Banna skráningu erlendra tjónabíla 12. ágúst 2010 08:56
Frá og með 1. janúar 2011 verður ekki heimilt að skrá ökutæki hér á landi sem skráð eru erlendis sem tjónaökutæki og bera slíkt skráningarskírteini með sér. Þessu beinir Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið til Umferðarstofu. Þá verða þessi ökutæki að teljast í flestum tilfellum óhæf til endurskráningar í öðrum löndum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umferðarstofu en þar segir einnig „að um áratugaskeið hefur viðgengist á Íslandi að flytja inn tjónabíla, þá aðallega frá Bandaríkjunum. Ökutækjum þessum fylgja skráningarskírteini þar sem fram kemur meðal annars að þau hafi lent í tjóni og þau teljist af þeim sökum ekki hæf til endurskráningar í viðkomandi landi. Oft hafa ökutæki sem þessi verið keypt á uppboðum í ónothæfu ástandi og þau síðan flutt til Íslands. Eftir lágmarksviðgerð hefur síðan gefist kostur á að skrá ökutækið til aksturs að uppfylltum skilyrðum skoðunar. Við skoðunina er fyrst og fremst leitað eftir göllum, bilunum eða skemmdum sem þá stundina geta haft bein áhrif á öryggi ökutækisins en hins vegar gefst ekki kostur á að greina galla sem geta til dæmis verið á rafkerfi vegna vatntjóns og öðrum þáttum, sem síðar meir og oft innan skamms tíma, geta haft áhrif á öryggi vegfarenda. Hafa reglur hér á landi verið túlkaðar mun rýmra en víðast hvar í nágrannalöndum okkar. Umferðarstofu hefur borist vitnisburður um bíleigendur sem keypt hafa svonefnda tjónabíla í góðri trú og án vitundar um það tjón sem bíllinn hefur orðið fyrir og þeir síðan staðið frammi fyrir alvarlegum göllum og skemmdum á bílnum. Í mörgum tilfellum er um vatnstjón að ræða sem auðvelt er að hylja. Það var því bæði með tilliti til krafna um öryggi og ekki hvað síst neytendasjónarmið að Umferðarstofa óskaði eftir umsögn samgöngu og sveitastjórnarráðuneytisins um það hvort að slíkur innflutningur standist ýtrustu túlkun reglugerðar um gerð og búnað ökutækja og reglugerðar um skráningu ökutækja." Nú liggur fyrir umsögn ráðuneytisins þar sem fram kemur að með tilliti til umferðaröryggis beri að banna skráningu slíkra ökutækja.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira