Fleiri fréttir

Þreföldun orðið á útlánum AGS

Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) vill stækka útlánagetu sjóðsins í 1.000 milljarða dollara eða rúmlega 122 þúsund milljarða króna. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur staðið í ströngu síðan fjármálakreppan skall á fyrir rúmum tveimur árum. Hann aðstoðar nú fjölmörg ríki víða um heiminn, þar á meðal Ísland.

Verð alfarið í höndum verslana

Verð á kartöflum hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum og vart haldist stöðugt í einn mánuð í senn. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni hefur vísitala neysluverðs haldist nokkuð jöfn á undanförnum 15 árum, þótt hún hafi hækkað um tæp fimmtíu prósentustig síðan í desember 2007. Verð á kartöflum fylgir vísitölu neysluverðs upp að einhverju marki, en þó ekki meira en svo að það fer úr 132 krónum á kílóið í maí 2008 upp í 242 krónur á kílóið í ágúst sama ár. Þetta er um 83 prósenta hækkun á tæpum þremur mánuðum.

Laxar á þurru landi

Óvenju miklir þurrkar hafa verið á Vestfjörðum að undanförnu og er gróður víða orðinn mjög þurr. Þá er vatnsrennsli í laxveiðiánum við Ísafjarðardjúp orðið mjög lítið.

Skeytingarleysi um líf almennings

WikiLeaks birti um helgina yfir 90 þúsund leyniskjöl frá her bandamanna í Afganistan. Stærsti leki í sögu bandaríska hersins. Skjölin sýna skeytingarleysi gagnvart óbreyttum borgurum. Fjölda alvarlegra tilvika hefur verið haldið leyndum fyrir fjölmiðlum.

Strandveiðimenn vilja ekki veiða makríl

Sjómenn á litlu strandveiðibátunum virðast ekki hafa stokkið á nýlega heimild sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að þeir megi stunda makrílveiðar á línu og handfæri.

Reyndi að brjótast inn í fyrirtæki í austurborginni

Karlmaður reyndi að brjóta sér leið inn í fyrirtæki í austurborginni í nótt með því að kasta steinum í stórann útstillingarglugga. Rúðan gaf sig ekki og var maðurinn horfinn þegar lögregla kom á vettvang.

Segir ríkisstjórnina óstarfhæfa

Ætli stjórnvöld sér að grípa inn í kaup Magma Energy á HS orku getur það bakað ríkinu skaðabótaskyldu. Það setur einnig slæmt fordæmi sem komið getur í veg fyrir fjárfestingar erlendra aðila hér á landi, segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.

Sáu ríflega þúsund seli

Selasetur Íslands stóð fyrir selatalningu í innanverðum Húnaflóa á sunnudaginn. Alls sáust 1.054 selir samanborið við 1.019 í fyrra.

Verða að sleppa til að bjarga stofninum

Stórlaxi hefur fækkað gífurlega í ám landsins á undanförnum árum. Veiðimálastofnun hvatti veiðimenn til þess að hlífa stórlaxi í byrjun veiðitímabilsins sökum fækkunarinnar, en stofninn er enn í hættu. Fækkunina má rekja til erfiðra aðstæðna á uppeldisslóðum hans í hafinu og hefur þetta ástand varað í tvo áratugi.

Ætla að opna fimm matvöruverslanir

Ný verslunarkeðja ætlar sér að opna fimm matvöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu á næstunni. Auglýst var eftir húsnæði í helgarblaði Fréttablaðsins og herma heimildir blaðsins að viðbrögðin hafi verið góð.

Ríkiskaup láta hefð ráða frekar en lestur

Mikill meirihluti dagblaðaauglýsinga frá mörgum opinberum stofnunum birtist í Morgunblaðinu. Má þar nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íbúðalánasjóð og Ríkiskaup.

Áhersla á sérstöðu Íslands

Aðildarviðræður Íslands við ESB hefjast formlega á ríkjaráðstefnu í Brussel í dag. Á fundinum verður lögð fram greinargerð um afstöðu ríkisstjórnarinnar til komandi viðræðna. Þar mun ESB einnig leggja fram greinargerð auk þess sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, og Steven Vanackere, utanríkisráðherra Belgíu, taka til máls.

Ferðalangar streyma til Eyja

Ferðamönnum til Vestmannaeyja hefur snarfjölgað eftir að Landeyjahöfn var tekin í notkun fyrir viku síðan. Að sögn Guðmundar Pedersen, rekstrarstjóra Herjólfs, lætur nærri að fjöldi farþega hafi þrefaldast miðað við sama tíma í fyrra.

Trébátar sukku í höfninni

Tveir bátar sukku í Reykjavíkurhöfn um helgina. Annar báturinn, Gæskur, var í smábátahöfninni sem er við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu, en hinn var við Grandagarð og nefnist Ver.

Aldrei fleiri í sundlaugunum

Metaðsókn var í sundlaugar í Skagafirði í júní en um 11.500 manns sóttu þá laugarnar. Á sama tíma í fyrra voru sundlaugargestir í Skagafirði um 5.500.

Kveikt í báti á Suðurnesjum

Eldur kom upp í báti neðan við athafnasvæði Gámaþjónustunnar í Njarðvík í fyrradag. Minnstu munaði að eldurinn næði að teygja sig yfir í annan nærliggjandi bát en bensínstöð ÓB er um hundrað metra frá svæðinu þar sem eldurinn kom upp.

Þurftu að hafa afskipti af unglingum fyrir utan 10-11 í Keflavík

Lögreglan á Suðurnesjum þurfti að hafa afskipti af þremur til fjórum strákum á unglingsaldri fyrir utan 10-11 í Keflavík nú fyrir stundu. Að sögn lögreglumanns voru þeir eitthvað að „kýtast“ en þegar lögregla mætti á staðinn róuðust þeir. Enginn slasaðist.

Greiddi ekki skuldir sem námu yfir 5 milljörðum

Salt Properties, félag í eigu Róberts Wessman, greiddi ekki skuldir sem námu yfir fimm milljörðum króna, en þær voru á gjalddaga í ár. Skilanefndir Landsbankans og Glitnis og Straumur munu væntanlega leysa til sín eignir félagsins, en það á meðal annars landareignir á Spáni og í Brasilíu.

Unglingar í Vinnuskóla Kópavogs rændir á vinnutíma

„Ég ætlaði að fara kíkja á símann minn þegar ég og strákur í hópnum hjá mér uppgötvum að það er búið að stela frá okkur," segir Snæfríður Halldórsdóttir flokksstjóri í Vinnuskóla Kópavogs. Hópurinn sem hún sér um og er skipaður 15 ára krökkum varð fyrir því óláni í dag að stolið var þremur farsímum og einum ipod af unglingunum þegar þau voru að vinna á Víghóli í Kópavogi í dag.

Nýr bæjarstjóri í Grindavík

Róbert Ragnarsson stjórnmálafræðingur er nýr bæjarstjóri Grindavíkur. Á bæjarstjórnarfundi í dag samþykkti bæjarstjórnin samhljóða að ráða hann til næstu fjögurra ára.

Of seint að stöðva kaupin en Magma opið fyrir forkaupsrétti

Ráðherra getur ekki stöðvað kaup Magma Energy í HS Orku á grundvelli heimildar í lögum þar sem of langur tími er liðinn. Ef kaupsamningur verður samt ógiltur vegna þrýstings frá stjórnvöldum verður HS Orka áfram í eigu útlendinga. Forstjóri Magma á Íslandi segir fyrirtækið opið fyrir forkaupsrétti ríkisins á HS Orku.

11 þúsund lífeyrisþegar þurfa að endurgreiða tryggingastofnun

Um ellefu þúsund lífeyrisþegar hafa fengið ofgreitt frá Tryggingastofnun ríkisins, samkvæmt endurreikningi og uppgjöri bóta. Ofgreiðslur nema 4,3 milljörðum króna. Það þýðir að að jafnaði, að fólkið þurfi að endurgreiða um fjögur hundruð þúsund krónur.

Klæddi sofandi stúlku úr nærbuxum og fróaði sér

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann á þrítugsaldri í fimm mánaða fangelsi fyrir að klæða sofandi stúlku úr nærbuxunum og fróa sér fyrir framan hana. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust.

Rannsaka einkavæðingu Hitaveitu Suðurnesja

Lögmæti kaupa Magma Energy á HS orku verður rannsakað af stjórnvöldum og líklegt er að einkavæðing á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja árið 2007, verði líka könnuð ofan í kjölinn. Þetta segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.

Össur fer utan

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, heldur í dag til Brussel þar sem hann tekur á morgun þátt í ríkjaráðstefnu Íslands og Evrópusambandsins, sem markar upphaf aðildarviðræðna Íslands við sambandið.

Hefur ekkert um níumenningana að segja

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segist ekkert hafa að segja um bréf sem hún sendi Jóni Ólafssyni prófessor, og lýsti þar því sem hún kallaði staðreyndir í máli níumenninganna sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi.

Ætla að fara yfir Magma-málið

Ráðherrar í ríkisstjórninni hyggjast fara yfir Magma-málið. Þetta var niðurstaða fundar þeirra sem haldinn var í stjórnarráðinu í hádeginu.

Engar áhyggjur af ríkisstjórninni

Þingmaður Samfylkingarinnar segist ekki líta svo á að ríkisstjórnarsamstarfið sé í hættu þrátt fyrir yfirlýsingar nokkurra þingmanna vinstri grænna í Magma málinu. Samfylkingarmenn ætla að ræða Magma málið á óformlegum þingflokksfundi í dag.

Rafsegulsvið svipað og í Svíþjóð

Ný rannsókn á rafsegulsviði í íbúðarhúsnæði sýnir að meðaltal rafsegulsviðs á íbúðarhúsnæði er svipað og í Svíþjóð.

Pakistan leikur tveimur skjöldum í Afganistan

Leyniþjónusta Pakistan aðstoðar Talibana í stríði við Bandaríkjamenn í Afganistan þrátt fyrir að fá milljarð dollara árlega frá Bandaríkjastjórn og vera yfirlýstur bandamaður Bandaríkjanna. Þá virðast Talibanar í Afganistan sterkari en nokkru sinni þrátt fyrir níu ára stríðsrekstur Bandaríkjamanna í landinu. Þetta kemur fram í leyniskjölum Bandaríkjahers sem vefsíðan Wikileaks birti í gærkvöldi.

Aðildarviðræður hefjast á morgun

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins samþykktu í morgun að hefja formlegar viðræður við Ísland um inngöngu í sambandið.

Lítil sem engin lundaveiði í Eyjum

Nokkrir lundaveiðimenn héldu í gær út í úteyjar Vestmannaeyja til veiða, en þær eru heimilar frá og með gærdeginum fram á fimmtudag.

Telur óvíst hvort stjórnin lifi

„Það verður bara að fá að koma í ljós,“ segir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, spurð hvort hún telji að ríkisstjórnin muni lifa Magma-málið svokallaða af. Þrír þingmenn flokksins, Guðfríður Lilja, Atli Gíslason og Þuríður Backman, hafa um helgina kveðið svo fast að orði að þeir geti ekki – eða tæpast – stutt samstarfið við Samfylkinguna nema kaup Magma á HS orku verði stöðvuð.

Niðurskurður kallar kannski á lokanir

Mikill niðurskurður er yfirvofandi hjá Háskólanum á Akureyri (HA). Skólinn skar niður um 6,6 prósent á síðasta ári og nauðsynlegt er að auka niðurskurð um frekari 8 prósent, eða 105 milljónir króna.

Mikil þörf á góðri nýliðun

Mikil þörf ríkir nú á góðri nýliðun ef sandsílastofninn á ekki að gefa enn frekar eftir, að mati Hafrannsóknastofnunar, eftir fyrstu mælingar á stofninum.

Óánægja ekki nóg til að stöðva kaupin

Sú skoðun þingmanna Vinstri grænna að sala HS orku til Magma Energy sé stefnubreyting frá stjórnarsáttmálanum dugir ekki til þess að hægt sé að stöðva samninginn samkvæmt lögum um erlenda fjárfestingu. Auk þess hefði þurft að grípa inn í málið innan átta vikna frá því að

Sjá næstu 50 fréttir