„RÚV glopraði keppninni úr höndum sér“ 11. ágúst 2010 17:45 Ari Edwald, forstjóri 365.
Ríkisútvarpið hafði langan tíma til þess að tryggja sér sýningarréttinn að heimsmeistaramótinu í handbolta áður en Stöð 2 ákvað að kaupa réttinn eins og greint var frá í gær. Forstjóri 365 segir RÚV hinsvegar hafa reynt að yfirbjóða samninginn sem að lokum var gerður. Páll Magnússon útvarpsstjóri gagnrýndi málið harðlega í gær og sagði það dapurleg tíðindi fyrir handboltaunnendur. Í viðtali í síðdegisútvarpi Rásar 2 í gær sagði hann umhugsunarvert að Stöð 2 geti „tekið silfurdrengina frá almenningi og læst þá inni í lokuðu áskriftarsjónvarpi." Þá beindi hann því til menntamálaráðherra að gera kröfu um að mótið verði sýnt í opinni dagskrá. „Mér finnst viðbrögð útvarpsstjóra við því að Stöð 2 semji um HM í handbolta vera ákaflega lágfreyðandi," segir Ari Edwald, forstjóri 365. „RÚV glopraði keppninni úr höndum sér því það var seljandi efnisins sem kom sér á framfæri við okkur, ekki einu sinni heldur margsinnis, allar götur síðan í febrúar." Því hafi RÚV haft marga mánuði til þess að semja um sýningarréttinn. RÚV reyndi yfirboð Að sögn Ara snýst málið alls ekki um yfirboð af hálfu Stöðvar 2. „Við höfum hinsvegar upplýsingar um það frá seljandanum að RÚV reyndi að yfirbjóða okkar samning þegar hann lá fyrir og sagðist raunar geta boðið enn betur ef þyrfti." Ari segir það hinsvegar ekkert nýtt að Stöð 2 taki við keflinu þegar RÚV er ekki að standa sig, þannig hafi það til dæmis verið með flesta leiki karlalandsliðsins í knattspyrnu, eins og á móti Liechtenstein í dag. „Við höfum líka þurft að fóstra stærstu menningarviðburðina í íslensku sjónvarpi eftir að RÚV hefur ýtt þeim frá sér," segir Ari ennfremur og segir það til dæmis eiga við um Edduverðlaunin, leiklistarverðlaunin Grímuna, Íslensku tónlistarverðlaunin og Söngkeppni framhaldsskólanna. „Þannig að ég held að Páll Magnússon verði að líta í eigin barm varðandi óstjórn á dagskrármálum RÚV frekar en að koma fram í þáttum Ríkisútvarpsins eins og einhver kóngur til þess að ata samkeppnisaðila sína auri og alls kyns rangfærslum," segir Ari. Ekkert heyrt frá ráðuneytinu Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sagði í samtali við Vísi í gær að hún væri með það í skoðun að krefjast þess að leikir íslenska liðsins á HM verði sýndir í opinni dagskrá. „Ráðuneytið hefur ekkert kynnt sér okkar hlið á þessum málum eða hvernig við ætlum að standa að hlutunum," segir Ari sem hefur enga trú á því að menntamálaráðherra ráðist í þesskonar aðgerðir eftir á, þegar alþjóðlegur söluaðili er búinn að selja réttinn að keppninni miðað við ákveðnar forsendur. „Það hlýtur að vera þannig, ef einhverjir hlutir eru svo mikil menningarverðmæti að slík sjónarmið eiga við, að ríkisvaldið leggi það þá niður fyrir sig fram í tímann og með einhverjum almennum prinsippum. Það er afskaplega skrítið ef fólk heldur að það geti komið að hlutunum eftir á í þessu sambandi," segir Ari og bætir því við að hann hafi ekki trú á að eitthvað gerist í þeim málum án þess að ráðherra kynni sér málið betur.
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira