Innlent

Sjö aðilar vilja reka leikhús í Hafnarfirði

Frá Hafnarfirði.
Frá Hafnarfirði. Mynd/GVA
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar fór í dag yfir þær sjö umsóknir sem bárust nefndinni um leiklistarstarfsemi að Strandgötu 50 þar sem Hafnarfjarðarleikhúsið hefur verið til húsa undanfarin ár. Í sumar auglýsti nefndin eftir tilboðum frá leikfélögum eða leikhópum um rekstur leikhúss við Strandgötu.

Umsækjendur eru; Stoppleikhópurinn, Draumasmiðjan, Alheimurinn, Magnús Ólafsson, Hafnarfjarðarleikhúsið, Gaflaraleikhúsið og Hamarinn. Menningar- og ferðamálanefnd ákvað að rætt yrði við alla umsækjendur og verður það gert á næstu dögum.

Umsóknir verða metnar á grundvelli eftirfarandi þátta:

• Að starfsemin efli menningarlíf í Hafnarfirði

• Að fjölþætt menningarstarfsemi sé í húsinu árið um kring með áherslu á leiklist

• Að höfðað sé til allra aldurshópa

• Rekstraráforma

Hafnarfjarðarbær mun leggja umsækjendum til húsnæði og er leigutími frá 1. september 2010 til 31. desember 2013. Um er að ræða 743,4 fermetra atvinnuhúsnæði ætlað til leiksýninga og annarrar menningarstarfsemi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×