Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Á móti mjólkurfrumvarpi Jóns Frjálshyggjufélagið legst eindregið gegn frumvarpi Jóns Bjarnasonar landbúnaðarráðherra um að refsa beri afurðastöðvum, sem kaupa mjólk, sem er farmleidd er án ríkisstyrkja. Í ályktun félagsins segir enn fremur að hér sé á ferðinni gróf aðför að atvinnufrelsi í landinu og til þess ætluð að vernda einokun og fákeppni gamla tímans. 11.8.2010 11:33
Oddvitinn endurkjörinn Gústaf Jökull Ólafsson var endurkjörinn oddviti hreppsnefndar Reykhólahrepps til eins árs á fyrsta fundi nefndarinnar á mánudag. Andrea Björnsdóttir var kosin varaoddviti til sama tíma. Greint er frá þessu á vef Reykhólahrepps. 11.8.2010 11:03
Skæðir fallvindar vel þekktir á leitarsvæðinu „Fallvindar sem þessir eru vel þekktir meðfram allri austurströnd Grænlands, aðallega að vetrinum en vægari gerðin þekkist einnig að sumarlagi," segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur. 14 kajakræðara er saknað við austurströnd Grænlands og nú siglir danska eftirlitsskipið Ejnar Mikkelsen hraðbyri í átt að Scoresbysundi. 11.8.2010 10:33
Sjóvá gaf löggunni myndavélar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið sex myndavélar að gjöf frá Sjóvá. Gjöfin var afhent í síðustu viku í tilefni af 50 ára afmælis umferðardeildar lögreglunnar en þeim tímamótum var fagnað fyrr í sumar. Myndavélarnar koma að mjög góðum notum en þær verða notaðar við umferðarlöggæslu, að því er fram kemur á vef lögreglunnar. 11.8.2010 09:53
Lögreglan sendi kanadískri fjölskyldu þýfi Kanadísk hjón og dóttir þeirra urðu fyrir óskemmtilegri reynslu þegar þau heimsóttu Ísland fyrr í sumar. Brotist var inn í bíl þeirra þegar þau skoðuðu sig um í Reykjavík og úr honum var stolið ýmsum búnaði, meðal annars bakpokum þeirra og GPS-tæki. Fram kemur á vef lögreglunnar að með hjálp heiðvirðra borgara hafi lögreglumönnum tekist að endurheimta mest af búnaði þeirra og koma aftur í réttar hendur áður en Íslandsheimsókninni lauk. 11.8.2010 09:40
Eyddu sprengju á Bolafjalli Þyrla Landhelgisgæslunnar var send með sprengjusérfræðinga vestur á Bolafjall í gærmorgun til að eyða sprengju, sem þar fannst. 11.8.2010 07:41
Sótti veikan farþega um borð í skemmtiferðaskip Blóðþrýstingur féll niður úr öllu valdi í farþega á skemmtiferðaskipinu Aþenu, þegar skipið var út af Reykjanesi rétt fyrir miðnætti. 11.8.2010 07:38
Dópaður í djúpum skít Ökumaður reyndi í nótt að stinga lögregluna af, eftir að hún ætlaði að hafa tal af honum við venjulegt eftirlit á Nýbýlavegi í Kópavogi. 11.8.2010 07:24
Lögreglan stöðvaði 40 ökumenn á Veiðivatnasvæðinu Lögreglumenn frá Selfossi, í samráði við lögregluna á Hvolsvelli, stöðvaði 40 ökumenn á Veiðivatnasvæðinu í gærkvöldi vegna ábendinga um ölvunarakstur, og reyndust tveir þeirra ölvaðir, og fimmtán til viðbótar höfðu smakkað áfengi. 11.8.2010 07:18
Þyrla LHG sótti slasaðan sjómann í Arnarfjörð Sjómaður á íslenskum togara féll og brotnaði illa á ökla, þegar togarinn var á siglingu út af Vestfjörðum í gærkvöldi. 11.8.2010 07:04
Hagnaður ÁTVR þrefaldast Hagnaður Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) í fyrra nam rúmum 1,3 milljörðum króna. Árið 2008 var hagnaðurinn 447 milljónir króna. 11.8.2010 06:45
Tilraunaboranir á Siglufirði Tilraunaboranir Rarik eftir heitu vatni í Skarðdal við Siglufjörð hafa gengið vel. Þetta kemur fram á siglo.is. 11.8.2010 06:00
Lög um fjárfestingu sögð illa skrifað torf Eignarhald útlendinga í íslenskum sjávarútvegi er orðið hitamál að nýju eftir að kínverskir fjárfestar keyptu sig inn í Storm Seafood. Lögspekingar efast ekki um að fjárfesting Storms sé lögleg. Þeir segja lögin hins vegar illa skrifað torf. 11.8.2010 04:00
Frosktegundir í mestri útrýmingarhættu Hafið er viðamikið verkefni í fjórtán löndum þar sem leitast verður við að finna tegundir froskdýra sem gætu verið, eða eru, í útrýmingarhættu. Verkefnið á að standa yfir í rúma tvo mánuði. 11.8.2010 04:00
Engin leynd yfir tölvupósti Aðallögfræðingur Seðlabankans, Sigríður Logadóttir, segir að engin fyrirvari hafi verið gerður um notkun viðskiptaráðuneytisins á tölvupósti sem hún sendi lögfræðingi ráðuneytisins, en hann fjallaði um heimild til gengistryggingar lána og var endursögn á minnisblaði Sigríðar sama efnis. 11.8.2010 03:15
Spaugstofan kostaði 81 milljón Spaugstofan kostaði Ríkisútvarpið 81 milljón í hitteðfyrra samkvæmt tölum sem komu fram í sundurliðuðu svari Katrínar Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í vetur. 10.8.2010 21:56
Þarf að auka öryggi á Geysissvæðinu „Maður á náttúrlega að passa þetta lítil börn. Það liggur alveg fyrir því að það er þarna hiti sem vellur upp úr allskonar holum," segir Drífa Kristjánsdóttir, oddviti Bláskógarbyggðar. Geysir í Haukadal er í Bláskógarbyggð en þar slasaðist tveggja ára gömul telpa í gær þegar að hún datt í heitt vatn sem hafði fallið úr hvernum Strokki. 10.8.2010 21:29
Berst með kjafti og klóm til að viðhalda menningarstarfi „Ég er staðfastur í því og viss umað það verður einhver flugeldasýning í gangi," segir Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi og formaður menningar- og ferðamálaráðs, um flugeldasýninguna sem venjulegast markar endalok 10.8.2010 20:37
Katrín: HM málið skoðað í ráðuneytinu Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra ætlar að láta skoða hvort rétt sé að skylda Stöð 2 Sport til þess að sýna leiki á HM í handknattleik í opinni dagskrá. „Það er heimild til að setja reglugerð um viðburði sem eru í opinni dagkskrá," segir Katrín. 10.8.2010 18:51
Telja að ráðherra hafi kippt fótunum undan rækjufyrirtækjum Starfsmenn Byggðastofnunar eru þeirrar skoðunar að landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra hafi kippti fótunum undan rekstrargrundvelli nokkurra viðskiptavina stofnunarinnar þegar hann gerði veiðar á úthafsrækju frjálsar. Þessi ákvörðun gæti þýtt að Byggðastofnun þurfi að afskrifa 1,3 milljarða króna vegna lána til fjögurra fyrirtækja. 10.8.2010 18:30
Hægist á fjölgun örorkulífeyrisþega Verulega hefur hægt á fjölgun örorkulífeyrisþega á þessu ári miðað við það undanfarin ári. Með örorkulífeyrisþegum er átt við þá sem skráðir eru með 75% örorku eða meira. Þetta kemur fram á vef Samtaka atvinnulífsins. 10.8.2010 15:37
Tólf teknir fyrir ölvunarakstur Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. 10.8.2010 21:01
Ráðherra greinir á um ágæti mjólkurfrumvarps Fjármálaráðherra segist ósammála Samkeppniseftirlitinu um að mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra sé skaðlegt samkeppni. Þá greinir efnahags- og viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra á um kosti frumvarpsins, en sá fyrrnefndi er sammála sjónarmiðum Samkeppniseftirlitsins. 10.8.2010 18:45
Jóhanna lætur kanna hæfi Bjarnveigar vegna ummæla Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hyggst kanna meint vanhæfi Bjarnveigar Eiríksdóttur til setu í nefnd sem meta á lögmæti kaupa Magma Energy á eignarhlutum í HS Orku. Bjarnveig lýsti skoðun sinni á kaupunum í fjölmiðlum nokkrum vikum áður en hún var skipuð í nefndina. 10.8.2010 18:30
Karlmaður handtekinn fyrir fíkniefnaakstur Lögreglan á Akureyri handtók karlmann á þrítugsaldri laust fyrir klukkan níu í morgun grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. 10.8.2010 17:21
Vill að ráðherra íhlutist um að HM verði í opinni dagskrá Páll Magnússon útvarpsstjóri beinir því til Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra að hún íhlutist um að leiki íslenska handboltalandsliðsins á komandi heimsmeistaramóti verði að sýna í ólæstri dagskrá. Í dag var tilkynnt um að mótið verði sýnt á Stöð 2 Sport en ekki í Ríkissjónvarpinu eins og venjan hefur verið. 10.8.2010 16:37
Dópaður undir stýri með barn í bílnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði mann um helgina en hann hafði ekið undir áhrifum fíkniefna. Barn mannsins var í bílnum að því er fram kemur í tilkynningu en ökumaðurinn hafði áður verið sviptur ökuréttindum. Alls voru fimm ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna um helgina. 10.8.2010 15:37
Leikskólaplássum fjölgað í Norðlingaholti Þrjátíu ný leikskólapláss verða til í Norðlingaholti um miðjan september þegar opnuð verður ný deild við leikskólann Rauðhól að Sandavaði 7, en brýn þörf er í hverfinu fyrir leikskólapláss fyrir börn sem verða tveggja ára á árinu að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 10.8.2010 15:26
Fagna merkingu erfðabreytta matvæla Neytendasamtökin fagna þeirri ákvörðun Jóns Bjarnasonar, landbúnaðarráðherra, ætlar að setja reglugerð um merkingu erfðabreyttra matvæla. Reglugerðin mun kveða á um skyldu til að merkja sérstaklega allar matvörur sem seldar eru hér á landi og innihalda hráefni úr erfðabreyttum lífverum. Stuðst verður við samsvarandi reglur Norðmanna og mun ný reglugerð taka gildi fjótlega, með nauðsynlegum aðlögunartíma fyrir framleiðendur og söluaðila. 10.8.2010 15:22
Vinnur gegn hagsmunum bænda og neytenda Neytendasamtökin fullyrða að mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra vinni gegn hagsmunum bænda og neytenda. Verði frumvarpið samþykkt verður einokun fest í sessi að mati samtakanna og því vilja þau að frumvarpið verði fellt á Alþingi. 10.8.2010 14:43
Jón vanhæfur til að skipa í embætti skrifstofustjóra Forsætisráðherra hefur skipað Rögnu Árnadóttur dóms- og mannréttindaráðherra í stað Jóns Bjarnasonar til þess að taka ákvörðun um skipun í embætti skrifstofustjóra auðlindaskrifstofu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. 10.8.2010 14:41
Kertafleyting á Akureyri Samstarfshópur um frið stendur fyrir kertafleytingu á Akureyri næstkomandi fimmtudagskvöld til að minnast þess að 65 ár eru liðin frá því að kjarnorkusprengjum var varpað á japönsku borgirnar Hirosima og Nagasaki. Athöfnin verður haldin við Minjasafnstjörnina á Akureyri og hefst klukkan 22. Ávarp flytur Björn Þorláksson, bæjarlistamaður Akureyrar. 10.8.2010 14:22
Fleygðu fimmhundruð plastgítörum yfir Heklu Margt hefur á daga Þristsins, DC3 flugvélar Þristavina drifið þá áratugi sem vélin hefur verið á flugi en sennilega hefur hún aldrei farið í eins skrítið verkefni og á dögunum. Afraksturinn má nú sjá á Youtube og fleiri netsíðum en um er að ræða auglýsingu frá tölvuleikjaframleiðanda. 10.8.2010 13:24
Spaugstofan hættir: Hefðu viljað kveðja áhorfendur Spaugstofan verður ekki áfram á dagskrá Sjónvarpsins í haust vegna boðaðs niðurskurðar stjórnvalda á tekjum RÚV. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Páli Magnússyni útvarpsstjóra á vef RÚV. Karl Ágúst Úlfsson einn meðlima Spaugstofunnar segir að það hafi legið í loftinu í nokkurn tíma að þátturinn yrði lagður niður. Hann er staddur erlendis og fékk fréttirnir í hádeginu. 10.8.2010 13:13
Sigruðu í alþjóðlegri kórakeppni í Rússlandi Flensborgarkórinn, kór útskrifaðra nemenda frá Flensborgarskólanum, keppti í alþjóðlegri kórakeppni í Sankti Pétursborg í Rússlandi sem lauk fyrir helgi. Kórnum var boðin þátttaka og keppti í flokki blandaðra kóra sem var stærsti flokkurinn og vann fyrstu verðlaun í þeim flokki. Magnús Þorkelsson, skólastjóri Flensborgarskólans, segir í tilkynningu mikla viðurkenningu fólgna í þessum árangri. 10.8.2010 13:01
Erfðabreytt matvæli verði merkt sérstaklega Jón Bjarnason, landbúnaðarráðherra, hyggst setja reglugerð um merkingu erfðabreyttra matvæla. Að því er fram kemur í tilkynningu frá landbúnaðarráðuneytinu mun reglugerðin kveða á um skyldu til að merkja sérstaklega allar matvörur sem seldar eru hér á landi og innihalda hráefni úr erfðabreyttum lífverum. 10.8.2010 12:37
Sjálfstæðismenn styðja mjólkurfrumvarp Annar fulltrúa Sjálfstæðisflokks í landbúnaðarnefnd segist standa við stuðning sinn við mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra, en hinn segir gagnrýni á frumvarpið sem fram hefur komið ekki eiga rétt á sér. Báðir eru þeir þó sammála um að landbúnaðarnefnd þurfi að fara yfir málið í ljósi gagnrýninnar og útiloka ekki að frumvarpið taki breytingum. 10.8.2010 12:16
„Skrýtin vinnubrögð“ „Þetta er ekki fagleg nálgun en við ætlum ekki að dragast inn í þessa umræðu. Þeir sem eru að stýra borginni verða að taka þessar ákvarðanir og standa og falla með þeim en það er ekki hægt að segja annað en að þetta eru skrýtin vinnubrögð,“ segir Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, um dagbókarfærslu Jóns Gnarr borgarstjóra. 10.8.2010 12:09
Sömu mælikvarðar verði notaðir um alla í nefndinni Það er eðlilegt að hæfi allra í nefnd forsætisráðherra um Magma-málið séu metin út frá sömu mælikvörðum, segja heimildarmenn fréttastofu, sérfræðingar í stjórnsýslunni sem ekki vilja láta nafns síns getið. Sveinn Margeirsson tekur ekki sæti í nefndinni vegna vanhæfis. 10.8.2010 12:02
Slys við Geysi: Skjót viðbrögð fyrrverandi sjúkraflutningamanns Skjót viðbrögð fyrrverandi sjúkraflutningamanns urðu til þess að tveggja ára stúlka, sem brenndist alvarlega við Geysi í gær, fékk rétta aðhlynningu strax eftir slysið. Hún liggur nú á gjörgæsludeild Landsspítalans. Ríkið á svæðið þar sem slysið varð, en það er ekki á ábyrgð neins ráðuneytis eða stofnunar. 10.8.2010 11:55
Götum í miðborginni lokað vegna kvikmyndatöku Umferð um Fríkirkjuveg og Skothúsveg verður stöðvuð á milli klukkan 13 og 15 í dag vegna kvikmyndatöku. Í tilkynningu hvetur Umferðarstofa ökumenn til að fara ekki inn í íbúðarhverfi miðborgarinnar, til að komast framhjá lokuninni, heldur finna sér frekar leið um stofnbrautir. 10.8.2010 11:33
Þuklarar geta unnið hrútasæði Íslandsmeistaramót í hrútadómum verður haldið í áttunda sinn næstkomandi laugardag í í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum. Um kvöldið fer síðan fram hið landsþekkta Þuklaraball í félagsheimilinu á Hólmavík með sveiflukónginum Geirmundi Valtýssyni. 10.8.2010 10:27
Íhugar að blása flugeldasýninguna á Menningarnótt af Hugsanlega verður engin flugeldasýning á Menningarnótt í ár en Jón Gnarr borgarstjóri íhugar nú að blása sýninguna af. Með því myndu um þrjár milljónir sparast. 10.8.2010 10:00
Makríll upp í landsteinum víða um landið Makríll spókaði sig í þúsunda tali rétt við sjávarmálið á Langasandi á Akranesi í gær og talið er að makríll hafi líka verið á ferð þegar fiskitorfa óð á Pollinum við Akureyri um helgina. 10.8.2010 07:45
Tveir skemmtibátar í vandræðum á Faxaflóa Tveir skemmtibátar lentu í vandræðum á Faxaflóa í gær. Eldur kviknaði í öðrum, en skipverjum tókst að slökkva hann. Eftir það var hann ógangfær. 10.8.2010 07:40
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent