Fleiri fréttir

Flugeldarnir verða í boði Vodafone

Flugeldasýningin sem ávallt hefur verið fastur liður á Menningarnótt í Reykjavík verður að þessu sinni í boði Vodafone. Í tilkynningu frá Höfuðborgarstofu segir að Vodafone muni kosta sýninguna, samkvæmt samkomulagi sem náðst hafi á milli Höfuðborgarstofu og fyrirtækisins.

Vilja hjólavefsjá í Reykjavík

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkur lögðu í dag til að gerð verði hjólavefsjá fyrir Reykjavík. Tillagan gerir ráð fyrir að vefsjáin verði gagnvirk vegvísun sem sýni borgarbúum á einfaldan hátt hvernig hjólafólk kemst frá A til B á sem fljótlegastan og öruggastan hátt, að því er fram kemur í tilkynningu frá Gísla Marteini Baldurssyni borgarfulltrúa. Hann segir að í hverjum mánuði aukist fjöldi þeirra sem hjóla í borginni og að hjólavefsjá myndi gera hjólreiðar að öruggari og aðgengilegri kosti fyrir hjólreiðafólk.

Bjarni Ben: Gylfi getur ekki firrt sig ábyrgð

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að viðskiptaráðherra geti ekki firrt sig ábyrgð á því að ekki hafi verið gripið aðgerða vegna upplýsinga sem viðskiptaráðuneytið bjó yfir um ólögmæti gengistryggðra lána. Bjarni segir málið það alvarlegt að kalla verði Alþingi saman og þá telur hann að ríkisstjórnin eigi að víkja.

Ofurbakterían skýrist að hluta af ofnotkun sýklalyfja

Mikið er rætt um svokallaðrar ofurbakteríur í breskum fjölmiðlum um þessar mundir. Bakterían er ónæm fyrir sýklalyfjum og hefur greinst á sjúkrahúsum í Bretlandi og í fleiri löndum. Sóttvarnalæknir segir vandamálið meðal annars til komið vegna mikillar sýklalyfjanotkunnar. Hann bindur vonir við að bólusetningar við eyrnabólgu í börnum sem hefja á hér á landi dragi úr notkun sýklalyfja.

Flogið til Húsavíkur vegna verkfalls slökkviliðsmanna

Vegna boðaðs verkfalls slökkviliðsmanna á morgun hefur Flugfélag Íslands gert ráðstafanir til að fljúga áætlunarflug sitt til Húsavíkur í stað Akureyrar ef til verkfalls kemur. Forstjóri flugfélagsins vonast til þess að aðilar nái saman þar sem kostnaður félagsins og óþægindi farþega séu mikil.

Skorar á fagráð kirkjunnar að gefa upp fjölda mála

Forstöðukona Stígamóta skorar á fagráð kirkjunnar sem sér um meðferð kynferðisbrota að gefa upp fjölda mála sem til þess hafa borist. Hún segir það á skjön við hlutverk ráðsins að ætla að þegja um starfsemi þess líkt og formaður þess vill.

Telur mjólkurfrumvarpið kalla á endurskoðun landbúnaðarkerfisins

Ekki ríkir sátt um mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra milli stjórnarflokkanna, en Þórunn Sveinbjarnardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir að flokkurinn hafi gert grundvallarathugasemdir við að hugsanlega bryti frumvarpið gegn stjórnarskrá. Hún segist vona að umræðan um frumvarpið verði til þess að landbúnaðarkerfið verði endurskoðað frá grunni.

Slökkviliðsmenn æfir yfir afskiptum bæjarstjóra

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn eru æfir yfir afskiptum starfandi bæjarstjóra á Akureyri, af deilu þeirra við launanefnd sveitarfélaganna. Karl Guðmundsson, sem hefur verið starfandi bæjarstjóri, beitti sér fyrir því að slökkvibíll fari til Húsavíkur á morgun, þegar þriðja verkfall slökkviliðs og sjúkraflutnignamanna skellur á. Þetta telja slökkviliðsmenn að sé skýrt verkfallsbrot.

Harður árekstur við Fitjar í Reykjanesbæ

Harður árekstur varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Stekks við Fitjar í Reykjanesbæ klukkan ellefu í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum voru minniháttar meiðsl á fólki en tveir voru fluttir til læknisskoðuna á Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja en útskrifaðir að því loknu.

Flugeldasýningin verður haldin

Hætt hefur verið við að blása flugeldasýninguna á Menningarnótt af, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Höfuðborgarstofu. Líkt og undanfarin ár verður sýningin í samtarfi við Hjálparsveit skáta í Reykjavík. Tilkynning þess efnis verður send út síðar í dag.

Lögreglan lýsir eftir Karel Atla

Lögreglan á Selfossi lýsir eftir Karel Atla Ólafssyni, 17 ára. Karel Atli fór frá heimili sínu í gærmorgun um klukkan hálfsjö og hefur ekki komið heim til sín eftir það. Mjög líklegt er að hann haldi sig á höfuðborgarsvæðinu, að sögn lögreglu.

FÍB fagnar banni á innflutningi tjónabíla

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að þar á bæ fagni menn nýjum reglum sem banna innflutning á erlendum tjónabílum. „Við fögnum því að sett sé fyrir þennan leka sem verið hefur hér á landi í þessum málum. Það hafa verið töluverð brögð að því að hingað hafi verið fluttir inn bílar sem teljast vera ónýtir annars staðar," segir Runólfur.

Mikil þörf fyrir aðstoð í Pakistan

Rauði krossinn kallar eftir tafarlausri aðstoð til Pakistans. Ekkert lát hefur verið á úrfellinu vegna monsúnrigninga í landinu og er nú um 70% af öllu landinu undir vatni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Rauða krossi Íslands. Talið er að um 14 milljónir manna hafi orðið fyrir áföllum vegna flóðanna og að um 6 milljónir þurfi á tafarlausri aðstoð að halda eigi íbúar að lifa hamfarirnar af á næstu vikum. Þetta eru verstu flóð í sögu landsins.

Grænmeti stolið frá sjö ára börnum í Kópavogi

„Auðvitað er þetta mjög leiðinlegt og krakkarnir eru mjög leiðir,“ segir Bryndís Pétursdóttir, garðstjóri í skólagörðum við Dalveg í Kópavogi. Á þriðjudaginn var hvítkáli og hnúðkáli stolið úr skólagörðum sem sextíu og fimm krakkar á aldrinum 7 til 12 ára hafa verið að rækta í allt sumar. Einungis kálið var tekið og blöðin skilin eftir en engin skemmdarverk voru unnin á görðunum að öðru leyti.

Þjóðkirkjan taki skýra afstöðu gegn kynferðisofbeldi

Femínistafélag Íslands tekur undir með Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur og hvetur til þess að þjóðkirkjan taki skýra afstöðu gegn kynferðisofbeldi og virkan þátt í baráttu gegn því. Í ályktun félagsins segir að prestar og aðrir trúarleiðtogar séu í valdastöðu gagnvart þeim sem til trúfélaga leita eða starfi innan þeirra. Misnotkun á slíkri stöðu er gríðarlega alvarleg, að mati Femínstafélagsins.

Banna skráningu erlendra tjónabíla

Frá og með 1. janúar 2011 verður ekki heimilt að skrá ökutæki hér á landi sem skráð eru erlendis sem tjónaökutæki og bera slíkt skráningarskírteini með sér. Þessu beinir Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið til Umferðarstofu. Þá verða þessi ökutæki að teljast í flestum tilfellum óhæf til endurskráningar í öðrum löndum.

Málið orðið flóknara en áður

„Nýjar upplýsingar hafa komið fram í rannsókninni á Kaupþingi. Það gerist þegar mál ganga lengra og fleira kemur í ljós. Það er nú orðið stærra og flóknara,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari um rannsóknina á meintum brotum stjórnenda Kaupþings í aðdraganda bankahrunsins.

Sóttu fótbrotinn mann í Laufáshnjúk

Björgunarsveit Landsbjargar í Grenivík var kölluð út um tíu leitið í gærkvöldi til að sækja karlmann, sem hafði fótbrotnað í gönguferð í Laufáshnjúk, fyrir ofan bæinn Laufás í Eyjafirði.

Innbrot í Varmárskóla

Brotist var inn í Varmárskóla í Mosfellsbæ í nótt og þaðan stolið flatskjá og leikjatölvu.

Smokkar settir í hæsta skattþrepið

„Ríkið setur smokka í hæsta skattþrep sem gerir það að verkum að það er 25,5 prósenta virðisaukaskattur á þeim,“ segir Halldór Guðmundsson, annar eigandi Líkama og lífsstíls, umboðsaðila One smokka á Íslandi. Halldór er þeirrar skoðunar að smokkar ættu að vera án virðisaukaskatts eða í mesta lagi skattlagðir eins og matvæli og aðrar nauðsynjavörur.

Útlán dragast saman milli ára

Útlán Íbúðalánasjóðs hafa dregist saman um fimm milljarða það sem af er ári miðað við sama tímabil í fyrra. Þá hefur vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 1,3 prósent milli ára.

Misskilningur milli stofnana

Þegar starfsmaður viðskiptaráðuneytisins fékk þrjú skjöl send frá Seðlabankanum um heimild til gengistryggingar, með því fororði að eitt þeirra væri trúnaðarmál og einungis til að hafa til hliðsjónar, hélt starfsmaðurinn að sama gilti um öll skjölin, að sögn aðstoðarmanns viðskiptaráðherra, Benedikts Stefánssonar.

Mátti ganga lengra í þágu skuldaranna

Lög frá síðasta þingi sem leyfa skuldurum með tvær eignir að losna við aðra eignina og færa umframskuldir yfir á hina voru samin með hagsmuni bankanna að leiðarljósi, að mati Lilju Mósesdóttur, þingmanns VG, en hún hefur talað fyrir lyklafrumvarpi svokölluðu, þar sem skuldurum er leyft að skila eign sinni með skuldunum.

Vélarnar voru á lofti í 40 tíma

Met var slegið í flugi tveggja óauðkenndra TU-95 sprengjuflugvéla Rússlandshers sem flugu í tvígang um íslenska loftrýmiseftirlitssvæðið laust fyrir síðustu mánaðamót.

Jákvæðni íbúa kom ánægjulega á óvart

„Ég ákvað að sækja um stöðuna þegar hún var auglýst,“ segir Tómas Sturlaugsson búfræðingur sem undanfarið hefur leyst af bændur á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli þegar þeir hafa farið í frí.

Slökkviliðsmenn funda með viðsemjendum á morgun

Samninganefndir Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitarfélaga ætla að koma saman til fundar á morgun og reyna að ná lendingu í kjaradeilu. Samningar slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafa verið lausir í heilt ár.

Fimm ára barn slasaðist á höfði

Fimm ára gamalt barn slasaðist þegar að það féll á steingólf á Reykhólum í Barðastrandasýslu um hálffimmleytið í dag. Ekki hafa fengist upplýsingar um það hversu hátt fallið var en ráðlegast þótti að kalla til þyrlu sem flutti barnið á Landspítalann í Fossvogi eftir að hlúð var að því um borð þyrlunnar. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar slasaðist barnið á höfði.

Gera úttekt á búsetu utangarðsfólks úti á Granda

Velferðarráð Reykjavíkur samþykkti í dag að gerð verði úttekt á því hvernig til hefur tekist með búsetu fólks í smáhýsum á Granda og þeirri þjónustu sem þar hefur verið veitt. Í fréttatilkynningu frá Velferðarráði kemur fram að töluverður órói hefur verið í kringum smáhýsin á undanförnum vikum og umræða um þau skapaðist við fráfall gestkomandi konu þar í síðustu viku.

Undanþága Jóns á við tvær góðar kýr utan kvóta

Mjólkurfrumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gerir ráð fyrir undanþágu handa þeim sem framleiða 15 þúsund lítra af mjólkurafurðum í heimaframleiðslu utan kvótakerfis, en þeim verður ekki refsað. Magnið jafngildir ársframleiðslu tveggja góðra mjólkurkúa.

Ungir bændur ánægðir með Jón

Stjórn Samtaka ungra bænda fagnar frumvarpi sem Jón Bjarnason sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra hefur lagt fram um breytingar á búvörulögum og telur stjórn Samtaka ungra bænda að fyrirhugaðar breytingar á búvörulögum verði til þess fallnar að styrkja grundvöll mjólkurframleiðslu í hinum dreifðu byggðum landsins.

„RÚV glopraði keppninni úr höndum sér“

Ríkisútvarpið hafði langan tíma til þess að tryggja sér sýningarréttinn að heimsmeistaramótinu í handbolta áður en Stöð 2 ákvað að kaupa réttinn eins og greint var frá í gær. Forstjóri 365 segir RÚV hinsvegar hafa reynt að yfirbjóða samninginn sem að lokum var gerður.

Bjarnveig er hæf

Bjarnveig Eiríksdóttir er hæf til að sitja í Magma nefndinni samkvæmt áliti Trausta Valssonar stjórnsýslufræðings. Frá þessu greinir fréttavefurinn Smugan.

Næstum 80% óku of hratt

Um 78% ökumanna óku of hratt á Engjavegi í dag þegar að lögreglan fylgdist með umferð þar.

Svínaflensan: Viðbúnaðarstig lækkað

Viðbúnaðarstig vegna svínainflúensu hefur verið lækkað hér á landi. Í tilkynningu á vef Landlæknisembættisins segir að þann 10. ágúst síðastliðinn hafi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýst því yfir að heimsfaraldur inflúensu væri genginn yfir og viðbúnaðarstig vegna faraldursins yrði því lækkað. Jafnframt hvetur stofnunin til ýtrustu árvekni því reynslan hefur sýnt að heimsfaraldrar ganga yfir í síðari bylgjum sem erfitt er að spá fyrir um.

Ofbeldismenn sitji ekki eins og kóngar heima

„Þetta er mjög til bóta. Við horfum upp á þann fáránleika á hverjum degi að fjölskyldur eru gerðar brotrækar af heimilum sínum vegna ofbeldis heimilismanns,“ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins.

Reykur úr pizzaofni ræsti út slökkviliðið

Slökkviliðið var kallað út í dag á Laugaveg en þaðan höfðu borist tilkynningar um reyk út um glugga á húsi. Þegar komið var á staðinn kom hinsvegar í ljós að um var að ræða pizzustað þar sem menn voru að kynda eldofninn fyrir viðskipti dagsins. Að sögn slökkviliðsmanns mun þetta ekki vera í fyrsta sinn sem eldofnar á pizzustöðum valda slíkum miskilningi.

Benedikt Gröndal jarðsunginn á föstudag

Útför Benedikts Gröndal, fyrrverandi forsætisráðherra, fer fram á vegum ríkisins næstkomandi föstudag klukkan 13 frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Benedikt lést 20. júlí, 86 ára að aldri.

Tilkynnt um reyk á Laugavegi

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er nú á leið í útkall en tilkynnt var um reyk út um glugga á húsi á gatnamótum Laugavegar og Barónsstígs. Engar nánari upplýsingar er að fá á þessari stundu um umfang málsins en þrír dælubílar hafa verið sendir á vettvang.

Manndráp í Reykjanesbæ: Þingfesting í héraði

Þingfest hefur verið ákæra á hendur rúmlega þrítugum manni sem varð manni á sextugsaldri að bana í Reykjanesbæ í maí síðastliðnum. Í ákæruskjali sem lagt var fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í dag kemur fram að maðurinn hafi veist harkalega að fórnarlambi sínu með þeim afleiðingum að hann lést skömmu síðar af áverkum sínum. Saksóknari telur brotið varða við 211. almennra hegningarlaga.

Árekstur við Hvolsvöll

Tveir voru fluttir á slysadeild eftir árekstur rétt austan við Hvolsvöll um hádegisbil í dag. Að sögn lögreglu ók bifreið aftan á aðra en óljóst er hvernig óhappið atvikaðist.

Sjö aðilar vilja reka leikhús í Hafnarfirði

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar fór í dag yfir þær sjö umsóknir sem bárust nefndinni um leiklistarstarfsemi að Strandgötu 50 þar sem Hafnarfjarðarleikhúsið hefur verið til húsa undanfarin ár. Í sumar auglýsti nefndin eftir tilboðum frá leikfélögum eða leikhópum um rekstur leikhúss við Strandgötu.

Vegagerðin að hefja lagfæringar á varnargarðinum

Ragnheiður Hauksdóttir landvörður í Húsadal segir að Vegagerðin hafi nú þegar sent stórvirk vinnutæki til þess að gera lagfæringar á veginum inn í Þórsmörk en Markarfljótið rauf veginn á kafla fyrr í dag.

Sjá næstu 50 fréttir