Vonast til að ná takmarkinu strax í janúar 24. desember 2011 11:00 Hjálpsamur Guðmundur Felix aðstoðaði við jólaúthlutun Fjölskylduhjálparinnar í ár, eins og síðustu tvö ár þar á undan.Fréttablaðið/valli „
Miðað við þann gang sem hefur verið í söfnuninni ætti þetta að klárast í janúar,“ segir Guðmundur Felix Grétarsson, sem vantar nú aðeins um fjórar milljónir af þeim fjörutíu sem hann hyggst nota til að verða sér úti um handaágræðslu í Lyon í Frakklandi. „Ég er að detta í níutíu prósent, þetta er búið að ganga alveg ótrúlega vel,“ segir Guðmundur Felix, sem missti báðar hendurnar í vinnuslysi fyrir þrettán árum. Þegar nægt fé hefur safnast mun Guðmundur flytja til Frakklands og getur þá skráð sig á biðlista eftir nýjum handleggjum. „Ég er búinn að selja íbúðina mína og flyt út úr henni í lok janúar. Þá fer ég til foreldra minna þangað til ég fæ kallið um að fara út. Það er einn á undan mér, Ítali sem er að fá framhandlegg, og hann fer á biðlista í janúar, febrúar. Um leið og hann er búinn get ég flutt út til Lyon.“ Söfnunin hefur gengið vonum framar og Guðmundur treystir á að afgangurinn skili sér fljótlega. Hann segir að minnt sé á söfnunina með dreifimiða sem fylgi Fréttablaðinu í dag. Guðmundur hefur verið í stífu frönskunámi og hyggst halda því áfram þegar út verður komið. Þar er ómögulegt að segja til um hve löng biðin verður. „Þeir segja að þetta geti tekið frá viku og upp í tvö ár. Einn daginn deyja margir og næsta dag deyr enginn.“- sh
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira