalda. 17.7.2012 18:30
Þyrlan Landhelgisgæslunnar komin á staðinn Leit stendur enn yfir af þýskum hjónum sem ætluðu að ganga yfir Eyjabakkajökul. Þyrla Landhelgisgæslunnar er komin á staðinn en svæðið er illfært yfirferðar bæði ökutækjum og gangandi. 17.7.2012 18:13
Smokkurinn og almenn skynsemi enn bestu forvarnirnar gegn alnæmi Lyfið Truvada hefur verið samþykkt af bandaríska lyfjaeftirlitinu sem forvörn gegn alnæmissmiti. Yfirlæknir á sóttvarnarsviði Landspítalans segir að lyfið sé ekki nýtt af nálinni, notkun þess sem forvörn sé aftur á móti nýmæli. 17.7.2012 17:34
Leita þýskra hjóna Eftirgrennslan er hafin vegna þýskra hjóna í nágrenni við Snæfell, sem er hluti af Vatnajökulsþjóðgarði. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið austur til þess að taka þátt í hugsanlegri leit. 17.7.2012 16:09
Brunaboði fór í gang í Leifsstöð Brunaboði fór í gang í Leifsstöð nú á þriðja tímanum í dag. Þar reyndist þó ekki um eld að ræða heldur fór boðinn í gang vegna vinnu starfsfólks. Ekki kom til þess að flugstöðvarbyggingin yrði rýmd. 17.7.2012 15:06
Ætlar ekki að kæra Konan sem talið er að fjórir menn hafi brotið gegn í miðborg Reykjavíkur á sunnudagsmorgun ætlar ekki að kæra þá fyrir kynferðisbrot. Þetta segir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 17.7.2012 14:38
Hommar deila um eignarhald á ketti Karlmaður sakar fyrrverandi sambýlismann sinn um að hafa stolið frá sér ketti sem þeir héldu á meðan þeir voru í sambúð. Hann hefur kært manninn til lögreglunnar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu krafðist þess að fá að gera húsleit hjá sambýlismanninum fyrrverandi til að kanna hvort hann sé enn með köttinn í fórum sínum, en Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður hafnað kröfunni og Hæstiréttur komst að sömu niðurstöðu í gær. Meðferð málsins er enn fyrir dómstólum þrátt fyrir að kröfu um húsleitina hafi verið hafnað. 17.7.2012 13:52
Fjórir sluppu ómeiddir úr bílveltu Fjórir sluppu ómeiddir þegar bíll valt á Uxahryggjavegi, í grennd við Sandkluftavatn, í Bláskógabyggð rétt fyrir hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var enginn fluttur á slysadeild en bíllinn er töluvert skemmdur. 17.7.2012 13:50
Byrsmenn munu hugsanlega kæra til Mannréttindadómstólsins Ekki er útilokað að verjendur þeirra sem dæmdir voru í Exetermálinu í vor kæri niðurstöðu Hæstaréttar til Mannréttindadómstóls Evrópu. Þeir Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, og Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Byrs, voru dæmdir í fjögurra og hálfs árs fangelsi í vor fyrir brot á lögum um verðbréfaviðskipti. 17.7.2012 13:18
Andstyggileg brot sem gætu leitt til ævilangs fangelsis Brot mannanna sem hafa viðurkennt að hafa ráðist inn til manns í Breiðholti og haldið honum nauðugum í sex tíma í íbúð sinni fyrr í júlí eru andstyggileg. Mennirnir gætu átt yfir höfði sér ævilangt fangelsi, segir í gæsluvarðhaldskröfu sem lögreglan lagði fram á hendur mönnunum. Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir öðrum manninum til 10. ágúst. 17.7.2012 11:43
Íslendingar lýsa yfir stuðningi við hertar aðgerðir í Sýrlandi Íslensk stjórnvöld lýsa yfir fullum stuðningi við hertar aðgerðir alþjóðasamfélagsins gagnvart Sýrlandi en tillaga þess efnis er nú til umfjöllunar á vettvangi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna að frumkvæði Bretlands, Bandaríkjanna, Frakklands, Portúgal og Þýskalands. 17.7.2012 11:17
Íslendingar streyma enn til Noregs Alls fluttust 610 manns frá landinu umfram aðflutta á öðrum ársfjórðungi, eftir því sem fram kemur í tölum Hagstofunnar. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 220 umfram aðflutta, en brottfluttir erlendir ríkisborgarar voru 380 fleiri en þeir sem fluttust til landsins. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu. 17.7.2012 10:05
Russel Crowe tók daginn snemma Stórleikarinn Russel Crowe tók daginn snemma hér í Reykjavík. „Góðan daginn Reykjavík.... Í það minnsta held ég að það sé dagur...hann lítur út eins og nótt. Ég held að það dimmi ekkert. Ný reynsla fyrir mig að hafa sólina á lofti allan sólarhringinn," segir Crowe á Twitter. 17.7.2012 09:39
Margt bendir til íkveikju í Eyjum Margt bendir til að um íkveikju hafi verið að ræða, að sögn Eyjarétta, þegar milljónatjón varð eftir að eldur kom upp í veiðarfærum frá Ísfélaginu, sem voru geymd á Eiðinu í Vestmannaeyjum um klukkan sex í gærkvöldi. 17.7.2012 07:01
Logn olli útkalli hjá slökkviliðinu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í gærkvöldi þar sem logn hafði lagst yfir Seltjarnarnesið og vind hreyfði ekki. 17.7.2012 06:56