Innlent

Fimm ára barn slasaðist á höfði

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti barnið.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti barnið.
Fimm ára gamalt barn slasaðist þegar að það féll á steingólf á Reykhólum í Barðastrandasýslu um hálffimmleytið í dag. Ekki hafa fengist upplýsingar um það hversu hátt fallið var. Ráðlegast þótti að kalla til þyrlu sem flutti barnið á Landspítalann í Fossvogi. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar slasaðist barnið á höfði.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×