Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Landsbankinn mun þurfa að afskrifa nokkur hundruð milljónir Landsbankinn mun þurfa að afskrifa nokkur hundruð milljónir króna vegna sölu á dreifingarfyrirtækinu Parlogis. Bankinn lánaði fyrrverandi eigendum félagsins nær allt kaupverð þess og tók það svo yfir þegar móðurfélagið varð gjaldþrota á síðasta ári. 5.7.2010 18:33
Síminn ekki ríkisstyrktur að mati sérfræðinga Fjarskiptasjóður óskaði eftir umsögn fjármálaráðuneytisins til að taka allan vafa um að útboð sjóðsins, á háhraðanettengingum, gæti hugsanlega stangast á við ríkisstyrkjareglur ESB. Í tilkynningu frá Fjarskiptasjóði segir að það hafi verið álit sérfræðinga fjármálaráðuneytisins á sviði ríkisstyrkja að svo væri ekki. 5.7.2010 17:45
Grafir hafa áður verið opnaðar Engin fordæmi eru fyrir því að gröf sé opnuð eftir dómsúrskurð líkt og gert var í nótt með gröf Bobbys Fischer. Þórsteinn Ragnarsson, 5.7.2010 15:06
Viðburðarík mótmæli við Seðlabankann - myndir Það voru um fjögur hundruð manns sem mótmæltu tilmælum Seðlabankans og FME um seðlabankavexti á gengistryggðum lánum. Einn var handtekinn auk þess sem kona kastaði grjóti í áttina að lögreglunni. 5.7.2010 15:03
Vara við hvassviðri á morgun Veðurstofa Íslands varar við austan hvassviðri við suðurströndina og á Suðausturlandi á morgun. Seinni partinn á morgun mun djúp lægð nálgast úr suðri og því er spáð vaxandi austan- og norðaustanátt á öllu landinu. Annað kvöld er búist við austanhvassviðri við suðurströndina, frá Eyjafjöllum til Öræfa, og meðalvindi 15 - 20 m/s með vindkviðum allt að 40 m/s. 5.7.2010 17:35
Össur fer til Ungverjalands og Króatíu Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra heldur í dag til Króatíu og Ungverjalands í opinbera heimsókn. Hann mun eiga viðræður við æðstu ráðamenn beggja ríkja auk þess sem hann kynnir sér verkefni sem íslensk fyrirtæki standa að í báðum löndum. 5.7.2010 17:02
500 milljónum veitt til átaksverkefna í atvinnumálum í Reykjavík Borgarráð samþykkti tillögur nýs meirihluta borgarstjórnar að breytingum á framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar á aukafundi sínum rétt í þessu. 5.7.2010 16:06
Ísland fær undanþágur frá reglum um hvíldartíma bílstjóra Yfirstjórn ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, hefur samþykkt undanþágur fyrir Ísland frá nokkrum ákvæðum reglna um aksturs- og hvíldartíma atvinnubílstjóra í farmflutningum. Undanþágurnar gilda tímabundið frá 30. október næstkomandi til 15. apríl 2011. 5.7.2010 16:28
Skákborð úr heimsmeistaraeinvíginu 1972 til sölu Sérsmíðað skákborð sem notað var í heimsmeistaraeinvígi Bobby Fischer og Boris Spassky er nú til sölu. Það er stórblaðið New York Times sem greinir frá þessu - á sama degi og fréttir af uppgreftri af líki Bobby Fischer eru í heimsfréttunum. 5.7.2010 15:34
Fischer frábitinn svona meðferð Einar S. Einarsson, einn af forsvarsmönnum RJF hópsins, gagnrýnir uppgröftinn á líki skákmeistarans Bobby Fischer. Hann segir að eðlilegra hefði verið að leita fyrst að lífsýnum í íbúð Fischer, það hafi hins vegar ekki verið gert. 5.7.2010 14:47
Grjótkastarinn íhugar að keyra inn á Alþingi „Það er ekki þér að þakka að við fengum ekki grjótið í andlitið,“ hreytti lögreglumaður í Aðalheiði Gunnlaugsdóttur þegar blaðamaður ræddi við hana fyrir utan Seðlabankann í hádeginu í dag. Aðalheiður játaði að hafa kastað grjóti í áttina að lögreglunni en minnstu munaði að það hefði farið í höfuðið á einum lögreglumanninum sem blaðamaður ræddi við. 5.7.2010 14:30
Miðaldra kona grýtti lögreglumenn Grjóti var kastað í átt að lögreglunni á mótmælunum við Seðlabankann nú fyrir skömmu. Kona á miðjum aldri játaði að hafa kastað steininum og sagði það hennar skilaboð til stjórnvalda. Lögreglan hefur yfirgefið vettvanginn. 5.7.2010 14:05
Mótmæli við Seðlabankann - einn handtekinn Einn hefur verið handtekinn í mótmælunum við Seðlabankann. Átök brutust út nú fyrir skömmu þar sem lögreglan yfirbugaði einn mótmælandann. Lögreglan er klædd í hlífðarvesti og hefur aukin harka færst í mótmælin. 5.7.2010 13:20
Seðlabankinn læstur af öryggisástæðum „Mér sýnist að menn séu búnir að segja sitt og séu að fara," segir Stefán Jóhann Stefánsson, starfsmaður Seðlabankans. Dyrum Seðlabankans var lokað í öryggisskini vegna mótmælanna en ekki gripið til frekari aðgerða. 5.7.2010 13:04
Mótmælandi keyrði vélhjól á hurð Seðlabankans Bifhjólamaður sem tók þátt í mótmælum við Seðlabanka Íslands ók hjóli sínu fjórum til fimm sinnum á hurð bankans. 5.7.2010 12:59
Kristján Loftsson: Fréttaflutningur af útflutningi „njósnastarfsemi“ Um ellefu hundruð tonn af hvalaafurðum sem Hvalur hf. hefur veitt eru í frystigeymslu, en það er tæpur fjórðungur af því sem fyrirtækið veiddi í heild sinni á síðasta ári. Kristján Loftsson segir útilokað að losa þúsund tonn á Japansmarkað á einu bretti og því sé þetta í frystigeymslu. 5.7.2010 12:15
Kvartað til Umboðsmanns vegna tilmæla SÍ og FME Umboðsmaður Alþingis hefur fengið formlega kvörtun frá gengislánaskuldara vegna tilmælanna sem Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið sendu frá sér í síðustu viku um hvernig skyldi greiða af ólöglegum gengislánum þar til Hæstiréttur sker úr um vaxtakjör. 5.7.2010 12:14
Rektor vill ekki gefa upp nöfn umsækjenda Hjálmar Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands, vill ekki gefa upp nöfn þeirra sem sóttu um stöðu prófessors í leiklist við skólann. 5.7.2010 12:08
Tónlistarhátíð í Galtalæk - Engin Eldborg Engin líkamsárás hefur verið kærð eftir tónlistarhátíð í Galtalæk sem fór þar fram um helgina. Um 5000 manns hlýddu á tónleika Scooter en að sögn lögreglu fór hátíðin vel fram - betur en bjartsýnustu menn þorðu að vona. 5.7.2010 11:21
Mótmæli í hádeginu: Það stefnir allt í óefni „Það virðist allt stefna í óefni,“ segir Hörður Torfason, tónlistarmaður, en hann ætlar að sýna samstöðu og mótmæla í fyrir utan Seðlabankann í hádeginu í dag. Boðað hefur verið til mótmæla fyrir utan Seðlabankann vegna tilmæla bankans og FME varðandi vexti sem gengistryggðu lánin eigi að bera. 5.7.2010 10:39
Líkamsleifar Fischers grafnar upp í morgun „Það er búið að fullnægja dómi Hæstaréttar,“ svaraði Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, þegar hann var spurður hvort búið væri að grafa upp líkamsleifar skáksnillingsins Bobby Fischers. 5.7.2010 09:59
Enginn framboðslisti í Reykhólahreppi Ekki hefur enn borist framboðslisti til hreppsnefndarkjörs í Reykhólahreppi. Skilafrestur rann út á hádegi í gær. Endurtaka þurfti sveitastjórnarkosningarnar í hreppnum þegar gleymdist að senda upplýsingar um kosningarnar á íbúa í Flatey. 5.7.2010 09:22
Ræða hugsanleg málaferli vegna gjaldeyrisdómsins Fjöldi gesta hefur verið boðaður á sameiginlegan fund viðskiptanefndar og efnahags- og skattanefndar Alþingis sem hefst klukkan tíu í dag. 5.7.2010 08:47
Styttist í að örlög Polanskis ráðist Yfirvöld í Sviss ætla á næstu dögum að ákveða hvort pólski leikstjórinn Roman Polanski verði framseldur til Bandaríkjanna en þar er hann eftirlýstur fyrir að hafa nauðgað ungri stúlku á áttunda áratug síðustu aldar. 5.7.2010 07:54
Stefnir í sjósóknarmet Það stefnir allt í met sjósókn hér við land í dag. Um sex leytið í morgun voru um 800 bátar og skip á sjó við landið og fór fjölgandi. Þetta er meira en tvöfalt meiri fjöldi en á meðal degi. 5.7.2010 07:29
Villtust á Fimmvörðuhálsi Björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út upp úr miðnætti til að leita að tveimur íslenskum göngumönnum á Fimmvörðuhálsi, sem höfðu villst í þoku og kallað eftir hjálp. Björgunarsveitarmenn voru í stöðugu sambandi við göngumennina og gátu loks vísað þyrlunni á þá. 5.7.2010 07:02
Fimm þingmenn þegja um styrki Níu þingmenn í þremur flokkum greindu í júní frá prófkjörsbaráttu sinni 2006 hér í blaðinu. Bæði um heildarkostnað og hverjir veittu þeim hæstu styrkina. Enn eiga fimm þingmenn eftir að nafngreina styr 5.7.2010 07:00
Íslenska skattkerfið er skilvirkt segir AGS Íslenska skattkerfið er í grunninn skilvirkt og hafa breytingar bætt úr göllum sem á því voru. Á móti þykir hluti skattkerfisins flókinn og bjóða upp á skattaundanskot. 5.7.2010 07:00
Biður kröfuhafa afsökunar „Ég get ekki annað en beðið kröfuhafa afsökunar. Maður getur ekki verið stoltur þegar lagasetning á lánafyrirkomulagi sem hefur viðgengist í níu ár er dæmd ólögmæt,“ segir Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis. 5.7.2010 07:00
Hefur tæpast áhrif á mál Glitnis Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur úrskurðað að erlendir fjárfestar geti ekki sótt mál þar í landi á hendur erlendum fyrirtækjum fyrir hlutabréfaviðskipti á erlendum mörkuðum. 5.7.2010 06:30
495 fjölskyldur fengu aðstoð Alls 495 fjölskyldur í Kópavogi fengu fjárhagsaðstoð hjá Félagsþjónustu bæjarins árið 2009. Árið 2008 var þessi fjöldi 396. Tilkynningum til barnaverndar hefur einnig fjölgað milli ára, úr 641 í 762. 5.7.2010 06:00
Kærkomið að komast af gossvæðinu Afleysingar á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli hefjast í dag. Tveir menn á vegum Búnaðarsambands Suðurlands, Bændasamtaka Íslands og Félags kúabænda á Suðurlandi munu ferðast milli bæja á svæðinu og leysa bændur af í tvo til sjö daga í senn og ganga í þau verk sem til falla. 5.7.2010 04:00
Milljónalaun sögð of góð fyrir bæjarstjóra Minnihluti A-listans í bæjarstjórn Hveragerðis segir laun Aldísar Hafsteinsdóttur bæjarstjóra vera of há. Nýr ráðningarsamningur við Aldísi var ræddur á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag. Minnihlutinn benti á að samkvæmt honum yrðu laun og hlunnindi Aldísar um 1.050.000 krónur á mánuði. 5.7.2010 03:30
Vuvuzela lúðrar þeyttir við Seðlabankann - barið á dyr Um 500 manns eru saman komnir fyrir utan Seðlabanka Íslands á Arnarhóli þar sem tilmælum bankans og FME varðandi vexti sem gengistryggðu lánin eigi að bera er mótmælt. Fólkið framkallar mikinn hávaða, með búsáhöldum, trommum og Vuvuzela lúðrum sem hrellt hafa áhorfendur HM undanfarinn mánuð. 5.7.2010 03:00
Ellen á spítala eftir átök við lögreglu Söngkonan Ellen Kristjánsdóttir er á leið á bráðamóttökuna eftir að hafa lent í átökum við lögregluna í mótmælunum fyrir utan Seðlabankann. Hún segir að lögreglan hafi snúið upp á hönd hennar. 5.7.2010 14:14
Bílaumboð getur ekki selt notaða bíla Brimborg, eitt stærsta bílaumboð Íslands með um 200 starfsmenn, á enga notaða bíla til að selja fólki. Bílastæðið hjá fyrirtækinu er tómt en allir bílarnir voru færðir í bílaleigu fyrirtækisins. Forstjórinn vandar markaðsátakinu Inspired by Iceland ekki kveðjurnar. 4.7.2010 19:45
Breikkun Suðurlandsvegar kannski flýtt Samgönguráðherra segir koma til greina að flýta breikkun Suðurlandsvegar til að koma til móts við slæma verkefnastöðu verktakafyrirtækja. Hann vísar hins vegar gagnrýni um aðgerðarleysi á bug og bendir á að um 62 milljörðum verði veitt í samgönguframkvæmdir á næstu fimm árum. 4.7.2010 19:06
Spá verðhruni Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu á eftir að hrynja ef spár sérfræðinga Landsbankans ganga eftir. Sömu spár voru notaðar til að réttlæta allt að 75 prósent afslátt á fasteignalánum þegar þau voru færð úr gamla bankanum í þann nýja. 4.7.2010 18:30
Umferðin farin að þyngjast Umferð á Suðvesturhorninu hefur verið þétt í dag og gengið vel fyrir sig samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu. 4.7.2010 15:42
Afrakstur þrotlausrar vinnu starfsmanna spítalans „Við vitum að árangurinn er afrakstur þrotlausrar og óeigingjarnrar vinnu allra starfsmanna spítalans,“ segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, um nýlega skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga. 4.7.2010 14:03
Lögregla leitar að breiðleitum þjóf með gisnar tennur Um klukkan sjö í gærmorgun var tilkynnt um innbrot í Gesthús á Selfossi. Vitni sá til ungs manns koma út úr húsinu og fara í burtu á reiðhjóli. Í ljós kom að búið var að taka nokkuð magn af áfengi sem fannst skömmu síðar falið skammt frá húsinu. 4.7.2010 13:12
Nakinn maður á Suðurlandsvegi Lögreglumenn á Selfossi hafa verið á miklum þeytingi milli staða og sinnt margvíslegum verkefnum um helgina. Um kvöldmatarleytið í gær barst lögreglu tilkynning um að nakinn maður væri að húkka sér far á Suðurlandsvegi við Selfoss. Þegar lögreglumenn komu á staðinn var engan nakinn mann að sjá. Annað hvort hefur verið um gabb að ræða eða einhverjum vegfaranda litist vel á manninn og tekið hann upp, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. 4.7.2010 13:05
Fjölmörg atriði standa enn út af borðinu Fjölmörg atriði standa enn út af borðinu í viðræðum um Icesave málið en samninganefnd íslenskra stjórnvalda fundaði fyrir helgi með þeim bresku og hollensku um framhald viðræðna. Stjórnarandstöðunni er haldið upplýstri um gang mála. 4.7.2010 12:19
Alþjóðleg nefnd rannsakar banaslysið á Grundartanga Alþjóðleg rannsóknarnefnd kemur til landsins á morgun til að rannsaka banaslysið sem varð í Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga á þriðjudag. Forstjóri fyrirtækisins vonast til að fá betri upplýsingar um orsakir slysins þegar líður á vikuna. 4.7.2010 12:04
Fyrrverandi Veðurstofustjóri vill bæjarstjórastól 22 umsóknir bárust um starf bæjarstjóra Vesturbyggðar. Starfið var auglýst laust til umsóknar í síðasta mánuði og rann umsóknarfrestur út 27. júní. Aðeins tveir umsækjendanna eru búsettir á Vestfjörðum þar af einn í Vesturbyggð en það er Ragnar Jörundsson, núverandi bæjarstjóri bæjarfélagsins. 4.7.2010 10:51