Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nágrannaerjur í Garðabæ: Fjölskyldurnar flúnar heimili sitt Báðar fjöskyldurnar sem eiga í nágrannaerjunum í Garðabæ hafa flúið heimili sín. Önnur fjölskyldan hefur fengið fjölmargar hótanir. 25.7.2010 19:24
Blóðvatn á Eskifirði: Heilbrigðiseftirlitið átti að loka veitunni Andrés Elísson fyrrverandi bæjarfulltrúi í Fjarðarbyggð gagnrýnir heilbrigðiseftirlitið harðlega eftir að blóðvatn lak í vatnsveitubæjarins í byrjun mánaðarins. Hann segir að eftirlitið hafi gefið grænt ljós á vatnsveituna eftir að hafa bara tekið sýni á einum stað. Nokkrum dögum síðar hafi hundrað til tvö hundrað manns verið með niðurgang og fólk farið á spítala í kjölfarið. 25.7.2010 17:58
Garðbæingar halda samstöðufund Um 70 manns ætla að mæta í Aratún í Garðabæ í kvöld og sýna þeim sem hafa orðið fyrir ofbeldi frá nágrönnum sínum stuðning. Á Snjáldurskinnu segir að fundurinn verður haldinn fyrir utan hús þeirra sem fyrir ofbeldinu urðu til að sýna þeim stuðning. „Hann er ætlaður til að sýna það svart á hvítu að samfélagið sættir sig ekki við hegðun eins og þau urðu fyrir,“ segir á síðunni. 25.7.2010 16:20
Prjónar 17 kílómetra trefil Kona á Siglufirði fékk þá hugdettu að prjóna 17 kílómetra langan trefil sem næði milli miðbæjar Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Hugmyndin varð að veruleika og nú þegar er trefillinn orðinn rúmlega 6 kílómetra langur. 25.7.2010 20:22
Botni kreppunnar náð Ýmsar hagtölur sem mæla lífsmörk hagkerfisins benda til þess að botni kreppunnar sé náð. Hagfræðiprófessor segist vona að svo sé, en þó eigi enn eftir að finna lausn á stórum vandamálum. 25.7.2010 19:19
Ófriður á stjórnarheimilinu Ríkisstjórnin gæti misst stuðning þingmeirihlutans ef kaupin á Magma Energy ganga í gegn, en þingmönnum sem neita að styðja ríkisstjórnina ef svo fer fjölgar. Stjórnmálafræðingur telur ekki ólíklegt að að boðað verði til kosninga fyrir lok kjörtímabilsins. 25.7.2010 19:14
Skuldbingar ríkissjóðs vegna ríkistryggðra skuldabréfa 29 milljarðar Ríkissjóður hefur greitt um fimm milljarða króna frá hruni vegna ríkistryggðra skuldabréfa sem bankarnir tóku yfir við einkavæðingu. Heildarskuldbindingar vegna þessa nema tæpum tuttugu og níu milljörðum króna. 25.7.2010 19:11
Furða sig á niðurstöðu héraðsdóms Hagsmunasamtök heimilanna furða sig á niðurstöðu héraðsdóms síðastliðinn föstudag að bæta skuli lögbrjóti upp forsendubrest sem varð til vegna lögbrota hans. Dómarinn fríi lögbrjótinn frá því að taka ábyrgð á lögbroti sínu og í reynd verðlaunar hann, ef dómurinn verður fordæmisgefandi fyrir gengistryggð húsnæðislán. 25.7.2010 18:19
Umferð farin að þyngjast Umferð í gegnum Borgarnes er farin að þyngjast samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni í Borgarnesi. Umferðin hefur verið jöfn og þétt í allan dag, en nú er orðið „frekar þröngt á milli bíla", eins og varðstjóri orðaði það. Þrír hafa verið teknir fyrir of hraðan akstur í umdæminu í dag. 25.7.2010 15:55
Síðasta Love Parade gangan Í ljós hörmunganna í Love Parade göngunni í Duisburg hafa skipuleggjendur hátíðarinnar ákveðið að halda gönguna ekki aftur. 19 létust og 340 slösuðust þegar múgæsing greip um sig í undirgöngum sem lágu að hátíðarsvæðinu. 25.7.2010 15:07
Forstjóri BP stígur til hliðar Forstjóri olíurisans BP, Tony Hayward, mun hætta hjá fyrirtækinu á næstunni að því er fréttavefur BBC greinir frá. Hayward og aðrir stjórnendur fyrirtækisins hafa verið gagnrýndir harðlega eftir að olíulekinn á Mexíkóflóa kom upp. Olíuslysið er talið eitt stærsta umhverfislys síðari ára og hafa björgunaraðgerðir kostað félagið stórfé. Olíusprengingin varð í byrjun sumars en hún kostaði þrettán manns lífið auk þess sem fjöldi særðist. Talið er að olía haldi áfram að leka frá borholunni og því sé ekki útséð með endanlegar afleiðingar þessa umhverfislyss. 25.7.2010 12:57
Þingmaður VG: Mun ekki heldur styðja ríkisstjórnina Þingmaður Vinstri grænna segist eiga afar erfitt með að styðja þá ríkisstjórn sem ekki gerir allt sem í hennar valdi stendur til að stöðva kaup Magma Energy á HS Orku. 25.7.2010 12:10
Ölvun á bæjarhátíðum en ólæti lítil Þrír voru teknir fyrir ölvunarakstur á hátíðinni Á góðri stundu á Grundarfirði þar sem yfir 2000 manns voru samankomnir. Að sögn lögreglu fór hátíðin vel fram og skein sólin blítt hátíðargesti á laugardaginn. 25.7.2010 12:03
Mikil ölvun á Mærudögum Fjölmenni er á tjaldsvæðum og hátíðum víða um land. Þær upplýsingar fengust hjá lögreglunni á Húsavík að mikil ölvun hafi verið í bænum en þar fara nú Mærudagar fram. Hins vegar hefði ekkert stórvægilegt komið upp á þrátt fyrir nærveru bakkusar. Sömu sögu var að segja af Akureyri. Þar voru fáir í bænum - fámennt en góðmennt. 25.7.2010 09:46
Maður skallaður í miðbænum Talverð ölvun var í miðbænum í nótt og voru tvær líkamsárásir tilkynntar til lögreglu. Fyrri líkamsárásin átti sér stað laust fyrir klukkan fimm. Þar hringdi maður í lögregluna og sagði fólk á bíl hafa komið og ráðist á sig. Seinni líkamsárásin tengdist skemmtistað gegnt Þjóðleikhúsinu. Klukkan tuttugu mínútur í sex barst lögreglu tilkynning um að maður hefði verið skallaður á staðnum. Að sögn vakstjóra hjá Lögreglunni í Reykjavík var nóttin annars tíðindalaus enda fjöldi fólks úr bænum. 25.7.2010 09:27
Ný hreppsnefnd Reykhóla skipuð Nú liggur fyrir hverjir munu skipa nýja hreppsnefnd í Reykhólasveit eftir að kosið var í dag. Það eru þau Andrea Björnsdóttir, Eiríkur Kristjánsson, Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir, Sveinn Ragnarsson og Gústaf Jökull Ólafsson. 24.7.2010 20:43
Mikill fjöldi á frönskum dögum Mikill fjöldi er saman kominn á frönskum dögum á Fáskrúðsfirði. Hátíðin hefur gengið vel en auk Íslendinga hafa gestir frá vinabæ Fáskrúðsfjarðar í Frakklandi lagt leið sína á hátÍðina. 24.7.2010 18:35
Börnum boðið í Viðey Börn og foreldrar þeirra eru boðin sérstaklega velkomin á sérstakan barnadag sem haldinn verður hátíðlegur í Viðey á morgun. Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, verkefnastjóri fyrir Viðey, segir að þetta sé þriðja árið sem 24.7.2010 16:44
Ágætis kosningaþátttaka á Reykhólum Kosningar til sveitastjórnar í Reykhólahreppi hafa gengið vel það sem af er degi, segir Halldór D. Gunnarsson, formaður kjörstjórnar. Þær hófust klukkan níu í morgun og munu standa þar til klukkan sex í kvöld. 24.7.2010 15:31
Lausn Magma málsins forsenda fyrir stuðningi við ríkisstjórnina Þingflokksformaður Vinstri grænna segist ekki styðja ríkisstjórnina áfram verði kaup Magma Energy á HS orku ekki gerð ógild. Það sé skýlaus krafa þingflokksins að þeim verði að rifta, ekki sé nóg að takmarka nýtingarréttinn. Iðnaðarráðherra segir að ríkið geti ekki rift samningi sem það er ekki aðili að. 24.7.2010 14:11
Sóttu konu sem hafði slasast í Esjunni Sjúkraflutningamenn fóru í hlíðar Esjunnar um fimmleytið í dag til að aðstoða konu sem hafði misstigið sig, tognað á ökkla og treysti sér ekki til að ganga niður. Sjúkraflutningamenn þurftu því að bera konuna niður, en hún var þó ekki hátt uppi þegar hún slasaði sig. 24.7.2010 18:28
Ómar Ragnarsson tók lagið Ómar Ragnarsson tók lagið þegar að hann tók á móti peningagjöf úr fjársöfnun sem efnt var til í tilefni af sjötugsafmæli hans. Hann fékk féð afhent í Café Flóru í Grasagarðinum í Laugardal í dag. Það var Friðrik Weishappell sem efndi til söfnunarinnar eftir að hann las um að Ómar væri klyfjaður skuldum vegna baráttu sinnar fyrir náttúruvernd. Söfnunin fór að mestu fram á samskiptasíðunni Facebook. 24.7.2010 15:40
Lýst eftir Jóni Helga Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Barnavernd Reykjavíkur lýsa eftir Jóni Helga Lindusyni 16 ára. 24.7.2010 17:07
Ómar fær afmælisgjöfina í dag Ómar Ragnarsson fær í dag afhentan árangur af vikulangri afmælissöfnun sem veitingamaðurinn Friðrik Weisshappel hratt af stað í gegnum fésbókina. 24.7.2010 13:12
Þyrla Gæslunnar sækir mann frá Grundarfirði Þyrla Landhelgisgæslunnar fór á tólfta tímanum í dag í átt að sjúkrabíl sem flytur slasaðan mann frá Grundarfirði. Maðurinn virðist hafa lamast á vinstri hlið líkamans. Hann hafði átt í ryskingum í nótt en lögreglan segir ekki hægt að fullyrða um að þær séu ástæðan fyrir eymslum sem maðurinn finnur núna fyrir. Maðurinn verður fluttur til Reykjavíkur. 24.7.2010 11:36
Niðurstaða í Magma málinu í næstu viku Katrín Júlíusdóttir aftekur með öllu að þingflokkur VG hafi komið þeirri skýlausu kröfu á framfæri vð Samfylkinguna að fundin yrði leið til að rifta kaupum kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy á HS Orku. 24.7.2010 11:09
Grunur um salmonellusmit Grunur leikur á um salmonellusmit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að frekari rannsókna sé þörf til þess að staðfesta gruninn en þangað til þyki fyrirtækinu rétt að innkalla vöruna. Um er að ræða kjúkling með rekjanleikanúmerunum (Rlnr.) 24.7.2010 10:21
Sóttu mann suðvestur af Látrabjargi Sjúkraflutningamenn fóru að Hafnarfjarðarhöfn í gærkvöld til að sækja erlendan veikan mann um borð í bát sem var við hafnarmynnið. Maðurinn var talinn bráðveikur og var í fyrstu ákveðið að grípa til þess ráðs að ferja sjúkraflutningamenn til bátsins með öðrum björgunarbát. Síðan var ákveðið að kalla til þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja manninn í land. Þrátt fyrir björgunaraðgerðir var maðurinn úrskurðaður látinn þegar búið var að flytja hann í land. 24.7.2010 10:11
Slökktu eld í gaskút Eldur kviknaði í gaskút undir gasgrilli í Heiðargerði um sjöleytið í gærkvöld. Slökkviliðsmaður sem fréttastofa talaði við segir að venjulegast myndist 24.7.2010 09:49
Krefjast riftunar á kaupum Magma Þingflokkur Vinstri grænna hefur komið þeirri skýlausu kröfu á framfæri við samstarfsflokkinn í ríkisstjórn að fundin verði leið til að rifta kaupum kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy á HS Orku. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins varð þetta einróma niðurstaða þingflokksfundar sem haldinn var um Magma-málið í gærkvöldi. 24.7.2010 08:30
Hundrað hvalir skornir Sjómenn í Þórshöfn í Færeyjum ráku í gærmorgun á land grindhvalavöðu sem í voru um 110 skepnur. 24.7.2010 07:00
Leigusamningar áfram í erlendri mynt Íslandsbanki og Lýsing hafa komist að þeirri niðurstöðu að dómur Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingu lána nái eingöngu yfir kaupleigusamninga en ekki aðra leigusamninga svo sem fjármögnunarleigusamninga. 24.7.2010 07:00
Segir fjármálastöðugleika ekki ógnað „Ef þetta verður niðurstaðan verður fjármálakerfið fyrir talsverðu tjóni, en mun minna en ef samningsvextir verða látnir gilda,“ segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, spurður um áhrif dómsins á fjármálakerfið. Hann segir að staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu héraðsdóms sé fjármálastöðugleika ekki ógnað. Eitthvað tap myndi þó falla á ríkissjóð vegna málsins, vegna eignarhlutar í Landsbankanum og öðrum fjármálafyrirtækjum. 24.7.2010 06:00
Gera alheimsúttekt á jarðvarmageiranum Greining íslenska ráðgjafarfyrirtækisins Gekon og doktor Michaels Porter á íslenska jarðvarmaklasanum verður undirstaða heildarúttektar endurskoðunarfyrirtækisins KPMG á jarðvarmageiranum á heimsvísu, arðsemi hans og tækifærum. 24.7.2010 06:00
Fráleitt að lögbrot leiði til forsendubrests „Þessi niðurstaða er vissulega vonbrigði, en maður átti svo sem von á þessari niðurstöðu,“ segir Marinó G. Njálsson, stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna. Hann segir að það mikilvæga sé að nú fari málið til Hæstaréttar, þar sem endanleg niðurstaða fáist. 24.7.2010 05:00
Enn hægt að klífa Hnjúkinn Aðstæður fyrir göngu á Hvannadalshnúk eru góðar þessa dagana þrátt fyrir að komið sé fram yfir miðjan júlí og veturinn hafi verið snjóléttur. Helsti göngutíminn er í maí og fram yfir miðjan júní en aðstæður til göngu í sumar hafa verið óvenju góðar. 24.7.2010 04:00
Brotum fækkar um helming Umferðarlagabrotum í umdæmi lögreglunnar á Akureyri hefur fækkað um meira en helming milli ára. Í júní 2009 voru framin 332 umferðarlagabrot en 161 í júní í ár. 24.7.2010 03:15
Þingflokkurinn fundaði um Magma og héraðsdóm Þingflokkur VG fundaði í kvöld um Magma málið og dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um lánavexti sem kveðinn var upp í dag. 23.7.2010 21:27
Geymdi dópfé í bankahólfi pabba Tveir af mönnunum fimm sem voru í morgun dæmdir fyrir umsvifamikinn innflutning af kókaíni frá Spáni til Íslands voru einnig dæmdir fyrir peningaþvætti vegna sölu fíkniefna. 23.7.2010 20:12
Þjófarnir breyttu bátnum Báturinn sem var stolið af landi í Mjóaanesi við Þingvallavatn fyrr í mánuðinum er kominn í leitirnar. Lögreglan í Hafnarfirði fann bátinn í iðnaðarhúsi í Hafnarfirði nú á dögunum en þar fannst einnig eitthvað af þýfi og tæki til landaframleiðslu. 23.7.2010 15:23
Umferðin liggur norður Þung umferð liggur nú í gegnum Borgarnes og norður í land, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Lögreglueembættin hafa verið 23.7.2010 19:38
Gjaldþrot Álftaness sveitarstjórn að kenna Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjárhagsstöðu Álftaness segir að skuldir og aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins sjöfölduðust á tímabilinu 2006 til 2009. 23.7.2010 16:42
Skotturnar fá tvær milljónir í styrk Borgarráð hefur samþykkt að veita Skottunum, regnhlífasamtökum félaga og samtaka innan kvennahreyfingarinnar, um tvær milljónir í styrk í tengslum við kvennafrídaginn 24. október. Sóley Tómasdóttir Vinstri Grænum hafði harðlega gagnrýnt borgarstjórn fyrir að skipuleggja kvennafrídaginn án samráðs við Skotturnar. 23.7.2010 16:31
Reykjanesfólkvangur að verða ruslahaugur - myndir Bílhræ, tóm skothylki og hálfbrunnar rúmdýnur liggja eins og hráviði í Reykjanesfólkvangi. Göngugarpi ofbauð umgengnin og tók myndir af ruslinu. Starfsmanni Reykjanesfólkvangs blöskrar hvernig fólk kemur fram við náttúruna. Hann ætlar að loka afleggjaranum að námunni þar sem fólk hendir ruslinu og segir standa til að fjarlægja bílhræin og hreinsa svæðið á næstu vikum. 23.7.2010 15:16
Datt af dyraskyggni og ofan í kjallaratröppur Karlmaður á þrítugsaldri er töluvert slasaður eftir að hann datt fimm og hálfan metra niður af dyraskyggni og ofan í kjallaratröppur á húsi í Rauðagerði á tíunda tímanum í morgun. 23.7.2010 14:02
Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innlent