Máney Dís fær iPad og brosir hringinn Karen Kjartansdóttir skrifar 17. júlí 2012 19:45
Hjálpsamir borgarar og félagasamtök brugðust skjótt við í gær eftir að við sögðum fréttir af henni Máney Dís, stúlku sem hefur legið rúmliggjandi á Barnaspítalanum í sumar og látið sig dreyma um iPad til að stytta sér stundir. Hún er nú farin að safna sér fyrir ferðalagi til að fara í þegar hún nær heilsu á ný. Við sögðum frá því í gær að frá því í byrjun júní hefur hún Máney Dís legið á Barnaspítala Hringsins eða eftir að hún greindist með sjálfsofnæmissjúkdóminn Crohn's. Máney gerði sér grein fyrir því að hún gæti ekki dvalið úti í sólinni með jafnöldrum sínum og fór að búa til skartgripi sér til dægrastyttingar sem hún hefur svo selt því hún er að safna sér fyrir iPad. Eftir að fréttin fór í loftið höfðu fjölmargir samband og vildu kaupa hálsmen. En dularfullur velgjörðamaður leit einnig við hjá Máney í gær og afhenti henni pening. Hún segist ekkert vita hvaða maður þetta sé. Hann hafi bara sagst vilja veita henni styrk og rétt henni pening. Hún hafi þakkað fyrir sig og hann því næst farið, þá hafi hún fyrst séð að hann hafði rétt henni 50 þúsund krónur. Máney er því komin með næga peninga til að kaupa sér iPad en góðviljað fólk í Garðinum hefur hins vegar ákveðið að sjá um þau kaup. Dagbjört Hildur Torfadóttir, móðir Máneyjar, segir að Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi bæjarstjóri í Garði, hafi sent sér póst eftir fréttina og sagt að hann væri í forsvari fyrir viðburð sem kallaður er Skötumessa og er ætlað að styrkja fötluð og veik börn. „Þeir vilja gefa Máney iPad og hún brosti hún að eyrum þegar hún heyrði af þessu og við pabbi hennar eigum að mæta annað kvöld og taka við honum," segir Dagbjört Hildur. En gjöf Skötumessufólks er gefin í samstarfi við fyrirtækið Omnis. Skartgripirnir hennar Máneyjar eru til sölu á fésbókarsíðu móður hennar Dagbjartar Hildar Torfadóttur og þá geta áhugasamir einnig nálgast þá með því að senda póst á netfangið dagbjorth@ru.is. Máney hefur því ákveðið að byrja að safna fyrir nýjum hlut sem hún stefnir á þegar hún nær heilsu á ný.
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Fleiri fréttir Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira