Mátti ganga lengra í þágu skuldaranna 12. ágúst 2010 05:00 Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, vill ganga lengra til að bæta stöðu skuldara. Fréttablaðið/arnþór
Lög frá síðasta þingi sem leyfa skuldurum með tvær eignir að losna við aðra eignina og færa umframskuldir yfir á hina voru samin með hagsmuni bankanna að leiðarljósi, að mati Lilju Mósesdóttur, þingmanns VG, en hún hefur talað fyrir lyklafrumvarpi svokölluðu, þar sem skuldurum er leyft að skila eign sinni með skuldunum. Samþykktu lögin leyfa hins vegar að skuldir af einni eign séu færðar yfir á aðra, sú fyrrnefnda fer í hendur lánardrottna. Umboðsmaður skuldara, Ásta Sigrún Helgadóttir, segir að hún muni koma með ábendingar ef rétt reynist að nýju lögin dugi ekki til. „Auðvitað hefði verið betra, hefði það verið hægt, að ganga lengra, en þetta er fyrsta löggjöfin og það hefur ekki reynt á þetta ennþá. Það er auðvitað hugsanlegt að endurskoða þetta þegar þar að kemur,“ segir hún. Frumvarpið hafi tekið breytingum í meðförum þingsins: „Þetta var bara pólitísk ákvörðun,“ segir Ásta Sigrún. Lögin umræddu eru hugsuð til hagsbóta fyrir þá sem voru búnir að festa kaup á íbúð þegar húsnæðismarkaðurinn kólnaði, en höfðu ekki selt gömlu íbúðina sína. En Lilja minnir á að skuldarinn fær engar afskriftir. Bankinn geti hins vegar fengið ódýra íbúð og selt hana aftur síðar meir með hagnaði. „Það er bara bankinn sem getur hagnast á þessu. Í upprunalega lyklafrumvarpinu var það skuldarinn sem gat hagnast,“ segir hún. Lilja segir að Alþingi hafi því miður engin ráð til að bæta réttarstöðu skuldara aftur í tímann. Annað gildi þegar bæta þurfi stöðu fjármálastofn-ana, eða skerða kjör launþega: „Við settum til dæmis lög um að laun forstjóra í ríkisgeiranum yrðu lægri en laun forsætisráðherra. Þá þurfti að að taka upp samninga við ríkisstarfsmenn. Besta dæmið er samt fræg bráðabirgðalög Ólafs Ragnars og Steingríms J. Sigfússonar frá tíunda áratugnum þegar gerðir voru kjarasamningar sem áttu að gera laun háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna sambærileg við laun í einkageiranum. Þá voru sett bráðabirgðalög sem tóku þetta úr gildi og virkuðu þannig aftur í tímann,“ segir Lilja. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Sjá meira