Sóley Tómasdóttir: Besti flokkurinn genginn stóriðjunni á hönd 12. ágúst 2010 14:44 Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, segir Besta flokkinn genginn til liðs við stóriðjuarm Samfylkingarinnar.
Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, segir að Besti flokkurinn sé genginn til liðs við það sem hún kallar stóriðjuarm Samfylkingarinnar. Þá segir hún að fulltrúar Samfylkingarinnar í borgarstjórn standi ekki með eigin ráðherra. Á fundi borgarráðs í dag var samþykkt umsögn borgarlögmanns um frumvarp iðnaðarráðherra til laga um verndnar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og háhitasvæða. Sóley segir í tilkynningu að meirihluti Samfylkingarinnar og Besta flokks hafi samþykkt umsögnina þar sem fram komi talsverður ákafi gagnvart rannsóknum og orkunýtingu á friðlýstum svæðum þvert á áform ríkisstjórnarinnar. Hún segir að fulltrúar meirihlutans hafi rökstutt afstöðu sína með því að orkurannsóknir gætu leitt til aukins verndargildis til framtíðar. Sjálf segist Sóley ekki kannast við orkurannsóknir sem hafi hagsmuni friðlýstra svæða að leiðarljósi. Þvert á móti séu orkurannsóknir ætíð unnar vegna hagsmuna orkufyrirtækja með nýtingu viðkomandi svæðis í huga. Sóley segir að afstaða Samfylkingarinnar veki upp spurningar um stefnu flokksins í umhverfis- og náttúruverndarmálum sem sé flaggað eftir hentugleika. „Að sama skapi er sorglegt að Besti flokkurinn skuli slást í lið með stóriðjuarmi Samfylkingarinnar í að lítilsvirða friðlýsingar og náttúruvernd undanfarinna áratuga og ómetanleg svæði á borð við Öskju, Fjallabak og Vonarskarð. Betur hefði farið á því að flokkur sem gefur sig út fyrir umhverfisvernd stæði með náttúrunni og þeim svæðum sem hafa hlotið þann sess sem þeim ber," segir Sóley.
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Birtu ekki baulið Erlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Síminn stoppar ekki“ Innlent Fleiri fréttir Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sjá meira