Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nesval einnig opið Það er ekki bara Pétursbúð sem er opin í dag því verslunin Nesval að Melabraut á Seltjarnarnesi er opin til klukkan 21 í kvöld. Í tilkynningu segir að góð jólastemming sé í versluninni. 25.12.2011 15:52
Festust á leið til Þingvalla í nótt Hjálparsveit skáta í Kópavogi var kölluð til aðstoðar á Nesjavallaleið rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Þar sat bíll fastur með erlendum ferðamönnum sem voru á leið til Þingvalla. Samkvæmt upplýsingum frá hjálparsveitinni var einn bíll sendur á staðinn sem aðstoðaði ferðamennina að halda för sinni áfram. 25.12.2011 15:22
Um 600 Íslendingar halda jólin í 26 stiga hita Um 600 Íslendingar eru nú staddir á Kanaríeyjum þar sem jólin er haldin hátíðleg og að íslenskum sið. Þar er þó engin snjór heldur 26 stiga hiti og sól. 25.12.2011 14:00
Pétursbúð opin í dag Kaupmaðurinn á horninu er með búðina opna í dag, en Pétursbúð skýtur stóru verslunarkeðjunum þannig ref fyrir rass, sem flestar hafa lokað yfir jólin. Hægt verður að komast í apótek á tveimur stöðum á landinu, en ÁTVR verður lokuð fram á þriðjudag. 25.12.2011 12:14
Föt af bæjarbúum úti í fjöru Snögg viðbrögð björgunarsveitarmanna í Neskaupstað komu í veg fyrir stórtjón þegar tvö stór skip slitnuðu frá bryggju í veðurofsanum í gærkvöldi. Veður hefur nú lygnt um allt land en vegagerðin varar við að aðeins er mokstur á helstu umferðaræðum í kringum höfuðborgarsvæðið. 25.12.2011 12:08
Frítt að hringja til útlanda í dag Í dag, jóladag, ætlar Síminn að bjóða öllum viðskiptavinum sínum sem eru með heimasíma að hringja til útlanda án endurgjalds. 25.12.2011 10:47
Hjálpuðu tveimur jólasveinum að dreifa pökkum Hjálparsveit skáta í Hveragerði aðstoðaði nokkra bíla sem lentu þar í vandræðum upp úr klukkan fimm í nótt. Slæmt veður var á heiðinni, samkvæmt upplýsingum frá hjálparsveitinni. Í tilkynningu segir að þegar félagar sveitarinnar höfðu lokið við að aðstoða bíla á heiðinni hafi komi beiðni frá Jólasveinum um að aðstoða þá við að dreifa nokkrum jólapökkum í Hveragerði, þar sem mikill snjór var í bænum í morgun. Félagar í hjálparsveitinni fóru því á tveimur sérútbúnum björgunarsveitarbílum og sáu til þess að allar gjafirnar komust til skila. 25.12.2011 09:52
Jólasnjórinn kemur manni í jólafíling Jólalegt er um að litast höfuðborgarsvæðinu þessa stundina en um klukkan sex í morgun byrjaði að snjóa af krafti. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni hefur snjóað mikið frá klukkan sex til níu, en búist er við meiri snjókomu í dag. 25.12.2011 09:23
Trúin tengir kynslóðir saman Trúin tengir okkur saman, kynslóðirnar í þessu landi, sagði herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, í sjónvarpspredikun sinni sem var sýnd í gær. Mikilvægt væri að hafa það í huga. 25.12.2011 08:00
Veginum milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur lokað Búið er að loka veginum milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur vegna ófærðar og snjóflóðahættu. Lögreglan segir ekkert ferðaveður vera á svæðinu og hafa þar til gerðar lokunargrindur verið settar upp beggja vegna. Ekki er búist við að vegurinn opnist í kvöld eða nótt. 24.12.2011 17:53
Veðrið að skána á höfuðborgarsvæðinu Óveðrið á höfuðborgarsvæðinu er að ganga niður, segir Haraldur Eiríksson veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. 24.12.2011 15:55
Aftansöngur jóla frá Grafarvogskirkju Eins og fram hefur komið verður aftansöngur frá Grafarvogskirkju í Reykjavík send út í beinni útsendingu á Stöð 2 og á Vísi. Athöfnin hefst klukkan sex. 24.12.2011 17:45
Þakplötur fuku af Rauðagerði Þakplötur voru byrjaðar að losna af Rauðagerði við Boðaslóð í Vestmannaeyjum eftir hádegið í dag. Björgunarfélaginu í Vestmannaeyjum barst tilkynning um málið klukkan átján mínútur í tvö og fóru umsvifalaust á staðinn. 24.12.2011 14:53
Um 20 slökkviliðsmenn á vakt Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla. Varðstjóri hjá slökkviliðinu bað Vísi sérstaklega um að koma þessari jólakveðju til skila og blaðamanni er það bæði ljúft og skylt. 24.12.2011 14:10
Akið hvorki Hellisheiði né Þrengslin Af gefnu tilefni ræður lögregla og Vegagerðin ökumönnum frá því að vera á ferðinni á Suðurlandsvegi um Hellisheiði og eins um Þrengslaveg. Mjög hvasst er orðið og glórulítið að vera á ferð nema ökumenn séu á sérstaklega vel búnum bílum. Skyggni er nánast ekkert og mikil hálka, enn er lítil ofankoma en það breytist skjótt. Búast má við að þetta ástandi vari næstu klukkutíma. Björgunarsveitir eru EKKI á ferðinni til aðstoðar ökumönnum. 24.12.2011 13:55
Björgunarsveitamenn losuðu fasta bíla og aðstoðuðu jólasveina Hjálparsveit skáta Hveragerði aðstoðaði nokkra bíla á Hellisheiði sem lentu í vandræðum upp úr klukkan 5 í morgun. Slæmt veður var á Heiðinni. Þegar félagar sveitarinar höfðu lokið við að aðstoða bíla á Hellisheiði í morgun kom símtal frá jólasveinum um að aðstoða þá við að dreifa jólapökkum í Hveragerði þar sem þar var þungfært í morgun. Félagar í Hjálparsveita skáta fóru því á tveimur sérútbúnum björgunarsveitarbílum til að aðstoða þá og því komast allar gjafir til skila í tæka tíð. 24.12.2011 12:13
Dásamlegt að fólk um allan heim geti fylgst með messunni Tugþúsundir manna sækja helgihaald yfir jólahátíðina. Stöð 2 og Vísir sýna beint frá aftansöng í Grafarvogskirkju klukkan sex í dag. Vigfús Þór Árnason sóknarprestur segist fá gæsahúð þegar kórinn gengur inn kirkjugólfið. 24.12.2011 12:06
Færeyskur borgarstjóri datt í lukkupottinn Borgarstjórinn í Eiði í Færeyjum datt heldur betur í lukkupottinn þegar dregið var í Happadrætti DAS á fimmtudaginn. Borgarstjórinn fékk vinning á tvöfaldan miða sem þýðir Toyota Land Cruiser 150 eða 900 þúsund færeyskar krónur. Happdrætti DAS byrjaði árið 1996 að bjóða Færeyingum að spila með í Happadrátti DAS eins og Happdrætti DAS heitir á færeysku. Færeyingar urðu strax áhugasamir og keyptu miða sína með gíróseðlum sem þeir fá senda til sín mánaðarlega. Samkvæmt upplýsingum frá Happadrætti DAS hefur miðasalan í Færeyjum haldist stöðug í þessi sextán ár. 24.12.2011 11:52
Rauði krossinn til taks um jólin Einmana fólk sem sumt á engan að hringir mikið í Hjálparsíma Rauða krossins 1717 yfir hátíðarnar, að því er fram kemur á vef Rauða krossins. „Svarað er í símann allan sólarhringinn, allan ársins hring.“ 24.12.2011 11:30
Margt um manninn í Kringlunni Það var töluverð örtröð karlmanna í Kringlunni fyrir hádegi í dag. Þarna var í mörgum tilfellum um að ræða karlmenn sem áttu eftir að kaupa gjafir handa eiginkonunum. Innpökkunarborðið var umkringt sem aldrei fyrr. Það var mál verslunarmanna í Kringlunni að þetta væri eini dagur ársins sem fleiri karlmenn sóttu þangað en konur. 24.12.2011 11:22
Helgistund í Vestmannaeyjum fellur niður Helgistund sem átti að vera í kirkjugarðinum í Vestmannaeyjum klukkan tvö fellur niður vegna veðurs. Þessar upplýsingar hefur Vísir frá Guðmundi Erni Jónssyni presti í Vestmannaeyjum. 24.12.2011 11:12
Vonast til að ná takmarkinu strax í janúar „Miðað við þann gang sem hefur verið í söfnuninni ætti þetta að klárast í janúar,“ segir Guðmundur Felix Grétarsson, sem vantar nú aðeins um fjórar milljónir af þeim fjörutíu sem hann hyggst nota til að verða sér úti um handaágræðslu í Lyon í Frakklandi. 24.12.2011 11:00
Öllu flugi aflýst Öllu flugi Flugfélags Íslands hefur verið aflýst í dag vegna vonskuveðurs. Tugir manna biðu á vellinum í morgun þegar fréttastofa leit þar við. Tilkynnt var í gær að ferðum Herjólfs í dag yrði aflýst, en búið var að gera ráðstafanir þannig að engin átti bókað far með ferjunni. 24.12.2011 10:36
Kirkjugarðarnir opnir alla hátíðina Starfsmenn kirkjugarða Reykjavíkur hafa verið að önnum kafnir við að ryðja snjó í morgun og sanda stíga en búist er við miklum fjölda fólks í garðana í dag sem vitjar leiða látinna vina og ættingja, venju samkvæmt. 24.12.2011 10:21
Sjónvarpsfréttir klukkan tólf Sjónvarpsfréttir Stöðvar 2 í dag, aðfangadag, verða klukkan tólf, eins og venja er á aðfangadag. Það verða svo aftur sjónvarpsfréttir annað kvöld klukkan hálfsjö. Fréttavakt verður á fréttavefnum Vísi alla jólahátíðina. 24.12.2011 10:18
Björgunarsveitamenn standa vaktina Björgunarsveitir á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar munu standa vaktina yfir alla jólahátíðina, að sögn Gunnars Stefánssonar hjá Landsbjörg. Nokkuð var um að björgunarsveitamenn þyrftu að hjálpa fólki sem hafði fest bíla sína vegna ófærðar í nótt, meðal annars á Kirkjubæjarklaustri og á Snæfellsnesi en annars var nóttin róleg að sögn Gunnars. 24.12.2011 09:43
Víða slæm færð í dag Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar vegfarendur við slæmri færð sökum vatns og krapa á stofnbrautum. Inni í íbúðarhverfunum er þæfingsfærð og í sumum tilfellum þungfært. Lögreglan biður því alla um að fara varlega og fara hægt yfir svo það megi komast hjá óhöppum og slysum. 24.12.2011 08:03
Ellefu litlir hvolpar teknir með keisara Ellefu hvolpum var hjálpað í heiminn í Dýralæknamiðstöðinni í Grafarholti í gær. Þeir voru teknir með keisaraskurði sem tveir dýralæknar á spítalanum framkvæmdu. Allir voru þeir sprelllifandi og komnir á spena þegar tíkurnar tvær sem áttu þá voru útskrifaðar síðdegis. Í báðum tilvikum var um tíkur af ensku bolabítskyni að ræða. 24.12.2011 08:00
Hugið að niðurföllum Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim tilmælum til fólks að það hugi vel að niðurföllum og moki frá þeim. Þetta á sérstaklega við um niðurföll á svölum og í kjöllurum. Ástæðan er sú að þegar snjóa leysir er alltaf hætta á að vatn leki inn með tilheyrandi skemmdum á íbúðum og innanstokksmunum. 24.12.2011 07:44
140.000 manns kíkja í „heimsókn“ á viku Fjarskiptafyrirtækið Míla hefur hlotið eftirsótt verðlaun fyrir vefmyndavél sína við Jökulsárlón. Fjórar milljónir manna „heimsækja“ Ísland á ári í gegnum veggátt Mílu. Frelsisstyttan í New York og Everest-fjall eru meðal vinningshafa. 24.12.2011 07:00
Segja samræmi í launum hafa riðlast Kjararáð hefur ákveðið að draga til baka lækkun á launum þingmanna, ráðherra og embættismanna sem heyra undir ráðið, sem ákveðin var árið 2008 og tók gildi 2009. 24.12.2011 06:30
Í Árneshreppi eru allir með gervitré „Héðan fara allir að minnsta kosti eina verslunarferð til Reykjavíkur,“ segir Ragnheiður Edda Hafsteinsdóttir, íbúi í Norðurfirði í Árneshreppi á Ströndum. Árneshreppur er ein einangraðasta sveit landsins, í það minnsta yfir vetrarmánuðina og það getur verið svolítið spennandi fyrir jólin. „Ef flugið klikkar núna rétt fyrir jólin þá fær fólk ekki rjóma og annan mjólkurmat um jólin,“ bætir hún við, en Edda, eins og hún er kölluð, sér um Kaupfélagið í Árneshreppi. 24.12.2011 06:00
Engir vagnar aka á jóladag Strætó mun skerða þjónustu yfir hátíðarnar. Ekið verður eins og á laugardegi til klukkan 14 í dag, þegar vagnarnir hætta akstri. Enginn akstur verður á jóladag og á annan í jólum verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun, að því er fram kemur á vef Reykjavíkurborgar. Akstur verður með hefðbundnum hætti milli jóla og nýárs.- bj 24.12.2011 05:00
Gera fyrirvara um breytt skipulag Perlu Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur undirritað viljayfirlýsingu við félag sem hefur hug á að festa kaup á Perlunni. OR skuldbindur sig til að eiga ekki viðræður við aðra á gildistíma yfirlýsingarinnar, en hún rennur út 31. mars 2012. 24.12.2011 05:00
Allir sjómenn heima um jólin Allir sjómenn á íslenska fiskiskipaflotanum verða heima um jólin. Síðustu skipin voru að tínast til hafnar seint í gær. Nokkur erlend flutninga- og fiskiskip voru innan íslenska leitar- og björgunarsvæðisins í gær. 24.12.2011 03:15
Bilun í hýsingarkerfi Nýherja - ætti að lagast um miðnætti Bilun, sem varð í hýsingarumhverfi Nýherja í dag, varð þess valdandi að starfsemi viðskiptavina var ekki með eðlilegum hætti. Meðal annars lágu vefir og bókunarkerfi Icelandair niðri. Þá hefur vefþjónusta Flugfélags Íslands, Sjúkratrygginga Íslands og fleiri viðskiptavina orðið fyrir truflunum. 23.12.2011 23:12
Aftansöngur í Grafarvogskirkju í beinni á Stöð2 og Vísi á morgun Búist er við því að tugþúsundir manna sæki helgihald yfir jólahátíðina. Á milli sex og sjö hundruð helgistundir verða á vegum þjóðkirkjunnar um allt land um jól og áramót, auk þess sem messur verða á sjúkrahúsum, dvalarheimilum og víðar. 23.12.2011 21:00
Herjólfur siglir ekki á morgun Ferðir Herjólfs milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar á morgun, aðfangadag, hafa verið felldar niður. Þetta er gert í samræmi við viðvörun Veðurstofu Íslands og þá veðurspá sem liggur fyrir. Gert er ráð fyrir stormi á landinu og því ekkert ferðaveður. 23.12.2011 22:02
Stríð á Laugavegi Kaupmenn á laugaveginum eru mjög ósáttir með lokun götunnar á stærsta verslunardegi ársins. Þeir segja borgina hafa eyðilagt þorláksmessu og ákváðu að taka völdin í sínar hendur. 23.12.2011 20:45
Þrjátíu árekstrar í dag Yfir þrjátíu árekstrar urðu á höfuðborgarsvæðinu í dag. Tíu bílar voru fluttir á brott með kranabíl. Þá voru einnig tíu af þessum þrjátíu árekstrar á bílastæði. Samkvæmt upplýsingum frá árekstri.is voru engin slys á fólki. 23.12.2011 19:27
Friðarganga á Laugavegi Klukkan sex lagði hin árlega friðarganga af stað frá Hlemmi. Þetta er í þrítugasta og annað skipti sem gengið er niður á Ingólfstorg þar sem ræður verða fluttar auk þess sem Hamrahlíðarkórinn syngur nokkur lög. 23.12.2011 19:11
Ofsaveður á aðfangadag Flug- og skipfarþegar hafa flýtt ferðum sínum í dag vegna ofsaveðurs sem spáð er á morgun, aðfangadag. Þá gæti sjókoma komið í veg fyrir að einhverjir landsmenn komist í messu á morgun. 23.12.2011 18:30
Jólagæsir á vappi í miðbænum Á Þorláksmessu má alltaf sjá margt fólk arka um miðbæinn í von um að finna síðustu gjafirnar áður en klukkurnar hringja jólin inn. Verslunarmenn brosa margir af sömu kæti og börnin en aðrir virðast ramba um með langan tossalista í ótta um að ekki takist að strika yfir allt í tæka tíð. 23.12.2011 17:40
Þyrlan sótti tvo menn eftir bílslys Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í dag tvo slasaða menn sem slösuðust eftir bílslys sem varð rétt við Jökulsárlón á Breiðamerkusambandi rétt fyrir hádegi í dag. Þyrlan fór í loftið klukkan 12:14 og hélt áleiðis til móts við sjúkrabíl sem kom á móti þyrlunni. Þyrlan lenti svo með mennina tvo á Landspítalanum í Fossvogi nú síðdegis. Ekki er vitað um líðan mannanna. 23.12.2011 17:32
Segir harm íbúa Norður-Kóreu vera sviðsettann Starfsmaður alþjóðlegra hjálparsamtaka í Norður-Kóreu greindi frá því í dag að hinn mikli harmur sem íbúar landsins hefðu lýst á dögunum eftir andlát Kim Jong-Il hafi eflaust verið sviðsettur. Allt frá því að tilkynning um andlát leiðtogans barst í tilfinningaþrungri sjónvarpsútsendingu hafa myndir borist af harmislegnum íbúum Norður-Kóreu. 23.12.2011 15:56