Slökkviliðsmenn æfir yfir afskiptum bæjarstjóra 12. ágúst 2010 12:03
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn eru æfir yfir afskiptum starfandi bæjarstjóra á Akureyri, af deilu þeirra við launanefnd sveitarfélaganna. Karl Guðmundsson, sem hefur verið starfandi bæjarstjóri, beitti sér fyrir því að slökkvibíll fari til Húsavíkur á morgun, þegar þriðja verkfall slökkviliðs og sjúkraflutnignamanna skellur á. Þetta telja slökkviliðsmenn að sé skýrt verkfallsbrot. Samninganefndir Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitarfélaga koma saman til fundar nú í hádeginu í því skyni að reyna að ná lendingu í langvinnri kjaradeilu sinni. Takist ekki nýir samningar í dag hefst enn ein lota verkfalls slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á morgun. Verkfallið verður þá 16 klukkustunda langt eins og á síðasta föstudag. Núna bætist hins vegar við ótímabundið yfirvinnubann. Það getur þýtt að ekki verði hægt að fullmanna allar vaktir. Í verkfalli slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fyrir viku, var ákveðið að flytja slökkvibíl frá Akureyri til Húsavíkur. Til stendur að gera þetta aftur á morgun. Fréttastofan hefur í höndum tölvupóst þar sem vísað er til samskipta Karls Guðmundssonar, sem var starfandi bæjarstjóri á Akureyri þangað til í dag, við umdæmisstjóra Akureyrarflugvallar. Þar er vísað til fyrri samskipta og munnlegs samkomulags um að slökkvibíll fari til Húsavíkur á morgun. Það telja slökkviliðsmenn vera ótvírætt verkfallsbrot og telja að fordæmi séu í dómum félagsdóms um slíkt. Þeir eru enn fremur æfir yfir afskiptum bæjarstjórans starfandi, því þeir hafa hingað til talið að launanefnd sveitarfélaganna hefði óskorað umboð í deilunni.
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Sjá meira