Gera fyrirvara um breytt skipulag Perlu 24. desember 2011 05:00 Hugmyndir eru uppi um heilsulind í anda Bláa lónsins í Perlunni. Aðstaða verði fyrir allt að 500 gesti. Þá er fyrirhugað að reisa allt að 200 fermetra hótel.mynd/thg-arkitektar
Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur undirritað viljayfirlýsingu við félag sem hefur hug á að festa kaup á Perlunni. OR skuldbindur sig til að eiga ekki viðræður við aðra á gildistíma yfirlýsingarinnar, en hún rennur út 31. mars 2012. Haraldur Flosi Tryggvason, formaður stjórnar OR, segir að félagið geri fyrirvara um uppbyggingu á svæðinu. Í viljayfirlýsingunni er að finna tímasetningar og helstu þætti verkáætlunar félagsins. Þróun viðskiptaáætlunar félagsins á að vera lokið 6. janúar og hönnun og kostnaðaráætlun 17. febrúar. Þá á fjármögnun að vera lokið 31. mars og kaupsamningur undirritaður. Þann dag á skipulagsferli að vera lokið. Ekki er nánar greint í viljayfirlýsingunni hvernig standa á að því ferli, en til að hugmyndir félagsins um hótel geti orðið að veruleika þarf að breyta skipulagi svæðisins. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, sagði í samtali við Fréttablaðið á fimmtudag að íhuga mætti hvort ekki þyrfti nýtt söluferli ef selja ætti Perluna með lóð undir hótel. Haraldur Flosi segir að alveg megi færa rök fyrir því að það væri rétta leiðin. Þá segir hann að það sé borgarinnar að selja landið, verði það ofan á, OR skipti sér ekki af því. Gæta verði jafnræðis- og sanngirnissjónarmiða. Félagið bauð 1.689 milljónir króna í Perluna. Eftir að tilboðið lá fyrir voru gerðir fyrirvara um breytta nýtingarmöguleika svæðisins. Fyrirhugað er að reisa að minnsta kosti 200 herbergja hótel á svæðinu og er áætluð heildarfjárfesting yfir fimm ára tímabil metin á átta til tíu milljarða króna. Þá er gert ráð fyrir að koma upp heilsulind með búningsklefum fyrir að minnsta kosti 500 gesti. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins gerir félagið ákveðna fyrirvara um breytingar á skipulagi, forkaupsrétt á aðliggjandi landi, skipulagsstuðul og fleira. Haraldur Flosi vildi ekki staðfesta hverjir fyrirvararnir væru. Lögfræðingur OR metur nú hvort gera eigi öll tilboð í Perluna opinber, en ósk kom fram um það á stjórnarfundi fyrirtækisins. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira