Fleiri fréttir

Róleg nótt hjá lögreglu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu átti fremur rólega vakt í nótt samkvæmt varðstjóra. Ein líkamsárás var skráð í kjölfar fertugsafmælis þar sem ölvun fór úr böndunum en engin meiðsl urðu á fólki. Þá var önnur minniháttar íkamsárás tilkynnt hjá lögreglunni í vesturbæ en engar nánari upplýsingar fengust um hana. Tveir voru teknir grunaðir um ölvun við akstur og einn grunaður um fíkniefnaakstur auk þess að vera réttindalaus. Þá gistu fjórir fangageymslu lögreglu. Tveir fengu gistingu þar sem þeir voru ofurölvi og húsnæðislausir, einn vegna þess að hann neitaði að greiða reikning á veitingastaðnum Asía í miðborginni og einn gistir fangageymslu vegna heimilsofbeldis. Þá komu upp tvö minniháttar fíkniefnamál.

Minna um hálkuslys

Þrír komu með beinbrot slysavarðstofu á Landspítalanum eftir að hafa runnið í hálku í nótt. Það eru mun færri en komu aðfaranótt laugardagsins að sögn Guðrúnar Eiríksdóttur, kandidats á Landspítalanum. Guðrún segir fyrri nóttina hafa verið óðs manns æði, en þá komu um tíu manns á spítalann með brotin bein eftir hálkuslys. Fólk virðist því hafa varkárara í nótt sem leið eða bara sleppt því að fara út yfir höfuð, enda leiðinlegt veður.

Ekkert mál að bjarga Nasa

Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður segir það einfalda lausn að Reykjavíkurborg leigi húsnæði skemmtistaðarins NASA af eiganda þess til að viðhalda mikilvægri tónleikastarfsemi þar. Hann mun hlekkja sig við vinnuvélarnar ef þær koma til að rífa húsið. Eiganda skemmtistaðarins NASA við Austurvöll var tilkynnt í gær að hún þyrfti að hætta starfsemi í húsinu fyrsta júní næstkomandi þar sem eigandi hússins ætlar að rífa það og byggja hótel í staðinn. Húsið er einungis friðað að litlu leyti og því hægt að rífa staðinn þar sem nú er tónleikasalurinn er í dag og halda framhlið hússins óbreyttri.

Lýtalæknirinn mögulega skaðabótaskyldur

Ábyrgð lýtalæknisins er mun meiri þar sem hann flutti púðana inn sjálfur, að mati talsmanns neytenda. Hann telur að konur sem fengu grædda í sig PIP púða hér á landi geti átt rétt á skaðabótum. Þrjátíu íslenskar konur með gallaða sílikonpúða frá franska framleiðandanum PIP hafa fengið lögfræðing til að undirbúa málsókn á hendur lýtalækni sínum, Jens Kjartanssyni. Konurnar krefjast þess að fá púðana fjarlægða sér að kostnaðarlausu.

"Flugið verður fyrir þá ríku“

Einungis þeir efnameiri munu geta nýtt sér flugþjónustu innanlands þar sem opinber gjöld af hverjum flugmiða hafa meira en tvöfaldast á síðustu þremur árum. Þetta segir Framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands. Í vikunni voru tilkynntar gífurlegar hækkanir á innanlandsflugi. Til dæmis munu lendingargjöld á Reykjavíkurflugvelli hækka um 72 prósent, farþegagjöld um 71 prósent og flugleiðsögugjald um 22 prósent. Samtals munu þessar hækkanir þýða yfir 100 milljóna kostnaðaraukningu fyrir Flugfélag Íslands á þessu ári. Til stendur að hækka þessi gjöld aftur eftir ár og sér Flugfélagið fram á 150 milljóna hækkun þá.

Mikið um hálkuslys

Asahláka hélt áfram að hrella borgarbúa í nótt og í dag. Fullt var út úr dyrum á bráðamóttöku landspítalans í nótt vegna hálkuslysa og mannbroddar ruku út eins og heitar lummur. Asahláka hefur valdið miklum usla á höfuðborgarsvæðinu undanfarna sólarhringa eftir að snjórinn fór að bráðna í burtu og skildi eftir flughált íslag sem margir eiga erfitt með að fóta sig í. Þannig þurftu fjölmargir að leita á slysadeild landspítalans en læknir þar segir marga verða óstöðugri þegar þeir eru að skemmta sér í miðbænum.

Þykkasta atvinnublað síðustu ára

Sérfræðingar vinnumiðlana eru sammála um að árið fari af stað með meiri krafti á vinnumarkaði en sést hefur frá hruni. Til marks um það gaf Fréttablaðið út þykkasta atvinnublað sem prentað hefur verið í meira en þrjú ár. Það sem blasti við lesendum dagblaðanna í morgun var meira í ætt við uppflettirit en auglýsingabækling. Byggingavöruverslunin Bauhaus auglýsir eftir starfsfólki í tugi starfa og atvinnublaðið í miðju Fréttablaðsins er það stærsta sem komið hefur út eftir hrun bankanna. Blaðið er 32 síður í dag, sem er öllu lengra en þunnildin sem prentuð voru fyrir þremur árum. Og það er kannski táknræknt að fremst í blaðinu er auglýst eftir sérfræðingi í ráðningum.

Fimmfaldur pottur næstu helgi

Enginn hreppti fyrsta vinning í Lottóinu í kvöld sem hljóðaði upp á tæpar 30 milljónir. Því verður potturinn fimmfaldur næst. Vinningstölurnar voru 3 17 19 23 36 og bónustalan var 31. Tveir voru með fjórar tölur réttar auk bónustölu. Þeir hljóta 194.000 í vinning.

Forsendur stjórnvalda um Vaðlaheiðargöng óraunhæfar

Pálmi Kristinsson, verkfræðingur hefur tekið saman skýrslu um Vaðlaheiðargöng. Þar byggir hann á eigin útreikningum og athugunum á kostnaðarþáttum, tekjuþáttum og fjármögnun ríkisins auk þess sem stuðst er við fyrirliggjandi forsendum stjórnvalda. Meginniðurstöður skýrslunnar eru að innheimta veggjalda muni ekki ná að standa undir öllum kostnaði við Vaðlaheiðargöng. Einnig býst hann við að endanlegur kostnaður við göngin verði hærri en gert er ráð fyrir.

Tjörnin neon-lýst fyrir börnin - myndaalbúm

Hátt á fimmta hundrað manns mættu við tjörnina til að mynda heillakeðju og vekja athygli á réttindum barna. Hersingin gekk með neon-ljós hringinn í kringum tjörnina og að göngu lokinni fengu allir heitt kakó frá Iðnó og stjörnuljós frá Landsbjörg. Meðfylgjandi myndir voru teknar við tjörnina í dag. Markmiðið var að safna saman nægu fólki til að mynda órofna keðju hringinn kringum tjörnina. Markmiðið náðist ekki alveg. Eins og sagt var frá fyrr í dag markaði atburðurinn upphaf samvinnuverkefnis Barnaheilla og tólf íslenskra fyrirtækja. Markmið samstarfsins er að safna peningum sem varið verður börnum í hag og vekja athygli á réttindum barna.

Vilja afsökunarbeiðni vegna skaupsins

Norræna félagið í Hveragerði mæltist í dag til þess að Páll Magnússon bæðist afsökunar á brandara úr áramótaskaupinu þar sem fjöldamorðin í Noregi voru höfð í flimtingum. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem birtist á vefsíðu Fréttablaðs Suðurlands. Yfirlýsingin í heild hljóðaði svona: "Norræna félagið í Hveragerði harmar að í áramótaskaupi Ríkisútvarpsins skuli fjöldamorðin í Noregi í sumar sem leið, hafa verið flokkuð sem tilefni spaugsyrða. Mælist félagið til þess að útvarpsstjóri biðjist opinberlega afsökunar á þessu atviki, ekki aðeins Norðmanna vegna, heldur einnig fyrir sakir sjálfsvirðingar Íslendinga. F.h. félagsins, Kristbjörg Erla Hreinsdóttir."

Snjóhreinsun enn á fullu

Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa unnið að snjóhreinsun á um tíu tækjum í allan dag. Unnið var að söltun og söndun göngustíga. Á morgun verður að öllum líkindum ekki unnið að snjóhreinsun. Starfsmenn verða hins vegar í ráspólunum og tilbúnir í útköll ef hláka myndast. "Ef það kemur einhver asahláka þá tökum við í taumana hvað það varðar," segir Þorsteinn Birgisson, yfirstjórnandi hjá Reykjavíkurborg. Unnið hefur verið að því undanfarið að hreinsa kringum niðurföll og greiða leið affallsvatns af bráðnandi svellbunkanum sem liggur yfir borginni.

Biophilia til New York

Björk tilkynnti í gær að hún myndi fara með Biophilia-sýninguna sína til New York. Hún ætlar sér að halda tíu sýningar í febrúar næstkomandi. Sex sýningar verða haldnar í New York Hall of science, seinni fjórar verða svo haldnar í Roseland Ballroom á Manhattan. Ekki eru fleiri sýningar í bígerð í Bandaríkjunum. Sýningin hefur fengið glimrandi viðtökur frá gagnrýnendum. Í henni teflir Björk fram stúlknakór sem telur 24 stúlkur auk fjölda nýstárlegra hljóðfæra sem hún hannaði sjálf með samstarfsmönnum sínum.

Jólatré liggja úti

Um þessar mundir liggja einmanaleg jólatré eins og hráviði víða um borgina. Síðustu daga hafa jólatrén staðið úti í horni á heimilum fólks og gefið jólahaldi þeirra hátíðlegan blæ. Nú rífa margir af þeim skrautið í hvelli, varpa þeim út í kuldann og hugsa svo ekki meir út í það. Því er rétt að taka fram að sorphirða Reykjavíkur hirðir ekki jólatré í ár. Fólk verður sjálft að sjá um að koma jólatrjám sínum á endurvinnslustöð. Sorpa tekur ekki gjald fyrir. Fyrir hina tímabundnu bjóða ýmsar íþróttahreyfingar upp á þá þjónustu að hirða jólatré að hátíðunum loknum. Skógræktarfélag Reykjavíkur og Gámaþjónustan hafa einnig samstarf um hirðingu jólatrjáa. Slík þjónusta kostar hins vegar alla jafna.

Árekstur á Bústaðarvegi

Árekstur varð á mótum Bústaðarvegar og Efstaleitis um þrjúleytið í dag. Ökumaður sem ætlaði að beygja af bústaðarveginum og upp Efstaleitið ók í veg fyrir annan sem var á leið vestur eftir Bústaðarvegi. Bílarnir skemmdust en farþegar og ökumenn sluppu allir ómeiddir.

Yfirlýsing væntanleg frá Jóni Gnarr

Jón Gnarr mun gefa frá sér yfirlýsingu vegna forsetakosninga í næstu viku. Þetta tilkynnti hann í dag á facebook síðu sinni. Þegar hann er spurður neðar á þeim þræði hvort hún verði jákvæð eða neikvæð segir hann "Hún verður góð". Nafn Jóns Gnarr kemur iðulega upp þegar menn velta fyrir sér hver verði eftirmaður Ólafs Ragnars Grímssonar á Bessastöðum. Í könnun sem Vísir gerði meðal lesenda sinna var Jón Gnarr í fimmta sæti sem næsti forseti. Á facebook síðu sinni hefur hann þakkað þann stuðning.

75 daga einangrun ár hvert

Íbúi í Árnesi við Trékyllisvík segist vera algjörlega einangraður í tæplega þrjá mánuði á ári þegar vegagerðin ryður ekki vegarkafla á Vestfjarðakjálkanum. Hann er flughræddur og kann því illa að geta ekki keyrt út fyrir sveitina þegar á þarf að halda. Árneshreppur er ein afskekktasta byggð landsins. Þar búa vel á annan tug fjölskyldna og þar kvíðir fólkið 6. janúar ár hvert. Ástæðan er sú að frá þeirri dagsetningu og næstu 75 daga er vegurinn þangað ekki ruddur, en Árneshreppur er eina sjálfstæða sveitarfélag landsins sem fellur undir svokallaða G-reglu um þjónustustig snjómoksturs, að því er fréttavefurinn strandir.is greinir frá.

Heita áfram Björt framtíð

Hið nýstofnaða stjórnmálaafl Guðmundar Steingrímssonar, Björt framtíð, mun ekki skipta um nafn eftir því sem segir í frétt mbl. "Við ætlum ekki að skipta um nafn og ég óska Nýrri framtíð bjartrar framtíðar," sagði Guðmundur Steingrímsson. Pólitísku samtökin Ný framtíð hafa óskað eftir því að Björt framtíð skipti um nafn til að koma í veg fyrir misskilning.

Listamenn tilbúnir að verja Nasa

Hljómsveitin Agent Fresco sagði á facebook síðu sinni að þeir væru í áfalli eftir þeir heyrðu af áformum um að rífa skemmtistaðinn Nasa. Þeir minna á að hópur listamanna tók sig saman árið 2009 og mómælti sömu ákvörðun. Þar fór Páll Óskar fremstur í flokki en strákarnir í Agent Fresco lögðu sín lóð á vogarskálarnar auk annara. Þeir segjast reiðubúnir að gera það aftur núna. "Ef við getum eitthvað gert til að vekja athygli á þessu munum við gera það. Ekki spurning," segir Arnór Dan Arnarson, söngvari sveitarinnar.

Margir fara flatt í hálkunni

Mikil hálka er nú á götum og gangstéttum borgarinnar og er vegfarendum ráðlagt að fara varlega. Mikill erill var á slysadeild Landspítalans í nótt vegna hálkuslysa og búist við fleirum þegar líður á daginn. Asahlákan fór ekki framhjá borgarbúum í gær en stórir pollar mynduðust á hálfbráðnuðu íslagi sem safnast hefur saman og myndar stórhættulegt svell, þá hafa hjólför myndast í snjólögum og safnast vatn nú þar saman sem getur falið hálkuna.

Barnakeðja og neon-ljós við tjörnina

Barnaheill á Íslandi ætla í dag að freista þess að mynda keðju í kringum Reykjavíkurtjörn með aðstoð 1000 barna til að vekja athygli á réttindum barna hér á landi en að sögn samtakanna hefur sjaldan verið brýnna en nú að standa vörð um málefni þeirra. Börn og foreldrar þeirra eru hvött til að taka þátt í þessu framtaki en boðið verður upp á heitt kakó og svo verður kveikt á stjörnuljósum og blysum. Keðjan verður mynduð klukkan fjögur.

Leggjum pinnið á minnið

Hundruðir sölustaða um allt land eru nú komnir með örgjörvaposa þar sem viðskiptavinir þurfa að stimpla inn pin númer til að ljúka greiðslu. Verkefnastjórinn segir breytinguna hafa gengið vel en nú eru þrjú af hverjum fjórum kortum hér á landi komin með örgjörva. Það var í júní í fyrra sem verkefninu pinnið á minnið var hleypt af stokkunum og fyrstu fyrirtækin fóru að nota örgjörvaposa sem gerir fólki kleift að staðfesta viðskipti með pin númeri.

Stærsta atvinnublað síðustu ára

Atvinnublaðið í miðju Fréttablaðsins í dag, þar sem fyrirtæki og stofnanir birta auglýsingar eftir starfsfólki, er það langstærsta sem komið hefur út frá því fyrir hrun, að því er segir í blaðinu. Ekki er heldur víst að jafnstórt blað hafi heldur komið út í góðærinu. Blaðið er 32 síður, en haft er eftir umsjónarmönnum blaðsins að það sé til marks um jákvæða þróun í atvinnumálum.

Nóttin hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins

Fjórir dvöldu fangageymslur lögreglunnar við Hverfisgötu í nótt. Einn af þeim var maður sem handtekinn var fyrir að hlaupa upp á bifreiðar er stóðu við Skólavörðustíg. Sá var handtekinn rétt fyrir sex í morgun. Erfiðlega gekk að hemja hann og því var hann vistaður í fangaklefa. Rætt verður við hann um hegðan sína þegar af honum rennur. Ekki er vitað hve mikið tjón hlaust af uppátæki hans. Málið er á forræði lögreglustöðvar nr. 5 í Vesturbæ.

Óska eftir öðru nafni

Pólitísku samtökin Ný framtíð hafa óskað eftir því að stjórnmálaflokkurinn Björt framtíð, sem að Guðmundur Steingrímsson og Heiða Helgadóttir eru í forsvari fyrir, breyti um nafn. Í tilkynningu sem Ný framtíð sendi frá segir að ljóst hafi verið í meira en mánuð að til stæði að endurvekja Nýja framtíð, en starf samtakanna hafði legið niðri í nokkur ár. Ný framtíð hvetur Bjarta framtíð til að velja sér annað nafn sem síður leiðir til ruglings og óþæginda.

Hálka og slæm færð á landinu

Vegagerðin varar við hálku eða flughálku um allt land og biður vegfarendur á lengri leiðum að athuga að færð breytist mjög hratt og því gott að fylgjast með færð og ástandi á leiðinni. Það eru hálkublettir á Sandskeiði og á Hellisheiði en hálka í Þrengslum. Flughálka er frá Reykholti að Gullfoss og hálka á öðrum leiðum. Flughálka er á Suðurstrandar-og Krýsuvíkurvegi. Á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði. Á Snæfellsnesi er flughálka sem og í uppsveitum Borgarfjarðar. Hálka eða hálkublettir eru á öðrum leiðum. Á Vestfjörðum er flughálka á Barðaströnd, Dýrafirði og víðar. Á öðrum leiðum er hálka en þó snjóþekja og éljagangur á Þröskuldum. Áframhaldandi hálka er svo á Norðurlandi og sumstaðar éljagangur. Flughált er á útvegum. Norðaustanlands er víða snjóþekja og éljagangur. Á Austurlandi er hálka og skafrenningur á Fjarðarheiði og Fagradal en hálka, snjóþekja og sumstaðar flughálka á öðrum leiðum. Suðaustanlands er hálka.

Kindle tekur við af skólabókunum

Vogaskóli verður fyrsti íslenski skólinn til að rafbókavæðast, en á þriðjudag fá allir nemendur við níunda bekk skólans afhenta Kindle spjaldtölvu til notkunar á vorönn í tilraunaskyni. Kindle varð fyrir valinu þar sem spjaldtölvan er einföld, handhæg og hentar eingöngu til lestrar, svo nemendur geta ekki laumað sér á Fésbókina eða leikjasíður. Verkefnið er unnið í samvinnu við Námsgagnastofnun og Skólavefinn. Allt námsefni sem hentar rafbókarforminu verður sett inn á lesarana, en nemendurnir munu notast við rafbækurnar í íslensku, samfélagsfræði og dönsku. Meðal annars verður reynt að leggja mat á hvort rafbækur geti komið í stað hefðbundinna kennslubóka og hvort þær hjálpi nemendum sem glíma við lestrarörðugleika.

Stolið úr slökkviliðsbíl

Búnaði var stolið úr dælubíl slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu sem var í útkalli um hálf þrjú leytið í nótt. Þjófarnir fóru inn í skáp á bílnum þegar hann stóð í Bankastræti og höfðu þaðan tæki og tól. Þó búnaðurinn hafi í sjálfu sér ekki verið dýr er það litið alvarlegum augum þegar stolið er úr slökkviliðsbílum. "Þessi búnaður er auðvitað ætlaður til að bjarga mannslífum og verðmætum og við treystum á að hann sé á sínum stað,“ segir slökkviliðsmaður á vakt.

Jólasveinarnir kvaddir á Selfossi

Mikill mannfjöldi kom saman á Selfossi til þess að kveðja jólasveinanna og aðrar vættir sem þar söfnuðust saman. Íbúar á Selfossi fóru í kyndilgöngu í fylgd jólasveina frá Tryggvaskála og bennustæði við tjaldsvæði Árborgar þar sem kveikt var í bálkesti. Björgunarsveitin Árborg og Ungmennafélagið Selfoss sáu svo um glæsilega flugeldasýningu. Við bálköstinn mættu svo, auk jólasveinanna, álfar og tröll að ógleymdum Grýlu og Lepplúða.

Blóðugir dagar í Nígeríu

27 manns hafa látið lífið í Nígeríu í þremur árásum á jafnmörgum dögum. Árásirnar hafa beinst gegn kristnu fólki á leið til eða frá helgihaldi. Forseti landsins hefur lýst yfir neyðarástandi vegna árásanna. Árásirnar urðu í bæjunum Mubi og Gombe sem eru í norðausturhluta landsins. Sú fyrsta varð þegar skotið var á kirkju meðan á messu stóð á fimmtudaginn. Þá dóu sex manns. Næsta árásin varð daginn eftir þegar skotið var á þá sem syrgðu fórnarlömbin úr fyrri árásinni. Þá létust 18 manns. Aðfararnótt laugardagsins braust loks út skotbardagi í bænum Mubi.

25 heimili yfirgefin í fyrra vegna svepps

Á síðasta ári þurftu 25 fjölskyldur og einstaklingar að yfirgefa heimili sín í lengri eða skemmri tíma, og sumir fluttu alfarið burt, vegna myglusvepps. "Og það gerir enginn nema tilneyddur,“ segir Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur og stofnandi fyrirtækisins Hús og heilsa, sem sérhæfir sig í rannsóknum á húsnæði vegna raka og þeirra lífvera sem þrífast þar.

Grunaðir eru alls ekki allir ákærðir

Hvað þýðir það að hafa réttarstöðu sakbornings í rannsóknum sérstaks saksóknara? Fleiri en hundrað einstaklingar hafa réttarstöðu sakbornings í rannsóknum sérstaks saksóknara á málum tengdum bankahruninu. Sumir þeirra eru grunaðir í fleiri málum en einu.

Grunur um heiftarlega hræeitrun

Sex hross drápust á bænum Eystra-Fróðholti í Landeyjum í fyrradag. Þetta voru fjögur folöld, ung hryssa og önnur eldri, allt vel ættaðir gripir. Getgátur eru um að dauði hrossanna stafi af svæsinni hræeitrun.

Ekki hægt þótt skráin gagnist

Landspítalinn má ekki reka gagnagrunn um alla sjúklinga með skorpulifur og lifrarsjúkdóm á lokastigi. Persónuvernd segir að þótt gagnagrunnurinn geti þjónað góðum tilgangi og haft hagrænan og faglegan ávinning þá standist hann ekki persónuverndarlög. Stofnunin geti ekki heimilað gerð gagnagrunna með viðkvæmum persónuupplýsingum til varðveislu á persónugreinanlegu formi til frambúðar. Af dómi Hæstaréttar frá árinu 2003 megi ráða að til reksturs slíkra skráa þurfi lagaheimild. „Skráin er meðal annars notuð til að fá yfirsýn yfir árangur læknisfræðilegra inngripa og lifrarígræðslna og gæðaeftirlit,“ sagði í skýringum Landspítalans til Persónuverndar.

Júlli búinn að opna Drauminn

Júlíus Þorbergsson, kaupmaður í Draumnum við Rauðarárstíg, hefur opnað verslun sína á nýjan leik. Hún hefur verið lokuð í eitt og hálft ár, síðan lögregla gerði húsleit þar og innsiglaði hana sumarið 2010.

Samkeppni um lokun hyldýpis

Þingvallanefnd hefur efnt til samkeppni um gerð og hönnun öruggrar gönguleiðar um Kárastaðastíg þar sem djúp gjóta opnaðist í stíginn ofan í Almannagjá í fyrra. „Gjótan sem opnaðist í stígnum vorið 2011 kom öllum mjög á óvart, enda er hún allt að tíu metrar á dýpt og nokkrir tugir metra á lengd,“ segir í tilkynningu um samkeppnina sem haldin er í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Fram kemur að ekki sé einhugur í Þingvallanefnd um frágang gjótunnar. „Vonast er til að samkeppnin leiði fram einfalda og snjalla lausn á gerð gönguleiðarinnar.“

Sættast ekki á skertan hlut af auðlindum

Bæjarráð Hveragerðis segist harma hugmyndir starfshóps sjávarútvegsráðherra um ráðstöfun veiðileyfagjalds vegna fiskveiða við Ísland. Samkvæmt hugmynd starfshópsins, sem skipaður var af Jóni Bjarnasyni, þáverandi sjávarútvegsráðherra, á 50 prósent af veiðileyfagjaldinu að renna í ríkissjóð, 40 prósent til sjávarbyggða og 10 prósent til þróunar- og markaðssmála í sjávarútvegi.

Yfir 50 unnu við snjóruðning

Yfir 50 starfsmenn Reykjavíkurborgar og verktaka á hennar vegum voru við snjóhreinsun víða um borgina í dag. Eftir fannfergi næturinnar þurfti að opna aðalleiðir í efri byggðum borgarinnar og þegar það hlánaði í dag var byrjað að hreinsa frá niðurföllum.

Aukin starfsemi á mörgum sviðum þrátt fyrir niðurskurð

Komum á bráðamóttöku Landspítalans fjölgaði um 5,6% á nýliðnu árið miðað við árið á undan, legudögum fjölgaði um 3,5% og fjöldi skurðaðgerða jókst um 4,9%. Þetta kemur fram í föstudagspistli Björns Zoega forstjóra Landspítalans í dag.

Þrjátíu árekstrar í dag

Þrjátíu árekstrar hafa orðið á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan níu í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Árekstur.is eru sex ökutæki ónýt eftir daginn. Ástæða árekstranna er í flestum tilfellum hálka og snjór. Álíka margir árekstrar urðu á höfuðborgarsvæðinu í gær. Full ástæða er til þess að hvetja ökumenn til þess að fara varlega.

Íhuga að tryggja konum skoðanir og greiða fyrir aðgerðir

Velferðaráðuneytið íhugar að tryggja íslenskum konum með PIP sílikonpúða skoðanir og að greiða fyrir aðgerðir þar sem fjarlægja þarf púða sem leka. Nokkrar konur með gallaða púða hafa þegar látið fjarlægja þá að eigin frumkvæði.

Ný lögreglustöð á Grensásvegi

Ný lögreglustöð hefur verið opnuð á Grensásvegi 9 í Reykjavík. Þaðan er sinnt verkefnum austan Snorrabrautar til vestan Elliðaáa. Á lögreglustöðinni eru bæði almennt svið og rannsóknarsvið. Helstu stjórnendur eru Árni Vigfússon aðstoðaryfirlögregluþjónn, Gunnar Hilmarsson aðalvarðstjóri og Haraldur Sigurðsson lögreglufulltrúi. Árni er jafnframt stöðvarstjóri.

Aðgerðaráætlun vegna brjóstafyllinga kynnt í næstu viku

Heilbrigðisyfirvöld á Íslandi ætla að kynna aðgerðaráætlun í næstu viku til þess að aðstoða þær konur sem hafa fengið PIP-brjóstafyllingar. Verið er að safna nauðsynlegum upplýsingum til að fá yfirsýn yfir umfang málsins hér á landi og erlendis. PIP fyllingarnar hafa verið töluvert til umræðu á Íslandi, og víðar, síðastliðna daga eftir að í ljós kom að þær geta lekið og grunur vaknaði um að þær geti valdið krabbameini. Landlæknir og Lyfjastofnun fylgjast grannt með þróun mála varðandi málið, eftir því sem fram kemur á vef Landlæknis.

Brunavarnarkerfið fór í gang í Þjóðleikhúsinu

Slökkviliðið var kallað að Þjóðleikhúsinu síðdegis þegar brunavarnakerfið þar fór í gang. Ekki reyndist um eld að ræða heldur hafði kerfið farið í gang þegar verið var að þrífa í húsinu. Slökkviliðsbílnum var því snúið við um leið og búið var að sannreyna hverjar ástæður brunaboðsins voru.

Lögreglan fann 300 kannabisplöntur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu eftir hádegi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 300 kannabisplöntur. Tveir menn voru handteknir á vettvangi og viðurkenndu þeir aðild sína að málinu.

Sjá næstu 50 fréttir