Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Breytingar við ritstjórn Eiðfaxa Trausti Þór Guðmundsson, ritstjóri Eiðfaxa, lét af því starfi um áramótin. Hann hefur ritstýrt blaðinu í fimm ár. Nú tekur ritnefnd við útgáfu blaðsins, en formaður hennar er Telma Tómasson fréttamaður og tamningamaður. Fjórir sitja með henni í ritnefnd en það eru þau: 4.1.2012 23:06
Vann 38 milljónir í Víkingalottóinu Einn Íslendingur var svo heppinn að hreppa hinn alíslenska bónusvinning í Víkingalottóinu þegar dregið var í kvöld. Sá hinn sami fær tæpar 38,6 milljónir í sinn hlut. Það voru hins vegar þrír Norðmenn og einn finni sem skiptu með sér 1. vinningi í Víkingalottóinu, en hver þeirra fær í sinn hlut 66 milljónir króna. 4.1.2012 22:29
Mikill fengur í þátttöku Íslands í New York Þrjú íslensk verk verða sýnd á kynningu á íslenskum sviðslistum í New York um næstu helgi. Leiklistarsamband Íslands stendur fyrir kynningunni í samstarfi við hin Norðurlöndin. 4.1.2012 22:00
Enn skerpt á aðgreiningu ritstjórnarefnis og auglýsinga Skipulagsbreyting hefur verið ákveðin hjá 365 miðlum. Breytingin felur í sér að þeir starfsmenn ritstjórnar Fréttablaðsins sem hafa haft með höndum skrif í kynningarblöð sem fylgt hafa blaðinu færast yfir til sölu- og þjónustusviðs 365 miðla. 4.1.2012 21:37
Ósáttur við að ráðherra skyldi þurfa álit frá Umboðsmanni Formaður sambands íslenskra framhaldsskólanema gagnrýnir að þurft hafi álit frá umboðsmanni Alþingis til að menntamálaráðherra hlustaði á nemendur. Hann segir það ánægjuefni ef hverfaskipting vegna innskráningar verður afnumin. 4.1.2012 21:31
Landlæknir vill upplýsingar um brjóstastækkanir Landlæknir sendi í dag bréf til allra lýtalækna þar sem óskað er upplýsinga um þær sílíkonaðgerðir sem þeir hafa gert á brjóstum. Þá munu í fyrsta sinn liggja fyrir gögn um aldursdreifngu kvenna með sílíkonbrjóst og þróun á fjölda aðgerða eftir árum. 4.1.2012 21:22
Framlög vegna dagforeldra hækka um 10% Þeir sem eiga börn hjá dagforeldrum í Reykjavík geta glaðst því að framlag borgarinnar vegna barna sem dvelja hjá dagforeldrum hækkaði um 10% um nýliðin áramót. Þá hækkaði jafnframt systkinaafsláttur ef tvö eða fleiri systkini dvelja hjá dagforeldri. Framlag fyrir annað barn verður 75% hærra en með fyrsta barni og framlag með þriðja barni verður 100% hærra. 4.1.2012 21:10
Segir hunda geta verið manndrápstól Faðir fimm ára stúlku sem var bitin í andlit af hundi síðsumars telur ekki vit í öðru en að lóga hundi eftir að hafa bitið manneskju. Hann segir hunda geta verið manndrápsvélar og því sé rétt að skylda hundaeigendur til að sækja námskeið, rétt eins og þá sem sækja um byssuleyfi. 4.1.2012 19:37
Hávær krafa um að flýta landsfundi Nokkuð hávær krafa er um það innan Samfylkingarinnar um að flýta landsfundi flokksins og halda hann á fyrri hluta þessa árs. Flokkstjórnarmaður segir eðlilegt að forystan endurnýi umboð sitt. Litlar líkur eru á að landsfundurinn verði í vor að mati formanns framkvæmdastjórnar flokksins. 4.1.2012 19:09
Telja öruggt að Ólafur Ragnar næði góðu kjöri á þing Sérfræðingar í stjórnmálafræði telja nær öruggt að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, myndi ná góðum árangri í þingkosningum og ná nokkrum mönnum á þing færi svo að hann gæfi kost á sér. Ólafur er árinu yngri en sitjandi forsætisráðherra og í fullu fjöri á líkama og sál. 4.1.2012 18:52
Kanínan var dauð þegar hún brann Maður sem kveikti í kanínu og kanínukofa í Garðabæ, segir að kanínan hafi verið dauð þegar að hann kveikti í henni. Þetta er fullyrt á vef lögreglunnar. Í Fréttablaðinu í dag er sagt frá því að ungar stúlkur hefðu gengið fram á kanínuna og málið verið tilkynnt til lögreglu við litlar undirtektir. 4.1.2012 18:41
Íslendingur í fjórtán ára fangelsi í Danmörku Vestre Landsret í Danmörku staðfesti í dag 14 ára fangelsisdóm yfir íslenskum karlmanni, Lárusi Frey Einarssyni, sem fundinn var sekur um að hafa skotið konu til bana, í mars 2010. 4.1.2012 18:09
Fjórtán prósent landsmanna reykja daglega Um 14,3% landsmanna reyktu daglega að eigin sögn á síðasta ári. Um 4,6% sögðust reykja sjaldnar en daglega. Samtals reyktu því 18,9% fullorðinna daglega eða sjaldnar. Þetta eru niðurstöður sem koma fram í skýrslu sem Capacent Gallup gerði fyrir Landlæknisembættið. Skýrslan byggir á fjórum könnunum sem gerðar voru á tímabilinu febrúar til nóvember í fyrra. 4.1.2012 17:53
Vísir kannar vilja lesenda Forsetakosningar fara fram í vor eins og alþjóð veit og nú þegar eru menn farnir að velta fyrir sér eftirmanni Ólafs Ragnars Grímssonar á Bessastöðum, en í Nýársávarpi sínu sagðist hann ekki hyggja á endurkjör. Vísir hefur ákveðið að gefa lesendum sínum tækifæri til að láta í ljós skoðun sína á nokkrum einstaklingum sem hafa á síðustu dögum verið nefndir til sögunnar. 4.1.2012 15:42
Skoda stolið á nýársdag Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Skoda Octavia með skráningarnúmerið YJ-634 en honum var stolið á Háteigsvegi í Reykjavík síðdegis á nýársdag. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is 4.1.2012 15:22
Stefna á að mynda þúsund barna keðju í kringum Reykjavíkurtjörn Barnaheill - Save the Children á Íslandi mun á laugardaginn ýta úr vör átakinu Heillakeðja barnanna 2012 sem verður í gangi allt árið og er ætlað að vekja athygli á málefnum og réttindum barna. Í tilefni af átakinu ætla samtökin að mynda keðju þúsund barna í kringum Reykjavíkurtjörn en börnin verða öll með neonljós og munu gera bylgju þegar hringnum hefur verið lokað. 4.1.2012 14:33
Tekist á um sölu Perlunnar í borgarstjórn Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að hörð umræða hafi farið fram í gærkvöldi í borgarstjórn um sölu Perlunnar og hvernig að henni hafi verið staðið. 4.1.2012 13:30
Hreyfingin, Borgarahreyfingin og Frjálslyndir stefna á framboð Hreyfingin, Borgarahreyfingin og Frjálslyndi flokkurinn eiga í viðræðum um sameiginlegt framboð til næstu Alþingiskosninga. Þetta kemur meðal annars fram á bloggsvæði Friðriks Þórs Guðmundssonar, formanns Borgarahreyfingarinnar. 4.1.2012 13:01
Ljósmyndabók ársins hjá Time magazine prentuð hjá Odda Ein þeirra bóka sem var í hópi ljósmyndabóka ársins hjá Time magazine, er prentuð á Íslandi, nánar tiltekið hjá prentsmiðjunni Odda. Að sögn Arnars Árnasonar, markaðsstjóra Odda, hefur það færst mikið í aukana að Oddi sinni prentun fyrr Bandaríkjamarkað. Hann segir að veltan í slíkum verkefnum hafi tvöfaldast á milli áranna 2010 og 2011 sem sé spennandi þróun. "Oddi hefur prentað mikið af listaverka- og ljósmyndabókum og á meðal nýlegra verkefna var til dæmis stór sýningarskrá fyrir Guggenheim listasafnið, en við erum sérstaklega stolt af þessari ljósmyndabók" bætir Arnar við. 4.1.2012 12:13
Gætið ykkar á grýlukertunum íbúi í Þingholtunum hafði samband við lögregluna í morgun. Ástæðan var sú að hann hafði miklar áhyggjur af grýlukertum utan á húsi sínu. 4.1.2012 11:36
Hægt að treysta því að umsóknir verði metnar faglega í Kópavogi Guðríður Arnardóttir formaður bæjarráðs Kópavogs segir að umsækjendur um lóðir í bænum geti framvegis treyst því að umsóknirnar verði metnar faglega og málefnalega. Þetta segir Guðríður í tengslum við dóm sem féll í Hæstarétti fyrir áramótin sem var á þá leið að bærinn hafi mismunað umsækjendum um byggingarétt á Kópavogstúni árið 2005. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld hafi útilokað umsækjendur sem sóttu málið frá því að koma til álita við úthlutun á tveimur lóðum sem sótt var um. 4.1.2012 11:34
Lýst eftir vitnum að innbroti Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu um innbrot og þjófnað í sumarbústað við Sogsbakka í fyrrdag. Bústaðurinn stendur á milli Ljósafossvirkjunnar og Steingrímsstöðvar í Grímsnes- og Grafningshreppi. 4.1.2012 10:59
Hefur þú séð Dag Loga? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Degi Loga Ingimarssyni, 16 ára, sem hvarf frá heimili sínu í Reykjavík þann 30. desember síðastliðinn. 4.1.2012 10:49
Akurnesingar hætta við meiðyrðamál gegn Páli Baldvini Akraneskaupstaður hefur fallið frá meiðyrðamáli á hendur Páli Baldvini Baldvinssyni, gagnrýnanda á Fréttatímanum. Hann fór hörðum orðum um fyrsta bindið af Sögu Akraness í ritdómi sínum sem birtist í blaðinu í júlí á síðasta ári. 4.1.2012 10:45
Sprunga í rúðu þyrlu landhelgisgæslunnar vegna kulda Við flugtak TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar í gærmorgun kom sprunga í framrúðu þyrlunnar. Ákveðið var að snúa þyrlunni til flugvallar og skoða skemmdirnar samkvæmt upplýsingum á vef Landhelgisgæslunnar. 4.1.2012 10:07
Lögreglan vill lífsýni úr skyldmenni Rögnu Estherar Rannsóknarlögreglumaður sem starfar hjá rannsóknarlögreglunni í Portland Oregon í Bandaríkjunum, segir að þeir þurfi lífsýni úr skyldmenni Rögnu Estherar Sigurðardóttur. Þetta kemur fram í viðtali blaðsins Oregonlive við rannsóknarlögregluna Carol Thompson sem tilheyrir rannsóknardeild sem sérhæfir sig í óleystum morðmálum. 4.1.2012 09:50
Brunnin kanína í Garðabæjarhrauni "Við sáum bara að það var búið að brenna kanínuna og inni í kassanum var allt brunnið,“ segir Helga Berglind Tómasdóttir, ellefu ára, sem var úti að ganga ásamt frænku sinni, Söru Hlín Bjarnadóttur, tólf ára, í hrauninu við Garðabæ í gærdag. 4.1.2012 08:30
Innbrot í sumarbústað í Grímsnesi Lögreglunni á Selfossi barst í gær tilkynning um innbrot í sumarbústað i Grímsnesi, þaðan sem meðal annarra hluta var stolið sjónvarpstæki, fartölvu og áfengi. 4.1.2012 08:06
Fimm ungmenni gripin við hassreykingar Lögreglan stöðvaði bíl með fimm ungmennum um borð í vesturbæ Reykjavíkur í nótt, og er fólkið grunað um hassreykingar. Þeirra á meðal bílstjórinn. 4.1.2012 08:04
Fyrsta loðnan í ár veiddist í nótt Fjölveiðiskipin Jón Kjartansson og Börkur fengu í nótt fyrstu loðnuna í ár, austur af Langanesi, annað 100 tonn og hitt 170 tonn. 4.1.2012 08:00
Öflugur jarðskjálfti í Krísuvík Jarðskjálfti upp á 3,4 á Richter varð á tíunda tímanum í gærkvöldi með upptök vest-suðvestur af Krísuvík. 4.1.2012 07:45
Vill ekki borga dýrt og lélegt malbik Athafnamaðurinn Jón Ólafsson, eigandi vatnsverksmiðjunnar Icelandic Water Holdings í Ölfusi, sér ekki ástæðu fyrir fyrirtækið að taka þátt í malbikunarkostnaði bæjarfélagsins heim að verksmiðjunni. Bæjarstjórnin hyggst óska eftir að fyrirtækið taki þátt í kostnaðinum. 4.1.2012 06:00
Hlunnindi höfð af bændum „Lagabreytingin, sem að líkum verður aldrei dregin til baka, mun hafa alvarlegar afleiðingar fyrir landeigendur sem nýta hlunnindarétt sinn í dag. Réttindi verða með þessu færð frá landeigendum til ráðherra. Hlunnindanýting verður líklega háð undanþágu, öfugt við það sem er í dag,“ segir Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir, atvinnu- og nýsköpunarráðgjafi Bændasamtaka Íslands (BÍ). 4.1.2012 06:00
Friðlýsing Skerjafjarðar er ósamþykkt Skipulagsnefnd Kópavogsbæjar hefur ekki fjallað nægjanlega um friðlýsingu Skerjafjarðar innan sveitarfélagsins, að mati Kristins Dags Gissurarsonar, fulltrúa Framsóknarflokksins í nefndinni. Hann telur formann umhverfis- og samgöngunefndar bæjarins, Margréti Júlíu Rafnsdóttur, hafa fullyrt of mikið um málið, en hún sagði í Fréttablaðinu á mánudag að friðlýsingin gengi í gegn í janúar. 4.1.2012 05:00
Reykjavíkurskákmótið í Hörpu Skáksamband Íslands og Harpa hafa gert með sér samkomulag um að Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið verði haldið í Hörpunni næstu þrjú ár. Ríflega 20 stórmeistarar eru þegar skráðir til leiks á Reykjavíkurmótinu 2012, en þekktastur þeirra er tékkneski stórmeistarinn David Navara, en hann hefur 2.712 alþjóðleg skákstig. Þátttaka er öllum opin. 4.1.2012 05:00
Þrjátíu manns vinna í rækju Að jafnaði unnu á milli 20 og 30 manns í Rækjuvinnslu Ramma hf. á Siglufirði í fyrra og framleiðsla í takt við áætlanir, segir á heimasíðu fyrirtækisins. Verð á pillaðri rækju hækkaði nokkuð á árinu og eftirspurn var góð. Rækjuveiðar að vetri eru erfiðar og hefur frosið hráefni frá útlöndum verið notað til þess að brúa bilið í vinnslunni. Lítið framboð er af erlendri iðnaðarrækju og búast Siglfirðingar við að einhverjir dagar falli úr vinnslu í byrjun árs. 4.1.2012 04:00
Flugeldaruslið skilið eftir á götum Starfsmenn umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar reyna eftir föngum að hreinsa upp flugeldarusl eftir áramótin, að sögn Arnar Sigurðssonar, skrifstofu- og sviðsstjóra á Umhverfis- og samgöngusviði. 4.1.2012 04:00
Ekki ákveðið um vantraust Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort lögð verður fram tillaga um vantraust á ríkisstjórnina, að sögn Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Hann segir ríkisstjórnina veikari eftir breytingarnar um áramótin. 4.1.2012 03:30
Um 20 eftirskjálftar hafa mælst Tæplega 20 eftirskjálftar hafa mælst eftir að jarðskjálfti upp á 3,7 á Richter varð rétt vestan við Krýsuvík um klukkan 21:13 í kvöld. Allir hafa eftirskjálftarnir mælst innan við tvö stig að stærð, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Stóri skjálftinn fannst víða á Suðvesturlandi, meðal annars í Grindavík, Vatnsleysuströnd og á höfuðborgarsvæðinu. 3.1.2012 21:58
Minnisvarði um misheppnaðar uppfinningar reistur í Austurríki Minjasafn um mislukkaðar uppfinningar mun brátt opna í Austurríki. Meðal gripa í safninu verða flytjanleg göt, blýantar með engu blýi og fóðruð kökukefli. 3.1.2012 22:38
Loftsteinadrífa skellur á norðurhveli jarðar á morgun Íbúum á norðurhveli Jarðar er bent á að horfa til himins milli 7 og 8 fyrir hádegi á morgun en von er á árlegri loftsteinahríð. Drífan nefnist Kvaðrantítar og er með tilkomumeiri loftsteinadrífum sem eiga sér stað á hverju ári. 3.1.2012 20:48
Reykvíkingar fundu skjálfta Jarðskjálfti sem varð nærri Krýsuvík rétt eftir klukkan níu í kvöld fannst greinilega. Samkvæmt bráðabirgðamælingum Veðurstofu Íslands varð skjálftinn klukkan tólf mínútur yfir níu um 2,7 kílómetrum vestnorðvestan af Krýsuvík. Bráðabirgðamælingin sýnir að hann var 3,6 á Richterskvarða. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni varð jarðskjálftafræðingur á vakt enn að reikna út endanlegar niðurstöður. 3.1.2012 21:35
Óvíst hvort nemendur geti komist í hverfisskólann Nemendur á leið í framhaldskóla næsta haust geta ekki gengið að því vísu að komast í sinn hverfisskóla þar sem innritunarreglum verður breytt vegna athugasemda frá Umboðsmanni Alþingis. 3.1.2012 19:12
Segja skotveiðarnar hafa lítil áhrif á fuglastofnana SKOTVÍS, Skotveiðifélag Íslands, telur að skotveiðar hafi lítil áhrif á viðkomu bjargfugla á Íslandi, því árlega séu skotnir nokkrir tugir þúsunda úr stofnum sem telja milljónir. 3.1.2012 17:54
Fær ekki bætur eftir að hafa misst tvær tennur í rennibraut Akureyrarbær var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag af skaðabótakröfu föðurs tólf ára gamallar stúlku sem slasaðist í vatnsrennibraut í sundlaug Akureyrar árið 2007. 3.1.2012 16:26